Óðinn - 01.04.1910, Side 5

Óðinn - 01.04.1910, Side 5
Ó Ð I N N 5 Sig. Júl. Jóhannesson. Kvæðasafnið Kvistir. Sigurður Júlíus Jóhannesson óx upp við fátækt og gleðisnauða æsku, er stúdent hjeðan að lieiman, en nú læknir í Ameríku. Hann íór hjeðan blá- snauður, allslaus; varð að ráða sig háseti á skipi frá Englandi til Amer- íku, til að vinna fyrir fari sínu. Þá orti hann þetta á leiðinni: Furðu strembin iundust [mjer fyrrum Hómers kvæði; cn púsund sinnum pyngri pessi kaðla-fræði. [er Meðdæmafáum kjark, þreki og dugnaði, vann hann fyrir sjer jafn- framt sem liann las læknisfræði í Chicago, tók þar próf í læknis- fræði og settist svo að vestur í landi sem læknir. Einhver kann að spyrja, livað þetta komi kvæðum lians við. Já, mjög mikið. í öllum skáldskap, og mest þeim ljóðum, er tilfinningarnar eru rík- astar í, er skáldið og skáldskapur þess svo fast samtvinnað. Ævi- kjörin setja mót á mannssálina og manris- ins störf. Af tilfinningum, hug- mynda-auði og visku hafa öll skáld meira eða minna — og ljóðskáldin hagmælsku að auk; — en misjafnt er, á hverju af þessu ber mesl hjá hverjum einum. Sigurður er aðallega tilfinninga-skáld. Hún er sá þáttur, sem ríkastur er í gáfu hans. Svo rík er tilfinningin hjá honum, að hana er trauðlega sterkari að finna hjá öðrum íslenskum skáldum. Hagmælska Sigurðar er mikil og hirðir hann hana þó ekki eins vel ætíð, eins og hann auðsjá- anlega gæti. Eg skal til dæmis þess nefna þessa vísu: Jeg enga framar hygg á höfn, jeg horfi rjett í bláinn; mjer eru sjór og jörðin jöfn, pví jeg er löngu dáinn. Vísan er góð, eins og hún er, en auðgert hefði honum verið að fága hana hetur, liefla af lienni »jambisku« atkvæðin, t. d. þannig: Framar enga’ eg hygg á [höfn, liorfi rjett i bláinn; mjer ’ru sjór og jörðin [jöfn, jeg er löngu dáinn. Höf. hefur þroskast mjög að andlegri inenn- ing við lífsreynsluna vestan liafs. Stundum hregður cnn fyrir smekkbresti í orða- vali, t. d. er hann (á 13. bls.) er að lýsa fátækri móður, sem sefur með barn silt í fanginu og dreymir fagra framtíð- ar-drauma: »móðir á hálm- dýnu sinni | með fimm ára dóttur í faðmi sjer blundar og hrýtur, | frið- sælla daga um ósjeða líf- daga nýtur«. Það er ófagurt, og skemmir fegurðar-á- hrifin, að láta móður- ina vera að hrjóta með- an hana er að dreyma fagra sæludrauma. Það, sem helst spill- ir sumum kvæðum höf., er skortur á rökdæmi eða metvísi1) gagnvart sjálf- um sjer eða ljóðum sínum. Þetta veldur þvi, að höf. verður stundum of langorður, og stundum fær *) Jeg get ekki fengið af mjer aö bera mjer i munn annan cins nýgerving eins og »gagnrýni« (kri(ik); lieldur vil jegnefna kritik »rök- meti« eöa »rökdæmi«; að kritisjera: að »rökmeta« eða »rökdæma«; kritískur: »rökdæmur« eða »metvís« eða »dómskygn«. J. Ó/.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.