Norðurland - 18.07.1914, Qupperneq 2
Nl.
108
Alþingi
1-
Frumvarp, til laga um: Afnám
fátækratíundar, féll með 17 atkv.
gegn 6 atkv.
Frumvarp um: Sjódóma og rétt-
arfar í sjómálum. Nefnd Matthías,
M. J. Kr., E Arnórsson, Þorleifur,
Guðm. Hannesson.
Fánanefnd: E. d.: Sig. Stef., Jósep,
Karl. Finnb., M. Pétursson, Guðm.
Björnsson,
Stjórnarskrárnefnd, E. d.: Steingr.,
Kr. Dan., Sig. St., B. Þorl, K. Ein-
arsson.
Veganefnd, E. d.: Júl. Havsteen,
G. Ól, G. Bj, Jósep, Kr. Dan.
Ráðherra (H. H.) flutti frumvarp
um strandferðir, í nefnd kosnir, N. d.
M J. Kr, Sv. Bj, Þorleifur, B. Kr,
Matth. Ól, St. St, Hj. Sn.
Sama mál í E. d. Nefnd: G. Bj,
Bj. Þ, Jósep, Hákon, Guðm. Ól.
Skipsbruni á Siglufirði
Flutningaskipið „Úranía“ brennur
þar á höfniqni og brytinn
ferst í eldinum.
Morguninn 13. þ. m., um kl. 4.
urðu menn þess varir á Siglufirði, að
eldur var kominn upp í flutningaskipi,
er lá þar á höfninni og »Úranfa« hét,
frá Noregi. Var eldurinn þá orðinn
svo mikill, að ekki náðist tii inngöngu
í káetu skipstjóra og bryta. Fyrst
voru brotnar þiljur ofan af skipstjóra-
káetunni og náðist skipstjóri. Var
skegg og hár nokkuð brunnið og
brunasár hafði hann, en ekki alvarleg.
Þá var brotist á sama hátt niður í
káetu brytans, en hún lá rétt hjá
hinni. þegar gat var komið á þiljur,
rétti brytinn hendina upp, hafði heyrt
rifrildið og stigið upp á stól, en f
því að björgunarmenn gripu í höndina,
sem upp kom, gaus þar með upp eld-
súla, og mistu þeir handarinnar. Var
nú alelda í káetu brytans og engin
tiltök að bjarga honum, brann hann
þar inni. Skipið var svo að brenna
allan daginn og kl. 9V2 um kvöldið
var Helgi Magri (botnvörpuskip), feng-
ið til að draga það brennandi inn á
»leiruna«, en skipið er úr stáli og
mjög ilt að það sökkvi á Iegunni.
»Úranía« var nýkomin til Siglufjarðar
og hafði útgerðarféiagið »Kveldúlfur«
(Richard Jensen) tekið það á leigu
yfir sumarið. Ekkert er uppvíst um,
hvernig eldurinn hefir komið upp, þó
helzt sé giskað á, að kviknað. hafi í
kolum á skipinu.
O. C. Thorarensen konsúll Norð-
manna og Páll Einarsson bæjarfógeti,
fóru til Siglufjarðar á fimtudaginn var
til þess að halda próf f málinu.
Þorvaldur Guðnason.
Hann andaðist 18. þ. m. af sorg-
legu slysi; fór kl. 51/2 þá um morg-
uninn, einn á bát, fram f þilskipið
»Henning«, til þess að »pumpa« hann,
hefir svo fallið út af skipinu, þegar
hann ætlaði að fara niður í bátinn
aftur, og fanst druknaður við skips-
hliðina um kvöldið, með nokkurn
höggáverka á enninu, er þykir benda
á að hann hafi dottið af skipinu nið-
ur á bátsborðstokkinn.
Þorvaldur heitinn var utn 55 ára
gamall. Kvæntur Marfu Jónasdóttur,
valkvendi og dugnaðarkona og ólu
þau hjón upp 3 fósturbörn.
Þorvaldur var sérlega duglegur og
áreiðanlegur maður, enda græddist
honum nokkurt fé, þó hann réðist
ekki sjálfur í nein framleiðslu- eða
fjárglæfrafyrirtæki.
Eg var samverkamaður hans síð-
ustu árin er eg var við verzlun etaz-
ráðs Havsteens (nú fyrir 9 árum),
hann var þar þá pakkhúsmaður og
verkstjóri og hefir verið það síðan,
eg hefi varla þekt samvizkusamari og
húsbóndahollari mann en hann var og
var hann þó mjög vel liðinn af verka-
mönnunum.
Með Þorvaldi er hnigin í valinn
góður og heilbrigður en yfirlætislaus
borgari þessa bæjar.
6. S/.
VORULL.
Kaupir undirritaður gegn peningum og vörum,
greið viðskifti.
Verzlan St. Sigurðssonar og E. Gunnarssonat■
Stefár) Sigurðssofl-
Reynið Gyllenhamars
íslendingar erlerjdis.
— Jónas Guðlaugsson skáld hefir
samið skáldsögu »úr íslenzku bænda-
Iífi« segja dönsk blöð, er heitir ,Mon-
ika‘. Gyldendal hefir gefið út.
— Saga Gunnars Gunnarssonar
»Gestur eineygði* er komin út í annari
útgáfu og fær mikið lof hjá nafnkend-
ustu ritdómurum Dana.
— í dánarskýrslu Kaupmannahafnar
15. apríl, eru tvær konur nefndar með
islenzkum nöfnum: Ingibjörg Marfa
Jónasdóttir, gift manni er Ekström
heitir, og Anna, gift E. Jóhannessyni
verkamanni.
Sfldarafli
allgóður er nú byrjaður hér tvo síð-
ustu dagana. Allmörg skip hafa kom-
ið inn með frá 3—4 hundruð tunnur.
Verksmiðlan -Æalr*
í Krossanesi er að taka til starfa,
Kaupir síld af 18 skipum í sumar.
Yfirmaður er þar sami og í fyrra, hr.
Holdö.
B
ezt allra
orjfar ætíð
vúkUð )S fpfrner^j
Finnur Jónsson,
Pósthúsinu á Akureyri.
Símfréttir frá útlöndum. N-ó-t-u-r
Símfrétt i dag.
Huerta Meksikóforseti er farinn
frá völdum.
Carbaajal hershöfðingi gegnirfor-
setaembœttinu þangað til nýjar kosn-
ingar hafa farið fram.
fyrir piano og orgel, mikið
úrval, ný^omið í bókaverzlup
Kr. Guðmundssonar.
Fjármark Freysteins Sigurðssonar Efsta-
landi Oxnadal er: Hamarrifáð hægra, stúf-
rifað og gagnbitað vinstra. Brennimark:
Freyst.
hafragrjón
Þeir sem einu sinni hafa reynt þau, kaupa aldr'
ei önnur hafragrjón. Miklar birgðir nýkomnar 1
uerzlurt
Ötto Gulinius.
Okkar nýi
verðlisti í
er útkominn og er
sendur ókeypis ef
óskað er.
A. E. G. Dansk Electricitets
Hlutafélag
CHRISTIAN IX GADE 5, KÖBENHAVN K-
Ishús Sn. Jónssonar.
ÞEIR, sem enn eiga geymd matvæli á íshúsi Sn. Jónssonar, verða $
gera aðvart deginum áður, en þeir þurfa að fá þau afhent af íshúsinU/
sökum þess, AÐ ÍSHÚSSTJÓRINN ER VIÐ ÖNNUR STÖRF BÚNP'
INN, en með þessu móti er hægt að fá þau afhent á hverjum virk#
............ degi. ..........
DiaboJd
skilur 120 lítra á
Kostar 75 kr. Reyn^af
fengin fyrir því,
er bezta skilvindan, se
nú er seld.
a > * hiíi
Auk þess er nn
til ný stærð, er l
hingað með næstn 'tX
um. Er hún af .s0l£
gerð, en skilur aðeins
lítra á klukkustund. ^oS
ar 55 kr.
Aðalumboðsma^ur
Oiio TuliniuS