Norðurland - 14.10.1916, Side 2
NL
170
Frá blóðvellinum.
Bandamenn hafa tekið allan gríska
flotann á sitt vald.
ítalir hafa unnið mikinn sigur á
Austurríkismönnum norður af Triest
og standa nú aðeins 20 kílómetra
frá Triest.
Bretar hafa hrakið Þjóðverja við
Somme.
Þjóðverjar hafa ekki sökt neinum
skipum við Amerfku síðustu daga.
Á Heljardalshei ði.
Það er glæfralegt að lenda í ó-
göngum á Heljardalsheiði, um urðir
og eggjagrjótið þar.--------
En það er leiðinlegt að lenda f póli-
tfskum ógöngum, ráfa eins og viltur
sauður milli flokka, vita ekki sitt rjúk-
andi ráð, vilja vera alstaðar og hvergi,
vanta skaplyndi, skerpu eða sannfær-
ing til að ákvarða sig.
Eg vorkenni Einari á Eyrarlandi
sem Sjálfstæðis- eða »Þversum«-menn
eru nú að bjóða Eyfirðingum til þing-
setu.
Hann hefir ekki fengist við pólitfk
né þjóðmál að undanförnu, svo nokk-
ur viti að neinu nemi, hvorki í ræðu
né riti. En talið hefir verið að hann
væri Heimastjórnarmaður, að því leyti
sem hann hefir greitt atkvæði um
þessháttar. Þó hafa hlaupið snurður á
það. T. d. var hann á ótal áttum um
fyrirvarann 1914, en komst þar aldrei
að neinni niðurstöðu, svo kunnugt
væri.
Þá þingbændur settu Jósef Björns-
son efstan á landslista sinn, tók Einar
því fegins hendi, að fá að vera næst-
neðstur á listanum. Öllum mun hafa
verið ljóst, að ekki gat verið um
meira að ræða fyrir þann lista, en í
hæsta lagi að Jósef kæmist að. Og
Jósef er, sem kunnugi er, eindreginn
>pversum*-maðar. Einar hefir því
hlotið að vera »Þversum«-maður í vor
og fram eftir sumrinu, fyrst hann vildi
þá af alefli styðja jÞversum«-lista
Jóseís. Eg veit hann er svo vandaður
drengur, að hann hefir ekki unnið
gegn sannfæring sinni.
En svo verður óskiljanleg breyting.
Þá hann tók boði Sjálfstæðis(Þvers-
umjmanna, þessara sárfáu hér í firð-
inum, um að verða f boði af þeirra
hálfu við næstu kosningar, þá hleyp-
ur hann til og afneitar »Þversum« og
öllu þeirra athæfi, sjá yfirlýsing hans
sjálfs í »Norðurl.« 30.'sept., þar sem
hann segist vera »andvfgur stjórn-
málastefnu þess flokks*.
Hvað veldur slíku?
Jafnframt er það marg-vottfast, að
Sjálfstæðismennirnir sem eru að
»agitera« fyrir kosning Einars og oft-
ast eru til staðar f grend við slátur-
hús Kaupfélagsins þá bændur koma
með fé sitt — að þeir segja að Ein-
ar sinn sé eldrauður Heiraastjórnar-
maður. Og það sé sjálfsagt að kjósa
hann Einar, bæði vegna þess að hann
sé bóndi og svo sé hann Ifka Heima-
stjórnarmaður, eins og flestir eyfirzk-
ir kjósendur.
Þetta segja þeir Sjálfstæðisgarparn-
ir. En ekki vill Einar sjálfur fallast á
það, eða hefir viljað — að þessu. í
áminstri »Norðurlands«-grein sinni, 30.
sept., lýsir hann þvf yfir, að hann
»bjóði sig ekki fram sem Heima-
stjórnarmaður* og virðist eiginlega
vera upp með sér yfir, að þeim skolla
þori hann þó óhræddur að afneita
eindregið.
Mér er þó kunnugt um að hann
sagði um sfðustu áramót og snemma á
Góu að hann væri Heimastjórnarmað-
nr, og skal leiða vitni að því, verði
því neitað.
En hver er svo niðurstaðan af þess-
um framboðum og yfirlýsingum Einars ?
í maf sfðastl. býður hann sig fram
á »Þversum«-lista við landskjörið, en
fellur þar f ágúst með svo liilu fylgi,
að kjörstjórnin athugaði ekki einu
sinni, hve lítið það væri.
í septbr. býður hann sig fram í
Eyjafjarðarsýslu og afneitar »Þversum«
og Heimastjórnarmönnum.
Er hann þá »Langsum«?
Eða er hann hvergi — ekki neitt?
Það er gömul saga, að ístöðulitlir
þingmenn hafa orðið að þvættitusk-
um milli flokka á þingi, þá þangað
hefir verið komið.
Hitt er ný saga, að frambjóðandi
hafi hlaupið á harða spretti milli flokka
áður en nokkuð reyndi á. Hvernig
mundi hann reynast þegar á hólminn
væri komið — þá á þing kæmi.
Slíkan mann vilja nú Sjálfstæðis-
menn kjördæmisins fá ykkur, Heima-
stjórnarmenn f Eyjafirði, til þess að
senda á Alþing f stað Hannesar Haf-
stein.
Ætlið þið að taka svo frekjufullri
pólitískri móðgun með þegjandi sam-
þykki ?
Væri ekki rétt að lofa Einari að
hvíla sig á þéirri pólitísku Heljar-
dalsheiði sem hann hefir nú sjálfur
staldrað á. Þá væri ekki að örvænta
um að hann færi að labba niður af
urðinni, áttaði sig og yrði búinn að
ná nokkurn vegin »ballansinum«, þeg-
ar næstu sex ár væru liðin.
Eyfirðingur.
»Þver8um«-meni).
Blaðið »Landið« í Reykjavík sem
er málgagn »Þversum« manna og gef-
ið út af stjórn þess flokks, lýsir yfir
því 23. sept. að frambjóðendur flokks-
ins í Eyjafjarðarsýslu séu þeir: Kr.
H. Benjamínsson og Einar Árnason.
— Stjórn »Þversum«-flokksins vill
því ekki trúa því, að Einar sé flokks-
leysingi, enda óvíst að hann hafi sagt
henni að svo væri.
^kureyri.
Opinberunarbók. Árni Bergsson verzlun-
arstjóri í Ólafsfirði og ungfrú Jóhanna
Magnúsdóttir (kaupmanns Kristjánssonar)
Akureyri.
Hjúskapur. Karl Guðnason kaupmaður
og ungfrú Dagný Guðmundsdóttir. Stefán
Stefánsson verzlunarmaður og ungfrú Sig-
rún Haraldsdóttir.
Ættarnafn. Páll Jónsson skáld og Stein-
dór verzlunarmaður sonur hans hafa tekið
sér ættarnafnið Árdal og fengið staðfesting
stjórnarráðsins á því.
Jón S. Esphólín vélfræðingur er hérhefir
dvalið um hríð f sumar fór til Reykjavíkur
á »Goðafossi* og þaðan til Kaupmanna-
hafnar á „íslandi* og verður þar f vetur.
Kvöldshóli iðnaðarmanna á Akureyri verð-
ur í barnaskólahúsinu í vetur, eins og und-
anfarið, frá kl. 6—9 síðdegis. Skólastjóri
verður hinn sami og áður: Lúðvík Sigur-
jónsson stúdent. Skólinn hefst 20. þ, m.
Leiðbeining
við kosningarnar í Eyjafjarðarsýslu.
Þegar kjörstjórnin hefir afhent kjósanda kjörseðilinn, fer hann með hann
inn í kjörklefann. Þar á að vera borð og á pví Iítill stimpill, stimpilpúði
og þerripappír. Kjósandinn leggur svo kjörseðilinn á borðið og lítur hann
þá svona út:
Einar i4rnason.
Jón Stefánsson.
Kristján H. Benjamínsson.
Páll Bergsson.
Stefán «Stefánsson.
Kjósandi tekur því næst stimpilinn og stimplar alveg yfir hvíta augað framan við nöfn þeirra frambjóðanda, sem hann vill greiða atkvæði sitt, þerrar svo með þerriblaðinu og leggur kjörseðilinn saman í það brot, sem hann var í, er hann tók við honum, gengur svo fram fyrir til kjörstjórn- arinnar og stingur sjálfur seðlinum niður um rifuna á atkvæðakassalokinu og gætir þess, að enginn sjái hvað á seðlinum er. Kjósendur verða að kjósa tvo, svo að atkvæði þeirra verði gilt. Kjörseð- ill þeirra sem kjósa Jón Stefánsson og Pál Bergsson á að Iíta svona út, þegar þeir eru búnir að kjósa:
Einar zárnason.
jón Stefánsson.
Kristján H. Benjamínsson.
Páll Bergsson.
Stefán Stefánsson.
En kjörseðill þeirra, sem kjósa þá Jón Stefánsson og Stefán Stefánsson í Fagraskógi, hinn gamla alþm. kjördæmisins, á að líta svona út:
1 Einar z4rnason.
Jón Stefánsson.
Kristján H. Benjamínsson.
Páll Bergsson.
Stefán Stefánsson.
Allir kjósendur þurfa að hafa hugfast, er jpeir ganga að kjörborðinu, að
kjósa aðeins eftir samvizku sinni og sannfæring, hvað sem hver segir.