Norðurland - 14.10.1916, Qupperneq 1
NORÐURLAND.
Ritstjóri og útgefandi: JÓN STEFANSSON.
46 blaö.
}
Akureyri 14. oKtóber 1916.
XVI, árg.
Vefnaðarvöruverzlun Vigfús Sigfússon
GUDM^JEFTERFL. hóteleigandi,
Nýjar vörur
meö hverju skipi,
sem eru valdai af trúnaðarmönnum verzl-
unarinnar í stærstu verksmiðjum Norður-
álfunnar.
Stærst úrval. Lægst verð.
Sápubúðin
á ODDEYRI.
Munið að þær vörur sem Sápubúðin
verzlar með eru ódýrari þar en jafngóðar
vörur í öðrum búðum.
BÆKUR&RITFÖNO
,,kaupa menn ávalt ódýrast í bókaverzlun
i Kr. Guðmundssonar,
Oddeyri.
Útlendar bækur, tímarit og blöð útveguð.
FLJOT AFOREIÐSLA.
Tóbaksverzlun
!OH. RAGUELSSON-,
VINDLAR—Havana—Brazil
—Sumatra—Java og Manilla.
Vindlingar (Cigarillos & Cigaretter).
REYKTÓBAK frá Englandi, Hol-
landi, Noregi óg Danmörku.
VONDUÐ VARA. SANNGJARNT VERÐ.
Ú r s m i ð j a
Kristjáns Halldórssonar,
Hafnarstræti 35, Akureyri.
Oullstáz, úr, keðjur o. fl.
Aðgerðir á úrum og ktukkum leystar
Bjótt og vel af hendi,
Bezta T-£----\---Ð er frá
Horniman.
Biðjið þvf kaupmann yðar ætíð um það.
Einkasalar til íslands:
Carl Sœmundsen & Co.
Reykjavlk — Akureyri.
PrentsmiBja
Odds Björnssonar
leysir af hendi alla
P-R-E-N-T-U-N
fljótt - vel - ódýrt,
Talsími 45.
Símnefni Oddbjörr).
K^benhavns Mar9arinefabrik
framleiðir hið vandaðasta smérlíki sem
unt er að fá, notar aðeins hreint og
óskemt efni, Og litar alls ekki marga-
rínið, en selur það hvítt eins og á-
sauðasmér, svo allir geti fuilvissað sig
um að engu misjöfnu sé blandað í það.
Margarínið fæst í 1 og 2 punda skök-
um, 5 og 10 punda öskjum og stærri
dunkum og er þrátt fyrir gæði sfn hið
ódýrasta smérlíki sem flutt er til lands-
ins, enda fer neyzla þess vaxandi ár
frá ári. Areiðanlegir kaupendur fá lang-
an gjaldfrest. Pantanir sendist annað-
hvort beint til verksmiðjunnar, Bro-
læggerstræde 9 Köbenhavn, eða Jóns
Stefánssonar Akureyri.
einn af mætustu öldungum þessa
bæjar, andaðist sunnudagskvöldið
1 þ. m. eftir stutta legu. Hann var
kunnur fjölda manna víðsvegar um
land, og olli atvinna hans þar að
vísu miklu um, en það munu þeir
mæla sem kyntust honum, að skarð
sé orðið fyrir skildi við fráfall hans
og mörgum manni sem verið hefir
hér áður og sem kemur nú aftur
til Ákureyrar mun renna söknuður
í hug við að finna rúm hans autt.
Vigfús var sem hann væri skapað-
ur fyrir þá lífsstöðu er hann hafði
valið sér. Hann var útsjónargóður
og hygginn í öllum fjárrekstri hins
stóra heimilis síns, jafnlyndur og
hafði þá stjórn á skaþi sínu að lítt
sást hvort honum þótti betur eða
ver, greindur maður og hafði les-
ið mikið, fróður og minnugur, svo
hann gat talað við flesta sem að
garði hans bar, um það setn þeim
var hugleiknast. Og hann hafði þá
yfirburði, að dómi margra er áttu
dvöl í húsi hans, er þurfti til þess
að hlutaðeiganda fanst hann frekar
vera á stóru heimili en gistihúsi.
En þó Vigfús sál. væri oftast
önnum kafinn, af daglegum störf-
um er lutu að atvinnurekstri hans,
hafði hann þó ávalt tíma til að
hugsa og tala um þau mál er hann
taldi varða velferð lands síns og
þjóðar og fylgdi öllu er gerðist á
þeim svæðum með lifandi áhuga
til síðustu stundar. Mun vandfund-
inn áhugameiri og eindregnari
flokksmaður en hann var, en Heima-
stjórnarflokknum fylgdi hann frá
því hann hófst og til æfiloka. OIli
það honum mikillar áhyggju er
sambandslagauþþkastið féll 1909 og
taldi það eitt hið mesta slys er hent
hefði þjóð vora í allri stjórnmála-
sögu hennar. En hann var bjart-
sýnn að eðlisfari og hafði óbilandi
trú á framförum þjóðar sinnar og
að engin þjóð á Norðurlöndum ætti
eins glæsilega framtíð fyrir hönd-
um eins og íslendingar.
Þegar Vigfús Sigfússon flutti hing-
að var hann af þroskaaldri, rúm-
lega hálfsextugur, en þó gegndi
hann hér ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir bæjarfélagið, var í bæjarstjórn
um skeið, sáttanefndarmaður, ráðs-
maður sjúkrahússins o. fl. En mest-
an hluta af' bezta aldursskeiði æfi
sinnar starfaði hann á Vopnafirði
og starfaði bæði mikið og vel. Þar
var hann umsvifamikill héraðshöfð-
ingi nálega fullan mannsaldur, vin-
sæll og virtur, og var þar varla
ráð ráðið svo ekki væri hann kvadd-
ur til.
Gríðar mikið úrval af gullfallegum
Ésilkitauu 111
í k j ó 1 a, b J ú s u r og s v u n t u r
er nýkomið og selt
ákaflega ódýrt í
B rauns v e r zlun.
Bald. Ryel.
MD Ágætt svuntusilki í mörgum Iitum aðeins kr. 8.75
í svuntuna.
í daglegri umgengni var V. S.
einstakt prúðmenni, glaður, skemt-
inn og yfirlætislaus. Mjög' raun-
góður og hjálpfús, vinfastur og val-
menni á allan veg.
Vigfús var 73 ára gamall og viku
betur, er hann andaðist, fæddur 24.
septbr. 1843. Hann var Norð-Mýling-
ur að ætt og uppruna. Faðirhansvar
Sigfús bóndi f Sunnudal, en móðir
Dagbjört Arngrímsdóttir. Hann fékk
ekki aðra mentun f æsku, en þá sem
hann aflað sér sjálfur, en hann var
námfús og hafði góða hæfileika og um
tvítugt var hann orðinn barnakennavi.
Þá kvæntist hann Margrétu Ágústs-
dóttur bónda á Ljótssteðum í Vopna-
firði og eignuðust eitt barn, en áður
hann yiði 24 ára, var hann búinn að
missa bæði konuna og barnið Þá
réðist hann fyrir barnakennara og
ráðsmann til ekkjufrúar Maríu Grön-
vold á Vopnafirði og giítist henni ári
síðar. Hún var valkvendi og voru
samfarir þeirra fyrirmynd f hjúskap-
arlífi. Bjuggu þau á Vopnafirði og ráku
þar verzlun til vorsins 1898, að Vig-
fús keypti »Hótel Akureyrii og þau
fluttu hingað María andaðist 10. febr.
1908, en Vigfús rak gistihúsið með
hjálp dætra sinna þangað til sfðastl.
vor, að hann seldi það á leigu og
hætti sökum sjóndepru er var að á-
gerast stöðugt tvö sfðustu árin. —
Þau María áttu sex börn: Jóhaun
konsúl og kaupmann hér í bænum,
dáinn 1905, Agústu fyrri konu Ol-
geirs Friðgeirssonar konsúls í Rvík,
dána 1897, Maren konu Einars Gunn-
arssonar kaupmanns á Akureyri, Odd-
ný kona Iugólfs læknis Gfslasonar á
Vopnafirði, Valgerði og Halldóru.
Vigfús var einkennilega orðhepp-
inn maður og eru ýms orðtök hans
og talshættir flogin út á meðal manna.
Var það oft er hann sat í kunningja-
hóp að hann kastaði fram hnyttiyrð-
um er svó voru hent á lofti. En á-
valt voru þau græskulaus, vöktu hlát-
ur, en særðu ekki þann er þeim Var
beint að.
Kærasta umtalsefni V. S. var saga
íslands fyr og sfðar og íslenzk ætt-
fræði. Lýsti sér þar eins og vfðar að
hann var góður og sannur íslending-
ur. Hann var mæta vel að sér í þeim
fræðum öllum, og fanst sá varla
maður með mönnum, sem ekki vissi
og mundi þar deili á,
V. S var ráðsmaður sjúkrahússins
Ættingjum og vinum
fjær og nœr tilkynnisi að fað-
ir okkar og tengdafaðir, Vig-
fús Sigfússon, hóteleigandi,
andaðist 1. þ. m. og er á-
kveðið að jarðarför hans fari
fram frá heimili hans mánu-
daginn 16. þ. m. og hefjist
kt. 12 á hádegi.
Akureyri 6. okt. 1916,
Valgerður Vigfúsdóttir.
JWaren Gunnarsson.
Einar Gunnarsson.
20. nóvember
_ til desember-
loka verð eg ekki heima.
Friðjóq Jensson.
eða gjaldkeri eins og áður var sagt.
Þess má geta, til dæmis um ræktar-
semi hans, að varla mun þess dæmi
að nokkur sjúklingur sem audaðist á
sjúkrahúsinu hafi verið jarðaður svo
V. S. fylgdi ekki Ifki hans til grafar.
Kom það ekki ósjaldan fyrir þegar
þeir voru jarðaðir sem hvorki áttu
hér írændur né neina kunnuga að
Vigfús var einn á ferð með líkmönn-
unum á eftir kistu þeirra.
Reykiadalsbraut
í Þingeyjarsýslu er nú lokið og
verður afhent sýslunni næsta ár. —
Hún liggur frá Húsavfk, inn hjá Laxa-
mýri, vestur yfir Laxá, inn Aðal-
reýkjadal og Reykjadal og eadar inn-
an við Breiðumýrará Braut þessi er
allmikið mannvirki, nær 38 kílómetra
löng, og óefað ein af fallegustu ak-
brautum landsins. í henni eru 3 járn-
brýr og 4 steinbrýr. Sfðasta brúin
var bygð í sumar, yfir Breiðumýrará.
Páll Jónsson Árdai á Akureyri, sem
verið hefir verkstjóri við brautina sfð-
astliðin sumur, kom heim um helgina
sem leið.