Norðurland - 12.07.1913, Blaðsíða 3
Nl.
103
Yei ðlag
* í verzlnn
J. V Havsteens
Oddeyri
í júlí mánuði, mót peningum og vörum.
Rúgur (hvert 50 kg.) 9. 50. Rugmél 10.00. Bankabygg 13.50. Hveiti 15.00.
Hálfhrísgrjón 14.00. Hafragrjón völsuð 10.00. Verð á hvítri ull No. 1 mót
vörum og í skuldir, er kr. 2.00 pr. kg., mislit ull 0.60 (mót peningum
eftir samkomulagi). Hvítir heilsokkar og vetlingar eru vel borgaðir. Verk-
aður fiskur, og fiskur upp úr salti er einnig
mjög vel borgaður.
ekki breyta því án leyfis stjórnar-
ráðsins.
19. Um breyting á lögum 16. nóv. 1907
um lán úr landssjóði til byggingar
íbúðarhúsa á prestssetrum. Að láns-
upphæðir fari ekki fram úr 5000 kr.
og að húsin verði þar sem því verði
viðkomið bygð úr steini eða stein-
steypu, og gerð eftir uppdrætti, sem
landstjórnin samþykkir.
20. Um sérstök eftirlaun handa skáld-
inu Steingrími Thorsteinsson rektor,
að við þau verði bætt 1333^33 svo
að hann fái alls 4000 kr. eftirl. þegar
hann lætur af embætti sínu.
21. Um breyting á lögum um fræðslu
barna, að laun umsjónarmanns
fræðslumála hækki úr 3000 kr. upp
í 4000 kr. og að núverandi fræðslu-
málastjóri fái strax hæstu laun.
22. Um breyting á lögum um kennara-
skóla í Reykjavík, að vera skulu 4 *
fastir kennarar. Skólastjóri með
2400 kr. byrjunarlaunum, er hækki
upp í 3000, auk ókeypis bústaðar,
annar og þriðji með 2200, er hækki
upp í 3000, kr. og fjórði kennari
1600, er hækki upp í 2400 kr.
23. Um breyting á lögum um stjórn
Landsbókasafnsins. Landsbókavörð-
ur skal hafa 3600 kr. að byrjunar-
launum, er hækki upp í 4200 kr., I.
aðstoðarbókavörður 2400 kr., er
hækki upp f 3600 kr„ og 2. að-
stoðarbókavörður 2000 kr., er hækki
upp í 3000
24. Breyting á lögum um laun íslenzkra
embættismanna. Biskup, landritari
og forstjóri landsyfirréttar, skulu
hafa 5000 kr. að byrjunarlaunum, er
hækkar upp í 6500. Skrifstofustjórar
stjr. skulu hafa 3600—3800. Með-
dómendur í landsyfirrétti 4000 til
5000 og sömuleiðis póstmeistari.
landsímastjóri og verkfræðingur
landsins. Forstöðumaður mentaskól-
ans auk leigulaus bústaðar eða 600
kr. í uppbót 3200—4200 og yfir-
kennari 3600—4200, adjunktar
2400—3600 og tímakennarar, er
kenna að minsta kosti 24 stundir
á viku, 2000 kr. árslaun.
25. Um verkfræðing landsins, að hann
skuli vera skipaður af konungi.
26. -27. Um málaflutningsmenn. Ann-
að frv. er breyting og viðauki við
tilskipun 15. ág. 1832, að venjulega
skuli lögfræðingi falin málaflutning-
ur fyrir undirrétti í Reykjavík, og
hitt er um það, að til þess að fá
málafærsluleyfi við landsyfirréttinn
þurfi auk skilyrðis í lögum 20. okt.
1906, að hafa áður fengist við önn-
ur lögfræðingsstörf í 3 ár.
28. Um mannskaðaskýrslur og rann-
sókn á fundnum Kkum. Að bæjar-
fógetar, sýslumenn eða hreppstjór-
ar skuli vera »löggæzlumenn«, sem
rannsaki fundin lík og dauðdaga
þeirra er deyja voveiflega, og sömu-
leiðis um slys á sjó.
29. Um sparisjóð. Skipaður skal um-
sjónarmaður með 1200 kr. árslaun-
um, er hafa skal eftirlit með spari-
sjóðum, og auk þess eru ítarleg
fyrirmæli um stjórn og störf spari-
sjóða.
30. Um vatnsveitingar.
31 Um sjódóma og réttarfar í sjó-
málum, að fastir sjódómarar skuli
vera í kaupstöðum og utan kaup-
staða, ef þörf þykir, og skulu einka-
mál og refsimál, sem um ræðir í
siglingarlögum, eiga undir dómnum.
32. Breyting á lögum 22. nóv. 1912
um ritsíma- og talsfmakerfi íslands.
33. Um ábyrgðarfélög. Abyrgðarfélög,
sem hér starfa, skulu hafa aðalum-
boðsmann, sem stjórnarráðið lög-
gildir, og verður félagið að hafa
hér varnarþing og setja tryggingu
fyrir greiðslu ábyrgðar, og skulu
öll ábyrgðarlélög vera háð eftirliti
stjórnarinnar.
34. Breyting á lögum um leynilegar
kosningar og hlutfallskosningar til
bæjarstjórna í kaupstöðum, að kjós-
andi megi breyta röðun á þeim
lista, sem hann vill kjósa.
X
íslandsbanki.
Aðalfundur bankans var haldinn 2.
þ. m. Fundarstjóri var kosinn Halldór
Daníelsson yfirdómari. Hér skal getið
þess helzta, er á fuudinum gerðist:
1. Lesin upp skýrsla fulltrúaráðs
bankans um starfsemi bankans síðastl.
ár. Umsetning bankans var meiri það
ár, en nokkru sinni áður.
2. Lagður fram reikningur bank-
ans fyrir árið 1912 skýringar gefnar
á helztu liðum hans. — Samþykt að
hluthafar fái 5 ^/2 °/o af hundraði í arð
af hlutafé sínu. Landssjóður fær 9418
krónur. Varasjóður eykst um rúm 33
þúsund krónur. Bankastjórninni var í
einu hljóði gefin kvittun fyrir reikn-
ingsskilum síðastliðið ár.
3. Ludv. Arntzen hæstaréttarmál-
færslumaður var í einu hljóði endur-
kosinn í fulltrúaráðið af hluthafa hálfu.
4. Endurskoðandi var endurkosinn
amtm. J. Havsteen með 4711 atkv.
Nicolaj Bjarnason kaupm. fékk 1140
atkv.
5. Skýrt frá að bankastjóri E. Schou
JCýkomið í oerzlun
J. V. Jfausteens
Qddeyri,
margar teg. af ilmvatni t. d. Gyldenlak, Clematic, Violette, Heliotrop,
Lavendelwater, Vinola, glösin 15 — 85 au. Lyktar-Smellingsaltgl. 65 au.
Raysápa, Sólskinssápa og margar fleiri sáputegundir, Brillantine,
Odol, Javol, þessar vörur eru mjög góðar en þó ódýrar. Ennfremur
mikið úrval af tilbúnum KARLMANNAFATNAÐr sem er seldur
ódýrt eftir gæðum. Olíufatnaður handa sjómönnum og reiðkápur.
Marskonar fataefni og hin alkunna hvítu lerept sem eru stein-
ingarlaus. Hálfklæði í kvennfatnað, metirinn á kr. 1.35. Hálstau, silkitrefl-
ar, bindislips, silkitvinni og almennur tvinni, kefli á 10 aura, vasaklúlar
hvítir og mislitir frá 10 aurum. Yfirleitt er verzlunin svo vel birg af vefn-
aðarvörum, að hver og einn getur fengið par vörur við sitt hæfi.
Eimskipafélag íslands.
Sökum pess, að oss hafa borist úr ýmsum áttum óskir um, að frestur-
inn fyrir hlutaáskriftum til félagsins verði lengdur fram eftir pessum mán-
uði, höfum vér ákveðið að framlengja hann til 1. ágúst þ. á. Jafnframt
biðjum vér umboðsmenn vora að senda skrifstofunni hér í bænum jafnan,
þegar tækifæri gefst, uppiýsingar um hve mikið safnast.
Reykjavík, 1. júlí 1913.
Bráðabyrgðarstjórnin.
Nokkrar
duglegar stúlkur
geta fengið atvinnu við
-^====35 síldarsöttun "——
á „Jötunheimum" með því að snúa sér sem fyrst til
Jóh. Porsteinsson
í Hamborg.
Tvö hreindýrshorn samanbundin
merkt Jón P. Ólafsson Isafjörður
sem væntanlega liggja á afgreiðslustað D. F. D. S. einhverstaðar - helst á sviðinu milli
Húsavíkur og ísafjarðar, síðan að s/s „Hólar" voru þar á ferð í septenber 1912 - bið
eg nú vinsamlega hvar sem finnast að senda, með ofangreindri áritan og gjöra mér grein
fyrir skilunum, og kostnaði.
Húsavllt 9. júlí lgl3.
J. Hálfdanarson.
(Afgrm. D. F. D. S.)
hefði sagt upp stöðu sinni frá næsta
nýári, en verið af fulltrúaráðinu veitt
lausn frá byrjun þessa mánaðar sakir
heilsubrests. — Þeir Sighvatur Bjarna-
son og H. Tofte yrðu frá sama tíma
bankastjórar með jófnum völdum og
jöfnum launum. Þriðju bankastjórastöð-
unni yrði fyrst um sinn haldið óveittri
samkvæmt því, er ályktað hefði verið
í fyrra, en Kr. Jónsson háyfirdómari
væri til bráðabirgða settur sem vara-
maður í stjórn bankans,- þó eigi nema
með i—2 kl.st. vinnu á dag.
6. Bæði formaður bankaráðsins, ráð-
herra Hannes Hafstein og mættir hlut-
hafar þökkuðu bankastjóra Schou, sem
nú færi frá bankanum fyrir starfsemi
hans og áhuga fyrir bankanum frá
stofnun hans.
í
ýlkureyri.
Ouðl. Quðmundsson sýslumaður og
bæjartógeti hefir fengið tveggja mán-
aða sumarfrí sökum vanheilsu. Cand.
júr. Júlíus Havsteen ér settur til að
gegna embættinu þann tíma.
tiinrik Thorarmsen (sonur lyfsala
O. C. Thorarensen) kom hingað ný-
skeð landveg frá Rvík. Hann hefir nú
lokið studentaprófi með ágætri einkun
og siglir f næsta mánuði á háskólann
í Khöfn.
Friðjón Jensson læknir kom hingað
til bæjarins alkominn á mánudaginn
var. Hann er nú byrjaður hér á tann-
lækningum, enda var hér full þörf á
tannlækni.
Gestir í bœnum. Dr. Ólafur Daní-
elsson, Ólafur Thorarensen bankarit-
ari í Rvík., sr. Jón Arason á Húsavík.
X
Ojaldkeramðllð
var nýlega lagt í dóm við yfirrétt-
inn. Sagt er að dómararnir víki allir
sæti.
Utan úr heimi.
Varnarmeðal gegn barnaveiki álítur
prófessor Behring í Berlin (sá er fann
upp barnaveikis-smimý að hann hafi
fundið. Það er notað sem bóluefni og
á að verja því að börn fái barnaveiki.
Meðalið hefir þegar verið talsvert reynt
og hefir gefist vel, þó eigi sé full
vissa enn fengin fyrir verkunum þess.
X