Norðurljósið - 06.01.1891, Qupperneq 3
1891
NÖRÐURLJÓSIÐ,
3
•— Bjargráðanefnd Akureyrarkaupstaðar hefir
haldið fund mcð sér til að ræða um á hvern hátt pví yrði
komið til vegar, að sjomenn tækju upp að við hafa lýsi og
björgunaráhöld á sjóferðum á opnum bátum og piljuskip-
um, er til veiða ganga frá Akureyrarkaupstað. — Nefnd-
in ákvað að halda fund með sjómönnum og útvegsmönnum
h«r í bænum í p. m., til að fá pá til að taka upp hin
nauðsynlegu björgunaráhöld.
Sömuleiðis kom til umræðuí nefndinni að gjöra til-
raun til að stofna til styrktarsjóðs handa ekkjum og
nmnaðarlausum börnum drukknaðra sjómanna við Eyja-
fjörð, og gjörðu ráð fyrir að kveðja útvegsbændur og sjö-
njenn við, Eyjafjörð til almenns fundar seinna í vetur.
J>að væri æskilegt að allar bjargráðanefndir, sérstak-
lega við Eyjafjörð vildu fara að dæmi bjargráðanefndar
Akureyrar, að reyna að koma mönnum tii að nota bjarg-
rað séra Odds Gíslasonar, sem með miklum dugnaði og
einlægum álmga vinnur að svo pörfu máli.
Séra Oddur hefir komizt í samband við kraptmikil vel-
gjörðafelög erlendis, og fengið gjafir frá peim til eflingar
bjargráðamálum hér á landi.
Yanskil á blöðum, sem komu út í ágúst og
september, er kvartað er yfir á Austurlandi, koma til af
pví. að pau voru send sem póstfiutningur með ensku fjár-
kaupaskipi frá Akureyri til Seyðisfjarðar, en skipstjóri
skilaði ekki póstinum á Seyðisfirði, heldur fór með hann
til Englands, paðan hefir hann svo komið til íteykjavíkur
og síðan verið fiuttur með iandpóstum. Slíkt athæfi skip-
stjóra er líklegt að póststjórnin láti ekki átölulaust.
SAMTÍNINGUE.
— A siðasta fjárhagsári eyddu Bandaríkjamenn 1200
mitj. dollars í öl og brennivín og aðra áfenga drykki. Er
pað rúmlega 100 milj. dollars meira en á fjárhagsárinu
næsta á undan.
— Nýlega varð gjaldprota eitt hið stærsta umboðs-
verzlunarfélag í JAmeríku; verzlaði með kaffi, viðarull,
matvöru o. fl., hafði stofnsettar aukaverzlanir í 20 stærstu
bæjunum í Norðurálfu. Aðalból félagsins hefir verið í
Broadway í New-York frá pví pað var stofnað fyrir 37
áruin. Skuldir pess skipta miljónum dollars,
— í síðastl. ágústmán. voru í Bandaríkjunum slegnir
guii* og silfurpeningar upp á 5,530,600 dollars. í lok
sept. mánaðar voru í afgangi í fjárhirzlunni 85,315,869
dollars.
— . í sumar er leið hreppti eimskipið Vancowor, —
eign Domiuion-Iínunnar — stórviðri rnikið á leið vestur
yfir Atlantshafið og er storminn lægði skall á svartnættis-
poka svo pykk að ekkert sást frá skipinu, og var pað pví
að heita mátti ferðlaust. ísborgir voru á reki hvervetna
umhverfis, og á eina peirra rakst skipið með pví heljar-
afli, að pað klauf 15 feta djúpa skoru í jakann og féllu
pá mörg púsund punda pungir ísmolar í drífu á piljur
niður og brakaði í öllum innviðum skipsins. Eptir að
skipið náðist út aptur og á flot, er gekk seint, var pað ná-
kvæmiega skoðað og var alveg óskemmt, nema hvað losnað
hafði ein járnspöng framan á pví, laust fyrir ofan sjávar-
mál. Farpegar voru um 600 og urðu meira en lítið
hræddir; varð pó með hörkubrögðum haldið í skefjum.
Állan-Línan
er sú eina lína, sem sendir gufuskip hingað tll lands ein-
ungis til að sækja vesturfara J>að hefir línan gert nú í
mörg ár, hvort sem margir eða fáir hafa farið og pau ein
skip, sem liún sendir, eru útbúin til að flytja fólk sam-
kvæmt útflutningslögunum. Eins og að undanfórnu mun
Allan-Línan senda skip um miðjan júní næstkomandi til að
sækja pá, er vilja flytja með henni, og tekur pá á vana-
legum höfnum, svo framarlega sem ís eða aðrar ófyrir-
sjáanlegar hindranir ekki banna. J>að er mjög áríðandb
að allir, sem til Vesturheims ætla að flytja á næsta sumri
og taka sér far með Allan-línunni, gefi sig fram og panti
far hjá mér eða agentum mínum svo timanlega, að eg fái
að vita tölu peirra ekki síðar enn í síðasta lagi með
fyrsta strandferðaskipi í vor komandi, 1891, svo eg geti
pantað hæfilega stórt skip í tíma.
Hr. Baldvin Baldvinsson, agent stjórnarinnar í Kan-
ada, verður túlkur og yfir-umsjónarmaður ineð pví fólki,
sem fer með línunni í júnímánuði, eða aðalhópnum á næsta
sumri, og fylgir pví alla leið til Winnipeg, og er pví bezt
fyrir alla, sem ætla að fara, að sæta pví tækifæri að njóta
hans leiðsagnar.
Einnig mun eg eins og að undanförnu flytja með
dönsku póstskipunum pá, sem heldur vilja taka sér far
með peim, svo framarlega sem pau framvegis flytjanokkra
vesturfara.
Sigfús Eymussdsson.
útflutningsstjóri.
í „J>jóðvíljanum« nr. 27, bls. 107 stendur greinarstúfur
nokkur, sem hefir fyrir Motto: „Læknar eru listamenn“.
Grein pessi er svo úr garði gjörð, að ókunnugum má til
hugar koma, að eitthvað muni vera misjafnt í fari héraðlækn-
is herra J>. Johnsens á Akureyri.
En af pví eg er nokkuð kunuugur lækni pessum, pá
álít eg pað siðferðislega skyldu mína, að láta opinberlega í
ljósi hvernig hanu heíir komið fram, sem læknir við mig,
án pess eg ætli að svara nefn.dri grein. Eg hefi fyrir nokkr-
um árum síðan lítið eitt farið með meðul, og sem hefir ver-
ið J>orgrimi lækni vel kunnugt. Og er svo langt frá að
hann hafi amast við pví, að hann hefir hvatt ínig til pess að
halda pví áfram, og boðið mér alla pá hjálp, er hann gæti
mér í té látið, og líka gefið mér verkfæri, sem pó er ekki
nema lækna meðfæri að brúka.
Af pessu dreg eg pá ályktun, að ekki muni allt vera
s a 11 sem í áminnstri grein stendur. Og höfundur hennar
liafi ekki v e 1 glöggvað sig á sannleikanum meðan hann rit-
aði grein sína.
Stærraárskógi 23. desember 1890.
J. Magnússon.
T o iii b o 1 a
verður h.aldin á Akureyri næsta suinardag fyrsta. Arðinum af
henni á að verja til að kaupa kennsluáhöld handa barnaskóla
Akureyrar.
Eru pað vinsamleg tilmæli mín til allra góðra manna
um Eyjafjörð, að peir gjöri svo vel að gefa einhverja muni
til tombolunnar. — Gjöfunum veiti eg móttöku og cand.
phil, Skapti Jósepsson.
Akureyri 30. des. 1890.
Páll Jónsson.