Norðurljósið - 25.01.1893, Page 3

Norðurljósið - 25.01.1893, Page 3
11 hægt er að fá. Utan yflr kragann hengir það men úr allavega litum gierperlum, og utan er yflrhöfn þeirra fóðruð með gulum, rauðum, grænum og blðum hómullarvoðum. Að neðanverðu er yfirhöfnin hrydd með mislit.um bómullarborða, en þó helzt með silki. Kvennfólkið er i brókum úr flekkóttu selskinni en stundum úr hreindýrsskinní. Eru þær töluvert styttri en brækur karlmannanna og ná vanaiega lítið niður fyrir knje, en eru skreyttar utan með lituðum laufa- skurðaleggingum úr skinni eða hvítum reimum úr hund- skinni eða hreindýrsskinni. Kamikarnir eða stigvjelin ná upp fyrir knje og eru þeir litaðir rauðir eða biáir, hvítir eða fjólubláir, skreyttir utan með skinnlegging- um eins og brækurnar. (Framh.). -------Í=3$I===---- Mannalát. Hinn 20. þ. m. andaðist hjer í bænum. Torfi Þorgrímsson prentari, fæddur hjer í bænum 24. jan. 1828. Nálega 18 vetra gamall tók hann að læra prentara iðn hjá Helga Helgasyni, þáverandi forstjóra iandsprentsmiðjunnar og stundaði Torfl sál. iðn þessa til dauðadags eða i nál. 50 ár. Hinn 10. október 1853 kvæntist hann Sigríði Asmundsdóttur, tómthúsmanns frá Grjóta hjer í bænum, sem lifir hann ásamt 6 börn- um þeirra uppkomnum: Siggeir verzlunarstjóra í Þor, lákshöfn, Asmundi núíNew-York í Ameriku, Þorgrími sem um nokkur ár heflr verið í flota Bandaríkjanna- Þóru, ekkju eptir Einar sál. Tómasson bóndaíVarma- hlíð undir Eyjafjöllum, Guðbjörgu, sem er gipt Sig- mundi prentara Guðmundssyni hjer í bænum og Maríu núíAmeríku giptri James Robb, syniHans Robb fyrv. kaupm. hjer í Rvík. Torfi sál. var stakur iðjumaður, sparneytinn og um- hyggjusamur heimilisfaðir. Hinn 15. þ. m. andaðist Sveinbjörn Þórðarson óðals- bóndi í Sandgerði á Miðnesi, fyr hreppstjóri og hrepps- nefndarmaðar, 75 ára að aldri. Sveinbjörn sál. mun hafa verið búandi um 50 ár, þar af mjög lengi í Sandgerði, en oss er ekki kunn- ugt hvort hann byrjaði búskap þar. Hann kvongaðist fyrst 7. júlí.1842 Margrjeti Guð- mundsdóttur og í annað sinn 10. júlí 1870 Guðrúnu Þórðardóttur, sem einnig dó á undan honum. Alls varð lionum 15 barna auðið og eru að eins 4 þeirra enn á lifl. Sveinbjörn sál. var dugnaðarmaður, og auðsæll, einn hinn efnaðri bænda á Suðurlandi, og að ýmsu talinn einn hinna merkari bænda á Suðurnesjum. ----3se------- Landsyflrdómar þessir voru kveðnir upp hinn 23. þ. m.: 1. Hið opinbera gegn Þorsteini Helgasyni bónda frá Presthúsum á Kjalarnesi, er heldur ofanskrifaða jörð yfirstandandi fardagaár og heldur nú hjú á henni til að hirða skepnur sínar, en heflr flutzt hingað í liaust til sjóróðra og með 4 börn sín til náms vetrar- langt ásamt móður þeirra, til að þjóna þeim og mat- reiða fyrir þau. Var hann kærður af hinu opinbera fyrir ólöglega húsmennsku hjer í bæ og dæmdur með lögreglurjettardómi Reykjavíkur 18, nóv. f. ár í 10 kr. sekt, að hálfu til bæjarsjóðs Reykjavíkur en að hálfu til fátækranefndar Kjalarneshrepps og ennfremur til að greiöa allan málskostnað. Yfirdómurinn heflr aptur á móti ekki álitið sannað, að hinn ákærði væri hjer í neinni húsmennsku, held- ur að eins.um stundarsakir, og hefir því dæmt hann sýknan af ákæru hins opinbera, en að málskostnaður greiðist af almannafje. 2. Einar Jónsson, Sæmundur Jónsson, Eiríkur Ket- ilsson og Magnús Magnússon forsvarsbændur Járn- gerðarstaðatorfunnar gegn síra Oddi V. Gíslasyni á Stað í Grindavík. Afrýjendurnir voru með aukarjetti Kjósar- og Gullbringusýslu 7. febr. 1892 dæmdir til að greiða hinum stefnda, er hóf málið fyrir undirrjetti nokkurn hluta úr hval, er róinn hafði verið að landi á Járngerðarstöðum í Grindavík 26. ág. 1890, er hinn stefndi kvað hafa fundizt í rekhelgi og bæri því nokk- ur hluti hans kirkjunni á Stað, og nokkuð sjer sem ábúanda jarðarinnar á Stað. Ennfremur voru áfrý- endurnir dæmdir til að greiða 100 kr. í málskostnað. Yfirdómurinn álitur ekki sannað, að hvalur þessi hafi fundizt í rekhelgi og heflr því dæmt áfrýjend- urnar sýkna fyrir kærum og kröfum hins stefnda. Málskostnaður falli niður. 3. Vísað frá yfirdómnum máii Vigfúsar Þórarins- sonar bónda á Sólheimum í Mýrdal gegn skiptaráð- anda Kjósar- og Gullbringusýslu og hreppsnefndunum í Hvamms og Dyrhólahreppum í Skaptafellssýslu út af skiptum í dánarbúi Sveins Árnasonar á Krókskoti í Gullbringusýslu, er áfrýjandinn Vigfús Þórarinsson, skuldheimtumaður dánarbúsins, heflr kraflzt að dæmd yrðu ógild, þar eð sannað er, að áfrýjandinn hafl eptir að skiptin fóru fram, tekið á móti og kvittað fyrir öllum þeim peningum, er hann átti hjá búinu án þess að breyfa þá neinum mótmælum. Slysfarir. Hinn 16. þ. m. fórst bátur á Skerjafirði með 4 karlmönnum og 1 kvennmanni allt frá Breiða- bólsstöðum á Alptanesi. Veður var allhvasst á útsunn- an og sást það síðast til bátsins, að hann hafði fellt segl undir útsynningsjel, en er jelinu stytti upp var báturinn horfinn, en ekki er þess getið, að neinum, er varð þess var, hafl hugkvæmzt að gæta þess nákvæm- ar, bvort ekki tækist að bjarga neinum með lífi. — Má telja hraparlegt slys, þegar bátar farast á jafn örmjó- um fjörðum. Ber ekki ósjaldan við, að bátar, sem notaðir eru til smáflutninga eru ýmist oflitlir og þar af leiðandi ofhlaðnir og þar að auki lekir og ijelegir að öllum útbúnaði, þótt ekki sje fullyrðandi, að svo hafl verið í þetta sinn. Nýtt blað. Með Norðanpóstinum barst hingað hið nýja blað, sem nú er tekið að gefa út á Akureyri og kallað er »Stefnir«. Er það stofnað af hlutafjelagi með 60 hlutabrjefum og hljóðar hvert þeirra 10 krón- ur. I stjórn hlutafjelagsins eru: Klemens Jónsson bæjarf'ógeti á Akureyri, Stefán Stefánsson, kennari á Möðruvöllum og síra Jónas Jónasson, prestur á Grund í Eyjafirði. — Ritstjóri »Stefnis« er Páll Jónsson kenn- ari, fyrsti ritstjóri Norðurljóssins. »Stefnir« á að koma út tvisvar í mánuði eða 24 sinnum á ári og kostar ár- gangurinn 2 krónur. -----3se------ Andrúmsloptið. Brot úr íyrirlestri. (Meira). Þar eð höfundur náttúrunnar hefir hver- vetna hagað því þannig, að þau efni eru útbreiddust, sem hafa mesta þýðingu fyrir tilveru alls hins lifanda, hljótum vjer þegar að sjá, að súrefnið hljóti að vera eitt af hinum allra nauðsynlegustu efnum í náttúr- unni.

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/204

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.