Óðinn - 01.05.1919, Side 4

Óðinn - 01.05.1919, Side 4
12 ÓÐINN Gísli Högnason póstafgreiðslamaður á Búðum í Fáskrúðsfirði. Gísli Högnason er fæddur 20. júlí 1851 á Skriðu í Breiðdal, en andaðist á Búðum 18. ápríl 1917, . þá nærri 66 ára gamall. Faðir hans var Högni járnsmiður og bóndi á Skriðu, Gunnlögssonar prests á Hallormstað, Þórðarsonar á Refstað í Vopnafirði, Högnasonar prests á Breiðabólsstað í Fljótshlíð, Sigurðarsonar prests, Högnasonar prests, Guðmundssonar prests í Einholti, Ólafssonar pró- fasts á Sauðanesi. Þannig má halda áfram að rekja ætt Gísla Högnasonar til margra merkismanna hjer á Jandi og erlendis. Haun var 28. maður frá Rögn- valdi Mærajarli, 24. frá Halli á Síðu og Guð- mundi enum ríka, 22. frá Magnúsi konungi ber- fætla og Sæmundi enum fróða, 20. frá Jóni Lofts- syni í Odda og Þorvarði auðga, 16. frá Brandi ríka á Svalbarði og herra Þórði Hallssyni. — Móðir Gísla, kona Högna, var Kristín Snorradóttir prests að Ey- dölum (í 37 ár), Brynj- ólfssonar prófasts (1 36 ár) á sama stað, Gísla- sonar prests (í 41 ár), einnig í Eydölum, dó 71 árs, Sigurðssonar prests (í 34 ár) á sama stað, dó 1758. Kona sjera Sigurðar Sveinssonar var Hallgerður dóttir Árna prests (i 52 ár) í Eydöl- um, dó 1737, þá 80 ára, Álfssonar á Kaldaðarnesi 1636—1672; kona sjera Álfs var Ragnheiður dóttir Árna lögrjettumanns á Akranesi, Gíslasonar lög- manns Rórðarsonar; kona Árna iögrjettumanns var Steinunn dóttir Hannesar í Snóksdal, f. 1547, d. 1627, Björnssonar í Snóksdal. Guðrúnu dóttur Björns sýslumanns í Ögri átti Hannes riddari og hirðstjóri yfir íslandi 1517, Eggertsson riddara og lögmanns úr Víkinni í Noregi. Kona sjera Snorra Brynjólfssonar prests að Eydölum, en amma Gísla Högnasonar, var merkiskonan Þóra dóttir Björns prófasts í Saurbæ 1775 og á Set- bergi 1786—1816, dó 1834, var mesti merkismað- ur, samdi búnaðarritið Atla og íleira, átti Helgu Brynjólfsdóttur sýslumanns ríka í Hjálmholti; þorgrímur faðir hans var sýslumaður í Múlasýslu 1741—1776, dó 1785, Sigurðsson lögsagnara í Barðastrandarsýslu, Sigurðssonar lögrjettumanns á Svalbarði, Jónssonar lögmanns frá Reynistað. — Af framansögðu má sjá, að bæði föður- og móð- urætt Gísla Högnasonar er óslitin röð af prestum, próföstum, sýslumönnum og lögmönnum. Það má því með sanni segja, að hann var af góðu bergi brotinn. — Frú Þóra Björnsdóltir, sem áður er getið, ainma Gísla, tók hann til fósturs, og var hann hjá henni, þar til hún brá búi, fór þá til frú Ragnheiðar og með henni að Kirkjubæ í Tungu til sjera Magnús- ar Bergssonar, þá 12 ára; tók prestur strax ástfóstri við drenginn, því hann fann að mikið bjó í hon- um, og kendi honum ait það, sem hann áleit leik- manni nauðsynlegt að læra, sjerstaklega hafði prestur gaman af að kenna honum allskonar reikning, því hann var mesti reikningsmaður og Gísli fljótur að nema, enda varð hann flestum færari í þeirri námsgrein. Sjera Magnús hafði stórt bú, og vandisl Gísli því snemma ölium heimilis- störfum, og sást það strax á unglingnum, að hann yrði verkhygginn og afkastamikill í öllu, sein hann snerli á. Árið 1869 fluttist Gísli með sjera Magn- úsi fóstra sínum að Eydölum í Breiðdal og var þar 20 ár; lengst af þeim tíma stjórnaði hann bú- inu, og jókst það mikið í lians höndum, því bæði var hann sjálfur dugtegur og svo manna lagnast- ur að stjórna mörgu fólki, útsjónarsamur og á- ræðinn með ýms fyrirtæki. Þann 31. desember 1883 giftist Gísli uppeldis- syslur sinni Þorbjörgu, dóttur sjera Magnúsar Bergssonar presls á Stafafelli, Magnússonar prests í Bjarnanesi, Ólafssonar sýslumanns, Árnasonar prests í Saurbæjarþingi, Jónssonar á Hvoli, Lofts- * Gísli Högnason.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.