Óðinn - 01.04.1910, Qupperneq 4

Óðinn - 01.04.1910, Qupperneq 4
4 Ó Ð I N N riðinn um langan aldur. Árið 1875 var hann kosinn í hreppsnefnd í Kolbeinsstaðahrepp, og árið eftir var hann kosinn oddviti. Árið 1880 var hann kosinn í sýslunefnd og sat í henni lengi síðan, en sagði þá jafnframt af sjer oddvitastörfum. Árið 1878 var hann skipaður úttekta og virðingamaður í Kolbeinsstaðahrepp, og hefir gegnt því enn lengi. Meðlijálpari hefur hann verið siðan 1860 og jafn- an ýmist safnaðarfulltrúi eða sóknarnefndamaður, frá því sú skipan komst á, til þess fyrir tveim árum, að hann neitaði kosningu. Annar sátta- niaður í Kolbeinsstaðahreppi var hann skipaður 1884, og saina ár hreppsljóri, og gegnir hann hvoru- tveggja því starfi enn. Mentan hefur Sigurður eigi fengið aðra en þá, sem hann hefur aflað sjer sjálf- ur, og er hann þó vel að sjer um margt, hefur verið hneigður fyrir bækur og lesið mikið. Af náttúrunnar hendi er hann miklum hæfileikum búinn. Skynsemdarmaður hinn mesti, alvörugefinn og einarður. Málrómurinn mikill og maðurinn öldur- mannlegur. Öll hin opinberu störf hans hafa far- ið honum vel úr hendi með skörungskap, skynsemi og sanngirni, og hefir fátt svo verið ráðið í hjer- aði hans nú liin síðustu 30—40 árin, að hann hafi þar ekki verið kvaddur til, og hafa flestir unað því vel að hlíta hans forsjá, enda er maðurinn yíirlætis- laus. Honum er og sjálfum hlýtl í þeli til flestra hjeraðsmanna sinna, eins og hann vottar í bögu þessari, er liann ritaði kunningja sínum fyrir nokkru, svo sem hann var þeirra að minnast: Pá mjer gæði veittu vel, vægð og næði sýna, jöfurs hæða forsjón fel ferðabræður mína. Börn þeirra Sigurðar og Valgerðar hafa verið þessi: 1. Guðbrandur, fæddur 21. sept. 1856, trje- smiður í Vesturheimi. 2. Gísli, fæddur 11. júní 1858, sjómaður á ísafirði, dáinn 1006. 3. Páll, fæddur 1860, dáinn 2 ára. 4. Pálína Malthildur, fædd 25. sept. 1862, yíirsetukona í Kolbeinsstaða- hrepp, gift Guðmundi Eggerlssyni frá Miðgörðum. 5. Páll, fæddur 3. sept. 1864, bóndi í Haukatungu, giftur Jóhönnu Guðríði Björnsdóttur frá Stóra- hrauni, Gottskálkssonar frá Landbrotum, Gísla- sonar prests í Hítarnesi, Guðmundssonar tiptunar- búsráðsmanns, Vigfússonar, en Guðmundur var bróðir Erlends Nesþingaprests. Þrjú börn vanda- laus ólu þau upp Sigurður og Valgerður, og hefur Sigurður sagt Valgerði það til sæmdar, að hun hafi tekið þau. Var með einu þeirra gefið »eftir þátíðar meðgjafar útlátum«, en hin ólu þau upp fyrir ekki neitt. Tvö af þeim, sem komu til þeirra á 1,—2. ári, voru hjá þeim til fullorðinsára, en eitt þeirra, uppeldisdóttir, dvelur hjá fóstra sínum enn, sem og er enn í Tröð, ásamt aóttur sinni og tengdasyni, en hefur þó sín efni fyrir sig. Sigurður á þann orðstír, að hann hefur jafnan verið trygða, æru og manndygðamaður. i ■ 0» $ OQ-'® • Zacharias Topelius. Eitt hið merkasta og frægasta af ritverkum Z. T. cr nýlega komið út á íslensku, »Sögur herlæknisins«, í þýðingu eftir síra Matth. .lochumsson. Pctta ritsafn er í 6 bindum og kom hið fyrsta út í ísl. þýðingunni 1904, en síðan eitt á ári, hið síðasta 1909. Aðalútgefandinn er Sig. Jónsson bókbindari i Reykjavik. Z. T. varfæddur 14. jan. 1818, var lengi háskólakennari í Helsingfors og kendi þar sögu Finnlands og annara Norðurlanda. Hann var og lengi ritstjóri eins helsta mentablaðs Finna. Hann dó 13. mars 1898.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.