Reykjavík - 13.07.1901, Page 2
2
TH mianis.
Landsl’AUnpnfniil rr opið hvern virkuii <laR. kl. 12—2
op oinni Ptnn.lu lcngur (til kl. 3) á Mfinud., Mið-
vikud. oií Líiufflird.. lii i'itlána.
liamlpskjalasufnið opið á Þnl., p’imtud. og lid. kl. 12—1.
Nátti'n xigrip.isj.fnið tr opið á sunnud. kl. 2—3. síðd.
l'-.n .. i ij.upiifiiið er opjð h r<Ivd. og Ld. kl. 11—1.
I. n'tsl.iiu^i*n er opinn hvern virkan dag kl. 11—2.
l i.nksisijói nin við fiá 12—1.
Söfm n osjóðurinn opinn 1. Mád. imán., kJ. 6—o Piðd.
liandpliöfðinpjiiskrifstofnn opin hvern viritan dag fiá
9--l«,/s. 11 2 og 4—7.
ATntmannsskiifst<'fi.n er opin á hverjum virkum dcgi
kl. 10 -2 og 4
Ba'íarfógftaskrifstofan er opin rumh. dnga 9—2 og 4—7.
Póststofan opin livern nimholgan dag kí. 9—2 <>g 4—7.
Aðpangur að Box-kössunum frá 9—9 dagl. Bæjar-
pAptkiiPsai nir ticmclir dngl. kl. 7*/, árd. og 4 siðd.
Afgreiðshi hin« snmeinaðA gufuskipafólaga opin rúinli.
daga frá 8—12 árd. og 1—8 siðd.
Bæjarstjórnarfundir 1. og 3. Fimtud. hvers mán.
Fá1a*kranofndarfundir 2. og 4. Fimtud. í mánuði.
Héraðslæknirinn or aðhitta heima 2—3 dagl.
Augnlæknirinn or heima kl. 12—2, ókeypis augnlækn-
ing A Ppitalanum 1. og 3. Þrd. hvers ,mán., kl. 11—1.
Tannlæknirinn er heima kl. 11—2. Ókeypis tann-
lr. ! ningheima hjá lækn. 1. og3. Mád. hvers mán. 11—1.
pótekið opið dagloga frá 8 árd, til 9 siðd.
keypis lækniug á spítalanum Þrd. og Fötl., kl. 11—1.
TónsIxáldiÖ C£(. Jí. j\lo}ar\.
Wolfgang Amadeus Mozart fæddist í
Salzburg 27. Jan. 1756. Faðir hans
var Leopold Mozart, sonur Franz Mo-
zarts bókbindara i Augsburg, og var
hann fæddur 1719.
Yfir höfuð virðist svo, sem ætt
Mozarts sé frá Augsburg, og víst er
um það, að á 16. öld lifði ináiari einn
í Augsburg, er hét. Anton Mozart.
Leopold Mozart las á æskuárum
sínum lög við háskólann í Augsburg
og varhann maður fróður um margt,
var bæði málari, skáld og tónskáld.
Skjótt hætti hann við lagalestur og
tók nú að iðka söngfræði og varð
skjótt frægur söngfræðingur, og loks
árið 1753 hirð-fiðiuleikari og tónfræð-
ingur erkibiskupsins í Salzburg. 28
ára gamall kvongaðist hann Önnu
Maríu Pertl og gat við henni 7 börn,
er dóu öll nema Nannerl og Woif-
gang Amadeus Mozart.
Pegar Woifgang Mozart var fjögra
ára gamall lék hann svo vel á klaver,
að allir dáðust að honum, og er hann
, var sex ára gamall hafði hann ekki
annað fyrir stafni, en að leika á klaver
og rita lög, og er því engin furða þó
að hann yrði veikbygður og óásjálegur.
Nannerl systir hans var einnig mjög
hneigð fyrir söng.
Leopold Mozart ásetti sér því að
hafa hag af þessum börnum sínum
og fór því ferð til Vínarborgar 1762
og sýndi börn sín þar.
Þegar Mozart lék á klaverið varð
hann sem allur annai’ maður, augu
hans urðu þá snör og skörp.
Á ferð sinni til Vínar með börn
sín, kom Leopold Mozart við í Mún-
chen og víðar og alstaðar dáðust
menn að þeim. María Antoníette, sem
sem síðar varð svo fræg fyrir hín sorg-
legu endalok sín í stjórnarbyltingunni
miklu, hafði mikil mök viðMozart. Þau
fóru nú aftur til Salzburg, en ekki
leið á löngu áður þau færu aðra ferð
og stóð hún yfir i 3 ár (1763 —66).
Þau ferðuðust viða um og héldu sarn-
söngva og hlutu hrós mikið; 18. Nóv.
1763 voru þau í París og höfðu þar
aðsetur sitt hjá sendiherra Bajara;
þar var farið injög vel með þau og þá
samdi W. A. Mozart hin fyrstu verk
sín. Vorir það 4 sónettur, er hann
tileinkaði Viktoríu prinsessu og Tesse
greifainnu. Í*ví næst fóru þau til
l.undúna c;g naut Mozart þar um hrið
kenslu J. Chr. Bachs, sonar Sebastians
Bachs. Pá fóru þau til Haag, en þar
urðu börnin veik; þeim batnaði þó
skjótt og komust til Salzburg 1766.
Nú var Mozart tíu ára og var þá
sýndur Jósep II., sem dáðist mjög að
hönum, óg að hans ráðum skrifaði
Mozart hina fyrstu óperu: „la finta
simplice", og er hún var leikin klöpp-
uðu allir lof 1 lófa.
W. A. Mozart varð — 12 ái a -
samsöngvameistari erkibiskupsins, en
1769 ferðaðist hann aftur með föður
sínum; í þetta sinn fóru þau til Ítalíu
og dáðust aliir að Mozart; jafnvel
páfinn varð svo hrifinn af list hans,
að hann dubbaði hann til riddara af
„hinum gulina spora“; áður hafði
Gluck hlotið sömú sæmd. Siðan fóru
þau til Salzburg og hélt Mozart nú
kyrru fyrir um hrið. far bjó hann
mi til einhver hin frægustu verk sín.
Samt sem áður fékk hann enga fasta
stöðu, sem hann gæti lifað af. Því
tók hann sér feið á hendur 1778 og
fór til Miinchen, þar kyntist hann
Weber nokkrum, er var „súfflör" við
leikhús þar; hann átti 4 dætur og varð
Mozart ástfanginn í hinni yngstu, A-
loysíu, er var 15 ára gömul. Þetta
tafði Mozart nokkuð á ferð sinni til
Parisar, loks tókst honum þó að slita
sig burt. Þegar hann ári síðar sá
Aloysíu aftur, kannaðist hún ekki við
hann; settist hann þá við klaverið og
lék: „Ich lass das Madchen gern, das
mich nicht will1. “
IJm þessar rnundir andaðist móðir
Mozarts 3. Júlí 1778. Siðar varð hann
ástfanginn í Constance systur Aioysíu
og henni kvongaðist hann 4. Ág. 1782.
Þessi kona var alls ekki hæf Mozart
og að engu lík honum; segja menn,
að nokkrum árum eftir dauða ha-ns
hafi hún ekki einu sinni vitað hvar
gröf hans var.
Faðir W. A. Mozarts, Leopold, dó
28. Ág. 1787.
Af „instrumentverkum" i.lögum án
söngsl hefir hann skrifað mesta ara-
grúa, og sætir það furðu, þar sem
hann oftast var á ferðalagi og vai ð
1) Ég er fús til að yfirgefa þá meyju,
sem vill mig ekki.
að eins 36 ára gamall. Sem óperu-
tónskáld er Mozart þó frægastur og
með honum hefst óperan til gengis.
Meikastar óperur hans eru: „Idome-
nes“, „Figaros Bryllup", „Don Juan“
og „Töfraharpan". Töfrahðrpuna skrif-
aði hann seiuasta ;irið sem hann lifði
og hlaut hann mikla aðdáun fyrir.
Erfitt er að lýsa Mozart; hann iifði
að eins fyrir listina, en mælt er, að
svo hafi hann verið viðkvæmur, að
oft hafi hann spurt menn þannig:
„Geðjast þér að méi'?“ og ef þá var
neitað, þó ekki væri nema í gamni,
þá hafi hann snúið sér undan og grát-
ið. Aila sína æfi var Mozart fátæk-
ur; í baualegu sinni frétti hann, að
hann — eftir umsókn —• væri skip-
aður kapellumeistari í Stefánskirkju í
Víu án launa.
Wolfgang Ama,deus Mozart dó i Víu
5. Dec. 1791 og grafinn á kirkjugarð-
inuin Sr. Marx, og gleymdu menn
skjótt hvar hann var grafinn, ekki að
eins Vínarbúar, heldur og kona hans.
Það var fyrst árið 1844, að söng-
konan Kasselt-Barth lét reisa honum
minnisvarða á sinn kostnað og var
þessi áritun á: Jung gross, spát
erkannt, nie erreicht1.
jDjarff íeflf.
Knsk lögreglusaga eftir Diek Donovan.
Framli.
Alt var kyrt inni í tjaldinu. Latnp-
ínn dinglaði enn þá fram og aftur
og tjaldhliðarnai- svignuðu fyiir stonn
inum. Winter var órótt í svefninum
og fór illa í rúmi; ég skreið að rúmi
hans svo hægt, sem ég gat, þreif
lyfjaflöskuna, sem Delaporte hafði helt
eitriuu í, og ætlaði að skiiða með
hana út úr tjaldinu aftur; en í sömu
svipan stökk Delaporte fram úr rúm-
inu og kallaði:
„Hver er þar? Hver fjandinn er á
ferðum?"
Ég stóð upp, sneri mér að honum
og þreif í skyndi vopnin, sem lágu á
boiðinu hjá rúmi hatis, svo kallaði
ég á Budd og sagði honuin, að sækja
lækninn og kalla á fylgdarmenn vora
úr tjöldunum. Deiaporte stóð agn-
doía og hafði nú mist það snarræði,
sem honum var annars gefið. v
„Hver eruð þér?“ öskraði hann aft-
ur hátt, því að skuggsýnt var í tja.ld-
inu, svo að hann þekti mig ekki enn.
„Ég er þjónninn, sem þér réðuð til
ferðar moð yður“, svaraði ég; „en
yður satt að segja er ég annais lög-
regluspæjari, sem iengi hefi njósnað
urn hagi yðar og framfeiði —“
1) Mikill í æsku, seint viðurkendur, á
engan sinn líka.