Óðinn - 01.02.1907, Side 3

Óðinn - 01.02.1907, Side 3
Ó Ð 1 N N . 83 hverju einu á sem óbrotnastan og eðlilegastan hátt, og þó að til þess þurfi einmitt oft mikinn lærdóm og glögt auga, þá er þó síður hætt við, þegar þeirri reglu er stöðugt fylgt, að hinn »mikli lær- dómur« þjóti með menn út á kviksyndi, eins og sumum hefur orðið, jafnvel fræknum mönnum. Þessi heiibrigða skynsemi Finns, ef svo mætti kalla það, hefur opt orðið honuni liðdrjúgt vopn, og skal jeg þar að eins minna á viðureign hans við Búgga, jötuninn norska. Búgge Iiafði, eins og kunnugt er, lagt þar á allan mátt sinn og megin- kýngi að sanna, að mikill hluti hugmynda og sagna norrænu goðafræðinnar væri af kristnum toga og kominn vestan um haf með víkingunum, og svo var kunnátta hans römm, að margir góðir menn tóku þá þetta fyrir satt. Þar rjeðst nú Finnur með fleirum móti honum og sýnir okkur blátt áfram guð- ina og sögurnar í kvæðum, sem eru eldri en svo, að á- hrifin að vestan geti náð til þeirra, hvaðan sem hugmyndirnar annars sje komnar, og hljóti því Húgge annaðhvort að gefa sig upp eða sanna, að þessi kvæði sjen alt að því lieilli öld yngri en þau sje sögð, og því rangt feðruð. Auðvitað reyn- ir Búgge svo þetta og berjast þeir þá á ný og mest um Ragnarsdrápu Braga og Ynglingatal Þjóð- ólfs og verður Búgge þar sár, þó allir kannist eftir sem áður við snilli hans og kunnáttu. ()g svo afarörðugt verk og vanþakklátt, sem liin mikla bókmentasaga Finns er, þar sem kalla má að á hverri blaðsíðu verði að leysa meira og minna vonda hnúta og oft að dæma milli lærð- ustu ritgarpa, þá virðist manni sem þessi sama aðferð, að gæta jafnan fyrst að þvi, sem næst er, hafi lyft honum vel yfir marga torfæru. Jeg hef ofurlítið reynt að kynna mjer einstöku atriði, sem þar ræðir um, l. a. m. það, sem lærðu mennirnir hafa skrifað um Njálu, og sýnist sem Finnur liall- ist þar oftast að þvi sem eðlilegast er, og svo er víðar, þó gaman væri stundum að malda í móinn, ef meiri væri þekkingin, þvi liann tekur oft mikið al' og eggjar stundum hvatskeytlega til andmæla; en jeg met vísinda- og rannsóknar-aðferð hans jafnmikils fyrir því. Mjer finst ekki næg rök til að eigna klaustrunum svo mikið sem hann gerir og gert hefur verið, þar sem t. a. m. sjest, hve fjandsamlegir ýmsir biskuparnir voru fornum fræðum. Landnáma sýnir ljóslega hvernig höfð- ingjaættirnar geyma sagnirnar og ættfræðina lil þess að verða ekki rótlausar og slitna ekki alveg frá höfðingjaættunum í Noregi, þó þær sje þá burtu þaðan. Þessa livöt, og svo frægðarverk feðranna, sem utan að því raðast, hafa þeir til að safna og skrifa, en síður hinir, sem eftir voru í Noregi. Þessu fylgir og áhuginn á vísunum og kvæðunum og þau lialda aftur við skáldskapar- lífinu og glæða það og jeg finn elcki keltnesk áhrif á það eða þjóðernið fremur en Finnur. Keltar geyma hjer varla minninguna um það, livaðan þeir eru og tæplega nöfn feðra sinna. Og spor ritaldarinnar liggja glögg frá höfðingjasetrunum í Odda og Haukadal vestur til Breiðafjarðar, fyrst með Ara og síðan með Snorra til Sturlunga og ekkert líkara en bækurnar geymist í ættunum og dreifist í afskriftum milli þeirra, þó þær ílyttust þar til á ýmsa vegu, og hafi jafnvel sumar geymst þar alt þangað til þær sigldu til Kaupmannahafnar. Og þó lærðir eða prestvígðir höfðingjar og höfð- ingja synir rituðu, þá er það annað en klaustrin. Það sem víst er um að sje frá klaustrunum, sýnist hafa sjerstakan keim og margt leiðan keim. Betri liluti Sverrissögu er ékki einu sinni skrifaður í klaustri. Finnur hefur ekki sannfært mig um eign Norð- manna í Eddukvæðunum, síst svo víðtæka, sem hann gerir hana, en að láta myndir og orðtæki kvæðanna sjálfra skýra frá heimkynni þeirra, er í alla staði skynsamlegt og rjett og hann bendir þar næmt og skarplega á, hvað eðlilegast er. Og þó að svo skarpur maður og lærður sem Björn Ólsen er, finni þar nokkra vörn i máli, þá minkar það ekki Finn, því það verður aldrei rekið, að myndir og atvik úr daglegu lífi eru í kvæðunum, sem sjeð og hugsuð eru í Noregi, eða utan íslands, hvar sem þetta er fært í Ijóð, þó margt bendi til að það sje á íslandi. Það er, meðal annars, sama sem víst, að ein kviðan, að minsta kosti, er ort á Grænlandi og er eðlilegast að Grænlendingar hafi flutt með sjer þennan andans arf af íslandi og haft þar sagnir sínar og fyrirmyndir og þær því verið þar alþýðueign síðari hluta 10. aldar og æði rótgrónar og verður það tæpur tími nema fyrir allra elstu kvæðin, ef mestur hlutinn væri frá Noregi. Annars er ekki óeðlilegast að hugsa sjer, að Eddukvæðin flest sje það sem nú mundi kallað alþýðukveðskapur og hafi eitt sinn átt höfuðbólin en búið siðan á kotunum við hlið höfðingja og höfðingjakvæða og stundum á hetri jörðunum, en bæði þokað nokkuð smám saman lyrir viðhafnar- kvæðunum og þólt síðan ekki nógu þörf til að

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.