Óðinn - 01.02.1909, Side 2

Óðinn - 01.02.1909, Side 2
82 Ó Ð I N N síðar losnaði dómkirkju-prestsembættið í Reykja- vik, við burtför Ólafs próf. Pálssonar, og var það embætti veitt hr. Hallgiími 4. seft. 1871, en prestsvigslu tók hann 8. okt. s. á. Þessu em- bætti gegndi hr. Hallgrímur á 18. ár, eða til vors 1889, er hann var skipaður eftirmaður dr. Pjet- urs í biskupsembættið. Fór hann þá utan um vorið og var vígður biskupsvígslu (ásamt Har- aldi Stein, er þá varð biskup á Fjóni) í Frúar- kirkju i Kaupmannahöfn 30. maímánaðar af dr. B. J. Fog Sjálandsbiskupi. í embættistíð sinni hefur herra Hallgrimur visiterað meiri hluta landsins, alls 190 kirkjur af c. 280. Aðeins 5 prófastsdæmi (Húnavatns, Stranda, Barðastranda, Borgarfjarðar og Kjalar- ness) og nokkuð af hinu 6. (Arnesprófastsdæmi) lætur hann eftir óvísiteruð. Öll hin prófasts- dæmin vísiteraði hann á árunum 1890—1900. Hefði heilsa hans leyft, er lítill vafi á því, að herra Hallgrimur hefði á 15 árum getað lokið skoðun allra kirkna á landinu, en siðan 1900 hefur hann ekki getað lagt á sig erfið ferðalög sökum vanheilsu. 1 biskupstíð sinni hefur herra Hallgrímur vigt 69 presta sjálfur, en 2 vigði lekt- or prestaskólans í forföllum biskups. Herra Hallgrimur var hvatamaður þess, að byrjað var að starfa að hinni nýju þýðingu ritn- ingarinnar haustið 1897, þessu mikla og þarfa verki, sem var lokið á siðastliðnu hausti með prentun bibliunnar allrar. Þótt ekki tæki bisk- upinn beinan þátt í sjálfu þýðingarstarfinu, hef- ur hann þó verið lifið og sálin í því starfi frá fyrstu og lagt til þess mikla vinnu, enda haft rnjög mikinn áliuga á að starfið mætti verða sem allra best af hendi leyst. Nefndirnar voru tvær, sem að þýðingarstarfinu unnu, önnur að gamla, hin að nýja testamentinu. Hjeldu þær fundi jafnaðarlega einu sinni á viku hverri með- an bæði testamentin voru undir þýðingu í senn, og gamlatestamentisnefndin, árin sem hún starf- aði ein, oftar tvo fundi en einn í viku hverri. En biskupinn tók þátt í allflestum fundum beggja nefndanna öll árin, sem þær störfuðu, enda voru fundir beggja nefnda lengst af haldnir heima á skrifstofu biskups (venjulega 3 tíma í senn). í heiðurs- og þakklætisskyni fyrir afskifti biskups af öllu þessu starfi hefur Breska og erlenda biblíufjelagið kjörið hann heiðursfjelaga sinn. Árið 1885 fjekk herra Hallgrímur (þá dóm- kirkjuprestur) sæti á alþingi sem konungkjörinn þingmaður; sat hann þar þá það þing og auka- þingið næsta sumar, en Ijet svo af þingmensku í bili, þangað til hann varð aftur konungkjörinn þingmaður árið 1893 og' hjelt hann nú þingsæti fil ársins 1903. Árin 1897 og 1899 var hann for- seti sameinaðs þings. Á þjóðhátíðinni sæmdi konungur herra Hall- grím riddarakrossi Dannebrogsorðunnar, 1891 Iieiðursmerki Dannebrogsmanna, 1902 komman- dörkrossi óæðra stigs og nú á næstliðnu hausti kommandörkrossi æðra stigs. Árið 1871 kvæntist herra Hallgrímur Elínu Marie Bolette Fevejle, dóttur yfirlæknis Fr. Chr. F. Fevejle í Kaupmannahöfn. Hafa þau eign- ast fjögur börn, sem öll eru á lífi: Friðrik, sem nú er prestur í Argjdebygð í Manitoba, Guðrúnu, konu Axels sýslumanns Tuliniusar á Eskifirði, Svein, kand. phil., bókara í íslandsbanka, og Ágústu konu Ditlevs Thomsens konsúls og kaup- manns í Reykjavik. Á síðustu árum hefur heilsu biskups farið síhnignandi. í fyrra vetur fór hann til Khafnar að leita sjer lækningar, en kom aftur með vor- inu án þess að hafa fengið bót meina sinna. Sótti hann því um lausn frá embætti um haustið og fjekk hana 19. seft. Síðasta embættisverk herra Hallgríms var að vigja til biskups eftirmann sinn herra Þórhall. Fór sú athöfn fram í Reykjavíkur dómkirkju 4. október og' var það í þriðja skifti síðan siðbót, að slík athöfn hefur farið fram á landi hjer. a. Tröllasögur. (Úr ferðasögu). Fólksstraumurinn er á sifeldu iði i þessum götugljúfrum. Á stjettunum er krökt af hægfara göngufólki, hægfara hjá vagnamergðinni, sem brun- ar hraðhjóla framhjá; hestvagnar með hófaskellum og svipusmellum, hringjandi rafbrautarvagnar og lióstandi, lúðurþeytandi bifreiðar. Þar ægir öllu saman, og vagnaumferðin er svo áköf, að einatt verður að sæta lagi til að komast af einni götu- stjett á aðra, en sumstaðar verður ekki yfirum komist nema þegar lögreglumenn bjóða vagn- straumnum að staðnæmast, líkt og þegar drottinn forðum gerði þura geil í hafið rauða svo að ísra-

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.