Óðinn - 01.09.1913, Page 5

Óðinn - 01.09.1913, Page 5
ÓÐINN 45 Erlendur Magnússon gullsmiður var fæddur á Bollaslöðum í Hraungerðishreppi 13. maí 1849. Foreldrar hans voru merkishjónin Magn- ús Erlendsson og Katrín Símonardóttir, er lengi bjuggu á Bollastöðum. Erlendur sál. ólst upp hjá foreldrum sínum, og er hann tók að stálpast, vann hann að öllum . heimilisstörfum . með systkinum sín- um og foreldrum. En mjög snemma fór að bera á mik- illi smíðalöngun og miklum smíðahæfi- leikum hjá honum, og þegar honum óx aldur, tók hann að stunda alls kon- ar smíðar í tóm- stundum sínum, einkum trjesmiði, járnsmíði og kop- arsmíði. Ljet liann enga stund ónotaða og var kominn í smiðjuna hvenær sem honum gafst færi á. Flest verk- færi varð hann að smíða sjálfur, og um tilsögn var varla að tala, en þrátt fyrir það fór honum alt snildar- lega úr hendi, því hann var snemma handlaginn, og hugvitssamur að sama skapi. Þegar hann var nær liálf-þrítugu, fór liann til Reykjavíkur, til þess að læra gullsmíði, og varð hann brátt wfullnuma í þeirri iðn«, eins og venju- lega er að orði komisl. En sjálfum sagðist hon- um svo frá á efri árum, að »fullnuma« væri hann ekki orðinn enn þá, þvi að hann væri »alt af að læra«, og mun það sannmæli verið hafa. Hann var óþreytandi í því að finna nýjar aðferðir við ýmis konar smíði, einkum steyptra muna og mót- aðra, og nýtt snið og nýjar gerðir á margs konar skrautgripum úr gulli og silfri. Það mun því ekki ofmælt, að hann hafi »lært mest af sjálfum sjer«. Engum mun of nærri höggvið, þó að sagt sje, að Erlendur sál. væri hinn vandvirkasti og besti gull- smiður þessa lands, og samviskusamari smið hef- ur sá, sem þetta ritar, ekki þekt, enda naut Er- lendur sál. alla æfi óskifts trausts allra viðskifta- vina sinna. Hann var iðjumaður svo frábær, að liann gat aldrei óvinnandi verið. Sá, sem þetta ritar, var gagn- kunnugur honum í nærri þrjátíu ár, og á þeim tíma bar það varla við, að hans væri annar- staðar að leita en á vinnustofunni, og það jafnvel þótt helgur dagur væri, eða farið að líða á kvöldio. Smíðarnar voru hans einka- unaður; við þær var hann með iífi og sál. Sjálfsagt eru þau heimilin færri hjer á Suður- landi, og jafnvel víðar, sem ekki eiga einhvern smíð- isgrip eftir Erlend sáluga, gullhringa, skúfhólka, nælur, kvensilfur eða ann- að, því að allir, sem til þektu, kusu helst lians smíðis- gripi. Og í sniði margskonar gull- smíðis og silfursmíðis hjer á landi hin siðari árin má víða benda á áhrif frá honum, því að þegar hann hafði fundið nýja gerð á einhverjum skraut- grip, t. d. skúfhólk, nælu eða öðru, eða tekist að smíða eftir vönduðustu forngripum, bæði steyptum, kornsettum og úr loftvíravirki, og endurbæta gerð þeirra að mörgu leyti, þá gaf það öðrum gull- smiðum fyrirmyndir, sem þeir vissu að óhætt var að fara eftir. En misjafnlega gekk þeim jafnan að ná hans gerð, hvort sem það var með vilja Erlendur Magnússon.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.