Norðurland - 20.03.1915, Síða 1
10. blað.
XV. ár.
Akureyri 20. marz 1915.
Odyrar herpinætur til sölu.
wmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmi
A Seyðisfirði eru til sölu 2 brúkaðar herpinætur af venju-
legri dypt og um 150 faðma langar. Önnur er ígóðubrúk-
unarfæru standi, en hin er nokkuð rifin, en henni fylgir stórt
nytt stykki til innsetningar í hana. Ennfremur eru til sölu
kastnætur af fleiri tegundum.
Petta er alt hægt að fá keypt með lágU verði og góð-
um borgunarskilmálum ef fijótt um semst.
Lysthafendur snúi sjer til
konsúis St. Th. Jónssonar
á Seyðisfirði.
geta fengið vinnu við
* ^ vegagerð á komandi sumri.
Akureyri, 16. marz 1915.
P á 11 / ó n s s o n.
Hinn ágæti sjónleikur:
Syradir annara,
eftir Einar skáld Hjörleifsson,
verður leikinn í leikhúsinu laugardaginn 20. og sunnudaginn 21. marz
og svo næstu laugardaga og sunnudaga þar á eftir.
„Hjúkrunarfélagið Hlíf‘.
A konungsfund.
Sjálfstœdislidið að klofna?
Fyrra þriðjudag fengu þeir al-
þingismennirnir Einar prófessor Arn-
órsson, Ouðmundur prófessor Hann-
esson og Sveinn yfirdómslögmaður
Björnsson, símskeyti frá leyndarrit-
ara konungs vors, Anth. Krieger
kammerherra, þar sem hann mælist
til þess, fyrir hönd konungs, að
þeir komi til Kaupmannahafnar,
snögga ferð, til skrafs og ráðagerða
um stjórnarskrármálið, og séu gesíir
konungs á meðan.
Áður var Flannes Hafstein farinn
utan eftir ítrekuðum tilmælum kon-
ungs. Þegar athugað er, á hvaða
tfma símskeytið barst þeim þrímenri-
ingunum, ma giska á að stjórnar-
skrármálið hafi eitthvað verið til
umræðu á þá nýafstöðnum ríkisráðs-
fundi meðal danskra ráðherra, og
að kuhnugt hafi verið fyrir þann
fund að Hannes Hafstein væri ófá-
anlegur til að taka við ráðherra-
dómí á íslandi, eins og málum er
nú kotnið.
Á fundi setn Sjálfstæðisþingmenn
héldu í Rvík fyrra miðvikudag, er
sagt að nokkrir þeirra hafi haldið
því fast fram, að rétt væri að þrí-
menningarnir færu hvergi og virtu
málaleitun konungs að vettugi. Sem
betur fór, lýstu þeir er skeytin Itöfðu
fengið, yfir því í einu hljóði, að
þeir ætluðu sér auðvitað að fara,
og það þá þegar á „Vestu" er var
nærþví ferðbúin í Reykjavík. Munu
þeir nú vera í þann veginn að
koma til Kaupmannahafnar.
Nokkrir segja að hér sé um að
ræða utanstefnur íslendinga á svip-
aðan hátt og gerðist á Sturlunga-
öld. Þeir er láta sér slíka heimsku
um munn fara, skilja auðvitað ekki
vitund í því sem nú er að gerast
meðal Islendinga og konungs þeirra.
Er að vænta þess, að vel ráðist nú
fram úr þeim vandræðum sem Sjálf-
stæðismenn (eða oddvitar þeirra) eru
búnir að koma máiefnum vorum í,
svo allir geti vel unað við
Pegar meiri hluti „Sjálfstæðis"-
þingmanna sá, að þeir gátu ekki
spornað við því, að þessir þrír
flokksbræður þeirra færu utan á kon-
ungsfund, samþyktu þeir ályktun
þess efnis, að utanfararnir hefðu
ekkert umboð af hendi flokksins,
og að það sem þeir kynnu að sam-
Þykkja eða framkvæma, í þá átt er
snerti þjóðmál íslands, væri einung-
is á ábyrgð þeirra sjálfra. Er fullyrt
að all-róstusamt .hafi-verið á þessari
samkomu og komið hafi í ljós að
að ýmsir höfðingjar „Sjálfstæðis"-
manna, hafi ekki sem bezt traust
hvorir á öðrum, til þess að annast
um velferðarmál fósturjarðarinnar.
Tíminn leiðir í Ijós, hvort þar er
rétt hermt frá atburðum, en ekki
yæri ólíklegt að svo gætnir menn
og þjóðhollir séu þó ti! meðal Sjálf-
stæðismanna, er ofbjóði það ofbeldi
sem beitt hefir verið gegn þjóðinni
í vetur af forkólfum flokksins, og
að þeir vilji ekki allir fylgjast að
og gerast samsekir í því níðings-
verki sem virðist véra efst á baugi
hjá ráðsmönnum flokksins, því níð-
ingsverki að taka ráðin af þjóð-
inni, rjúfa ekki þingið og svíkjast
til þess að sitja að völdum í trássi
við kjósendur, hver veit hve lengi.
X
Frú
Margrét Valdemarsdóttir
Kveðja frá æskuvinkonu.
Úr minjum björtum bernsku-ára
eg bind þér sveig við Ijóðsins hreim,
eitt lauf i úða Ijósra tára
á leiðið þitt eg sendi heim.
Sem bresti strengur, hljóðni liljómur
á hörpu, þýður, undurskœr,
þú dóst, — en jagur endurómur
er eftir hjá mér, vinan kœr!
Og lið nú scel til sœlli heuna,
þú sólargeislans dóttir blið!
þig Ijóssins englar góðir geyma
hjá guði, ojar rúmi’ og tið.
Guðm. Guðmundsson.
X
Páll Hallgrímsson
frá Möðrufelli
andaðist hér á sjúktahúsinu 26 f. m.
eftir mjög langvarandi sjúkleika og að
aístöðnum miklum holdskurði er lækn-
ir reyndi þegar vonlaust sýndist um
Iff. Páll var fæddur 1. júlí 1843
sonur Hallgríms hreppstjóra Tómas-
sonar á Grund og fyrri konu hans og
ólst upp hjá foreldrum sínum. Ól
hann allan aldur sinn f Eyjafirði og
sagðist hvergi una sér annarsstaðar.
Hann kvæntist 1872. Guðnýju Krist-
jánsdóttir frá Litlahóli, mikil hæfri
konu í hvfvetna og voru samfarir
þeirra hinar beztu. Þau eignuðust 10
börn, en af þeim lifa nú aðeins 4 og
er elzt þeirra Kristján máiari og bóndi
að Ytragili.
Páll sál og kona hans bjuggu lengst
af I Möðrufelli og vai báðum vel sýnt
um búskap, svo ávalt var myndar-
bragur á heimili þeirra og þau vinsæl
í héraði fyrir rausn og háttprýði. Var
Páll og um langt skeið meðal fremstu
bænda í Eyjafirði og hafði mörg trún-
aðarstörf með höndum, var í stjórn
kvennaskóla Eyfirðinga, sýslunefndar-
maður o. fl. og rækti störf sín ætíð
vel og með dugnaði Þjóðmál lét hann
sig og miklu skifta. Var ávalt ein-
dreginn og ákveðinn Heimastjórnar-
maður og beitti sér t. d. mikið fyrir
þvf, að Hannes Hafstein yrði kosinn
til þingmensku af Eyfirðingum 1903.
— Þess má og geta að hann var
mikill hestamaður og tamningamaður
með afbrigðum, enda átti hann ávalt
góða hesta.
liannes liafstein
kom heim úr utanför sinni á »Bot-
niu« á fimtudaginn.
Styrjðldin mikla
geysar stöðugt. Þýzk blöð, sem
komu með »Ceres«, herma um stór-
kostlégar ófarir Rússa í febrúar, sem
aldrei hefir verið getið um í sím-
skeytum. Meðal annars segjast Þjóð-
verjar þá hafa tekið um 100,000 ó-
særða Rússa til fanga f einu.
«
Akureyri.
>Flóra< kom hingað sunnan um
land á mánudaginn 8. þ. m. Á henni
komu frá Rvík Ásgcir Pjetursson
kaupm., Jón Bergsveinsson yfirmats-
maður, Jakob Havsteen umboðssali,
J. Lambertsen umboðssali, Júlfus Sig-
urðsson bankastjóri, Magnús Krist-
jánsson alþm., Oddur Björnsson prent-
smiðjueigandi, Þorv. Sigurðsson kaup-
maður o. fl.
Guðrún fónatansdóttir, verzlunarm.,
Jóhannessonar, andaðist á sjúkra-
húsinu f gærmorgun, hafði verið sjúk
af botnlangabólgu nokkra daga. Hún
var sérlega efnileg stúlka, aðeins 16
ára gömul.
Sigrtður Magnúsdóttir, ekkja Óla
Guðmundssonar snikkara, andaðist á
heimili sfnu hér í bænum á fimtudag-
inn. Hún og rnaður hennar höfðu ver-
ið hér búsett nálega mannsaldur, og
verið vinsæl og vel látin. Dætur
þeirra eru: Ólína kona Guðbj. Björns-
sonar veitingamanns, Sofía og Elín
báðar ógiftar hér í bænum. — Sigríð-
ur sál. var vel greind kona og bók-
hneigð. dugleg húsmt'ðir, gestrisin og
atkvæðakona í hvívetna.
Ættingjum og vinum tilkynn-
ist hérmeð að jarðarför okkar
elskaðrar konu og dóttur, Að-
albjargar Hallgrímsdóttir, fer
fram frá heimili hennar, Strand-
götu 13 Oddeyri, mánudaginn
22. þ. m. kl. 12 á hádegi.
fón jónasson.
Hallgr. Hallgrimsson.
Porgerður P01 bergsdóttir.
Hrein og óskemd
steinoliufof
kaupir á kr.
3,50—4,00
verzlun
J. V. Havsteen
Oddeyri.
Kálfskinn
og ýmisleg skinn kaup-
ir hæzta verði eins og
að undanförnu
J. V. HAVSTEENS
verzlun Oddeyri.