Reykjavík - 15.02.1901, Síða 3
3
Íandslíornanna ó milli.
Héraðslæknir settur i ísafjarðar-
sýslu læknaskólakandidat Jón Por-
valdsson; faðir hans, Porv. Jónsson,
hefir fengið lausn frá embætt.i.
Keypt verzlunarhús. J. P. T.
Bryde etazráð hefir keypt verzlunar-
hús Knudzons í Hafnarfirði á 20,000
kr. í haust keypti P. J. Thorsteins-
son á Bildudal hús Porst. Egilssonar
á 12,000 kr. Ætlar að hafa þar þil-
skipaútgerð.
Fiskast hefir ágætlega við ísa-
fjarðardjúp undanfarandi; vænn íiskur.
Á Akranesi fiskaðist vel nokkra daga
í síðastliðinni viku, en er nú í rénun.
Róið höðan úr bænum vestur í Akur-
nesingaieitir nú fyrir heigina síðustu;
fengust 30 í hlut af smáum fiski.
Tvíkvæni. Maður á Kjalarnesi
hafði fengið prest sinn til að gifta
sig. Hafði hann skýrt presti frá, að
hann væri skilinn við fyrri konuna og
sagðist hafa skrif fyrir því; tók prestur
það gilt, með því svaramenn höfðu
ekkert við þetta að athuga. En svo
þegar leitað er sveitarstyrks úr Grinda-
vík handa konu þessari til heimilis-
hrepps manns hennar, var farið að
grenslast eftir, hvernig þessu væri
háttað; komst þá upp, að hjónin voru
ekki löglega skilin. Konan hafði bréf-
lega beðið manninn um skilnað fyrir
10—20 árum og hann gefið eftir
skilnaðinn og hóit svo, að eigi þyrfti
meira, enda hafði hann ekkert frétt
af konunni allan þennan tíma og
vissi ekki hvort hún var lífs eða liðin.
Háti harst á (4,-mannafari) 6. þ.
m. frá Straumfirði á Mýrum. Drukkn-
aði þar Bergþór Bergþórsson, liðugt
sjötugur. Þrír komust af.
Of'saveður á vesturlandi á þrett-
ándanum (6. Jan.). Fuku víða hús
og hey, skip brotnuðu og ýmsar fieiri
skemdir urðu. Mest kvað að þessu í
Bolungarvík, Hnífsdai, Bíldudal og
víðar. Skaðinn skiftir þúsunduin kr.
Barn brann til bana á Folafæti í
ísafjarðarsýslu. Datt í sjóðandi pott.
É(r fíöfuðstaðnum.
Ekknasjúður Rvíkur hélt árs-
fund sinn 2. Jan. Yoru fram lagðir
reikningar fyrir árið 1900. Höfðu 7
ekkjur fengið styrk, 36 kr. hver. Sjóð-
Urinnvarum árslokorðinnrúm 5000 kr.
Styrktar- og sjúkrasjóður verzl-
únarmanna í Rvík hólt aðalfund sinn
10. .Tan. Reikningar fram lagðir og
endurskoðaðir. Eign sjóðsins um ára-
mót rúmar 27 þús. kr. Voru síðastl.
ár veittar yflr 1000 kr. til að styrkja
fátæka verzlunarmenn og ekkjur og
börn af þeirri stótt. — Stjórn endur-
kosin: C. Zimsen (form.), G. Zoéga,
Sighv. Bjarnason, Guðm. Ólsen og
Th. Thorsteinsson. Endurskoðunar-
menn: Halid. Jónsson, Nic. Bjarnasen.
Kiiiijifélug Rvíkur hélt ársfund
sinn 21. Jan. Kaupveltan f. á. ná-
lægt 19000 kr. Stjórn endurkosin:
Sigf. Eymundsson, Haildór Jónsson og
Sighv. Bjarnason. End.sk.menn: Eir.
Briem og l’órh. Bjarnarson.
ísféliigið við Faxaflóa hólt árs-
fund 24. Jan. Voru fram lagðir endur-
skoðaðir reikningar fyrir síðasti. ár.
Hreinn ágóði hafði orðið á iiðna ár-
inu 2175 kr. 58 au. Til þess að
auka veltufé félagsins var samþ. að
bjóða til sölu 100 ný hiutabróf með
upprunalegu verði, 50 kr., en að eins
eldri hluthöfum félagsins. Af ágóð-
anum voru 600 kr. lagðar fyrir fyrn-
ingu á húsum fól. hór í bæ og rúm-
ar 170 kr. fyrir fyrningu á húsinu _á
Vatnsleysuströnd, en 182 kr. fyrir
fyrningu á áhöldum; féhirði, C. Zim-
sen konsúl, veittar 250 kr. þóknun
fyrir sinn starfa, og endurskoðendum
50 kr., en ráðsmanninum, Jóh. Nor-
dal, tæparlOOkr. Samþykt að greiða
hluthöfum 10 °/0 árságóða, samtals
7 50 kr. — í þetta sinn skyldi ganga
úr stjórn félagsins formaður þess, Tr.
Gunnarsson bankastjóri, en var endur-
kosinn i e.hlj. Varamaður í stjórn-
ina valinn séra Eiríkur Briem. End.-
sk.menn endurkosnir: Halld. Jónsson
og Sighv. Bjarnason, og til vara Jón
Þórðarson kaupm.
Styrktar- og sjúkrasjóður Iðn-
aðarmanna var um áramótin orðinn
full 3000 kr.
„Sjúkrasaiulag'" prentarafólagsins
var um áramótin orðið um 950 kr.
Tillag þar er árlega 15 kr. 60 a. og
greiða prentsmiðjueigendui: x/8 af því.
Fyrir þetta gjald fá samlagsmenn frí-
an læknir, fyrir sig og heimili sitt,
ókeypis meðöl handa sér og 1 lcr. 50 a.
á dag í mánuð, ef þeir liggja veikir.
Embsettispróf. þessir 4 luku á Mánu-
daginn prófi við líeknaskólann bér, með
I. einkunn allir:
Jónas Krisjánsson, hlaut 193 stig
Andrés Félsteð — 191 —
Ingólfur Gíslason — 182 —*
þorbjörn Pórðai’son — 160i/3 —
Fyrra hlut embættispróft við læknaskólann
lauk Pórður Pálsson í Jan.; fékk I. einlc.
Skarlafssóttin að réna héríbænum;
engir sýlcst upp á síðkastið.
,Laura‘ (skipstj. Aasperg) fór til út-
landa á Þriðjudaginn; með henui sigldu
læknaskólakandídatarnir nýju og margir
kaupmenn: Björn Guðmundsson, B. H.
Bjarnason, Friðrik Jónsson, Guðjón Sig-
urðsson, J. G. Halberg, Jes Zimsen, Jón
Þórðarson, PéturHjaltesteð, Sigf. Eymunds-
son og W. 0. Breiðfjöi’ð. Einnig: Sig.
Thoroddsen mannvirkjafræðingur, Þórarinn
B. Þorláksson málari, fröken Ragnhoiður
Björnsdóttir. Skipstjórarnir Guðm. Krist-
jánsson, Árni Hannesson, Guðjón Knúts-
son, Geir Sigurðsson, Jóh. Þórarinssouo.fl.,
auk margra háseta, til að sækja fiskiskip
til útlanda. Með skipinu fór og Sigurður
Loftur járnsmiður til að fullkomna sig í
iðn sinni.
,Skálholt‘ fórá stað til Liverpool sama
kvöldið og „Laura“ fór.
I góðviðrinu um kvöldið, sem skipin fóru
á stað, var um borð á skipunum ljósa-
gangur mikill, flugeldar þeyttir o. s. frv.
Á ferðinni 1 hér í bænum hafa margir
verið u ndanfarandi: Sýslum. Magnús Torfa-
son Árbæ og frú hans, séra Arnór Árna-
son frá Felli, Árni Sveinsson kaupm. ísa-
firði, Páll J. Torfason kaupm. Önundar-
firði, alþm. Guðj. Guðlaugsson Ljúfust. o.fl.
Fyrsta fiskveiðaþilskip lagði á stað
á miðvikudaginn, skipstj. Hjalti Jónsson;
skipið heitir „Svift“, eign skipstj., Jes
Zimsens, Björns og Þorst. Guðmundssona.
,Húsbóndi‘ „Reykvíkings“ segir í síð-
asta blaði, að „Reykjavík" „hafi skift um
húsbónda um áramótin.“ Ólíklegt er annað
en að maðurinn hafí vitað, að þetta er ó-
satt, þar sem hann hefir ekkert fyrir sér,
er geti gcfið honum ástæðu til að ætla
þetta. En hitt vita menn, að „Reykvík-
ingui*“ hefir ekki skipt um ,húshónda‘
og verða menn því sjálfsagt eftirleiðis eins
og að undanförnu að umbera með kristi-
legri þolinmæði s'ömu ósköpin úr þeirri átt
og áður.
Tombóla. Iðnaðarmannafélagið hélt
tombólu i byrjun mánaðarins með nokkr-
um ágóða.
Nýjar verzlanir. Thor Jcnsen, fyr
kaupm. á Akl'anesi, hefir nú byrjað nýja
verzlun hér í bænum, er hann nefnir „Godt-
haab“. Guðm. Olsen, fyrv. verzl.stj. Fi-
scher’s verzlunar, hefir nú opnað verzlun
í Austurstr. 1 (Veltunni).
Skaufafélagið gerði sér glaða stund
að kvöldi hins 1. þ. mán. Var þarlúðra-
þytur, flugeldar þeyttir, ýmis konar ljósa-
gangur o. s. frv. Veður hið ákjósanlegasta.
„Bragi“ (söngfélag)' hélt mánaðarsam-
komu í „Iðnó“ 8. þ. mán. Var þar sungið,
spilað o. s. frv.
Sáttanefndarmann á að kjósa 20.
þ. m., í stað Á. Thorsteinsonar landfógeta,
er hefir beðið sig undan því starfi, sem er
nú orðið harla umfangsmikið, því mála-
ferli oru hér tíð um þessar mundir, enda
ganga háyfirvöldin á undan með góðuf!)
eftirdremi, þar sem þau skipa málshöfðun
upp a landssjóðsins reikning út af því, sem
— að minsta kosti í almennings augum —
eru smámunir einir.
HeiðarljóÖ Hóru.
Farin er hún Lára og flutti burt um sæ
fimtugasta manninn hvern úr Reykja-
víkur bæ,
það var skárri hersingin er þar fór alt um
borð,
—- ja, þá var líka troðningur við sérhvern
hryggjusporð.
Flestir voru sjómenn, er fóru að sækja skip
fallegx'i’ en þau gömlu, sem leka eins og hrip,
surnir voru kaupmenn, er safna vilja auð
og sjá og heyi’a rétt hvort hún Viktoría’1
er dauð.
*) P.lausor hafði orðið fyrstur til að segja