Reykjavík - 05.10.1901, Qupperneq 3
3
Takið nú vel eftir,
Agæt byggingarlóð frost keypt á góðum
stað i Vesturbænum með töluverðu af
góðu, klofnu grjóti, fyrir mjög gott verð.
Utgef. visar á seljanda. __
TIL LEIGU TX*
áföst, fyrir einhleypa, mjög hlý, í húsi
Ben. S. Þórarinjsonar.
andi að fari að hverfa, og að menn
fari að hafa það hugfast, að aðalat-
riðið er, að uninð sé þann tíma sem
vinnan stendur yfir, en ekki setið mas-
andi, annaðhvort við samverkamenn
sína eða hvern einn, sem að kann að
koma, eins og maður þekkir íjarska
vel á vinnustofum hér í bæ. Það
væri þvi óskandi að iðnaðarkennendur
héldu nemendum fastlega að skólan-
um og gæti þess vandlega, að þeir
slái ekki slöku við að sækja hann.
Væri enda réttast, að i námssamn-
ingum væri iðnaðarneinum gert að
skyldu, að sækja skólann og að það
væri skoðað sem samningsrof, ef þoir
vildu ekki hlýðnast kennara sínum í
því, alveg eins og ef þeir þrjóskuðust
við að hlýðnast honum við iðn þá,
sem þeir væru að læra. — Nauðsynin
á þessum skóia var mjög brýn, því
þó að barnaskólamentunin sé nokkur
t. d. hér í bæ, þá þurfa ailir að menta
sig fyrir þá iðnaðargrein sem þeir eru
að læra, og þegar það nú bætist ofan
á, að ýmsir lærlingar, koma hér og
þar af landinu, þar sem barnakensla
er mjög af skornum skamti, og þá
vantar því nær öll mentunarskilyrði
til að geta lifað sem óbreyttir dag-
launamenn, þá má nærri geta hvernig
þeir gætu án veruJegrar þekkingar-
aukningar orðið vaxnir stöðu sinni
sem iðnaðarmenn, ef þeir ekki reyndu
að afla sér nauðsynlegra mentuna á
einn eða annan hátt. Þetta hefir nú
verið talsverðum erflðleikum bundið
til þessa og sumum jafnvel ókleyft,
en nU er hér á bót ráðin. NU er alt
komið undir vilja og ástundun iðn-
nema og skylduiækni iðnkennara, að
gefa þeim tíma til að sækja skólann
og gæti þess að þeir vamæki hann
ekki.
^r fíöfuðelaðnuni.
„Hólar“ komu á Laugardaginn var
rpeð mjög mikinn mannfjölda. Þar
á meðal Stefán fíiríksson tréskurðar-
maður með konu, frví Þórhildur Tóm-
asdóttir, frú Helga Eggertsson, Krist-
ján Jónasarson verzlunaragent, Jón
Bjarnarson verzlunarmaður, Pétur
Biering erindi eki Thomsens verzlunar,
frk. Dómhildur Briem, prentari Sig-
urður Grimsson með fjölskyldu o.fl.o.fl.
Mannslát. Þann 22. þ. m. létst
hér í bænum stUdent Sigurður Krist-
jánsson. Hann stundaðl námápresta-
skólanum og var mesti efnis- og gáfu-
piltur.
— Jón Magnússon landiitari ósk-
ar þess getið, að lnuin sé ekkert iið-
inn við „Eldinguna" né hafi leitt neitt
slíkt i tal.
Helgi Pótursson jarðfræðingur
kom á Fimtudagskvöldið Ur íerð sinni
hér um austursýslurnar.
íBœjarsijórnarfundur.
19. Sept.
I. FjárJiagsáætlun kaupstaðarins fyrir
1902 samþykt við 2. umr. með noklirum
breytingum. — 2. Fjárhagsnefnd falið að
gera tillögu um, hvernig ráðstafa skuli
eftirleiðis Stekkjarkotstúninu, sem nú í
haust fellur til bæjarins úr leigulialdi Bern-
höfts bakara. — 3. Samþykt að borga úr
bæjarsjóði 25 kr. fyrir leyfi til vegalagn-
ingar yfir Stekkjarkotstúnið, sem fengið
var lijá loigjanda túnsins. — 4. Leyft, að
bæjargjaldkerinn hafi fyrst um sinn skrif-
stofu sína heima lijá sér, í liúsi sínu við
Smiðjustíg, með því skilyrði, að hann hafi
opna skrifstofuna auk tíma þeirra, sem nú
er ákveðið, einnig frá 5—7 aíðd. á hverj-
um degi. — 5. Okeypis kensla í barna-
skólanum næsta vetur var veitt að öllu
leyti 46 börnum og að hálfu leyti 23 börn-
um. — 6. Landlælviii J. Jónassen veitt
viðbót við erfðafestuland á Melunum 1909
□ faðmar gegn 5 álna gjaldi á ári af dag-
sláttunni. — 7. Helga Zoega veitt viðbót
við erfðafestuland hjá Sauðagerði 1338 Df.
gegn 6 álna gjaldi á ári af dagsláttu. —
8. Jóni I’órðarsyni kaupm. og l’órði l'órð-
arsyni í Laugarnesi veitt land á erfðafestu
til ræktunar sunnan við Laugarnestún að
Laugalæknum og vestur að Spítalastíg,
svo að 20 f. breið ræma sé þar á milli,
gegn 10 álna gjaldi á ári eftir dagsl. —
9. Beiðni frá rorleifl Jónssyni í Mjóstr.
um viðbót við erfðafestuland hans, Yatns-
mýrarblett nr. 2, og Beiðni frá Jóni Jens-
syui og Vilhj. Bjarnarsyni um erfðafestu-
land í Rauðarármýri frestað til skoðunar
á staðuum. — 10. Markúsi Porsteinssyni
eftir gefnar 2 kr. af skólagjaldi. — II. Sig-
urði Friðrikssyni eftir gefinn helmingur af
aukaútsvari þetta ár. — 12. Samþ. að fella
burtu það sem ógreitt er af aukaútsvari
Ben. sál. Jónssonar verzlunarm., ef eklíja
hans si.tur í óskiftu búi. — 13. Signýju
Grunnlaugsdóttur leyft að slá nokkra kápla
af heyi í Vatnsmýrinni. — 14. Erindi frá
Sigurði Jónssyni í Görðunum um styrk
fyrir vegalagningu visað til veganefndar. —
15. Brunabótavirðingar: Hús Páls Haf-
liðasonar við Ingólfsstræti 4417 kr.; hús
Jóns Björnsonar við Bræðraborgarst. 2390
kr.; hús Þórðar Breiðfjörðs við Kaplaskj.-
veg 1760 kr.; liús Gísla Magnússonar í
Eskihlið 1915 kr.; hús Jóns Teitssonar við
Bergst&ðastræti 3377 kr.; hús Otta Guð-
mundssonar við Vesturgötn 3140 kr.; hús
Guðm. Guðmundssonar og Guðm. Þorlcifs-
sonar við Bergítaðastr. 5707 kr.; útihús
Gunnars Einarssonar kaupm. 2700 kr.; hús
EUerts Schram við Bræðrab.stíg 2885 kr.;
hús Guðjóns Jónssonar og Hildihrands Kol-
beinssonar á Hákotslóð 5490 kr.; geymslu-
skúr tilheyr. verzl. Godthaab 1251 lcr.; hús
Péturs Þorvarðssonar á Ilelgastöðum 1955
kr.; liús Guðjóns Gíslasonar Hverfisg. 2385
kr. — 16. Dregið út til innlansnar af Laug-
arnesskuldahréfum nr. 29.
Ýmislegt.
Amerisk eldsvoðastöð. Stöðin er
stör salur, opinn út á götuna. Inst
í salnum eru tvær hurðir, sem opn-
ast inn í salinn. Þessar hurðir loka
dyrum að tveim herbergjum, og er
sinn hesturinn í hverju þeirra, aktýj-
aður; að eins eru járnmélin tekin út
úr mmminum, en á einu augnabiiki
er hægt að stinga þeim upp í iiestinn
og krækja þeim í hring á höfuðieðrinu
á beizlinu; á milli þessara tveggja
herbergja er op á gaflinum á salnum;
þar er bjalla. í miðjum salnum stend-
ur sprautan á 4 hjólum, með sætum
handa slökkviliðinu, útbúin svo, að
tveir hestar geti gengið fyrir henni,
og með bjöllu, sem hringir, þegar
hún er á -ferðinni. Gufan er alt af
til taks. Gufuketinn er t.engdur með
pípu við annan ketil i kjallaranum,
og fær þaðan nægilegt sjóðandi vatn;
en það má með mjög lítilli fyrirhöfn
síita sambandið milli gufukatlanna.
Undir gufukatlinumáspi autunni stend-
ur feikna-stór spirituslampi, en hann
logar ekki. Tvær súlur, sín til hvorr-
ar hliðar við sprautuna, liggja frá
gólfi til lofts, en við hverja súlu er
ferhyrnt gat í loftið; þar uppi liggur
slökkviliðið sofandi í fötunum, og þar
er einnig bjalla. Á veggnum hangir
sigurverk með skífu, og sýnir vísir
ýmsa hluti bæjarins, þegar úrið er
sett i hreifingu. Stöðin er í málþráðar-
sambandi við þá hlut.a bæjarins, sem
sprautan á að starfa fyrir, þegar elds-
voða ber að höndum. Víða á götun-
um eru kassar með málþráðarvélum,
sem eru tengdir við stöðina með
járnþráðum. Pegar nú einhver þess-
ara þráða gefur merki til stöðvarinn-
ar, skiftir hann sér: einn þráður ligg-
ur að bjöllunni í opinu milli hestanna,
annar liggur að vélinni, sem aðgrein-
ir sambandspipuna' á milli gufukatl-
anna, þriðji að spiritusiampanum und-
ir gufukatlinum, fjórði að bjargliðs-
bjöllunni á loftinu og fimti þráðurinn
að úrinu á veggnum. — Komi eldur
upp einhverstaðar í bænum, opnar
einhver, sem fyrstur verður til þess,
einn kassa á götunum, þrístir á hnapp
sem þar er í, og á sama augnabliki
líður rafmagnsstraumur til stöðvar
þeirrar, sem málþráðavélin í kassan-
um er samhandi við. Á stöðinni
skiftir straumurinn sér eins og áður
er greint, og nú skeður þetta alt í
einu: Vísirinn á‘ úrskífunni sýnir,
hvar eldurinn er kviknaður, véiin, sem
skiftir pípunni milli guíukatlanna,
fer af stað, pípan skiftir sér rétt við
gólfið og báðir partar hennar lokast,
það kviknar á spírituslampanum, bjöll-
urnar hjá bjargliðinu og hestunum
hringja, hestarnir stökkva út og opna
hurðirnar sjálfir og fara á sinn stað
fyrir framan sprautuna, bjargliðið
rennirsérniðursúlurna, rsumirstökkva
upp í sætin á sprautunni, einn tekur
tauminn og annar beizlar hestana.
Hálfri mínútu eftir að málþráðarmerk-
ið var gefið, er sprautan komin á
fleygiferð eftir götunni og bjallan hring-
ir stöðugt, og gefur til kynna, að nú
sé liyggilegast. að víkja úr vegi.