Óðinn - 01.04.1910, Síða 2

Óðinn - 01.04.1910, Síða 2
Ó Ð I N N 2 þing, í fyrsta skifti 1902, og síðast 1908, og munu fáir þingmenn traustari í sessi en hann. Árið 1896 verður J. M. landritari hjá Magnúsi landshöfðingja Stephensen, er Hannes Hafstein gerðist bæjarfógeti á ísafirði og sýslumaður í ísa- fjarðarsýslu. Því A'andasama og vinnumikia em- bætti gegndi Jón þangað til stjórnarskiftin urðu snemma á árinu 1904. Þá losnaði sú sýslan, er Jóni var einna kunnust og kærust, og var liann sjálfsagður að fá hana og hafði fullan huga á því að koma aftur heim í átthagana nyrðra. En Hannes ráðherra lagði þá svo fast að Jóni, að taka skrifstofustjórastarf að sjer í stjórnarráðinu, vegna hinna miklu kunnugleika hans á öllum málum, að það varð úr. Jón var þar síðan for- sljóri 1. skrifstofu með dómsmálin, kirkju og kenslumál. Snemma á árinu 1909 fær hann bæjarfó- getaembættið í Reykjavík, er stjórnarskifti urðu aftur. Árið 1901 var Jón skipaður i milliþinganefnd- ina í fátækra- og sveitastjórnarmálum, og eftir frá- fall Páls amtmanns Briem 1904, varð Jón for- maður nefndarinnar. Á alþingi var Jón síðar aðalmaðurinn við sveitastjórnarlögin og fátækra- lögin, sem komu frá þinginu 1905. Geta mætti og þess að Jón var ílutningsmaður frumvarpsins um lagaskóla á þinginu 1903, þá er loks voru afgreidd lög um þann skóla, er hlutu staðfestingu konungs. Hann var einn þeirra 7 alþingismanna, sem sálu í sambandslaganefndinni 1908 og útveguðu liið frjáls- lega tilboð f'rá Dönum, sem alþingi síðan hafnaði. Ekki er það ofmælt, að J. M. sje einhver allra besli lagamaður landsins, og vel haldast dómar hans. Hann hugsar manna best orð sín og gerðir og er afarvandur að livorutveggja, sann- gjarn maður og rjettsýnn; fyrir það einnig manna vinsælastur og trúir því hver maður, að því starfi sje vel borgið, sem liann hefur með höndum, hversu vandasamt sem er. Hann starfar mikið á þingi, eigi síst í nefndum og eru tillögur hans mikils metnar. Nokkur ár átti hann sæti í bæjarstjórn Reykja- víkur, en gaf eigi kost á sjer til endurkosningar. Hann er kvæntur Þóru Jónsdótlur, dóttur Jóns heitins Pjeturssonar dómstjóra. Þau giftust fyrsta árið sem hann var sýslumaður í Vest- mannaeyjum. Sæmdur er liann lieiðursmerkjum dannebrogs- riddara og dannebrogsmanna. h. Sigurður Brandsson í Tröð í Hnappadal er fæddur í Árnabúð á Arn- arstapa undir Jökli 25. júlí 1832. Voru foreldrar hans Brandur smiður, sonur Sigurðar í Máfahlíð (í. 1767, d. 17. mars 1846), síðan á Jörfa í Kol- beinsstaðahrepp og síðast í Eiríksbúð á Stapa, Brandssonar smiðs á Jörfa, Brandssonar, Egils- sonar í Miðskógi í Dölum, Brandssonar, Árnason- ar, af ætt Árna Þorleifssonar í Fagradal bróður Björns ríka (d. 1467), en þeir voru synir Þorleifs Árnasonar frá Auðbrekku og Vatnsfjarðar-Kristínar Björnsdóttur Jórsalafara. Kona Brands Sigurðs- sonar og móðir Sigurðar í Tröð A7ar Kristín Katrín Hreggviðsdóttir (f. 1762, d. 11. des. 1831) frá Brekkubæ á HellisvöIIum, Jónssonar í Andrjesar- búð á Stapa, Ásgeirssonar í Andrjesarbúð, Þorgils- sonar, Árnat'onar á Stapa. Kona Hreggviðar í Brekkubæ og móðuramma Sigurðar í Tröð var Sigríður Erlendsdóttir prests á Nesþingum (d. 1790), Vigfússonar í Hjörsey, Sigurðssonar, Einarssonar sýslumanns í Skaptafellsþingi (d. 1691), Þorsteins- sonar sýslumanns í Þykkvabæ í Veri (d. 1656), Magnússonar í Stóradal, Árnasonar, af ætt Lopts ríka. Kona Magnúsar í Stóradal og móðir Þor- steins var Þuríður Sigurðardóttir prests á Grenj- aðarstað, Jónssonar hiskups Arasonar. Kona Sig- urðar í Máfahlíð og móðir Brands í Árnabúð var Steinunn Sigui ðardóttir prests í Staíholti (1736- 1766), Jónssonar silfursmiðs og lögrjettumanns, Þorleiíssonar á Ketilsstöðum í Múlaþingi, af Hey- dalaætt. Systir Steinunnar var Margrjet kona Þórðar prófasts Brynjólfssonar á Felli (d. 1840). Þeirra dóttir Margrjet kona Magnúsar sýslumanns á Höfðabrekku og móðir Magnúsar landshöfðingja Stephensens. Sigurður Brandsson og Magnús landshöfðingi eru því þremenningar að frændsemi. Foreldra sína misti Sigurður í æsku. Móðir lians (f. 1797) Ijest 29. október 1837, en faðir lians (f. 1794) andaðist 11. desember 1844. Dvaldi Sigurður þá til vorsins hjá föðurbróður sínum Gísla Brands- syni í Eiríksbúð á Stapa; hafði hann umsjón yfir því, sem Sigurður erfði eftir föður sinn. En með vorinu vistaði liann Sigurð í Lækjarbug í Hraun- hrepp í Mýrasýslu, og var Sigurður sendur þangað um krossmessuleytið 1845 með vermönnum utan úr veiðistöðum. Var Sigurði sá skilnaður lengi minnisstæður, að yíirgefa alla æskuvini og kunn- ingja. Einkum þótti lionum mikið fyrir að skilja við Sigurð afa sinn, sem þá var einnig í Eiríksbúð

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.