Óðinn - 01.02.1918, Qupperneq 1
OÐINN
XIII. ÁR
Páll J. Árdal kennari.
Páll J. Árdal kennari á Akureyri er fæddur á
Helgastöðum í Ey|aflrði 1.
febrúar 1857. Foreldrar hans
voru hreppstjóri Jón Pálsson
og Kristín Tómasdóttir, er
lengi bjuggu á Helgastöðum.
Tæplega tvílugur nam Páll
gullsmíði og stundaði þá iðn
þar til hann fór í Möðru-
vallaskóla, 1880. Útskrifað-
ist hann þaðan eftir 2 ár
með 1. einkunn. Veturinn
eftir var liann kennari á
Völlum á Fljótsdalshjeraði.
Haustið 1883 varð hann
kennari við barnaskólann
á Akureyri og hefur lialdið
því starfi síðan, og þar að
auki verið límakennari við
gagnfræðaskólann þar um
nokkur undanfarin ár. Um
langt áraskeið hefur hann
verið vegaverkstjóri á sumr-
in fyrir landsjóð, og áður
verkstjóri við hengibrúna á
Hörgá. Árið 1887 byrjaði
hann að gefa út blað á
Akureyri »Norðurljósið« og
hjelt því út nokkur ár. Síðan var hann i 4 ár ritstjóri
blaðsins »Stefnis«, er stofnað var af hlutafjelagi í
Eyjafirði. 3 ár sat hann í bæjarstjórn á Akureyri,
og hefur stult þar ýmsan fjelagsskap. Hann hefur
fengist eigi lítið við skáldskap og ritslörf. Pegar
hann var unglingur skrif-
aði hann söguna »Skin
og skuggi«, sem gefin var
út á Akureyri. Seinna kom
út eftir hann »Ágrip afnált-
úrusögu«, »Strykið«, gam-
anleikur í ljóðum, og síðast
»Ljóðmæli«, safn af kvæð-
um hans, sem hefur náð
mikilli hylli, og svo má að
orði kveða um ýms Ijóð hans
og kviðlinga, að þau sjeu
á allra vörum. Hann hefur
og skrifað nokkra smáleiki,
sem ekki hafa verið prent-
aðir en leiknir víða á Norð-
urlandi.
Árið 1885 giftist hann
ungfrú Álfheiði Eyjólfsdótl-
ur, ættaðri úr Fljótsdal í
Múlasýslu. Pau hafa eignast
5 börn. 3 eru lifandi: Theo-
dóra, gift Guðmundi Haf-
liðasyni kaupmanni á Siglu-
firði, Laufey, gift Jóhannesi
Þorsteinssyni kaupmanni á
Akureyri, og Steinþór, ó-
giftur verslunarmaður á Akureyri. N.
Páll J. Árdal.
Jólaföstuvísur 1917.
lamið lagt i dróma
lyng fyrir snjótitlingum.
»Brim gnýr bralta liamra«.
Bjarg er lokað vargi.
Hlíð og hengi-skriða
harðlæst hanni jarðar.
ísing hefur ása
asamikil brasað,
Pyrmir ei álft nje ormi
ólm á Garðarshólma
gjósta, rám af rosta,
reið við sól og heiði.
Hildur gráan galdur
gelur í norðan jeli;