Óðinn - 01.06.1919, Qupperneq 6
22
ÓÐINN
Kristján og1 Guðrún
í Glæsibæ.
Kristján Jónsson er fæddur 12. apríl 1858 að
Hallandi við Eyjafjörð. Var hann af fátæku fólki
kominn, og eins og þá var titt, naut hann lítillar
skólamentunar í æsku, en vandist við alla vinnu,
bæði á sjó og landi. Mun hann þó hafa aflað sjer
mentunar þeirrar, er tök voru á, við lestur bóka,
er hann náði til. En aldrei gekk hann í neinn
skóla. Trjesmíði nam hann þegar á unga aldri, af
Snorra Jónssyni kaupmanni á Akureyri, er dó
síðastliðinn vetur. Árið 1881 giftist Kristján Guð-
rúnu Oddsdóttur,
bónda Jónssonar á
Dagverðareyri.1) —
Árið 1888 byrjuðu
þau hjón búskap
að Glæsibæ við
Eyjafjörð. — Hafði
jörð sú áður verið
prestsetur og oft
illa setin. Túnið
var komið í tals-
verða órækt, og
kartöflugarðar, sem
áður voru nokkrir,
lagðir niður að
mestu. Tók Krist-
ján brátt til óspiltra
mála, og ljet hend-
ur standa fram úr
ermum, hvað allar umbælur snerti. Síðar festi
hann kaup á jörðinni. Var þetta þó alt enginn
hægðarleikur, því þau hjón voru fátæk og eign-
uðust brátt fjölda barna. En með kappi og hygg-
indum Kristjáns sóttist þetta þó furðu vel. Ljet
hann grafa vatnsveituskurði, er nema 6000 metr-
um, heim til túnsins. Við það óx svo taðan, að
túnið, sem áður gaf af sjer 60—70 hesta í meðal-
ári, gefur nú af sjer 170—180 hesta, og í góðum
árum talsvert þar yfir. Litlu síðar ljet hann og
1) Hjálmar skáld Jónsson frá Bólu, sem í bernsku var hjá Oddi
Gunnarssyni, afa Odds föður Guðrúnar, samdi siðar ættartölu
þeirra feðga, er hann nefnir »Gæologia eða nokkrir fornir ættar-
þætlir taldir til sáluga Odds Gunnarssonar á Dagverðareyrití. Rekur
hann ættina á þessa leið: 1. Oddur Gunnarsson, 2. Gunnar Magnús-
son bóndi á Hólum í Eyjaiirði, 3. Magnús Eiriksson í Djúpadal í
Skagafirði, 4. Eiríkur Magnússon í Djúpadal, 5. Magnús Bjarnason í
Djúpadal, 6. Björn Jónsson prófastur á Melstað, 7. Jón biskup Ara-
son á Hólum.
og girða alt túnið, og nú á síðustu árum mest
allar engjar, og nema þær girðingar ca. 1700 m,
og hefur úlheysfengur aukist um x/3 frá því er
áður var. Heyhlöður voru engar, er Kristján hóf
búskap, en hann hefur látið reisa 3, er taka um
400 hesta af heyi. Bæjarhúsin hefur hann látið
lagfæra og bygt stofu af steini.
Eins og áður er um getið, voru kartöflugarðar
að mestu niður lagðir, er þau hjón hófu búskap,
en þeir hafa nú verið auknir svo og endurbættir,
að þeir eru nú alls 360 ferm. og gefa af sjer 17
tunnur af kartöflum og 6 af rófum í meðalári.
Kristján hefur og komið upp fögrum blóma- og
trjágarði. Hefur garðsins verið gætt með sjerstakri
alúð og mikil vinna
til hans lögð, enda
ekki of mælt þó
sagt sje, að garður
sá sje einhver sá
fegursti blóma-
garður á sveita-
heimilum á Norð-
urlandi.
Kristján hefur
talsvert gefið sig
að opinberum mál-
um, og haft ýms-
um trúnaðarstörf-
um að gegna fyrir
sveitarfjelag sitt. í
sýslunefnd Eyja-
Guðrún oddsdóttir. fjarðarsýslu sat
hann 6 ár, 6 ár í
hreppsnefnd og sáttanefndarmaður um 10—12 ára
skeið. Hann var og kjörinn sýslufulltrúi fyrir Eyja-
fjarðarsýslu við komungskomuna 1907. En bind-
indisstarfsemin hefur verið hans aðaláhugamál.
Hann stofnaði bindisfjelag í sókn sinni, stjórnaði
því og hjelt uppi um mörg ár. Sömuleiðis var
hann lengi í stjórn »Bindindissameiningar Norð-
urlands« og um tíma formaður. — Kristján í
Glæsibæ er víðsýnn maður, frjálslyndur og fram-
sækinn. Hann hefur tröllatrú á allri framför og
er bjartsýnn mjög. Hann er ljúfmenni í fram-
göngu, skemtiiegur og fjörugur í viðræðum. Guð-
rún kona hans er honum samhent, enda hefur
hjónaband þeirra verið hið besta. Hún er kona
gestrisin mjög, höfðinglynd og vinfösl, trúkona
mikil, dagfarsgóð og siðavönd. — Börn hafa þau
hjón eignast 9 og eru 6 á lífi: 1. Jón, bóndi og
Kristján Jónsson.