Norðurland - 14.11.1917, Síða 1
NORÐURLAND.
I - ;
Ritstjóri og útgefandi: JÓN STEFANSSON.
41. blað. J \ Akureyri 14. nóvember 1917. |’ XVII. árg.
Lenin og hans menn vaða stjórn-
Ódýrar rjúpur.
Til þess að rýma fyrir öðrum matvælum í ís-
húsi mínu, sel eg næstu daga
rjúpur á 15 aura
sfykkið.
Otto Tulinius.
Tímareikningur.
Fimtudagurinn 15. þ. m. endar einni stundu
eftir miðnætti
og ber þá að seinka klukkunni eftir því.
Petta tilkynnist hérmeð.
i \
Bæjarfógetinn á Akureyri 13. nóv. 1917.
Páll Einarsson.
Tækifæriskaup.
Regn-
kápur
ai beztu tegund, mjög vandað-
ar að efní og öllum frág^ngi, selur
með
«^<>verksmiðjuverði<^
Sveinn Sigurjónsson.
' Frá blóðvellinum,
5/n. Rússastjórn hefir viðurkent
sjálfstæði Finnlands, —ítalir hörfa frá
Tagliamento vígstöðvunum. — Maxi-
malistaflokkurinn í Rússlandi hótar
með borgarastyrjöld, ef Kerenskij
taki ekki kröfur flokksins um friðar-
gerð tafarlaust til greina.
8/u. Lenin er orðinn foringiMaxi-
malistafiokksins. Setuliðið í Patro-
grad er gengið á hönd honum og
einnig ýmsir yfirheíshöfðingjar á vfg-
stöðvunum. Lenin hefir sett hervörð
á allar járnbrauta- og símastöðvar,
pósthús og banka í Petrograd og
hefir alla borgina á valdi sínu. Ráð-
herrunum hefir hann varpað í fang-
elsi, nema Kerenskij, er var fjarver-
andi. Lenin kærir hann fyrir land-
ráð og forsjárleysi í að halda ófrið-
inum áfram, þótt allir viti, að mik-
ill hluti þjóðarinnar muni svelta í
hel í vetur, ef svo verði. Lenin lýs-
ir yfir, að markmið sitt sé aðgiá
tafarlaust frið við Miðveldin, þó það
kosti Rússland að láta af höndum
alt það landsvæði, sem það hefir
mist í ófriðinum.
9luj Pjóðverjar hafa tekið Álands-
eyjar hjá Svíþjóð orustulaust,—Stór-
skotaliðsorustan heldur áfram í Fland-
ern. Þjóðverjar láta hægt undan síga,
en Bretar þykjast vissir um. að þeir
neyðist til að yfirgefa þar alveg
stöðvar sínar bráðlega.—Austurríkis-
keisari á að verða konungur Pól-
lands og mestur hluti Oaliziu að
leggjast undir það. Ú'r Eystrasalts-
löndunum sem tekin hafa verið af
Rússum á og að mynda nýtt kon-
ungsríki og einn af sonum Vilhjálms
keisara að verða þar konungur.
Aðrir segja að þau verði innlimuð
í Prússland. — Kerenskij er farinn
tii fundar við hersveitir Kósakka en
Qóður og sterkur
umbúðapappir
fæst enn í prentsmiðju
Odds Björnssonar.
laust uppi í Pelrograd.
10/i i. Pjóöverjar hafa tekið Hels-
ingfors og sett þar ógrynni herliðs
á land sem kvað eiga að halda það
an áleiðis til Petrograd. Miklar róst-
ur á þýzka þinginu. Hertling kanzl
ari hefir heimtað að varakanzlarinn
dr. Helferich fari frá. — Cadorna
yfirhershöfðingi ítala farinn frá en
Diaz tekinn við.
n/n. Bretar og bandamenn þver-
neita að viðurkenna stjórn Lenins.
— Miðveldin hafa tekið um 270
þús. ítala til fanga síðan nm 10.
október, yfir 3000 fallbyssur og mik
ið herfang annað. ítalir hörfa stöð-
ugt undan, eru nú í Piavedalnum
skamt norðan við Wenedig. Þar
tóku Þjóðverjar í gær borgina Asi-
go og 14000 fanga.
>2/u. Bretar vinna stórsigra i Pa
lestina. Þjóðverjar stefna til Petro-
grad beggja megin en ógurlegir
kuldar tefja framsóknina.
13/n. Kerenskij tók Petrograd á
augabragði með Kósakkahersveitum
undir stjórn Korniloffs. Uppreistar-
menn strádrepnir vægðartaust jafnt
hermenn og stjórnmálamenn. Ker-
enskij einvaldur aftur, en stjórnina
skipa með honum Korniloff og Ka-
leidin. Maximalistar hafa gersamlega
látið hugfallast. Uppreistarmenn
beittir ógurlegri grimd. — Uppreist
í Vínarborg, 50 þús. menn hejmta
frið tafarlaust. — Lloyd Qeorge seg-
ir alt friðartal óþarfa tímaeyðslu eins
og nú standi sakir. Wilson segir
Ameríka eigi sjálf næg flutnings-
tæki til þess að flytja her sinn til
Frakklands og auk þess vistir og
hergögn eftir þörfum handa öllum
her bandamanna Meira bygt af
stórskipum í Ameríku en nokkru
sinni fyr.
s
Skarlatssótt.
Fyrir rúmri viku síðan veiktist
stúlkubarn af skarlatssótt f húsi Magn-
úsar Lvngdal skósmiðs hér ( bænum.
Sfðar hefir veikin komið upp f næsta
húsi við hann og veikst móð/r og barn
Ekki er kunnugt um hvaðan veikin
hefir borist f þessi hús, ef til vill hefir
það verið með (erðamönnum norðan
úr sýslum því veikin hefir verið að
ganga þar undanfarið. Grunur leikur
á að sóttin hafi einnig komið upp á
bæ fram f Sölvadal en nánari vitneskju
um það vantar enn.
Veikin virðist vera með vægara
móti og sjúklingarnir þrfr f afturbata.
Allir eru þeir einangraðir svo ekki er
hætt við að þeir sýki út frá sér en
vel má vera að veikin té komin vfðar
þó ekki hafi um spurzt.
Læknirinn á Húsavfk hefir sagt mér
að skarlatssóttin hafi verið mjög væg
þar f héraði þá 2 mánuði sem borið
hefir á henni. Eitthvað 50 sjúklinga
hefir læknir fengið vitneskju um, en af
þeim hafa aðeins 3 verið nokkuð þungt
haldn'r og haft hitaveiki í rúmar tvær
vikur, hinir flestir hafa fengið veikina
mjög væga og enginn dáið. Og nú
má hún heita um garð gengin.
Skarlatssóttin er orðin landlæg hér
á landi og hefir verið að stinga sér
niður hér og hvar f mörg ár en út-
breiðst Iftið. 1910 kom hún seinast
hér í bæinn en aðeins í 5 húsum.
Veikin lýsir sér með hitaveiki háls-
bólu og rauðu útþoti um alt hörundið.
Aríðandi er að íólk geri okkur lækn-
unum aðvart ef grunur leikur á að
skarlatssótt sé komin á heimili þeirra.
Á öll þau hús sem skarlatssótt er
f verður festur upp rauður miði sem
prentað er á: Skarlatssótt er í þessu
þúsi. — Og auðvitað verða allir sjúk-
lingar sóttkvfaðir á heimilunum.
Steingrímur Matthíasson
héraðslœknir.
t