Óðinn - 01.02.1918, Qupperneq 5

Óðinn - 01.02.1918, Qupperneq 5
ÓÐINN 85 hafa valdið mestu um dauða hans. En mæði þessi olli því meðal annars, að seinustu ár æfinnar var hann að mestu hættur að vinna líkamlega vinnu. Þann 5 ára tíma, sem hann var í lteykjavik, frá 1872 — '11 — starfaði hann að ýmsu; var hann t. d. við kalknám í Esjunni með Birni bróður sin- um, byggingu hegningarhússins o. fl. A þeim árum var hann 2 vetur á sunnudagaskóla, sem í þann mund var haldinn í »Glasgow«. Var lærdómur sá, er hann naut í skóla þessum, alt það andlegt vega- nesti, sem hann fjekk frá öðrum til langferðar sinn- ar á lífsveginum — auk fermingarfræðslunnar. En ofan á þessa undirstöðu bygði hann síðan sjálfur svo vel, að hann málti vel mentur heita, þótt að mestu væri hann sjálfmentaður. Og alla æfi las hann mikið. Sierstaklega hafði hann yndi af sögu og ættfræði. En annars fylgdist liann vel með í öll- um framsóknarmálum þjóðarinnar, jafnt í wpolitik« sem öðru; og sýnir það meðal annars hygni hans og greind, að aldrei felli hann verð á neinum fyrir andstæðar skoðanir á landsmálum og varð jeg þess aldrei var, að nokkurs kulda kendi frá honum í garð sljórnmálaandstæðinga sinna fyrir þá sök eina, að þeir væru andstæðingar. — Hann naut líka hylli og trausts sveitunga sinna í hvívetna og yfirleitt allra þeirra, sem kyntust honum og nokk- uð höfðu saman við hann að sælda. Þessi hylli og þetta traust kom meðal annars í Ijós með því, að honum var trúað fyrir vandasömustu og ervið- ustu störfum sveitar sinnar. í 31 ár var hann í gæslustjórn Sparisjóðsins á Siglufirði og 16 ár for- maður sjóðsins. Sýslunefndarmaður var hann í mörg ár. Oddviti Hvanneyrarhrepps var liann í 20 ár og hreppstjóri og sáttanefndarmaður í 23 ár. Hreppstjóraembællinu fylgir ætíð talsverð á- byrgð; en það liygg jeg að óhætt sje að segja, að hreppstjóraembættinu í Siglufirði hefur fylgt — sjer- staklega á seinni árum — meiri ábyrgð en nokk- uru öðru hreppstjóraemhætti landsins. Var það ekkert smáræðisverk, að sinna öllum skipum, sem inn á höfnina komu, og innheimta hjá þeim sigl- *n8agj öld, innheimta alla tolla, bókfæra þetta alt °g standa skil á mörgum tugum þúsunda króna arlega. Það er ekki meðalmanns verk, að inna þetta af hendi svo í lagi sje. En aldrei lief jeg heyrt, að nokkurntíma hafi nokkur snuðra komið ú þann þráð hjá Halliða hvorki fyr nje siðar. Það mun nokkuð algengt að þeir, sem miklar og við- tækar innheimtur hafa á hendi, njóta ekki eins almennrar hylli eins og þeir, sem eigi hafa þau störf með höndum; en þella átti ekki við um Haf- liða. Er mjer óhætt að fullyrða það, að allir borg- uðu Hafliða með glöðu geði, jafnt innlendir sem út- lendir menn; — öllum þótti svo vænt um Hafliða. Var það oft þegar útlendingar þyrptusl saman og við uppþoti lá og handalögmáli, að ekki þurfti annað en að Hafiiði kæmi á veltvang, glaður og hrosandi, og talaði við þá fáein orð í góðu, þá sundraðist hópurinn og allir hjeldu í friði á braut. En það var eigi aðeins hreppstjórastarfið, sem Hafiiða fór svo vel úr liendi — nei, hann rækti öll störf sín með sömu samviskuseminni, og það svo, að allir undu vel við. »Hafliðahúsið« þekkja allir Siglfirðingar og ekki að eins þeir, heldur allir síldveiðamenn — allir, liggur mjer við að segja, sem einhverntíma hafa komið á Siglufjörð á seinustu áratugum, og þeir eru margir. Húsið er hvorki stórt nje fagurt á að líta. En þegar inn var komið, gleymdist þelta hvort- tveggja, því að gestrisni hefur búið þar innan veggja, svo að með afbrigðum er. Má svo segja, að þar hafi aldrei verið gestalaust, hvorki vetur nje sum- ar. Og allir hafa notið sömu risnunnar og sama allælisins; og það hafa ekki að eins verið veiting- ar húsfreyjunnar og hennar viðmót, sem hefur gert gestunum svo ánægjulegt að vera í því húsi, held- ur líka hin framúrskarandi góða og glaða lund húsbóndans horfna. Það var eins og allir gestir væru synir hans og dætur — svo vildi hann láta þeim líða vel. Og spaugsyrðin og gamansögurnar, sem hann hafði ætið á reiðum höndum, voru á- nægjulegri nokkuru kryddi með kafi'inu, eða hverju öðru, sem fram var borið. Og margur er sá gest- urinn, sem geymir ánægjulegar endurminningar frá samfundum við Hafiiða í hans eigin liúsi. Um þriggja ára tíma hafði Hafliði og kona hans á hendi greiðasölu og er jeg sannfærður um það, að á þeim árum hefur ekki verið selt oftar en gefið — þótt sala ætti að heita. Húsbóndi var liann á- gætur, konu sinni besti eiginmaður og börnum sínum og tengdabörnum ástríkur faðir. Jeg enda þessar minningarlínur með þeirri ósk, að íslandi mætti auðnast að eignast sem flesta jafn- oka Hafliða Guðmundssonar að drengskap og dug, góðsemi og glaðlyndi, trygð og tápi. G. I)av.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.