Norðurland - 19.12.1914, Blaðsíða 2
Nl.
188
Vindlar « jólanna
langmest úrval og bezt verð á öllum tegundum í
tóbaks vei zlun
Jóh. Ragúelssonar.
Hráolíumótorinn
„V E S T A“
fyrir skip og fiskibáta, er hentugri, endingarbetri, áreiðanlegri og langtum
ódýrari í notum en þeir mótorar, sem hingað til hafa þekst hér á landi.
Undirritaður, sem hefir aðalumboð fyrir lsland á þessum viðurkenda, á-
gæta, mótor, útvegar einnig með verksmiðjuverðí, mótora frá flestum öðr-
um mótorverksmiðjum. Einnig mótorbáta
)ón S. Esphólín.
Talsími 41 Akureyri.
llm láð og lög.
Símfréttir í dag.
— Um Músavíkurlœknishérað sækja
hinn setti héraðslæknir þar, Guðmund-
ur (Skúlason) Thoroddsen og Sig-
urður Hjörleifsson héraðslæknir á
Eskifirði.
— Sjálfstœðismenn i Reykjavik ráð-
gera að halda Sig. Eggerz ráðherra
samsœti, þegar hann kemur heim úr
utanförinni í virðingarskini og viður-
kenningar fyrir „afrek“ hans í rikis-
ráðinu.
— Karl Finnbogason skólastjóri
og alþm. á Seyðisfirði, kvæntist borg-
aralegu hjónabandi á laugardaginn,
ungfrú Vilhelminu Ingimundardóttir
útvegsbónda á Seyðisfirði.
— „Eimskipafélag íslands“ hefir
ráðið L. Fanöe, umboðssala i Khöfn,
fyrir afgreiðslumann félagsins þar.
Afgreiðslumaður i Reykjavik er ráð-
inn Sigurður Guðmundsson (áður afgr.
„Thore“). Skipin eru ekki skirð enn
þá. Suðurlandsskipið verður ferðbúið
og leggur af stað frá Khöfn 17.
marz. Skipherra á þvi verður Sigurð-
ur Pétursson og yfirstýrimaður jón
Erlendsson (báðir stýrimenn áður á
„Austra“) Norðurlandsskipið fer fra
Höjn 6. maí. Skipherra á því verður
fúlius Júlíniusson og yfirstýrimaður
Ólafur Sigurðsson, áður skipstjóri á
Breiðafjarðarbátnum „ Varanger“.
— Dómkirkjan í Rvík er orðin hin
prýðilegasta eftir aðgerðina, er hetir
kostað um 20 þús. kr. Miðstöðvar-
hitun er í kjallara sem búinn var til
undir kórnum. 3 höfuð-útidyr eru á
kirkjunni. Á morgun verður fermt i
kirkjunni og fjöldi fólks til altaris.
— Hagstofan hefir gefið út 4 hefti
af skýrslum sínum og er það um
fiskiveiðar, fisksölu og fisknýtiag.
— Alþingistíðindin 1914 verða sam-
tals 25 hefti, og eru 23 komin út.
Peim fylgir viðbætir eftir Einar Þor-
kelsson skrifstofustjóra og er það
þingmannatal o. fl.
— Refarækt mikil er I Elliðaey á
Breiðafirði. Þar eru nú um 100 refir.
— Konsull Breta i Rvik, Mr. Cable,
er að láta þýða á ensku, stjórnarskrá
íslands, gamla sáttmála, og yfirleitt
öll lagaboð og önnur gögn sem kunn
eru, frá elztu tímum til þessa dags,
sem snerta á einhvern hátt samband
íslands við Danmörku og réttarfars-
lega afstöðu þess fyr og síðar. Ýms-
um getum er leitt að þvl syðra hvað
búa muni undir því starfi.
— Tvö bresk herskip eru á sveimí
við suðurstrendur íslands. Fiskiskip úr
Reykjavík hafa séð þau þar á ýms-
um stöðum undanfarna daga.
— Bjarni fónsson frá Vogi hefir
gefið út bók sem heitir „ísland og
ófriðurinn“.
— Náttúrufræðisfélag íslands er
að gefa út minningarrit með myndum,
þar á meðal af aðalstofnanda þess
Siefáni Stefánssyni skólameistara. 1
þvi er einnig ritgerð eftir Stefán er
heitir:
— Ný kirkja verður vigð i Hafn-
arfirði á morgun.
— Dr Sig. Júl. fóhannesson skáld
og frv. ritstjóri „Lögbergs“ kemur
heim til íslands í vor og hefir fengið
hér loforð fyrir læknishéraði, óráðið
enn hvaða hérað það verður.
— Norðlingamót var i gærkveldi
á „Hótel Reykjavik“ og sátu það um
150 manns, karlar og konur.
—Höfuðbólið Brautarholt á Kjalar-
nesi hafa þeir bræður Friðrik og Sturla
Jónssynir í Reykjavík selt Jóhanni Eyj-
ólfssyni alþingismanní í Sveinatungu.
förðin er seld með öllum hjáleigum,
allri áhöfn, öllum 'búsmunum og 37
ásauðarkúgildum, og er kaupverðið
85 þús. kr.
—I ,,/ónasarnefnd“ (Hallgrimssonar)
voru kosnir á laugardaginn Hannes
Hafstein og Jón Helgason prófessor.
Formaður Stúdentafélagsins í Rvik er
sjálfkjörinn. Nú skipar það sæti Matt-
hías Þórðarson fornmenjavörður.
—Snjóflóð hljóp nýlega skamt frá
bænum Hjarðarhaga á Jökuldal eystra
og drap 3 hesta, er fundist hafa dauð-
ir, en haldið er að í því hafi farisi
fleiri hestar og nokkuð af sauðfénaði.
— Látinn er á Seyðisfirði Ólafur
Þórðarsonfiskiundirmatsmaður, nálægt
sextugu að aldri.
— Dómur er nýlega fallinn i
landsyfirrjetti i máli Páls Einars-
sonar bæjarfógeta gegn Oddi Gisla-
syni yfirréttarmálaflutningsmanni. —
Dómur undirréttarins var staðfestur
og Oddur Gislason dœmdur i sekt
og málskostnað.
ýtkureyri.
Kirkjan: S ðdegismessa á morgun
kl. 5. e. m.
Messur um hátiðirnar: Aðianga-
dagskvöld á Akureyri kl. 6 e. h.
Jóladaginn á Akureyri kl. 12. Annan
í jólum á Lögmaunshlíð kl. 12. Sunnu-
daginn milli jóla og nýárs á Akureyri
kl. 5 e. h. Gamalárskvöld á Akureyri
kl. 6 e. h
Guðmundur Friðjónsson skáld og
rithöfundur frá Sandi, kom hingað um
síðustu mánaðamót og dvaldi hér
hálfa aðra viku. Guðmundur hefir orkt
mikið síðan hann kom hér síðast, (í
fyrravetur um sama leyti) og er það
alt vel gert. Lét hann kunningja sína
heyra nokkuð af því, en ekki þorir
»Norðurl.< að segja nánar frá þeim
skáídskap hans um sinn. Meinlaust
vonar það þó að skáldinu sé, þótt
getið sé, að eitt af kvæðunum voru
erfiljóð eftir Þorstein skáld Erlingsson,
míkið kvæði og e nkennilegt, og birt*
ist það á prenti í einu höfuðífmariti
voru bráðlega. Guðmundur fiutti hér
tvö erindi í leikhúsinu, í þetta sinn,
hét annað þeirra : »íheldni«. Voru þau
bæði vel flutt og hvortveggja þarfar
hugvekjur. Húsfyllir áheyrenda var í
bæði skiftin, eins og vant er að vera
hér hjá Guðmundi, og guldu þeir
honum skemtunina með glymjandi
lófaklappi, er hann halði lokið máli
sínu.
Um Siglufjarðarpóststarfið hafa 7
menn sókt. Óvíst enn hver hnossið
nreppir.
Hákarlaveiði hefir verið dálítil upp
um ís á »Pol!inum« þessa viku, enn-
fremur litilsháttar síldarreytingur.
Steingr. Matthíasson héraðslæknir
hélt fróðlegan íyrirlestur á Stúdenta-
félagsfundi á fimtudagskvöldið, er hann
nefudi »Sár í hernaði«.
Ekkert er ráðið enn, hvort nokkuð
verður um (ramkvæmdir á því, að
Stúdentafélagið haldi uppi alþýðulyrir-
lestrum hér í bænum í vetur.
Effirmœli.
28 maí s. I. lést að heimili sínu,
Sörlastöðum í Þingeyjarsýslu, Ólafur
Guðmundsson fyrrum bóndi þar, fædd-
ur 5 sept. 185 1 í Hjaltadal í Fnjóska
dal. Faðir hans var Guðmundur bóndi
Davíðsson, sem lézt háddraður í Fjósa-
tungu í Fnjóskadal s. I suraar, er
lengi hafði verið hreppstjóri og foringi
f sinni sveit.
Ólafur ólst upp f foreldrahúsum í
Hjaltadal og kvæntist þar 29 febr.
1876, Guðnýju Jónsdóttur frá Vatns-
leysu (f, 9 febr 1848, d. 30 jan
1911). Byrjuðu þau búskap i Hjalta-
dal og bjuggu þar í 5 ár, síðan 8 ár
í Fjósatungu og loks 22 ár á Sörla-
stöðum. Börn áttu þau 6, dóu 2 þeirra
í æsku en 4 lifa og búa f Fnjóska-
dal: Jón á Snæbjarnarstöðum, Guð-
mundur á Sörlaslöðum. Hjalti á Bakka
og Guðrún á Sörlastöðum.
Ólafur sál var með betri bændum
sveitarinnar, enda naut hann góðrar
hjálpar, þar sem kona hans var, sem
var bæði ráðdeildarsöm og mikilvirk.
Hann unni mjög bændastétt, og sá
afburðavel um búpening sinn, enda
var hann fjármaður f bezta lagi, og
voru honum fá störf kærari en fjár
hirðing. Hann naut mikils trausts hjá
sveitungum sínum og hafði á hendi
ýms trúnaðarstörf í sveitinni bæði f
hrepps- og kaupfélagsmálum Kom hann
þar jafnan fram með hógværð og ó-
eigingirni.
Ólafur sál. var sannkallað prúðmenni
glaðvær, yfirlætislaus og gestrisinn og
vildi jafnan láta gott af sér leiða.
Hann lét ekki eftir sig auðsafn eða
stórvirki, haldi minning hans á lofti,
en hún mun þó lengi haldast, hlý og
hrein í hugum þeirra, sem á leið hans
urðu og kyntust honum.
Ó.
Menthoikarameller
fást á Apótekinu,
Minningarljóö.
Stefán Björnsson
frá Veðramóti.
I.
Þú elskaðir lifið og ylinn,
og islenzka vornœtur friðinn.
Þú horfðir i sœbláan hylinn,
og hlýddir á svanakliðinn.
En vordraum þinnfossinn við klettan a kvað
eða hvíslaði gegnum niðinn.
Þú elskaðir brosandi biómin,
og blundandi lágnættis stundir.
Svo heyrðir þú vormorgun hljóminn,
sem hófst yfir döggvaðar grundir.
Þú brostir til Ijóssins, en brjóst þitt var sárt,
— því blœddu svo djúpar undir.
Sorgir á leið þinni sátu,
og svikust að vonunum þinum.
Þœr gerðu þér lífið að gátu,
og góndu á þig hornaugum sínurn.
Mér syrtir i hug, því nú hjuggu þœr tré
í hollvina skóginum minum.
II.
Á fjúkgráum haustdeigi fregnin kom.
Hún féll eins og hagl á mina sál
og kleíp mig i hjartað með kaldri hönd,
— eða kom hún heit, eins og logandi bál?
Eg veit það ekki, svo var hún sár
og vinunum þyngri en nokkur tár.
Hann er dáinn. Hann hvilir við kvelds-
ins frið.
og er kominn til guðs, eftir dagsins þraut.
Hjá Ijósinu og ástinni lifir hann sœll,
— það lýsti svo oft hans grýttu braut.
Hann grét ekki af öllu, en hrygð hans
var hrein
Hann hló, og t brosum hans gleðin skein.
í sál hans eg þekti svo lýsandi Ijós
sem loguðu bezt, þegar dimdi af sorg.
Það var trú hans og ást, það var trygð
hans og von
sem tildruðu aldrei upp skýjaborg.
Það var klettur sem öldurnar klofnuðu á,
svo karlmannleg hugsun og brennandi þrá.
Eg veit hann er sœll eftir sorgir og stríð.
Sólskinið lœddist um gluggann til hans
og signdi hann kaldan, hið síðasta kveld
— þá sátu þar englar ag bundu honum
krans.
En Ijósfjaðra svanurinn sveif yfir strönd
og sorgþungar kveðjurnar réttu fram hönd.
Pétur í. Hannesson.
JWjög góð
jai ðeþli
fást í verzlun
Sn. Jónssonar,
Hinn alþekti góði
Tjarnaplástur
(Hólaplástur)
fæst í verslun
J. V. Havsteens.
Æ