Óðinn - 01.09.1913, Qupperneq 4
44
ÓÐINN
Gísli Engilbertsson.
Hjer gefur að líta mynd eins »hinna kyrlátu
í landinu« þar sem er Gísli Engilbertsson fyrver-
andi verslunarstjóri í Vestmannaeyjum. Hann er
fæddur 14. ágúst 1834 í Syðstu-Mörk við Eyjafjöll.
Ólst upp og var hjá foreldrum sínum þangað til
haustið 1868 að hann fluttist alfarinn til Vest-
mannaeyja, og hefur aldrei síðan »út fyrir land-
helgi þeirra komið«, og það getur maður kallað
að una sjer og eira vel. Á æsku- og ungdóms-
árum hans var aðaláherslan lögð á að kenna
börnum lestur og kver. Snemma hneigðist hugur
hans þó að því að
fá lært að draga til
stafs, sem honum
og tókst mæta vel,
enda hefur hann
verið vel hagur
maður bæði til
verka og orða. Jón
skáldi, líka nefnd-
ur Torfabróðir, sá
er kvaðst á við Pál
skálda og drukn-
aði í Markarfljóti,
gaf Gísla forskrift,
og það hefur Gísli
sagt mjer, að karl
sá hafi ekki tekið
pennan upp meðan hann orti og skrifaði vísu
þessa neðan á Iaust hiað, sem hann gaf honum
forskrift á:
Leiki þjer í Iyndi
lukka, friður, yndi
alla æfitíð.
Varatekt guðs vertu
vafinn, henni sjertu
falinn og hegðun fríð.
Vit og magn, gleði, gagn
að þjer streymi hjer í lieimi
og heiður um tíð á enda.
Þetta hefur fram að þessu orðið að áhríns-
orðum. Annars er Gísli sjálfmentaður maður og
komst til slöðu sinnar og álits af eigin ramleik.
Hafði hann umráð og forstöðu svonefndrar Tanga-
verslunar í Eyjum í 16 ár. Naut hann hylli og
virðingar skiflavina sinna fyrir reglusemi, orð-
heldni og aðra kosti og stundaði í hvívetna hús-
bóndans gagn, enda hefur liann sjeð það við hann,
því frá því verslunin var lögð niður 1894, hefur
hann veitt honum 500 kr. ársþóknun og leigulaust
húsnæði í viðurkenningarskyni. Auk verslunar-
starfanna hefur Gísli og haft ýmsum öðrum störf-
um að gegna. Þannig var hann í hreppsnefnd 12
ár, í sýslunefnd 3 ár; gjaldkeri Skipaábyrgðarsjóðs-
ins í 20 ár, gjaldkeri Sparisjóðsins nokkur ár,
gjaldkeri Nautgripaábyrgðarsjóðsins síðan hann
var stofnaður, og í stjórn Ekknasjóðsins. Búhöld-
ur liefur hann og verið einn hinna fremri í Eyj-
um úti, þeirra sem jarðir hafa; hefur fært út tún,
sljeltað og ræktað 1 '/2 dagsláttu og girt alt. Á
jörð þeirri, er hann heldur, stendur nú ibúðarhús-
ið Laufás og annað hús fyrir liey, kýr og hæns,
með steinlímdri safnfor undir. Hagyrðingur góður
hefur Gisli verið og á eftir sig talsverða kvæða-
syrpu. Á jólum 1869 kvæntist liann Ragnhildi
Þórarinsdóttur, stakri sæmdar- og myndarkonu.
Sambúð þeirra hefur verið hin farsælasta. Þau
eiga 5 börn: Guðflnnu, gifta Halldóri Guðmunds-
syni raffræðing, Katrínu, gifta Páli Ólafssyni versl-
unarmanni í Eyjuin (frá Hliðarendakoti), Engil-
bert málara í Reykjavík, Þórarinn bókhaldara i
Eyjum, kvongaðan Matlhildi Þorsteinsdóttur frá
Dyrhólum, og Elinborgu, gifta þorsteini Jónssyni
útvegsbónda í Laulási í Eyjum. Að nokkru
liafa þau og fóstrað upp börn. Hjalti Jónsson
skipstjóri var lengi hjá þeim lijónum, og er þeirra
tryggur vinur.
Heimili þeirra hjóna er æði mörgum að góðu
kunnugt, og er jeg ekki einn um að eigna því
þann vitnisburð, að það hafi verið sönn fyrirmynd
að göfuglyndi og gestrisni, guðrækni og góðum
siðum. Um þetta get jeg því fremur borið sem
jeg hef þekt það frá æsjtu og þar margrar minni-
legrar ánægjustundar notið. Við, sem kynst höf-
um Gísla Engilbertssyni, munum ávalt einuin
rómi minnast hans sem hins gætna Ijúfmennis,
trygglynda vinar vina sinna, sem hins nýta og í
öllum greinum mæta merkismanns, og óska hon-
um ásamt konu hans allrar blessunar á æfinnar
kvöldi. M. P.
&
Ljóðmæli Jónasar Hallgríinssonar eru nú
komin á bókamarkaðinn í nýrri útgáfu, kostaðri
af Jóh. Jóhannessyni kaupm. Ritverk Jónasarönnur
og hrjef hans koma í framhaldsbindi á næsta ári.
Gísli Engilbertsson.