Óðinn - 01.02.1907, Blaðsíða 5
ÓÐINN.
85
til. Hann ann og ættjörð sinni öngu siður en
sumir þeirra sem nú bera brigður á það, og jeg
veit ekkert ódrengilegt í fari hans og mjer var hann
betur en flestir aðrir landar mínir í Höfn eitt sinn
þegar á það reyndi. Og það eru atvikin ein, sem valda
því, að störf hans hafa hingað til orðið alþýðu
manna hjer á landi lítið til gagns eða gleði nema
óbeinlínis. Hann vildi víst sjálfur gjarnan, að gagníð
væri meira. Hann er maður í hærra lagi vexti og
svarar sjer vel og liefur hratt göngulag en mynd-
in sýnir andlitið.
Hann er kvæntur Emmu Herazcek, danskri
konu af suðurþýskum (czechneskum) ættum, en
faðir hennar var vopnasmiður. E*au eiga einn son
og heitir hann í höfuð á afa sínum, Jóni gamla
borgfirðingi föður Finns.
Finnur Jónsson er aðeins 48 ára nú, f. 19. Maí
1858 og er nú einn af nafnkendustu löndum sín-
um, sem nú lifa, og hefur meiri bókmentastörf af
hendi int en nokkur annar þeirra, enda náð þeirri
stöðu, sem vísindamanni getur hlotnast hæst, að
verða háskólaprófessor, það varð hann 1898 en
aukakennari 1890 og áður settur kennari í 3 ár,
og þótti þá þegar svo vænlegur til vísindamanns,
að liann mun þá hafa átt kost á háskólastöðu
annarstaðar.
Að þessum manni hafa dugur lians og hæfi-
leikar gert hann, og þó hitt ekki síður, að hann er
sá lánsmaður, að finna götu sína þegar í öndverðu
og lenda hvorki á reiki nje villivegum, sem mörg-
um manni hal'a orðið til tafar.
Porsteinn Erlingsson.
Garðar Gíslason, verslunar-umboðsmaður.
Garðar Gíslason verslunar-uniboðsniaður i Leith á
Skotlandi á nú orðið marga viðskiftavini lijer viðsvegar
um land. Hann er
ungur maður og við-
skiftarekstur hans að-
eins fárra ára gamall.
En sýnilegt er, að par
stendur duglegur mað-
ur á bak við.
Garðar er f'æddur 14.
júni 1876, sonur Gísla
Ásmundssonar, er lengi
var bóndi á Þverá i
Fnjóskadal,
bróðurEin-
ars heit. al-
þingismanns í Nesi. Gísli er dáinn fyrir fáum
árum. Peir eru fjórir bræður, synir Gísla,
og er síra Ásmundur á Iiálsi í Fnjóskadal
clstur, þá Ingólfur læknir á Vopnafirði, þá
Garðar, en Haukur, sem nú hefur nýlokið
guðfræðispróíi á háskólauum í Khöfn,
yngstur.
Garðar var heima hjá foreldrum sínum
til 1892. Þá fór hann á Möðruvallaskólann
og var þar 2 vetur. Síðan var hann barna-
kennari í Húnavatnssýslu og um tíma við
verslun á Blönduósi. Pá var hann næst
barnakennari á Húsavik og sumarið 1896
kaupamaður uppi á Hólsfiöllum, en næsta
vetur barnakennari á Akureyri. Vorið 1897
fór hann að Grund i Eyjafirði og var þar
við verslun lil haustsins 1899. Pá sigldi
hann til Khafnar og var þar næsta vetur á
verslunarskóla, en rjeðst svo til verslunarfjelagsins Cop-
land & BeTÍe í Leith.
Ekki var liann nema eitthvað eins árs tíma lijá Copl.
& Berrie, en byrjaði þá umboðsverslun á eigin spýtur.
Pað var 1901. Viðskiptin urðu brátt töluverð, svo að
liann varð að leigja sjerstaka verslunarskrifstofu, og eft-
ir eitt missiri tók hann sjer aðstoðarmann. Pað var
ungur maður enskur, Hay að nafni, sem hafði verið
samtímis honum hjá Copl. & Berrie. Ári siðar varð
þessi maður verslunarfjelagi Garðars.
Viðskifti þeirra hjer hafa stöðugt farið vaxandi. Á
síðari árum hafa þeir sent hingað 2—3 skip, sem
alveg eru fermd af þeim einum, auk alls þess sem þeir