Norðurland - 12.06.1920, Page 1
MORÐURLAND
Eigandi og ritstjóri: JON STEFANSSON.
XX. árg.
Akureyri 12. júní 1920.
11. blað.
Forsikrings-&Genforsikrings-A/s
U RANIA
Köbenhavn.
Stríðsvátrygging. Sjóvátrygging.
Brunatrygging.
Athugið: Iðgjöld hvergi lægri.
t Aðalumboðstnaður á íslandi:
Jón Stefánsson,
Akureyri.
Umboðsmenn óskast í flestum stærri
kaudtúnum.
Horfurnar.
i.
Flestum mun það ljóst, að við
lifum nú á biltingatíma svo
miklum, að þótt einhver spá-
maður hefði sagt það fyrir 7—
8 árum, að slíkar biltingar
mundu verða í álfu vorri á
næstu 10 árum, og raun hefir
á orðið, hefðu sjálfsagt fáir
trúað því, að slíkt mundi ræt-
ast, og enn eru ekki biltingaöld-
urnar farnar að Iækka, þær hafa
sjaldan risið hærra en nú. Þess-
ar biltingaöldur hafa náð til
vor íslendinga, skapað hér dýr-
tíð á því nær öllum varningi,
valdið launahækkun og dýrtíð-
aruppbótum embættismanna og
annara starfsmánna hins opin-
bera, hækkað kaup verkafólks og
allra þeirra er vinna að atvinnu-
vegum landsins. Hefir það rót
komist á alt verðlag og við-
skifti, að menn alinennt naum-
ast hafa áttað sig á hinni stór-
feldu breytingu sem Var að fara
fram kringum þá. Aftur hafa
ýmsir glöggir og áræðnir kaup-
sýslumenn rakað saman miklu
fé, við að hagnýta sér sem
bezt verðhækkun og viðskifta-
kreppu. Nefna sumir það stríðs-
gróða. Fram undir þetta hefir
raunar virst vandalítið að ná í
þann gróða fyrir þá sem við
kaupskap fást, þar svo að segja
nsestum því hver einasta vöru-
tegund hefir jafnt og þétt hækk-
að í verði, og því auðvelt að
græða á þeim, dragist salan frá
innkaupinu, sem bæði kaupmanns
hýggindin og flutningakreppan
einatt stuðluðu að.
Framleiðsluvarningur okkar
Islendinga fylgdist fullkomlega
með í verðhækkuninni, og sum
íslenzk matvara hækkaði jafnvel
meira f verði en erlend matvara
almennt. Fyrir þá verðhækk-
un var öllumeira kapp Iagt á
innlenda framleiðslu en nokkru
sinni áður og öllu ákafar sótst
eftir verkafólki og kauptilboðin
hækkuðu ár frá ári. Dýrtíðar-
aldan hefir því víðast hvar hjá
okkur aukið hagnaðinn af skyn-
samlegri framleiðslu og' kaup-
skaparstarfsemi, alt fram að þess-
um tíma.
En eru nú horfur til að svo
verði framvegis? Eru eigi horf-
urnar að breytast? Pótt ókyrt sé
í kringum okkur og tbiltinga-
hvassvirði, þá mun nú samt á-
stæða til fyrir oss að staldra við
og athuga, hvort einmitt nú eru
ekki veðrabrigði í lofti og hvort
eigi sé nauðsynlegt fyrir oss að
viðhafa alla varasemi og að-
gæslu ef verðfall og kauptregða
væri í aðsígi, sem allmiklar
líkur eru til og glöggir menn
þykjast sjá fyrir, enda sé verð-
fallið þegar á sumum sviðum
riðið í hlað.
Mér verður þá fyrst að líta
á viðskifti vor við erlendar þjóð-
ir og athuga hvernig þau horfa
við.
, Vöruskorturinn í Norðurálf-
unni og flutningaerfiðleikarnir
stríðsárin og síðan, meðfram
fyrir skipaskort, hefir valdið [)ví
að allar nauðsynjavörur hafa
hækkað gífurlega í verði, og
jafnhliða hækkað verð fram-
íeiðsluvinnunnar.
Launahækkun embættismanna,
dýrtíðaruppbætur og kauphækk-
ún við alla framleiðslu, virðist
því eigi óeðlileg afleiðing verð-
hækkunarinnar á allri nauðsynja-
vöru erlendrar jafnt og inn-
lendrar.
En ef ástandið breytist, sem
margt bendir á að muni verða,
og framleiðsluvörunar, einkum
þær innlendu, taka að falla í
verði. Hvernig koma þá at-
vinnuvegarekendur þessa lands
til að standa að vígi, og hvað
verður þá til ráða að sjá sér
farborða? því hætt er við að
vinnukaupið lækki eigi jafnskjótt
og framleiðsluvörurnar falla.
Hverjar verða þá horfurnar,
og hvað verður til ráða ? Um
það atriði langar mig til að fara
fáeinum orðum í næstu blöð-
um fái eg rúm.
Bárður.
c\>
Fyrirhuguð mannvirki
sumarið 1920.
•
Vegagerðir.
Á fjárlögum þessa árs eru veittar
350 þús. kr. til vegagerða, en vegna
þess, að verkalaun hafa hækkað að
mun síðan fjárlögin voru samþykt, er
gert ráð fyrir, að ekki verði komist
hjá nokkurri umfram eyðslu, með því
að ekki þykir rétt að takmarka fram-
kvæmdir að sama skapi; umfram eýðsl-
an er áætluð um 60 þús. kr. Af nýj-
um vegalagningum má sérstaklega nefna
þessar:
Húnvetningabraut verður fullgerð
að þjóðveginum hjá Vatnsdalshólum.
Sú akbraut liggur frá Blönduós og
verður um 22 km. á lengd.
Byrjað verður á lagningu Hvamms-
tangabrautai, sem aðeins verður urn
5,5 km. og á að ná á þjóðveginum
nálægt væntanlegri brú á Miðljarðará
hjá Reykjum.
Byrjað verður á vandaðri endur-
byggingu Flóavegarins. Verður vegur-
inn allur púkkaður; hefir verið útveg-
uð vél til að mylja grjótið og veg-
valtari til að þjappa því saman í veg-
imrtn. Allar brýr og aðrir timburhler-
ar yfir ræsi, verður gert upp úr járn-
bentri steinsteypu. Kostnaður var 1919
áætlaður 200 þús. kr. og skal greið-
ast að a/a úr rtkissjóði en V» hluta
greiðir sýslusjóður Árnessýslu, þó greið-
ist kostnaður við útvegun mulningsvél-
ar og vegvaltara að öllu úr ríkissjóði.
Norðurárdalsvegi f Borgarfirði verð-
ur haldið áfram, og kemst hann vænt-
anlega upp áð hraunbrúnni norðan
við bæinn Laxfoss.
Langadalsvegi f Húnavatnssýslu og
Hróarstunguvegi verður haldið áfram,
ennfremur nokkrum öðrum akbrautum
með smá fjárveitingum.
Til umbóta á fjallvegum verður var-
ið um 12 þúsund krónum. Tillög
til akfærra sýsluvega verða um 50 þús.
kr., og kemur jafnmikið á móti frá
hlutaðeigandi sýslufélögum. Til við-
halds þjóðvega og flutningabrauta
þeirra, er rikissjóði er skylt að annast
verður varið alt að 100 þús. kr.
Brúargerðír.
Alþingi 1919 samþykti lög um brú-
argerðir. Verða samkvæmt þeim all-
ar brýr gerðar úr járni eða járnbentri
steinsteypu og fyrir lánsfé, og því ekki
sérstakar fjárveitingar til þeirra fram-
kvæmda, en landsstjórnin ákveður,
hvaða brýr skuli gerðar á hverju ári.
Þannig hefir nú í ár verið ákveðið að
gera brýr á þessar ár og eru brýrnar
Hestar á þjóðveguin: Jökulsá á Sól-
heimasandi, Reynistaðará í Skagafirði
Brúará í Árnessýslu, ennfremur að gera
nýjar brýr í stað gamalla trébrúa á
þessar ár: Elliðaárnar, Leirvogsá í Mos-
fellssveit, Hólmsá á Mýrdalssandi, Gufu-
á í Borgarfirði,'Kópavogslæk á Hafn-
arfjarðárvegi, auk nokkurra fleiri smá-
brúa. Loks er ráðgert að byrja á
næstkomandi hausti á undirbúningi
undir brúargerð á Eyjafjarðará. Lang-
stærstar þessara brúa eru brýrnar á
Jökulsá og Eyjafjarðará. Fannig er
Jökulsárbrúin samtals um 230 metrar
á lengd, og er ekki búist við að hún
verði fullgerð fyr en 1921.
Geir G. Zoéga.
(»MbI.«)
co
Draumar, efni, draugar.
Nú er dagur kominn.
Ríða dauðir menn?
Skáldið Vilh, Shakespear lætur eina
hetjuna sína segja: »We are such stuff
as dreams are made of.« P. e. «Vér
erum drauma svipir.* Líf margra lík-
ist draumi. En mikill munur er,á draumi
og vöku. — Hinsvegar lætur Eddu
skáldið Sigrúnu frá Sefafjöllum, und-
rast yfir því, að Helgi unnusti hennar
skuli birtast henni, snemma morguns
þeysandi gegnum skýin.hertýgjaður eins
og þegar hann og rekkar hans þustu
fram til atlðgu kveldið áður við Freka-
stein.
Flestir fulltíðamenn vita, að æstar
geðshræringar, áköf bræði, djúp sorg
jafnt sem ofsagleði, geta svo truflað
sjón manns, heyrn og tilfinningar, að
maður þykist sjá, heyra og jafnvel
snerta eitt eðpr annað, sem maður
verður alls ekki var við þegar geðs-
hræðingin líður frá. — Þesskonar sjón-
ir, heyrnir eða »fyi;irbrigðir« eiga upp-
runa sinn í æsingu taugakerfisins eða
truflun þess, en alls ekki í áhrifum
umheimsins.
En hvað eru draumar? spyrja menn.
-*■ Deyfð eða dáleiðslu hugsun, en
hugsunin er samstarf athugana, skiln-
ings og vilja. — Að halda þessar sjón-
ir, heyrnir og »fyrirbrygðir« vera raun-
veruleg og reglubundin atvik en ekki
ofsjónir eða blekking skynfæranna,
er sama sem að gefa tilhneiging
um sínum tauminn og setja vitl&ysuna
til valda. Sigrún brjáluð af sorg þyk-
ist sjá unnusta sinn Helga, þeysa til
atlögu eins og í lifanda lífi, og fylgir
honum í dauðann. En Helgakviða er
ástar og orustuljóð og sýnir einkum
það, að þegar sú saga gerðist, gátu
konur mist vitið af sorg og menn mist
rænu af bræði, og þori eg að segja,
að alveg eins inuni vera því farið með
sjónir og »vitranir« ýmsra austrænna