Óðinn - 01.10.1917, Qupperneq 2

Óðinn - 01.10.1917, Qupperneq 2
50 ÓÐINN biskup. En hver, sem vel þekti hann, fann æfin- lega sama hjartað undir biskupskápunni, sem áð- ur barðist í víkingsefninu. Hann var til æfiloka ör í lund og viðkvæmur, en hann hafði tamið sjer að stilla skapi sínu og orðum, svo að varla vissu aðrir en nákunnugustu menn, hve geðríkur hann var. Enginn efar, að hann kunni svo að beita sverði andans, tungunni, að sviðið hefði undan höggunum, ef hann hefði viljað, en hann var ráð- inn í að bregða því aldrei nema fyrir góð- an málstað, aldrei til hefnda, ekki til sigurs eða svölunar á mót- stöðumanninum, held- ur góðu máli til liðs. .... Ættjörð og frelsi unni hann jafnheitt í elli sem æsku. Hvort sem hann studdi að ræktun jarða eða greiddi guðs orði veg inn á heimilin, hvort sem hann gekk að mold- arverki á búi sínu eða sagði börnum ís- lendingasögu í skólan- um, hvort sem hann mælti líkn varnarlaus- um skepnum eða knúði þingmenn til starfa, var hann altaf að vinna fyrir ættjörðina .... Hann vildi kenna börn- unum að elska hana og fullorðna fólkinu að græða mein hennar. Kirkjan sjálf var ekki ofgóð til að þjóna henni. Hann var jafnhugfanginn af fegurð landsins eins og hann var gagntekinn af — mjer liggur við að segja — helgri lotningu og rækt við alt golt og fagurt í sögu og þjóðlífi að fornu og nýju. Og þó var hann um leið allra manna lausastur við hleypi- dóma, vanakreddur og tíðskudróma. Frelsisást æsk- unnar var söm við sig, en hún hafði þroskast: skólapilturinn var stundum óstýrlátur, kennimað- urinn æfinlega manna fyrirleitnastur og frjálslynd- aslur i senn. Hann skorli hvorki þekkingu nje skarpleik til að skilja, hvernig menn geta komist að sinni niðurstöðunni hvor, þó að báðir leiti sannleikans af alúð..........Hann var iðjumaður mikill, sístarfandi og fljótvirkur mjög; sjer þess víða menjar, er lengi mun að búa, einkum í verk- legum efnum. Á hinu sviðinu, andlega sviðinu, er erfiðara um að dæma. En undarlegt væri það, ef ekki greri margt gott og fagurt af fræjum þeim, er hann sáði þar um æfina með ræðum og ritum. Dagsverkið er furðulegu mikið og margbreytt. . .« Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú var fædd á Bjarnastöðum í Bárð- ardal 27. júní 1863, dóttir Jóns Halldórs- sonar, sem þá var bóndi þar, og konu hans, Hólmfríðar Hansdóttur. En hún misti föður sinn mjög ung; hann drukn- aði í Fnjóská veturinn 1865, og hafði hann verið mesti hraustleika- maður og myndarmað- ur í hvívetna. Tók þá Tryggvi Gunnarsson bankastjóri, er þá var bóndi á Hallgilsstöðum þar nyrðra, Valgerði til fósturs og ólst liún síð- an upp hjá honum og konu hans, Halldóru Þorsteinsdóttur, frænd- konu sinni, og er Tr. G. síðar varð forstjóri Gránufjelagsins og flutt- ist til Khafnar, dvaldi hún þar lengi með lion- um. Móðir sína hafði hún mist 10 ára göm- ul. Þau Þórhallur biskup og frú Valgerður giftust 16. sept. 1887, og var hann þá kennari við Presta- skólann. Sumarið 1896 var bústaðurinn í Laufási bygður, og íluttust þau þá þangað og bjuggu þar síðan. Þar var áður kot, sem Móhús hjet, og lílt eða ekki ræktað land þar umhverfis, en nú er þar sljett og fagurt tún, 45 dagsláttur að stærð. Magn- ús Helgason skólastjóri segir um frú Valgerði, að hún hafi verið »góð kona og guðrækin, prýðilega mentuð, gáfuð og hispurslaus«. Síðustu 3 æfiárin, eða því sem næst, lá hún rúmföst, fjekk ólækn- Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.