Óðinn - 01.06.1919, Qupperneq 7
ÓÐINN
23
kennari í Bragholti við Eyjafjörð; 2. Oddur, gagn-
fræðingur og verkstjóri á Hjalteyri; 3. Arnbjörg;
4. Guðmundur, búfræðingur; 5. María Rannveig;
6. Stefán Ágúst. — Þrátt fyrir mikla fátækt og
ýmsa örðugleika, kostuðu þau hjón kapps um að
menta börn sín eftir föngum, enda eru þau öll
efnileg mjög og mannvænleg.
Ferðamaður, sem að sumarlagi fer eftir strand-
lengju Eyjafjarðar að vestan, mun taka eftir
Glæsiblæ. Bæjarnafnið er fagurt og heimsýnin
glæsileg. Túnið alt er rennisljett og aðlíðandi
niður að fögrum firðinum. í brekkunni fyrir
sunnan bæinn er fagur blómagarður, með ungum
og fögrum reyni-, birki- og rifsviði. Og í beðun-
um í kring ljóma ótal innlendar og útlendar
skrautblómategundir. En fyrir neðan taka við
kartöflu- og rófugarða. Og ekki trúi jeg öðru,
lesari góður, en að þig fýsi að koma heim og
staldra við. Og þess mun þig eigi yðra. Hjónin
taka við þjer með tveim höndum, og alkunnri
íslenskri gestrisni. Og þegar þú ferð, er jeg viss
um að þú þekkir einu fyrirmyndar- og gestrisnis-
heimili íleira á gamla Fróni.
St. J. St.
tí
Guðmundur Ásgeirsson
frá Fróðá.
Myndin, sem hjer fylgir, er af einuin hinna
mörgu ungu íslendinga, sem gengu í her Kanada-
manna, sem barist hefur með bandamönnum á
vígstöðvunum í Frakklandi á undanförnum ár-
um. Hann hjet Guðmundur Ásgeirsson, sonur
hjónanna Ásgeirs Þórðarsonar og Ólínu Guð-
mundsdóttur á Fróðá í Snæfellsnessýslu, og fjell
í orustu 25. sept. 1916. Foringi herdeildar þeirrar,
sem Guðmundur var i, skýrði föður hans frá
sonarmissinum með svohljóðandi brjefi:
»Kæri herra! Með sárustu hrj'gð og innilegustu hlut-
tekningu, neyðist jeg til að tilkynna yður fall sonar
yðar, G. Á. Hann fjell í orustu 25. sept. Herdeild okkar
hafði nýtekið þýska skotgröf, þá er sonur yðar fjell,
beint á leiðinni til þessa hertekna staðar. Herdeild sú,
er sonur yðar var í, syrgir hann mjög, því hann var
svo vel látinn meðal fjelaga sinna, að allir dáðust að
honum og þótti vænt um hann. Hann dó á meðan hann
var að gera skyldu sína ánægður og með hugprýði.
Einnig get jeg sagt yður, ef það mætti draga úr sárri
sorg yðar, að dauða hans bar svo snögglega að, að
hann hefur eigi augnablik liðið. — Með dýpstu hlut-
tekningu er jeg yðar auðmjúkur J. Brigdman, foringi
29. herdeildarinnar«.
Einnig fjekk faðir Guðmundar svohljóðandi brjef;
»Kæri herra! Viljið þjer hjer með meðtaka innileg-
ustu samhrygð mína við fráfall hins ágæta borgara og
hugprúða hermanns, sonar yðar, G. Á. Um leið og
aldrei er nógsamlega harmað fráfall svo góðs drengs
og fjelaga, þá er þó huggun í því að vita það, að hann
gerði skyldu sína fram til hins síðasta, samviskusam-
lega og án þess að blikna eða hræðast og lagði líf
sitt í sölurnar fyrir frelsi og uppbj'gging síns ríkis. —
Með hjartanlegri hluttekningu, Heyhes, yfirhersliöfð-
ingi Canadahersins«.
Guðmundur'Ásgeirsson.
Mynd G. Á. átti að koma í »Óðni« rjett eftir
að frjett kom um lát hans, en lenti í óskilum
ytra í samgönguringulreiðinni, svo að hún er nýlega
komin fram. Með myndinni var »Óðni« skrifað:
»Guðmundur sál. ætlaði sjer að hverfa heim til
fósturjarðarinnar, að ófriðnum loknum. Brjef hans
til ættingja og vina eru full af heimþrá og áhuga
á því, að vinna fósturjörð sinni sem mest gagn,
er hann kæmi heim. Meðal annars-talar hann þar
urii sjerstaklega hagkvæma slátluvjel, er hann
kveðst vera búinn að gera uppdrátt af, og ætla
að haía með sjer, er hann kæini heim«.
X.