Norðurland - 09.12.1911, Side 3
Ósannindum hrundið enn.
Það er ekki satt, sem þingmaður
Akureyrar, Guðl Guðmundsson bæjar-
lógeti ber fram og byggir nokkuð á
í grein sinni í 48. tbl, »Norðra« þ. á.,
að Bjarni Jónsson viðskiftaráðanautur
hafi sagt það á fundi (sem hann kall-
ar »Pukurfund« eftir »Norðra«) hér á
Akureyri, að sjálfstæðisflokkurinn yrði
í eindregnum meirihluta á næsta þingi.
Hvaðan sem þingm. hefir það, þá er
það tilhæfulaust, og er furða að hann
skuli hlaupa eftir svo óáreiðanlegum
heimildum, sem hann hlýtur að hafa
fyrir því.
Það er móðgun við Bjarna Jónsson
að bera slíkt fleipur fram, og það er
skylda að hrinda ósannindunum, ekki
sízt er þau eru borin fram af máls-
metandi manni. Engum heilvita manni
gat komið til hugar að fullyrða neitt
um það, hvernig ráðherra ætlaði að
skipa konungkjörnu sætin, og ráð-
herrann fer vafalaust sínu fram um
það, hvað sem hver segir, hvort sem
það er þingm. Dalamanna. eða þingm.
Akureyrar. En það munu flestir ætla,
að sannfæringu sína í sambandsmál-
inu muni Kristján Jónsson ekki selja
heimastjórnarmönnum, þrátt fyrir alt.
Fundarmaður.
UNIVÉRSAL er óbrigðult meðal við
gigt og taugagigt.
Konur ráða kosningu.
í borginni Seattle (framber: Sfatl),
sem er höfuðborg í einu (yngsta) rík-
inu við Kyrrahafið, er Washington heit-
ir, náði maður í fyrra sæti sem borg-
arstjóri fyrir fylgi hins versta skríls í
bænum. Hann heitir Hfram og er
hinn mesti uppivöðslu seggur. Hét
hann í fyrstu að gera hvern mann
bæði ríkan og sælan. En varla var
mánuður liðinn áður en slæmur kurr
var kominn upp f borginni, og einna
mest fyrir ofdrykkju og lauslæti. Lét
hinn nýi borgarstjóri hina óskamm-
feilnustu slarkara og gróðamenn öllu
ráða, og af þeim var einna verst
ræmdur sá, er settur var fyrir lög-
regluna. Sá piltur tók mútur hvar sem
hann gat og leyfði allar skammir og
lausung. Loks flaut út yfir, þegar þeir
kumpánar reistu skrauthýsi mikið, sem
f voru 250 herbergi eða íbúðir fyrir
kvenfólk; þvf óðara komst það í há-
mæli, að auk ósiðsemi, sem þar átti
hið bezta Gósenland, var þar daglega
markaður haldinn, og ungar stúlkur
seldar og keyptar. Þá þoldu hinir ráð-
settari borgarbúar ekki lengur mátið;
velferðarnefnd var sett og fundir hald-
nir, hvernig steypa mætti Híram og
hans félögum. Þau lög voru til, að
fella mætti bæjarstjóra frá völdum, ef
25 af hundraði kjósenda krefðist þess.
Nú fundust fáir, sem þyrði að gerast
opinberir forgöngumenn til að safna
nöfnum, því allir óttuðust þá, sem í
völdunum sátu, og fengust f fyrstu
fáa'í undirskriftir. Þá komu konurnar
fram á vígvöllinn og skökkuðu leikinn,
enda áttu þær atkvæðisrétt. Þær gáfu
nöfn sfn og þær héldu fyrirlestra með
mikilli djörfung og skörungsskap. End-
irinn var sá, að Híram var rekinn frá
völdum, nú í haust, og lögregluvörð-
urinn dæmdur í þrælkun. Þannig lauk
»Belzebúbs-stjórnin«, er Hframs regi-
mentið var kallað. M. /.
\
Bryndrekar ýmsra þjóða.
100 í smíðum eða fullgerðir.
Um 100 bryndrekar eru nú í smíð-
um eða fullgerðir hjá ýmsum þjóðum
heims. Eru það alls 13 þjóðir, sem
annað hvort eru að koma sér upp bryn-
drekum eða hafa gert ráðstafanir til
þess. Eru þær taldar hér á eftir og
eins skipin.
fullg.
12
6
hl.af st.
9
7
4
7
2
1
1
1
Bretar
Þjóðverjar
Bandaríkin
Brazilía
Japanar
ítalir
Austurríki
Rússar
Frakkar
Spánverjar
Argent.
Chilie
Tyrkir
Fyrsta bryndekann var
að smíða á Englandi árið
stærsta og veigamesta
eiga Þjóðverjar og
1 sm.
11
8
5
3
3
3
4
3
2
2
2
byrjað
19051
bryndrekann
heitir Thur-
ingen, er 22,800 tonna. Dýastir eru
drekar Rússa. Var áætlað í fyrstu
þeir mundu kosta hver um sig 10,-
360,000 dollara, en þeir munu verða
nokkru dýrari. Að öllu samlögðu er
herskipastól) Breta langmestur og skip
þeirra traust og að öllu vel búin.
Allur heimurinn þekkir Universal.
Hefir þú reynt UNIVERSAL?
200 ára afmælis Skúla fósseta
Magnússonar verður minst hér á
Akureyri með samkomu í Good-templ-
arahúsinu afmælisdag hans 12. þ. m.
Matth. skáld Jochumsson hefir ort
kvæði um Skúla, sem þar verða sung-
in; síra Jónas Jónasson kennari held-
ur fyrirlestur um Skúla. Ýmsir verða
þar fleiri ræðumenn, og verður síðar
auglýst hversu samkomunni verður
hagað.
Bæjarbúar ættu að fjölmenna á þessa
samkomu, þvf að það er ánægjulegt
að minnast mætra þjóðskörunga og
hefir heillavænleg áhrif, og Skúli
Magnússon stendur í fremstu röð,
þeirra manna, er hafið hafa ísland til
gengis.
Agóðinn af samkomunni rennur f
minningarsjóð Skúla Magnússonar.
Universal ^æst ^ ^estum verzi-
unarstöðum landsins.
Aukaútsvör
i Akureyrarkaupstað fyrir árið 1912.
Að þessu sinni hefir verið jafnað
17,955 krónum á 864 gjaldendur.
í fyrra var jafnað 17,755 krónum á
820 gjaldendur. Svigatölurnar merkja
útsvarshæðim fyrra ár.
Hér verða taldir allir þeir er gjalda
io krónur eða meira.
Qísli tielzasson
kaupmaður í Reykjavík andaðist 21.
f. mán. Banamein hans var berkla-
veiki.
Dr. Quðm Finnbozason
er skipaður fyrri aðstoðarbókavörð-
ur við Landsbókasafnið í Reykjavík.
Böðvar Krístiánsson
cand. mag. er skipaður aukakenn-
ari við almenna mentaskólann.
SönzfélaeR Oýeian"
iðkar nú aítur söng af kappi eftir
sumarhvíldina, sem hún hefir tekið sér,
svo sem flest önnur félög gera hér.
Nokkuð hefir hún mist af kröftum en
fengið aðra nýja f staðinn. Söngur
»Gýgju« þótti einhver bezta skemtun
hér í fyrravetur, og má vænta þess
að hún skemti bæjarbúum einnig vel
f vetur.
Látinn
er Jón Elíasson útvegsbóndi og kaup-
maður í Flatey á Skjálfanda, aldrað-
ur maður, merkur og vel látinn.
Hann lætur eftir sig konu og börn.
Albýðufyrirlestrarnir
Matth. skáld Jochumsson hélt 2.
fyrirlesturinn um helgina var. Hann
var um landnám á íslandi, og um
líf og háttu landnema; var hann að
ýmsu leyti fróðlegur, og margt vel
sagt sem vænta mátti.
Veðursímskeyti til flls.
frá 3. til 9. des. 1911.
Ak. Gr. Sf. fs. Rv. Þh.
s. 45 2-5 00 3.2 44 7.0
M. 0.9 -2-5 1.4 1.0 0.0 3-i
Þ. 2.0 0.0 3-9 4.1 «•5 5 4
M. o-5 -i-5 3-5 -0.5 -2.3 5 6
F. 3° o-5 3.6 4.1 0.0 4.6
F. 0.0 -3-o 2.8 0.4 -1.8 **
L. -2.0 0.0 2.9 2.1 0.0 **
Kl. (f. h.) 7 — 7 - 6 — 7 - - 7 - - 6
** Vantar vegna símaslita.
1100 kr. Höepfners verzlun (1050).
1050 — Kaupfélag Fyfirðinga (700).
650 — Gránufélagsverzlun (680).
640 - J. V. Havsteen (625).
600 — Edinborgarverzlun (600).
550 — D. D. P. A. (steinolíufél.(5 50).
525 — Sn. Jónsson kaupm. (500).
325 — Jóh. Þorsteinsson kaupm.
(320).
320 — Brauns verzl. Hamburg (310).
300 - «Thora« og »Palina« (síld-
veiðaskip).
275 — Vigfús Sigfússon veitinga-
sali (300).
270 — Gudm. Efterfl. verzlun (250).
»Delphin« (síldveiðaskip).
250 — Guðl. Guðmundsson bæjar-
fógeti (240).
240 — Otto Tulinius kaupm. (200).
220 - »Danía« (síldveiðaskip).
200 — »Súlan« (síldveiðaskip).
170 — Sig.Sigurðsson kaupm.(i45.)
150 — Chr. Havsteen kaupstj. (140)
St. Stefánsson skólemeist-
ari (145).
14 5 — Sigvaldi Þorsteinsson kaup-
maður (135).
135 — Júlíus Sigurðsson bankastj.
(130),
O.C. Thorarensen lyfsali(i 2 5)
130 — Geir Sæmundsson vixlubisk-
up (120).
Sig. Hjörleifsson ritstj. (110).
125 — St. Stephensen umboðsmað-
ur (110).
120 — Ásg. Pétursson ktupm. (100).
110 — Steingr. Matthíasson læknir
(125).
Klæðaverksmiðjan «Gefjun«
(100).
10 5 — «Gufubátsfél. Norðlendinga*
(IOO).
Metusalem Jóhannsson kaup-
maður (100).
10 0 — A. J. Bertelsen verksmiðju-
stjóri (90).
100 kr. Björn Lfndal málfylgir(100).
Kolb. Árnason kaupm. (95).
95 — Anna Tómasdóttir veitinga-
kona (95).
M. Kristjánsson kaupm.(ioo).
Sigtryggur Jónsson (100).
85 — Sigmundur Sigurðsson úr-
smiður (45).
80 — Verzlunin Eyjafjörður (65).
75 — Thordenskjold kolasölufélag
(50).
70 — Lárus Thorarensen, verzlun-
armaður (70).
Þórður Thorarensen, gull-
smiður (65).
65 — ÁrniÞorvaldssonkennari(55).
Pétur Pétursson verzlunar-
stjóri (65).
60 — Bjarni Einarsson skipasmið-
ur (65).
Bogi Daníelsson veitingam.
(60).
Axel Schiöth bakari (70).
Sigtr. Jóhannesson kaupm.
(80).
Valdemar Thorarensen mál-
fylgir (60).
55 — Hallgr. Davíðsson verzlunar-
stjóri (55).
PállJónssonverzlunarstj.(40).
Sig. Einarsson dýralækn.(45).
Þorkell Þorkelsson kennari
(55)-
50 — Bjarni Jónsson bankastj.(ð5).
Gook trúboði (40).
Guðm. Jóhannesson verzlun-
arstjóri (50).
Guðm. Ólafsson trésm. (45).
Kristján Sigurðsson fyrver-
andi verzlunarstjóri (60).
48 — »Viktory« (skip).
45 — Gísli J. Ólafsson símstj. (45).
Guðm. Hannesson & Sig.
Sumarliðason kaupm. (45).
Hallgrfmur Kristinsson kaup-
félagsstjóri (40).
Matth. Jochumson skáld (40).
40 — Anton Jónsson smiður (45).
Jóh. Christensen kaupm.(40).
Guðm. Vigfússon skósm.(4o).
Carl Schiöth (35).
Sigríður Ingimundard. veit-
ingakona (35).
38 — Eggert Laxdal (38).
Ðalduin Ryel (30).
Sófonfas Baldvinsson (35).
36 — Jón Borgfjörð (36).
35 — Einar Gunnarsson kaupmað-
ur (40).
Sápuverzlunin.
Sigurður Bjarnason kaupm.
(40).
Stefán Ó. Sigurðsson kaup-
maður (25).
33 — Guðl. Sigurðsson skósmiður
(33)-
Jón Einarsson rakari (38).
32 — Halldóra Bjarnadóttir skóla-
stýra (28).
30 — H. Bebense klæðskeri (35).
Einar Einarsson verzlunar-
maður (30).
Friðrik Möller póstm. (25).
Páll Jónsson kennari (30).
Pálmi Jónsson smiður (30).
Rögn. Snorrason verzlunar-
stjóri (25).
H. Schiöth bankagjaldk.(5o).
Sigurjón Jóhannesson frá
Laxamýri (30).
Stefán Jónason skipstj. (30).
Valdemar Steffensen læknir
(3°).
Þórður Thoroddsen læknir.