Óðinn - 01.05.1908, Blaðsíða 3
ÓÐINN
11
Konur í bæjarstjórn Reykjavíkur.
Á síðustu árum hefur kvenrjettindamálið
verið sótt með meiri áhuga en áður í mörgum
löndum Norðurálfunnar, og eitt þeirra, Finnland,
er komið svo langt, að konur hafa fengið þarfull-
komið jafnrjetti við karlmenn. Einkum hafa þó
konur Norður-Ameríku haft forgönguna í þessu
rnáli. Kvenfjelög eru nú mynduð, í flestum
löndum hins mentaða heims, með því markmiði,
að afla konum stjórnmálarjettar til jafns við karl-
menn, og alþjóða-kvenrjettindafjelag er stofnað,
sem heldur hrej'fingunni vakandi og setur heild-
arskipun á fjelagsskapinn.
Hjer á landi var stærsta sporið í þessa átt
stigið á síðastliðnu ári, og gekk Reykjavík þar á
undan. Með breyting, sem gerð var á lögum um
bæjarstjórn Reykjavíkur á síðasta {)ingi, en undir-
Frú Katrin Mai/nússon.
búin hafði verið
hjer í bæjarstjórn-
inni og á almenn-
um borgarafundi,
er konurn veitt jafn-
rjetti við karlmenn
í bæjarmálum.
Lögin ákveða,
að »kosningarrjett
hafi allir bæjarl)ú-
ar, karlar og kon-
ur, sem eru 25 ára
þegar kosning fer
fram, hafa átt lög-
heimili i bænurn 1
ár, hafa óflekkað
mannorð, eru fjár Frú Pórunn Jónassen
síns ráðandi, eru ekki öðrurn háðir sem hjú og
standa eigi í skuld fyrir sveitarstyrk — ef þeir
greiða skattgjald til bæjarsjóðs. Konur kjósenda
hafa kosningarrjett, þó þær sjeu eigi fjár sinsráð-
andi vegna hjónabandsins og þótt þær eigi greiði
sjerstaklega gjald í bæjarsjóð, ef þær að öðru lejdi
uppfylla áðurgreind skilyrði fyrir kosningarrjetti«.
Sömu reglur gilda um kjörgengi.
Eftir þessunr lögum var fyrst kosið hjer í
byrjun þessa árs. Kornu þá konur fram með
sjerstakan lista og fylgdu honum vel, svo að hann
fjekk flest atkvæði allra kosningalistanna og kom
að 4 konum af 15 fulltrúum, er nú eiga sæti í
bæjarstjórninni. Fleiri nöfn höfðu þær ekki tekið
á listann. En þessar 4 konur eru : Frú Katrín
Magnússon, frú Þórunn Jónassen, frú Bríet Bjarn-
hjeðinsdóttir og frú Guðrún Björnsdóttir, og fylgja
lijer myndir af þeim.
Frii Katrin Magnússon er gift Guðmundi Magn-
ússyni læknakennara. Hún er l’ædd í Hrappsey á
Breiðafirði 18. mars 1858, dóttir Skúla Sívertsens,
er þar bjó lengi, en nú er hjer í Rvík hjá dóttur
sinni og tengdasyni. Móðir hennar, Hlíf Jónsdótt-
ir frá Helgafelli í Vatnsdal, er dáin fyrir allmörg-
um árurn. Frú Katrín ólst upp hjá foreldrum
sínum í Hrappsey, en var þó einnig nokkur ár
lijer í Rvík hjá frændkonu sinni, frú Katrínu konu
Jóns Árnasonar bókavarðar. 1891 giftust þau
Guðmundur læknir og voru næsta vetur í Kliöfn,
en þá fjekk hann Skagafjarðarlæknishjerað og síð-
an kennaraembættið við læknaskólann 1894.
Síðan frk. Þorbjörg Sveinsdóttir andaðist, 1901,
hefur frú Katrin verið forstöðukona Kvenljelags-