Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 14.06.1902, Blaðsíða 1

Reykjavík - 14.06.1902, Blaðsíða 1
III. árgangur. 22.-tölublað. REYKJAVÍK FRÉTTABLAÐ — SKEMTIIBLAÐ Útgefandi og &byrg5arma9ur: Þorvarbub Þorvarbsson Laugardaginn 14. Júní 1902. Reykjavík fritt send með póstum, 1 kr. árg. ALT FÆST I THOMSENS BÚÐ. og dðavélar selur KRISTJÁN fORGRlMSSOM. Afgreiðsla blaðsins „Reykjavik11 húsi Jóns Sveinssonar trésmiðs. (Fyrir sunnan kirkjuna — & Kirkjutorgi). Biðjið ætíð um OTTO M0NSTEDS DANSKA SMJORLIKI, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin. I*F- Fæsthjákaupmönnum. Skóverzlun jyí. fi. Jíathicscn 5 BRÖTTUGÖTU 5 hefir alt af nægar birgðir af útlendum og innlendum skófatnaði. í Skóverzluninni (!) m 4 yiusturstræti 4 V Seru alt af nægar birgðir af út- j lendum og innlendum W W Skófatnaði. Ö Sú/urðsson& S. Gunnarsson. (|) Heimsendanna milli. Eftir Jón Ólafsson. Humbert-Crawford-málið. Það er alment, er vér lesum glæpa- sögur þær, er ímyndunarafl skáldanna skapar, lögregluspæjara-sögur og því um líkt, að þótt vór stundum verð- um að dást að hugvitinu, þá verður þó viðkvæðið oftast þetta: „Já, víst er það ævintýralegt, kynjalegt og „spennandi", en slíkt kemur ekki fyrir í lífinu! “ En svo kemur það fyrir endur og sinnum, að þeir við- burðir verða í lífinu, sem kynlegri eru og ótrúlegri en nokkurt hugsmíð skáldanna. Einn af þeim viðburðum er Hum- bert-Crawford-málið, enda hefir það vakið mikla athygli um allan heim. — Sagan er í stuttu máli á þessa leið: Fyrir 25 árum var sá maður ame- rískur á Ítalíu til heilsubótar sér, er Henry Robert Crowford hét. Heima á ættjörð sinni, í Bandaríkjunum, hafði hann kynst frakkneskum manni, er hét d’ Aurignac, og hafði þessi frakk- neski maður gert eitthvað mjög mik- ils vert fyrir Mr. Crawford, svo að hann þóttist eiga honum meira að þakka, en hann fengi full-launað. Nú er Mr. Crawford var suður á Ítalíu heilsulaus, var þar og stödd yngis- mær fraknesk, bróðurdóttir d’Aurig- nac’s, og hét Thórése d’ Aurignac. Hún annaðist inn sjúka mann og og hjúkraðí honum í veikindum hans. Crawford var maður vellauðugur, marg- milíónari. Sjúknaður hans dró hann loks til bana á Ítalíu, en áður en hann dó, arfleiddi hann ungfreyju d’ Aurignac að aleigu sinni, en það vóru 100 miliónir franka. Rétt á eftir giftist hún Frédéric Humbert, er verið hafði þingmaður fyrir Seine og var sonur Humbert’s, þess er var dóms- málaráðherra i ráðaneyti Freycinet’s 1882. En þá komu tveir nýir menn til sögunnar, Henry Crawford og Robert Crawford, bróðursynir milíónarans andaða. Þeir höfðu í höndum aðra erfðaskrá föðurbróður síns, og eftir henni áttu þeir að erfa aleigu hans, en greiða Thérése Aurignac, sem nú var orðin frú Humbert, 360,000 fr. árgjald meðan hún lifði. Báðar erfða- skrárnar vóru dagsettar sama daginn. En hvor var eldri? Hvorugir virtust geta sannað þetta. En svo sömdu Crawfordarnir við frú Humbert um arfinn, en svo varð mis- klíð út af samningunum og fór í mál. Mál þetta hefir staðið nú yfir 20 ár, farið oft fyrir alla rétti, verið frá vís- að, eða formsatriði ein orðið dæmd, og ýmsir unnið og tapað á víxl. Svo hafði samist um, að frú Humbert geymdi arfinn í járnskáp, er hún hafði heima í húsi sínu; arfurinn var all- ur í ríkísskuldabréfum og öðrum verð- bréfum. Ef hún opnaði skápinn, skyldi hún fyrirgera, öllum rótti sínum til fjárins. En vöxtunum virðist svo sem hún og Crawfordarnir hafi kom- ið sór saman um að skifta með sér meðan á málinu stæði. Báðir máls- aðilar höfðu fínustu málflutningsmenn landsins fyrir sig. Þau Humberts-hjón nútu góðs láns- trausts þar sem vitanlegt var, að þau áttu í máli um svo mikinn arf. Fengu þau víða lán hjá bönkum, bönkurum og einstökum mönnum, og það svo milíónum nam, auðvitað gegn býsna- háum vöxtum. Frúin hafði í hönd- um vottorð frá einum vel metnum löggildismanni (notarius publicus) um, að hann hefði séð vérðbréfin öll upp á 100 milíónir franka, og einum eða tveim lánardrotnum sínum hafði hún sýnt vaxta-klippinga upp á 2 milíóna ársvöxtu. Þau hjón bárust mikið á, keyptu hallir og aðrar fasteignir, gáfu stórfé til guðsþakka og stofnuðu ýms- ar líknar-stofnanir á sinn kostnað. — í París kom upp stórt lífsábyrgðar- félag, sem Humbert var forstjóri fyrir, en bróðir hans og bróðir frúarinnar vóru meðstjórnendur. Það var hluta- félag og fékk mikið að starfa. Fyrir nokkrum árum fór að verða tregða á skilvisi þeirra hjóna. Bank- ari einn, er Girard hét og átt hjá þeim 2-3 milíónir, gat ekki fengið skil hjá þeim, og sá hann fram á, að það mundi baka sér gjaldþrot. Tók hann sér það svo nærri, að hann réð sér hana. Waldeck-Rousseau, sem nú er forsætisráðherra Frakklands, flutti þá skuldamálið á hönd þeim fyrir hönd þrotabúsins, og sagði svo fyrir rétti, að hann áliti erfðamálið

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.