Norðurland - 18.10.1913, Side 2
I5s
Hlufhafafundur
i Verksmiðjufjelaginu á AKureyri
verður haldinn mánudaginn 17. nóvember n. k.
kl. 12 á hádegi, á »Hotel Akureyri«, sem fram-
hald af fundi þeim sem haldinn var þar í dag.
Fundarefni hið sama.
Mjög áríðandi að allir hluthafar komi á fundinn,
Akureyri 18. október 1913.
Framkvœmdarstjórnin.
Jólagjafasjóður
Chr. kaupmanns johnasson.
Áður hefir hér í blaðinu verið laus-
lega sagt frá hinni höfðinglegu sjóð-
stofnun Chr. Johnasson. Hann aíhenti
landritara Kl. Jónssyni f vor 3000
krónur, er hann bað landritara að setja
á vöxtu, í því augnamiði, að fátækustu
börnunum í barnaskóla Akureyrar yrðu
gefin ný föt fyrir jólin. Skal 3/4 hlut-
um vaxtanna varið til þess árlega og
hvert barn fá 30 krónur, en hluta
vaxtanna skal leggja við höfuðstólinn.
Landritara (Kl. J.) bað Johnasson að
sjá um ávöxtun sjóðsins og hafa alla
stjórn hans meðan hann lifði, en að
Kl. Jónssyni látnum, eiga bæjarfóget-
inn og sóknarpresturinn á Akureyri
að stjórna sjóðnum og úthluta jóla-
gjöfunum úr honum til barnanna, eftir
tillögum skólastjóra eða skólastýru.
Svo var yfirlætisleysi gefandans mikið,
að ekki var við það komandi, að kenna
mætti sjóðinn við hann, og er oss ekki
enn kunnugt um hvaða nafn landritari
velur sjóðnum, en hann gerir það og
semur skipulagsskrána eftir fyrirmæl-
um gefandans.
Chr. Johnasson rak verzlun hér á
Akureyri um mörg ár. Orðlagt var
jafnan hve hann var barngóður, og er
óhætt að fullyrða, að margir sem nú
eru fullorðnir, bera ávalt hlýjan hug
til hans frá þeim árum. Og þessi
barngæði hans hafa enn kotnið fagur
lega í ljós, með því að hugsa til smæl-
ingjanna og hlúa að þeim með stofn-
un sjóðsins. — Hann hefir dvalið f
Reykjavík undanfarin ár, en fór til út-
landa í sumar og mun óráðið hvert
hann kemur hingað til lands aftur. En
hvar sem hann dvelur, munu fátæku
börnin á Akureyri, sem njóta örlætis
hans, ávalt minnast hans með þakk-
læti og óska að hamingjan strái sól-
argeislum á veg hans, eins og hann
hefir gert á veg þeirra.
X
llm láð og lög.
Símfréttir i dag.
— /. P. Brillouin sem var sendi-
konsúll Frakka i Reykjavik fyrir
nokkrum úrum, en hefir fengist við
að reyna að setja ýms fyrirtæki ó
stofn syðra siðan hann lét af þvi
starfi 1911 — er nú orðinn konsúll
Frakka í Argentina.
—Stœrsta vélaskipi, sem bygt hefir
verið hér ú landi, hefir Garðar stór-
kaupmaður Gislason látið hleypa af
stokkunum í Reykjavik og er það
ætlað til flutninga sérstaklega. Pað
er 60 feta langt og hefir 38 hestafla
vél. Aðalbyggingameistari þess hefir
verið O. Ellingsen. Skipið heitir
„Hera“.
— Um Húnavatnssýslu sœkja:
Ari Jónsson aðstoðarmaður í stjórn-
arráðinu, Bogi Brynjóljsson i Khöfn,
Björn Pórðarson settur sýslumaður
Húnvetninga, Kristján Linnet yfir-
dómslögmaður, Magnús Guðmunds-
son sýslumaður Skagfirðinga, Sig-
urjón Markússon yfirdómslögm. i
Stykkishólmi.
— Landsyfirréttardómur verður
að sögn kveðinn upp i gjaldkera-
málinu annan mánudag.
— Bátstapi varð við Miðnes syðra
á miðvikudagskvöldið, fórst þar vél-
arbátur úr Reykjavik með þremur
mönnum er hétu Magnús Guðmunds-
son, Baldvin Kristjánsson og Guð-
jón Bjarnason.
— Sig. Júl. fóhannesson er kom-
inn til Ameriku. Hann sendi kvœði
mikið til Reykjavikurblaðanna, þeg-
ar eftir heimkomu sína.
— / Brautarholti brann 20. hesta
töðuhey um siðust helgi.
— „Kamelíedamen“ hejir verið
leikin fjórum sinnum i Rvik fyrir
fullu húsi.
X
Mannskaði enn vestra.
ísaýirði í dag.
Vélarbátur fórst i gœrdag. Var á
leið úr Súgandafirði til Önundar-
fjarðar, til þess að sækja lœkni.
Veður var vont, norðvestansjór og
dimm éljadrög. Báturinn var stór
og vandaður en alveg nýr og ó-
reyndur og vélin sömuleiðis. Haldið
er að báturinn hafi farist við svo-
nefnt Sauðanes, hafi farið nærri
landi vegna óveðursins, en lent ef
til vill á sker eða jafnvel hrakið ai-
veg að landi og farist i brimgarð-
inum. Fjórir menn voru á bátnum
og fórust allir. Peir hétu: Ásgeir
Kristjánsson, Jón Friðriksson, Bjarna-
sonar Jrá Mýrum, Benedikt Guð-
mundsson og Halldór Gunnarsson,
allir úr Súgandafirði og menn á
bezta aldri.
X
Símfréttir frá útlöndum.
— Panamaskurðinum er bráðum
lokið. (Aðgerðinni og uppgreftrinum
á þeim svæðum er skriður höfðu
Jallið i hann.) Siðasta hajtið var
sprengt sundur á laugardaginn.
— Maður sá sem fundið hejir upp
„Diesel“-vélina, var á ferð til Eng-
lands í siðustu víku, en hvarf á
skipinu og veit enginn hvað af hon-
um hefir orðið.
— Loftherskip þýzkt, með 24
mönnum, sprakk i skemtijerð yfir
Berlín i jyrradag. Brotin og tætlur
af líkunum féllu niður i borgina.
— Eldur kom upp i stærstu kola-
námu Englands um siðustu helgi.
Fjöldi vetkamanna er þar innibyrgð-
ur. Unnið af öllum kröftum að
björgun þeirra, en óhjákvœmilegt
talið að fjöldi þeirra láti lifið.
—Eldur kom upp á farþegaskipinu
„Volturno“ stærsta skipi „Holland-
Amerikalinan“ á þriðjudaginn var
Skipið var þá úti á miðju Atlanz-
hafi. Loftskeyti kölluðu næstu skip
til hjálpar. „ Volturno“ brann til
kaldra kola og allir um borð fóru
í bátana. Af þeim er nú bjargað
521 mönnum, 136 menn vantar enn.
X
Eimsklpafélaarlð.
Sfmað er frá Winnipeg til Reykja-
víkur að vinir eimskipafélagsins vestra
hafi haldið fjölmennan fund um málið
í Winnipeg og hafi þar verið ákveðið
að taka rnjög tíflega hlut í stofnun
félagsins með almennum hlutabréfa-
kaupum. Jafnframt er þess látið getið
að Vestur-íslendingar vilji gera þetta
fyrst og fremst til að sýna þjóðrækni
sína og velvildarhug til íslands. Verði
þeim vel fyrir.
Stjórnarskrármálið.
Umrœður í Danmörku.
Símfrétt.
Dönsk blöð ræða tnikið um stjórn-
arskrárbreytingarfrumvarp alþingis,
og flest heldur óvingjarnlega. Knud
Berlín hamast móti því og er ríkis-
ráðsákvæðið, eða breytingin frá nú-
verandi orðalagi, honutn sérstaklega
þyrnir í augum. Getgátur eða orða-
sveimur er og um, að ráðherrarnir
dönsku leggi mjög eindregið rríóti
málinu við konung. Sagt að Hannes
Hafstein eigi við mikla örðugleika
og mótspyrnu að etja í Kaupmanna-
höfn um öll íslenzk mál. Danir með-
al annars mjög ergilegir yfir gufu-
skipaferðaúrslitunum á alþingi.
x
/\kureyri.
Oddur Björnsson prentsmiðjueigandi
fór til Reykjavíkur á »Flóru« og kem-
ur heim aftur á henni.
Ragnar Ólafsson kaupmaður fór
snögga ferð til Skagafjarðar um helg-
ina og kom aftur á »Ingolf«.
Afmœli. Halldór Skaptason ritsíma-
stjóri 20. október.
Hjúskapur. Stefán Jóhannsson sjó-
maður og ungfrú Kristjana Edílons-
dóttir.
Slysfarir. Kristín Sigurðardóttir kona
Guðmundar Jónssonar í Glerárholti
andaðist hér á sjúkrahúsinu í síðustu
viku. Hún hafði fengið Htilsháttar á-
verka innan í nefið er snerist í svæsn-
ustu heilabólgu og var hún flutt á
sjúkrahúsið aðfram komin. Hún lætur
eftir sig sjö ung börn.
Strœtagerð. Þessa dagana hefir ver-
ið hækkaður upp og breikkaður að
mun kafli af Hafnarstræti, frá Búðar-
læknum og norður fyrir brauðgerðar-
hús A. Scbiöth. Var það þörf og góð
vegabót. Enn fremur hefir verið lagt
holræsi frá sjúkrahúsinu og beint j
sjó fram og var það einnig þarfaverk.
Aðkomumenn. Ásmundur Gíslason
prófastur á Hálsi, Kr. Eldjárn Þórar-
insson prestur á Tjörn, Stefán Stef-
ánsson alþm. í Fagraskógi.
JVIenfhol-
Haramellur
fást á ApotheKinu.
Barnaskólinn var settur á þriðjudag-
inn í honum eru 135 börn. Kennarar
hinir sömu og áður.
Sa/nsœti héldu kennarar barnaskól-
ans Páli rithöfundi og kénnara Jóns-
syni, í leikhúsinu á jiriðjudagskvöldið,
í tilefni af því að hann hefir kent 1'
30 ár í barnaskóla Akureyrar og ver-
ið forstöðumaður skólans um 20 ár.
Margir af lærisveinum Páls eru orðnir
nýtir menn í góðri stöðu.
„íslands Falk“ kom híngað á þriðju-
daginn vestan um land og fór daginn
eftir. Ætlaði að svipast um eftir út-
lendum botnvörpungum nbrðaustan
við landið, koma við á Seyðisfirði og
fara til Reykjavíkur.
Baðhús hefir lengi vantað á Akur-
eyri, til mikilla óþæginda fyrir bæjar-
búa og minkunar fyrir bæinn. En nú
verður ráðin bót á þvf, eins og mörgu
öðru, þegat vatnsleiðslan kemst í gott
lag. Eru ráðagerðir um að bærinn
byggi baðhús og láti reka á sinn
kostnað, enda er enginn vafi á, að
það mundi borga sig vel. Heyrst hefir
og, að maður hér í bænum hafi í huga
að setja á fót lítið baðhús og reka
fyrir sinn reikning.
X
Síldarolíuverksmiðian »Æ*ir«
í Krossanesi hættir störfum um
þessar mundir, því hún hefir lokið að
bræða aila þá síld er hún keypti í
sumar er þó var nálægt 50,000 tunn-
ur. Ur því er nú búið að vinna um
3000 föt af olíu og um 8000 sekki
af »guano«. Næsta ár vill verksmiðj-
an kaupa margfalt meira af síld, helzt
svo nóg verði til að vinna úr allan
veturinn. Annar forstjórinn, hr. Schrez-
enmeier, sagði »N1.« nýlega, að næsta
ár yrði reynt að haga bræðslunni á
þann hátt, að ekki yrði vart við ó-
daun þann sem lagt hefir af gufunni
frá verksmiðjunni f haust, ög ollað
hefir ólofti hér í bænum þegar andað
hefir norðan fjörðinn. Mun Akureyr-
ingum og Eyfirðingum þykja það góð
tíðindi.
1
VerOlasr ■ Kaupmannahöfn,
var svo sem hér segir, á vörum er
komu með síðustu skipum, alt pr. 100
kilo.: Rúgur 12.75, Rúgsigtimél 17.00,
Flormél 20.00, Hveitimél 17.50, Hafra-
grjón 21.50, Baunir 22.50, Bankabygg
17.00, V2 Ris 18.00, 3U Ris, 21.00,
Heilrís 24.50.
Haildtaska með læknisverkfærum
tapaðist nýlega hér í bænum.
Finnandi skili til héraðslœknis-
ius á Akureyri.