Norðurland


Norðurland - 14.11.1914, Side 3

Norðurland - 14.11.1914, Side 3
 ni; 165 Með síðustu skipum er nýkomið: Fjölbreytt úrval af alskonar fatnaöi sem nöfnum tjáir að nefna, selt með hinu viðurkenda lága verði, án verð- hækkunar þrátt fyrir stríðið. Suöuvélin „P-H-0-N-I-X“ mjög ódýr og svo handhæg að eng- in húsmóðir vill án vera, sem reynt hefir. Tekur fram öllum oiíuvélum og „Primus„-suðuvélum sem áður hafa þekst. Allar íslenzkar vörur eru keyptar hæsta verði. »Verzlunin París« Sigv. E S Þórsteinssor). Prónles«haustull er hvergi beiur borgað en í verzlun J. V. Havsteens, Oddeyri Vörur í Sápubúðinni d Oddeyri eru seldar með niðursettu verði: Príma brúnsápa stjörnukrystal pd. 0.22 I Príma brúnsápa — 0.19 Príma grænsápa nr. 1 — 0.18 Fínn og grófur sódi á — 0.05 ^^^^^^5ý)ngu beztu vörur með lægsta verði. '•SPfe- Hið íslenzka steinolíuhlutafélag Akureyri. Talsími 96. — Hafnarstræti 100. — Simnefni: Steinolía. Kvenfélagid ,Framtiðin“ hefiráform- ánsdóttur frá Heiði í Gönguskörðum, systur þeirra bræðra sr. Sigurðar í Vigur og Stefáns skólameistara. Var hann elztur af 10 systkinum sínum er upp komust, enda líka sá fyrsti sem hvarf úr hópnum. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum þangað til hann fór í Möðruvallaskólann Utskrifaðist hann þaðan vorið 1900. — Um skeið stundaði hann nám á Hólaskóla. Hneigðist hugur hans allur að búnaði og halði hann snemma brennandi á huga á öllu sem að búnaðarframförum laut. Ungur gekk hann að eiga Ingi- björgu Guðmundsdóttur írá Skíða- stöðum og reisti þar bú. Gjórðist hann þegar búsýslumaður hinn mesti. Stórhuga var hann og atorkumaður með afbrigðum eins og hann átti kyn til f báðar ættir. Græddist honum þegar nokkurt fé og alt lék f lyndi. En hann átti skamma stund þessu láni að fagna. Konan sýktist brátt af tæringu, sjálfur lagðist hann í sulla- veiki og var skorinn upp hér á spít- alanum af Guðm. Hannessyni. Meðan hann lá hér í sárum, frétti hann lát konu sinnar, sem hann unni hugástum og harmaði hann hana mjög. — Þó hann næði aftur heilsu að því er virt- ist, þá hafði sullaveikin þó ekki yfir- gefið hann, eins og seinna kom á daginn, og tæringin hefir þá Ifklega verið búin að merkja sér hann, þó líkamshreysti hans og þrek héldu henni svo í skefjum að hennar yrði eigi vart. — Eftir konumissinn brá hann búi, var á lausum kili um skeið, en keypti svo hálfa Sjáfarborg, reisti bar aftur bú og hugsaði gott til bú- skaparins, því heyskapur er þar mikill og agnsemi nokkur, en votlent er þar mjög og heyskaparvinna því erfið og óholl Vann hann nú eins og vfkingur og græddist fé á ný. Gaf hann sig nú all mjög að félagsmálum En eigi leið á löngu áður en hann kendi veilu fyrir brjósti. Fór hann þá á Heilsuhælið og batnaði þar svo að hann sneri heim þaðan og var talinn albata. Tók hann þegar til óspilltra málannna er heiin kom og gekk fram af sér með vinnu. Lagðist f brjóst- himnubólgu í ágúst 1912 0g var þungt haldinn og nú tók sullaveikin alvar- *Cga að gera vart við sig aftur. í ^esember sama ár kom hann hingað ^ spftalann og hefir síðan eigi stig- '5 á fætur. Var gjörður hér á honum 5tór sullskurður. Veiklaðist hann svo sullaveikinni að tæringin náði nú * honum föstum tökum, en seinf S^tist henni að buga hann til fulls; S^aðlyndi hans, áhuga og framsókn- arhá bugaði hún aldrei. Vonandi er þeim engin aldur skapaður, að öðrum kosti væri óbærilegt að horfa á eftir slíkutn mönnum og Stefáni, á bezta aldri, veg allrar veraldar Engu að sfður er landinu eftirsjá að honum í blóma lífsins og vinir hans allir og vandamenn harma hann sáran, það var svo mikið og gott í hann spunnið, vonirnar svo margar og miklar sem við hann voru bundnar. Framsæknu at- orkusömu drengskaparmennirnir eru altaf of fáir, skaðinn því tilfinnan legri, þegar einhver af þeim fellur í valinn. En í þeirra fiokk verður Stefán Björnsson jafnan talinn af öllum, sem þektu hann. y x X Maður hrapar til bana. Á mánudaginn var, fór unglings piltur frá Þórustöðum í Kaupangssveit til rjúpnaveiða Hann hét Jón, sonur Stefáns, er bjó • á Króksstöðum um hríð, en nú er dáinn fyrir nokkrum árum, og konu hans, Rósu er enn lif ir. Jón var vinnumaður hjá Páli bónda á Þórustöðum Þegar skyggja fór á mánudaginn, var hans von heim aítur en svo leið kvöldið og nóttin að hann kom ekki. Að morgni þriðjudagsins var safnað mönnum og leit hafin er var- aði, þegar leitljóst var, til þess á mið- vikudag. Fundu leitarmenn þá Ifk Jóns f svonefndu Grjótárgili í austurbrún Vaðiaheiðar, upp aí Grjótárgerði i Fnjóskadal. Hafði hann runnið eftir svelli, að gilbarminum, en ekki getað stöðvað aig á brúninni og fallið niður fyrir klettana. Líkið var mjög lemstr- að og byssan er lá hjá þvf niðri í gilinu var brotin. Fallið var svo hátt að hann hefir látið lífið á því augna- bliki er hann kom niður og sennilega án þjáninga —Jón heitinn var mann- vænlegur piltur og vel látinn. S Akureyri. Verzlunarmannafélagið hélt fyrsta fund sinn á þessum vetri á laugar- daginn var. Aðalmálefni fundarins var út af erindi frá »Kaupmannaráði Rvíkur« um skifting stjórnarinnar á Ameríku- vörunum. Kosnir voru í nefnd til að athuga málið og koma með ákveðnar tillögur í því, þeir kaupmennirnir Ragnar Ólafsson, Pétur Pétursson og Magnús Kristjánsson. Þórður Flóventsson, óðalsbóndi í Svartárkoti í Bárðardal, kom írá Reykja- vík á »Pollux« um daginn. Hafði verið gerður á honum mikill holdskurður til þess að lækna innvortis meinsemd, og var hann hinn hressasti eftir. að að sýna tvö smá-leikrit bráðlegan hér í leikhúsinu, og er byrjað að undirbúa það. Peir sem hafa tækifæri, á einhvern hátt, til þess að styðja að því, ættu ekki að láta standa á sér, því margt góðverkið hefir þetta félag unnið. Studentafélagið hefir ( hyggju að koma á alþýðufyrirlestrum hér í vetur og væri vel að það gæti tekist. Fé- lagið á ýmsum þeim mönnum á að skipa sem eru færir til þess starfs ef að þeir geta gefið sér tíma til slíks fyrirlestrahalds vegna annara starfa sinna. Aflalaust er með öllu hér á Pollin- um. Verzlun Sn Jónssonar fekk nýlega nokkuð af nýjum fiski frá Siglufirði og seldi bæjarbúum og væri gotU að framhald yrði á X Skólahús og samkomuhús hefir verið bygt á grundunum við Restará í Arnarnes- hreppi. — Ungmennafélag sveitarinn- ar lagði Soo krónur til byggingarinnar. Húsið var vígt nýlega og hélt Einar Guttormssou á Ósi þar ræðu af hálfu ungmennafélaga um »lífið í sveitun- um<- — Skóli verður f húsinu f vet- ur og kennir þar Jón Kristjánsson gagnfræðingur frá Glæsibæ sem er ælður kennari og vinsæll. X llm láð og lög. - Látin er i Reykjavik frú Soff- ia Porkelsdóttir (prests Bjarnason- ar á Reynivöllum í Kjósjkona /óns Gunnarssonar samábyrgðarstjóra. — Eggert Briem hefir aftur keypt Viðey, á uppboði er haldið var á ýmsum eignum Miljónarfélagsins. Hann seldi félaginu eyna árið 1907 fyrir 150 þus. kr. en keypti hananú fyrir 87 þús. kr. er hann átti enn eftir hjá fjelaginu „Handelsbank- en“ i Khöjn bauð 60 þús. krónur. Viðey er nú bygð Páli bæjarfógeta Einarssyni á Akureyri er hefir þar stórbú. V % Hinn mikli kirkjugarður. Einn af þektustu blaðamönnum Eng- lendinga, Philip Gibbs, skrifar á þessa leið til blaðs síns; Allan daginn hefi eg verið á ferð- inni, fram og aftur um valinn, eftir nýentan bardaga í 6 daga við Aisne, Noyon og Soissons. Pað er mesta orusta sem nokkurn tíma hefir verið háð í Frakklandi. Leiðsögumaður minn var frakkneskur bóndi, sem nú hafði, ásamt fleirum, fengið þann starfa að grafa fallna menn sambandshersins en brenna lík Pjóðverja. Mikið var óunn- ið af því verki, því yfir 3000 Pjóð- verjar og 1000 Bandamenn voru falln- ir þar á 20 kílómetra svæði. Fylgd- armaðurinn greip í handlegg minn og mælti: Þarna í gryfjunni er verið að brenna líkin. Hann talaði eins rólega um þetta eins og garðyrkjumaður sem er að brenna fölnuð laufblöð á haustin. Upp af gryfjunni lagði hvítan reykjar- mökk upp í heiðbláan himininn. Og eg vissi að það sem þarna var að brenna voru blöð, fallin úr lífsins stóru bók. Frakkar og Englendingar voru grafnir saman eins og skyldmenni, en mótstöðumennirnir voru fluttir sam- an í hrúgur, síðan lagður hálmur, vættur í steinolíu, ofan á líkin og svo kveikt í og látið brenna þangað til ekki er annað eftir en aska sem regn- ið þrýstir niður í jörðina. Þetta er réttlæti mannanna og er ekkert um það að segja. En meðan eg stóð og horfði á báiin, milli fagurra skógar- runna og reisulega borg þar skamt frá, með gnæfandi kirkjuturnum, alt tákn friðarins, ætlaði sorgin að yfir- buga mig, ýfir að sjá hina miklu ó- hainingju og blóðsúthellingar sem nú ríktu á hinni fögru, frakknesku grund, að nauðsynjalausu. Fylgdarmaður minn hafði hugann við annað. Hann byrjaði á frásögum sínum um ýmsa atburði, er fyrir hann höfðu borið. Sjálfur hafði hann drepið einn þýzkan hermann. Þegar hann, einn daginn, var á gangi meðfram skógarjaðrinum, kom alt í einu ríðandi þýzkur njósnari að hon- um, lagði spjóti fyrir brjóst hans og skipaði honum að segja sér til vegar, en fylgdarmaður minn var gamall her- maður og hafði hlaðna marghleypu í vasanum. Og í staðinn fyrir svar, sendi hann Þjóðverjanum tvö skot gegnum vasann, tók síðan hest hans

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.