Óðinn - 01.01.1922, Síða 2
Æfisaga
sjera Matthíasar jochumssonar,
rituö af sjálfum honum,
kemur út nú í sumar.
Utgefandi er Þorsteinn Gíslason. En bókin er prentuð
á Akureyri, og sjer Steingrímur læknir Matthíasson um út-
gáfuna. Hún er 25 arkir að stærð, og mun verða full-
prentuð, eða þar um bil, í júnílok.
Þetta verður stærsta og merkasta bók þessarar tegundar,
sem bókmentir okkar eiga. Hún kemur víða við. Höf. hefur
á sinni löngu og merku æfi kynst fjölda manna, bæði hjer
heima og erlendis, sem mörgum mun þykja næsta fróðlegt
að heyra hann lýsa. Mannlýsingar hans eru að öllum jafn-
aði ágætlega gerðar, eins og menn kannast við úr kveðskap
hans. Af útlendum mönnum nafnkunnum, sem höf. hefur per-
sónulega kynst og þarna er lýst og um dæmt, má t. d. nefna
Grundtvig, H. C. Andersen, Björnson og G. Brandes. Af inn-
lendum mönnum koma margir við söguna, og þar á meðal flestir
hinna þjóðkunnustu manna okkar, sem nærri stóðu höf. að aldri.
Höf. Iýsir nákvæmlega fyrri hluta æfi sinnar og sömu-
leiðis kenningum þeim og mentastraumum, sem mótað hafa
lífsskoðun hans. Hann er kominn yfir sjötugt, er hann byrjar
að skrifa sögu sína. Hefur hann síðan skrifað kafla og kafla,
stundum með löngum millibilum, og lýst þar einstökum þáttum
eða viðburðum úr lífi sínu, og þessu hefur hann haldið áfram
alt til hins síðasta, svo að bókin er skrifuð á 10—15 árum.
Einn mun verða allra dómur um það, að bók þessi sje
stórmerkilegt rit. Hún er fjörleg og skemtileg frá upphafi til
enda og hefur inni að halda mikinn fróðleik og margs háttar.
Þegar þessari bók er lokið, er í ráði að út komi, einnig á Akureyri,
lítið en vandað minningarrit um sjera Matth. Jochumsson.