Norðurland - 18.12.1913, Page 1
NORÐURLAND.
55. blað.
Akureyri; 18. desember 1913.
XIII. ár.
J. V. HAVbTEENJi verzlun, Oddeyri
hefir miklar birgðir af allskonar matvöru, jarðepium, kæfu, saltfiski og m. fl. Verð á Rúgméli 50 kg. 9,50, Bankabygg 50 kg. 13.50, Hafragrjón völsuð kg
0 32, Hrísgrjón »Caroline« 0.50, Heilhrís 035, Hálfhrís góður 0.25. Kaffi nr. I i.8o, Kaffi nr. 2 1.60, Melfs í toppum og kössum 0.55. Allskonar brauð:
Kringlur 0.55, Tvíbökur 0.85, Hveitikafring 045. (Alt miðað við kilovigt).
ÚTSALA:
Fataefni margskonar með miklum afslætti frá 20—30 %, t. d. Hálfklæði svart í kvenföt, sem kostað hefir meterinn 1.80, er nú selt á 1.25. Munið eftir
að engin verziun hér hefir jafn góð og fjölbreytt hvít léreft. Prjónapeysur handa fuiiotðnum og börnum o. m. m. fl. Skófatnaður góður.
TIL JÓLANNA OQ NYÁRSINS:
Kerti allskonar, Confect nr. 1, Hasselhnetur 1.25, Valhnetur 1.15, Confect-rúsínur nr. 1 1.50, Krackmöndlur 2.50 (hvert kilo). Lakrits, enskur, mjög ffnn.
Salmiakspastiller.
Niðursoðið syltetöi, allskonar fiskmeti, Sardiner, Ansjóser, Fiskeboller o. m. o. m. fl.
Járnkítti óbrigðult í sprungur á ofnum og ofnpípum, eldstóm og pottum, nýkomið, dósin kostar 0.65 og 1.25
RjÚpur eru altaf keyptar til 15. febr. 1914 á 20 — 25 au. stk. Alsokkar gráir og hvftir frá 0.70—100. Sjóvetlingar 35—60 au. Fingravetlingar góði
vel borgaðir.
Jarðarför
Fr. Madsens beykis, seni andaðist 11.
þ. in. fer fram frá heimili hans.
Strandgötu 27 a. næstkomandi laug-
ardag og hefst kl. 12 á hádegi.
Eftirmœli barns.
Sölnuðu laufi bylur blœs og feykir,
blágrdum skýjum upp á loftið hreykir;
þröstur er flúinn, lóa lögð á flótta,
Ijósmóðir fífils bleik af vetrarótta.
Haust er i bygð en vetur úti á víði.
Vonin er eins og báruhrakið skiði,
þeirra, sem búa þarna út við sœinn.
Þar biður ekki sólin góðan daginn
Belgir sig hátt og blœs í stóran lúður
breki, sem er að fjörugrjóti knúður.
Kemur þd sumum klukknahljóð i eyra:
hverft verður þeim, sem skapadóminn
heyra.
Enn meira þeir, sem undir verða að liggja
afleiðing dóms og fram i sortann hyggja.
Hjörtum, sem trega, verður fátt að verjum.
Vökul er sorgin eins og bára á skerjum.
Sorgin, sem man hinn fagra fífil horfinn.
fallinn i val, er Ijáuð voru orfin,
mœnir á hafið, dreymir inn í drungann
drafnar, sem stynur langan bœði og
þungan.
Timinn þó grœðir sérhyert sár, er líður.
Sunnan á vori dís í skýjum ríður.
Föður og móður gejur gull í varpa.
Guðar við fjöru siljurstrengjaharpa.
Gióeyg i túni glókoll nýjan signir.
Gulli við bœinn jram að hausti rígnir.
Þá er að minnast barns með bros á vanga.
Bláklceddar öldur. syngja út við dranga.
Guðm. Friðjónsson.
í
SkipaferOir 1914.
Otto Tulinius konsúli hefir fengið
trá Höfn, skrifað uppkast að ferða-
áætlun skipa Bergenska íélagsins næsta
ár, hér við land, og hefir hann góð-
fúslega sýnt »N1.« áætlunina. Fyrsta
skipið fer frá Kristjanfu I. apríl, f
Rvfk. 10. apr., frá Rvík. 13 apr.,ísafirði
15-apr., Akureyri 17. apr., Seyðisfirði
19. apr., og verður í Kristjaníu 28.
apríl. Annað skipið fer frá þrándheimi
15. apr., Eskifirði 23. apr , Seyðisfirði
24. apr., Húsavík 24. apr., Akureyri
25. apr., Sauðárkrók 26. apr., ísa-
firði 26. apr., Reykjavík 29. aprfl.
Annars koma skipin til Akureyrar á
leíðinni vestur og suður um land:
25. maí. 25. júní, 25. júlí, 25. ágúst,
25. september og 25. oktbr. En á
leið austur um land til útlanda; 17.
apríl, 17. maí, 17. júní, ij.\ júlf, 17.
ágúst, 17. septbr. og 17. oktober. —
Fulltrúi félagsins hér í bænum er
Hallgr. Kristinsson kaupfélagsstjóri.
Þá hefir ráðherra Hannes Hafstein
gert samning fyrir hönd landsjóðs við
Þórarinn Tulinius stórkaupmann í Höfn
um að hann annist strandferðir við
ísland árið 1914, fyrir 30 þús. kr.
tillag úr landssjóði. Ætlar Tulinius
að láta skip sem er á stærð við
»Austra« annast þær, og á það að
fara 7 hringlerðir umhverfis landið
á tímabilinu april — oktober.
x
Akureyri.
Látinn er hér í bænum 11. þ. m.
Friðrik Madsen beykir, danskur mað-
ur að ætt, en hefir starfað hjá Carl
Höepfners verzlun um 40 ár. Hann
giftist íslenzkri konu fyrir nokkrum ár-
um og átti með henni eina dóttur,
sem nú er 10 ára, en kona hans er
dáin. Madsen sál. var vandaður mað-
ur, reglusamur um alt og óhlutdeilinn.
Síldarafli dálítill hefir verið hér á
Pollinum síðustu dagana. Verðið á
sfld mun vera um 7 kr. fyrir tunnuna
til kaupmanna.
<Helgi kongur« kom til Rvfkur f
gærdag á leið hingað frá útlöndum.
Söngskemlun ráðgerir hr. Kristján
Möller að halda hér í bænum innan
skamms. Hann hefir mjög góða söng-
rödd og vill »N1.« ráða lesendum sín-
um til þess að hlusta á hann, þvf þar
mun góð skemtun á boðstólum.
Kyikmyndaleikhúsið sýnir nú ágæta
mynd úr þýzk-danska ófriðnum 1864,
sem allir ættu að sjá, sem geta.
>Mjölnir« heitir blað, sem farið er
að gefa út hér í bænuin Ábyrgðar-
maður og ritstjóri Guðmundur Guð-
laugsson.
Umslög
með »firma« nafni, fást í prentsmiðju
Odds Björnssonar.
Skófatnaður
mjög vandaður og ódýr er seldur með
10°|o afslætti
til ársloka, í verzlun
Sig. Sigurðssonar.
** ölubúð mín verður lokuð vegna vörukönn-
unar frá 2. til 17. janúar n. k.
Akureyri 12/i2 1913.
Otto Tulinius.
♦ 4
Vandaður, vel unninn
prjónasaumur
er borgaður með
langhaesta
s
verði í
Gi an ufélags vei zlun.
Oddeyri 5/ia 1913.
Pétur Pétursson.