Reykjavík - 15.02.1901, Side 2
2
T51 nninnís.
Landsbókasnfmð er opið hvern virkan dag. kl. 12—2
og einni ^lundu lengur (lil kl. 3) á Mánud., Mið-
vikud. og Laugard.. til útlána.
Landsskjalasafnið o[)ið á Prd., Fimtud. og Ld, kl. 12—1.
Náttúrugripasafnið er opið á sunnud. kl. 2—3. síðd.
Forngripasafnið er opið á Mvd. og Ld. kl. 11—1.
Landsbankinn er opinn hvern virkan dag kl. 11—2.
Banknstjórnin við frá 12—1.
Söfnunarsjóðurinn opinn 1. Mád. í mán., kJ. 6 — 6 »iðd.
Landshöfðingjaskrifstofan opin hvern virkan dag frá
9- -10 ll* 1 2 3/,—2 og 4—7.
AmtmannsBkrifetof«n er opiu á hverjum virkum degi
kl. 10 -2 og 4 -7.
Bæjar/ógetaskrifstofan er opin rumh. daga 9—2 og 4—7.
Póststofan opin hvern rúmhclgan dag kl. 9—2 og 4—7.
Aðgangur að Box-kÖssunum frá 9—9 dagl. Bæjar-
péstknssarnir tæmdir dagl. kl. 7*/* árd. og 4 slðd.
Afgreiðsla hins sameinaða g.afuslupufélags opin rúmh.
daga frá 8—12 árd. og 1—8 síðd.
Bæjarstjórnarfundir 1. og 3. Fimtud. hvers mán.
Fátækranefndarfundir 2. og 4. Fimtud. í mánuði.
Héraðslæknirinn er aðhitta lieima 2—3 dagl.
Augnlæknirinn cr heima kl. 12—2, ókeypis augnlækn-
ing á spitalanum 1. og 3. Prd. hvers ,mán., kl. 11—1.
Tannlæknirinn er heima kl. 11—2. Okeypis tann-
lækning heima hjá læku. 1. og 3. Mád. hvers mán. 11—1.
Apótekið opið daglega frá 8 árd, til 9 slðd.
Okeypis lækning á spftalanum Þrd. ogFöd., kl. 11—1.
;6œjargfjórnarfundur.
7. Febr. 1901.
1. Formaður skýrði fra, að ábú-
audi Klepps hefði eigi enn greitt eftir-
gjald jarðarinnar fyrir síðastl. ár og
óskaði úrskurðar bæjarstjórnarinnar
hvort bíða ætti lengur eftir honum
með byggingu jarðarinnar. Ákveðið
að bíða enn viku, ef ábúandinn greiddi
innan þess tíma gjaldið, en auglýsa að
öðrum kosti jörðina lausa til ábúðar.
2. Tilnefndir til að vera í kjöri
við kosningu sáttanefndarmanns hér
í bænum í stað landfógeta Á. Thor-
steinssonar, sem fer úr nefndinni,
þessir 5 menn: Jón Magnússon land-
ritari, lektor Pórh. Bjarnarson, docent
Eiríkur Briem, Jóhann Þorkelsson
dómkirkjuprestur og Árni Gíslason
Jeturgrafari.
3. Formaður lagði fram bréf frá
landshöfðingja, þar sem hann sendir
frumv. frá stjórninni um breyting á
bæjarstjórnartilskip. í sömu átt og
frumv. sem samþ. var á síðasta þingi,
en nú hefir verið synjað staðfesting-
ar og æskir yflrlýsingar bæjarstjórn-
arinnar um frumv. þetta. Hafði nefnd-
in, sem sett var af bæjarstjórninni á
sínum tíma til að fjalla um gamla
frumv., haft mál þetta til meðferð-
ar og látið í ljósi álit sitt. um það
og var það álit lagt fram. Var samþ.
að óska þess, að frumv. yrði lagt
fyrir þingið, en stungið upp á nokkr-
um breytingum, er náriar voru til-
teknar í nefndarálitinu, á 1. og2.gr.
frumv.
3. Erindi frá Jóni Jóntanssyni, þar
sem hann beiðist þess að verða hafð-
ur í huga, er ráðinn væri maður til
að mæla upp bæinn og gjöra upp-
drátt af honum. Urðu töluverðar
umræður um nauðsynina á uppmæl-
ing og kortlagning bæjarins og voru
ýmsir á því, að það verk yrði eigi
unnið nema af útlendum verkfræðing-
um eða landmælingamönnum, sem þá
þyrfti að fá að frá útlöndum. Var
málið falið veganefnd til íhugunar.
5. Ekkja skólast.jóra Markúsar F.
Bjamasonar, Björg Jónsdóttir, skýrir
frá, að hún ætli að selja frú L. Finn-
bogasen 1500 □ áln. fyrir norðan
húslóð hennar, á 30 aur. □ al., og
spyr hvort bæjarstjórnin vilji nota
forkaupsrétt sinn. Visað til byggingar-
nefndar til álita.
6. Kom til umræðu hverri stefnu
fylgja skal um framlengingu Lindai-
götu upp á þjóðveginn, en byggingar-
nefndin hefir skotið máli þessu und-
ir álit bæjarstjórnarinnar. Voru til-
lögur tvær, önnur að leggja Lindar-
götu skáhalt upp á þjóðveginn yfir
vesturhornið á Elsumýrarbletti, en
hin, að leggja Lindargötu áfram beint
fyrir norðan Elsumýrarblett og aust-
ur yfir norðausturhornið á honum
upp á þjóðveginn með Rauðarárlæk.
Bæjarstjórnin ályktaði að hafua fyrri
tillögunni, en ákvað. að fela vega-
nefndinni að rannsaka ýtarlega hina
nyrðri stefnuna og gera tillögu um
vegalagninguna þar.
7. Beiðni frá Einari Guðmunds-
syni í Ánanaustum um lán. úr bæjar-
sjóði til húsakaupa vildi bæjarstjórn-
in ekki sinna.
8. Brunabótavirðing samþ. á for-
dyrishúsi við norðurgafl ieikfimishúss
lærða skólans 750 kr.
9. —12. Útsvarskærur. — Sumar
telcnar til greina.
13. Lektor Pórh. Bjarnason lagði
fram bréf og áætlanir frá Marius
Knudsen í Odense um brunnboranir
hór, sem fulltrúinn hafði útvogað.
Vísað til veganefndar til athugunar.
14. Beiðni frá Jóni Sveinssyni
snikkara um að flutt verði frá hús-
inu grjót, er bærinn á þar og að torg-
ið hjá húsi hans verði lagað m. m.
Vísað til veganefndar.
16. Erindi frá dcmkirkjnprestin-
um, þar sem hann leggur til, að slept
verði að innheimta af skólagjaldinu
fyrir þetta ár það sem svarar 1 mán-
uði, fyrir það, að kensla var eigi í
Október. Vísað til skólanefndar til
athugunar og álita.
16. Bæjárfógeti skýrði frá, að til
stæði að gerð yrði ráðstöfun ti), að
lagt yrði fyrir þingið lagafrumv. um
manntal hér í bænum hjá lögreglu-
stjóia og tilkynningarskyldu um inn-
komna og burtvikna menn og spurð-
ist fyrir, hvort bæjarstjórnin vildi
samþ. að hálfur kostnaðurinn við
manntal þetta væri greiddur úr bæj-
arsjóði, ef til kemur. Bæjarstj. áleit
hið fyrirhugaða fyrirkomulag nauð-
synlegt eins og nú er orðið, og vildi
eigi skorast undan að greiða helm-
ing kostnaðarins. G. B. ekki á fundi.
--K>«--
^jónleilíor leráfclagsine.
„Leikfél. Rvíkur“ hefir það sem af er
vetri_ leikið þrjá stærri sjónleika nýja,
auk þess að það hefir endurleikið Jeika
frá því i fyrra. — Fyrst má nefna
„ Hjai l adrotninguna “, laglegur leikur
og vel leikinn (ungfrú Gunnþórunn,
cand. Jón Jónsson, Árni Eiríksson).—
Tilkomumestur er annar leikurinn:
„Heimkomau“(„Die Ehre“) eftir Suder-
mann. f’ar leika þau Árni Eir. og
ungfr. Fur. Sigurðard. karl og kerl-
ingu mjög v§l. einkum Árni hatta
kariiiin. Róbert og Leonóru leika þau
Jón Jónsson og ungfr. Gunnþ. Halld.,
og leika prýðilega bæði að vanda.
Alma er vandleiknust, en ungfr. Sól-
veíg Sveinsd. ræður fyllilega við verk-
efnið, svo að snild er að. Múhling
eldra lók hr. Krfttj. forgr., og þarf
ekki að því að spyrja, að honum lét
það prýðilega, eins og flest, sem hann
fæst við á leiksviði. Ungfr. Gunnþ.
Halld. lók Leonóru prýðisvel. Ungfr.
Guðrun Kristjánsd. (Þorgrímssonar)
lék hóv í fyrsta sinn (frú Muhling)og
tókst. mjög vel, þótt málrómurinn
væri, ef til- vill, i unglegra lagi. Hinir
aðrir leikendur léku mjög viðunanlega,
og allir lýtalaust, Jens Waage hvað
bezt. —
Síðastl. Sunrnid. lók leikfél. „Þrum-
veðrið" eftir Hostrup. í þetta sinn
skal að eins stuttlega á það minst
(verður, ef til vill, nefnt aftur síðar).
Yfirleitt var þessi leikur (sem er snot-
ur, en ristir ekki djúpt) leikinn óvenju-
lega vel. Jón Jónsson lék að vanda
prýðisvel, en var eins og heldur snögg
ur og naumast náttúrlega viðkvæmur
þegar kerling hans er að láta líða yfir
sig. Gunnþórunn leikur malarakon-
una af svo náttúrlegri snild, að, svo
vel sem hún annars alment leikur,
hefir henni aldrei jafn-vel tekist sem
þetta kveld. Tvær ungfreyjur léku
hér í fyrsta sinn: Emilía Einarsson
(Indriðad.) og Sigríður Bergþórsdóttir.
Ungfr. Einarsson tókst vel og sá eng-
in viðvaningsmörk á henni. En ung-
frú Sigríður lék frábærlega náttúrlega,
og er líklegt að þar renni upp gott
leikkonu-efni. Hina aðra vönu leikara
er ekkert sérlegt um að segja, annað
en að þeir vóru allir upp á sitt ið
bezta. Sonur malarakonunnar (Friðf.
Guðj.) er ekki fjörmikill ástamaður,
en fer snoturlega með hlutverk sitt
eftir megni. Helgi Helgason, sem mér
virðist leika yfirleitt manna eðlileg-
ast og tilgerðarlausast, lék og í þetta
sinn mjög vel og náttúrlega.
Andlitsmálun sumra leikenda, eink-
um þeirra er leika gamalt fólk, mætti
vera betri. J- Ó.