Óðinn - 01.05.1908, Blaðsíða 7

Óðinn - 01.05.1908, Blaðsíða 7
ÓÐINN 15 Sæmundur hreppstjóri Jónsson á Borgarfelli í Skaftártungu er fæddur á Búlandi 24. janúar 1832 og er albróðir Runólfs dannebrogsmanns í Holti á Síðu, er áður hefur stað- ið mynd af hjer í Óðni (II, 1, 190(5) ásarnt æfi- ágripi. Ber Sæ- mundur lirepp- stjóri nafn síra Sæmundar Ein- arssonar á Ut- skálum, er fyr hafði veriðprest- ur í Ásum, en drukknaði fyrir Suðurnesjum 1826. Voruþeir aldavinir síra Sæmundur og Jón Björnsson sættamaður á Búlandi faðir Sæmundar hreppstjóra. Hinn 23. okt. 1857 kvæntist Sæmundur og gekk að eiga Vigdísi dóttur Páls bónda Þorsteinssonar á Haukabökkum á Síðu, og reisti hann um það leyti búnað á Ljótastöðum. Samfarir þeirra Sæ- mundar og Vigdísar urðu skammar, og Ijest hún 1865. Bjó Sæmundur þá um bríð ókvæntur, þar til 1870, að hann giftist Katrínu Vigfúsdóttur, Bót- ólfssonar, frá Flögu, hálfsystur Sigurlaugar í Holli konu Runólfs bróður Sæmundar. Var Katrín þá ekkja, en miklu yngri en Sæmundur. Lifir liún enn, gáfuð og góð kona. Nokkru fyrri en Sæ- mundur lcvæntist í síðara skiftið flutti hann sig búferlum frá Ljótastöðum og að Borgerfelli, og hefur liann búið þar síðan. Keypt hefur hann jörðina fyrir laungu, en Borgarfell var áður klaust- urjörð, eins og llestar jarðir fyrrum í þeim hjer- uðum. Sæmundur, sem nú er búinn að búa svo að Segja 50 ár, hefur alla jafna verið búþegn forsjáll °g einn af þeim bestu þar um slóðir, með snyrti- legum umgangi og hirðusemi allri, svo að fyrir- mynd hefur þótt. Hófsmaður góður um alla hluti, sbltur maður og óhlutdeilinn, vinsæll og vel met- lnn’ tillögugóður allra mála og hyggindamaður goður, svo að ekki liafa sveitungar hans fremur viljað hlíta annara forsjá en lians. Prúðmenni í framgöngu og fyrirmannlegur á yfirbragð. Valin- kunnur sæmdarmaður. Opinher störf hefur Sæmundur liaft ýms með höndum og meðal annars hefir hann haft hrepps- stjórn á liendi í meira en mannsaldur, fyrst í Leiðvallahreppi hinum forna og síðan i Skaptár- tunguhreppi.og hreppstjóri Tungumanna er hannenn. Með báðum konum sinum hefurliann áttmargt barna. Af fyrri konu börnum hans voru meðal annara Oddn}r (f. 6/io 1860), sem enn lifir, kona Sigurðar bónda á Búlandi, og Sumarliði (f. 22/n 1865) er úti varð í Vesturheimi fyrir fáum árum. Eitt af seinni konu börnum Sæmundar er Vigdís (f. 22/s 1872) kona Björns óðalsbónda í Svínadal Eiríkssonar frá Hlíð. -/}. —— Kristján Tómasson. Kristján sál. Tómasson var fæddur á Ketils- stöðum í Hörðudal 13. okt. 1844, og ólst þar upp fram yfir tvítugt. 1868 fór hann sem ráðsmaður til ekkjunnar Ástu Egilsdóttur á Þorbergsstöðum og kvæntist henni ári síðar. Þau eignuðust 2 syni, og býr nú annar þeirra, Benedikt, á Þor- bergsstöðum eftir föður sinn. 1898 kvæntist Krist- ján sál. í annað sinn Jóhönnu Stefánsdóttur, er lifir mann sinn ásamt 3 dætrurn í æsku. Ki’istján sál. var karlmenni og hraustmenni, og að öllu leyti mikið í hann spunnið; en snemma æfinnar tók liann bilun þá, er hann síðan gekk með alla æfi, ofl stórþjáður, þótt hann ljeti ekki á bera, og leiddi hann að lokum til bana 2. apríl f. á. Kristján sál. var bú- höldur hinn mesti, hag- sýnn, atorku- og ráð- deildarsamur, enda bún- aðist honum sjerlega vel, og voru konur hans báðar honum í því sam- hentar. Hann var stjórn- samur húsbóndi, um- hyggjusamur heimilis- faðir, góður og nærgæt- inn ektamaki og ástrík- ur faðir. Gestrisnis- og greiðamaður var hann hinn mesti, og mátti svo segja að hús hans stæði öllum opið, enda þurfti þar margur við að koma. Kristján Tómasson.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.