Óðinn - 01.02.1918, Qupperneq 4

Óðinn - 01.02.1918, Qupperneq 4
84 ÓÐINN Hafliði Guðmundsson. Hafliði Guðmundsson var fæddur í Stuðlakoti í Reykjavík 2. desember 1852. Faðir hans, Guð- mundur Guðmundsson bónda á Þyrli við Hvalfjörð, sem var bræðrungur við Bjarna rektor, bjó á Brunna- stöðum á Vatnsleysuströnd, en móðir hans var Ragnheiður Þorsteinsdótlir stúdents á Laxanesi í Kjós. Systur Ragnheiðar voru: Krislín, fyrri kona sjera Páls skálds Jónssonar, síðast presls í Viðvík, og Kristín, móðir Þórðar á Hálsi Guðmundssonar; bróðir Ragnheiðar hjet Hafliði. — Var Hafliði Guð- mundsson albróðir Björns heitins kaupmanns Guð- mundssonar, Þorsteins fiskimats- manns og Jórunnar heitinnar Guðmundsdóltur. Þegar Hafliði var 5 ára gam- all, misti hann móður sína; ólst hann þá upp hjá föður sínum í Reykjavík fram yfir fermingu. Þegar hann var 15 ára gamall, fór hann að Hvítárvöllum til Andrjesar Fjedsteds, og var hjá honum um 5 ára skeið. Síðan fór hann aftur til Reykjavíkur og var þar enn í 5 ár. Árið 1877 fór hann alfarinn úr Reykjavík, til Siglufjarðar, á vegu Snorra verslunarstjóra Pálssonar frænda síns. Var Hafliði þá nær því 25 ára að aldri. Kom hann til Siglu- fjarðar 27. júní, og frá þeim degi átti hann heimili þar í Siglufirðinum. Fyrstu þrjú árin, sem Hafliði var í Siglufirði, bjó hann hjá Snorra Pálssyni, en var þó á þeim árum tím- unum saman á Hraunum, hjá Kristínu systur Snorra, frænku sinni, og Einari B. Guðmundssyni, hónda hennar. 9. apríl 1880 kvongaðist Haíliði Sigríði Pálsdólt- ur úr Pálshæ, Magnússonar frá Holti, IJálssonar frá Stuðlakoti í Reykjavík. Lifir hún mann sinn, ásamt 5 fullorðnum börnum. Eru þau öll gift: 1. Helgi kaupmaður í Siglufirði, giflur Sigríði Jóns- dóttur Eiríkssonar, ættaðri úr Fljótum. 2. Kristín, gift Halldóri kaupmanni Jónassyni í Siglufirði, ættuðum úr Þingeyjarsýslu. 3. Guðmundur, kaup- maður í Siglufirði, giftur Theodóru Pálsdóttur Jóns- sonar Árdals skálds á Akureyri. 4. Andrjes versl- unarmaður í Siglufirði, giftur Ingibjörgu Jónsdótt- Ilaíliði Guðmundsson. ur, æltaðri af Akureyri. 5. Ólöf, gift Sophusi versl- unarstjóra Björnssyni, Gunnlaugssonar Blöndal á Siglufirði. Eitt barn mistu þau Hafliði og Sigríður: Maríu Þorbjörgu, þriggja ára gamla, — mesta efnisbarn. Þrjú fóslurbörn tóku þau. Tvö þeirra ólu þau upp að nokkru leyti, en eitt — Guðmundu Jakobsen — alveg. Hana tóku þau tveggja ára, þegar hún misti móður sína, og var hún hjá þeim þar til hún giftist Edvin Jakobsen frá Fosnavaag í Noregi, og er hún nú búsett þar. Sama vorið og Hafliði kvongaðist fluttist hann með konu sinni í svonefnt Niðursuðuhús, og bjuggu þau þar í mörg ár, eða þangað til hann keypti hús ekkju Snorra heilins Pálssonar, er hún flultist til ísafjarðar, og bjó hann síðan í því til dauða- dags, 12. apríl síðastliðin. — Síð- an Hafliði settist að í húsi þessu hefur það verið nefnt Hafliðahús. Þess er áður getið, að Hafliði var 15 ára gamall, er hann fór að Hvítárvöllum. Stundaði hann þar laxaveiði hjá Andrjesi Fjeld- sted. Þar var þá enskur maður, Rissy að nafni; var hann einnig við laxaveiðarnar og sauð niður lax- inn. Lærði Hafliði af honum nið- ursuðu matvæla; og þegar hann var sestur að í Siglufirði, var sett þar á fót matvælaniðursuða, og stóð Hafliði fyrir henni öll þau ár, sem henni var lialdið áfram. Fóru vörur frá þessari verksmiðju víða um land og þóttu ágætar. Annars vann Hafliði að hverskonar smíðum, sem fyrir fjellu, lengi fram eftir æfinni: niðursuðu, trjesmíði, járnsmíði, múrsmíði, og mátli segja svo, að öll verk lægju honum í augum uppi, og ekki minnist jeg þess, að jeg hafi þekt fjölhæf- ari rnann til verka. Það var segin saga, að ef ein- hver þurfti að láta gera við eitthvað, sem sjer- stakrar hegurðar þurfti við, þá var ætíð viðkvæðið: »Farðu með það til hans Haíliða, hann verður ekki lengi að lagfæra það«, — og Hafliði bælti meinin bæði fljótt og vel. Eitt vorið, sem Ilaíliði dvaldi á Hvítárvöllum, var kalt með afbrigðum. Var oft voshúð mikil við laxveiðarnar og ofkældist Hafliði þá eitt sinn svo mjög, að þess beið hann aldrei bætur síðan. Fjekk hann þyngsli fyrir brjóstið og kendi þeirra ælíð upp frá því. Ágerðist þessi brjóst- mæði eftir því meir sem liann eltist og mun hún

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.