Reykjavík - 08.01.1903, Page 1
Útgefandi: hlutafélagib „Reykjavík“
Ábyrgðarmaður: Jón Ólafsson.
Gjaldkerí og afgreiðslumaður:
Ben. S. Þórarinsson.
FRÉTTABLAÐ — VERZLUNARBLAÐ — SÍEMTIBLAf) — AUGLÝSING ABLAÐ.
Árg. (60 tbl. minst) kostar með burðar-
eyri 1 kr. (erlendis 1 kr. 50 au. — 2
50 cts). Afgreiðsla:
sh.
Laugavegi 7.
IV. árgangur.
Fímtudaginn 8. Janúar 1903.
2. tölublað.
ALT FÆST I THOMSENS MAGASÍN.
0/na og elðavélar
selur KRISTJÁN RORGRlMSSON.
Stúkan Ji/röst nr. 43
heldur fundi á hverjum Föstudegi, kl.
8 síðd. Munið að mæta.
BiÖjið ætið um
OTTO M0NSTEDS
DANSKA SMJÖRLÍKI, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott
eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr
til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin.
3W Fæst hjá kaupmönnum.
LandabAkasafnið er opið daglega kl. 12—2 og til
3 4 M nud., Miðv.d. og Laugard., til útlána.
LandsBkjalasafnið opið ií d., Fiintud., Ld., kl. 12—1.
Nittúrugripasafi ið er opið á Sunnud., kl. 2—3 ríðd.
Forngripasafnið er opið á Miðv.d. og Ld. kl. 11—12.
Lands anki.in op. dagl. kl. n—2. B.stjórn ■ ið 12- 1.
Sofnunarsjftðurinn opinn 1. Máuud. í mánuði, kl. 5—6.
Landshöfðingjaskrifstofan opin 9—10,30,11,30—2, <—7.
A.utmannsskrifstofan opin dagl. kl. lo—2, 1—7.
Biejarfftgetaskrifstofan opin dagl. kl. 9—2, 4-7.
Föststofan opin 9—2, 4—7, Aðgangur að boxkössum9-9
B-jackasiar œmdir rúmh.d ga 7,30 árd., 4stðd., en
á Sunnud. 7,30 árd. að eins.
Afgreiðsla gufuskipafélagsins 8—12, 1—9.
Bæjaretjórnarfnndir 1. og 3. Fimtudag hvers mánaðar.
Fataskranefndarfundir 2. og 4. Fimtudag hvers mán.
Héraðslæknirinn er að hitta heima dagl. 2-3.
Tannlækn. lieima 11-2. Frilækn. 1. og 3. Mád. í mán.
rílækning á spítalanum Priðjud. : g Föstud. 11—1.
Heimsendanna milli.
Chieaco-háskðlanuin hefir John
Rockfeller gefið enn einu sinni 1 mil-
íón dollara núna fyrir hátíðirnar.
(Það eru nú sjálfsagt orðnar yfir 40
miiíónir króna, sem sá ma'ður er bú-
inn að gefa þeim háskóla, má ég
fullyrða).
Ákafur kuldi var í Austurríki
ura miðjan f. m. einkum í Ga.Iizíu.
Þann 16. var í Vínarborg 15 stiga
(C.) frost. Nálægt Arad fundust 18
„/igeunar“ helfrosnir úfí í skógi. í
Nagý Szalnota var kuldinn h- 15 st.
Cels. Þar 1 grendinni varð mikiii
ólfa-gangur, rifu úlfarnir í sig 18 ára
pilt og átu hann.
Landskjálftar allmiklir gengu í
landeignum Rúsa í Mið-Asíu að morgni
f- m. í bænum Audijan Ferghana
hrundu flestöll (16000) hús, svo að
fólkið stendur allsiaust uppi. 2500
rnanna fórst. Sumstaðar skemdust
járnbrautir og víða urðu aðrar
skemdir. Landskjálfta-aidan gekk frá
borðaustri til s. v.
1 ltúslandi var aðstoðar-fjármála-
ráðgjafa Kovalevski vikið frá embætti
f. m. Tilefnið var, að á gang
komust manna á meðal víxlar upp
á hann, er samtals námu 200,000
rubhim. Nafn hans var þó falsað af
leikkonu, sem hann hélt við, og neit-
aði hann að borga þá. Fjármálaráð-
gjafinn komst að þessu og sagði
keisaranum frá öllu saman.
Svarti-dauöi. 17. f. m. kom eim-
skip frá Durban (í Natal í Suður-
Afríku) til New York, og var þá bryt-
inn og tveir matreiðslumenn sjúkir
af „pestinni" (svarta-dauða). Skipið
með skipshöfn og farþegum þegar
einangrað í sóttgæzlú.
Ilankasvlk. Hr. Nesler, gjaldkeri
í Uank fvr Handél und Jndustrie í
Berlín, hefir stolið 700,000 mörkum
frá bankanam. Sjálfur er hann horf-
inn. Bankinn hefir upp í tjón sitt
100,000 marka ábyrgð þá er N. hafði
sett.
Portiígals-konungur, sem ferð-
aðist tii Englands, er nú kominn heim
aftur.
Símalaus firftritun. 21. f. m.
var fyrsta loftritskeyti sent frá megin-
landi til meginlands miili Ameríku
og Evrópu, frá Cape Breton í Nova
Scotia, Canada, til Cornwall á Eng-
landi. Skeytið var frá Minto lávarði,
landstjóra í Canada, til Játvarðar
Breta-konungs. Marconi sendi jafn-
framt loftskeyti til ítala-konungs og
ýmsra blaða á Ítalíu, og sendu allir
viðtakendur honum aftur þökk og
heilla-óskir. Að tveim mánuðum liðn-
um (í Febrúar-lok) á að byrja að
taka við skeytum frá hverjum, sem
vill, á þennan hátt.
Þar er þá loksins uppfundning Mar-
conis að verða raunhæf (praktisk),
og er það vonum fyrr í raun róttri.
En það er fullyrt nú, að ekki muni
orðsendingar yfir Atlantshaf með
þessu móti verða eins ódýrar, og í
fyrstu var við búist. Þó er sá samn-
ingur miili Marconis og Canada-stjórn-
ar, að milli Canada og Engiands má
hann ekki taka nema 8 71 /2 eyri (5 d.)
fyrir orðið. Fyrir loftskeyti til frétta-
blaða tekur Marconi halfa borgun
(183/4 ey.) fyrir orðið. Sæsíma-félög-
in taka 90 au. fyrir orðið af almenn-
ingi, en 45 au. af fréttablöðum.
Loftskeyti Marconis í þetta sinn
voru hvert um sig að meðaltali 25
orð. Þakkirnar frá konungunum og
blöðunum vóru sendar vestur um
hafið sama dag á sama hátt. Nú
esm stendur getur Marconi sent 30
orð á mínútunni, en væntir að geta
brátt aukið hraðann.
Á Þorláksmessu sendi „Westminst-
er Gazette “ í Lundúnum mann til
forstjóra Marconi-félagsins í Lundún-
um, Mr. Cuthbert Hall (Marconi sjálf-
ur er nú í Canada), og spurði hann,
hvenær félagið byrjaði að taka orð-
sendingar til flutnings af almenningi.
Mr. Hall svaraði, að enn yrði að
líða nokkrar vikur, ef til vill 2 mán-
uðir. Þá var hann spurður, hve
hratt félagið gæti nú sent skeyti.
Hann svaraði, að þeir hefðu stundum
sent 25 — 30 orð á mínútu, en hrað-
inn væri enn ekki að meðaltali meira
en 15 orð; með nýju viðtöku-tóli,
sem þeir væru nú að reyna, næðu
þeir þó 55 orðum á mínútu. En það
væri nú auðgert að tvöfalda, þrefalda
eða fjórfalda afl sendi-tólanna, og við
það tvöfaldaðist til fjórfaldaðist hrað-
inn. [Sæsímarnir geta nú sent hátt
á annað þúsund orð á mínútu]. „Yið
höfum,“ sagði Mr. Hall, „gert all-
marga og mjög stóra samnigna um
að senda mörg skeyti samtímis frá
sömu sendinál til sömu viðtökunálar,
en frá mismunandi sendi-frumtólum
til mismuuandi viðtöku-frumtóla. Og
þar sem við ieggjum stórfó að veði
við hvern samning, ætti þetta að
vera næg sönnun þess, að okkur hefir
fyllilega tekist að „samtóna“ frum-
tólin á sendistöð og viðtökustöð,
hvað sem keppinantar vorir segja."
— Þá var hann spurður að, hvort
þrumuveður og aðrir loftviðburðir
mundu eigi hindra skeyta-sendingar.
Hann svaraði því, að félaglð hefði í
samningum, sem þessa daga hefðu
gerðir verið, skuldbundið sig til að
senda skeyti, hvernig sem viðraði;
— „að því leyti stöndum vér betur
að vígi, en sæsímarnir milli staða í
hitabeltinu. “ Hraðinn játaði hann
að væri það eina, sem loftritafélagið
gæti enn ekki jafnast við sæsíma-
félögin í. „Næsti merkisviðburður,
sem félagið er við riðið, er samning-
ur, sem nú er á döfinni við eina út-
lenda stjórn um loftskeyti miili tveggja
landa, sem eru ærið fjarlæg hvort
öðru,“ mælti hann. — Er það samn-
ingurinn við Danastjórn urn ioftrit-
un mill íslands og útlanda, sem hann
á hér við ? Það virðist ekki ólíklegt.
Yenezugla. Um miðjan f. m.
dró þar til tíðinda. Ríkissjóður Yen-
ezuéla hefir lengi skuldað auðmönu-
um ýmsra þjóða fó, en staðið ekki
í skilum. Þjóðverja stjórn vildi vernda
rétt þeirra þýzkra manna, er skuld-
ir áttu hjá Venezuela, og heimtar af
stjórniimi skil full. Jafnframt þótt-
ust ýmsir brezkir þegnar og þýzkir
eiga kröfur á hendur þjóðveldi þessu
fyrir það, að stjórnin hefði sökt nokk-
rum verzlunarskipum enskum og
þýzkum, en gert sum upptæk. Þetta
þóttist brezka stjórnin eigi mega þola,
en verða að vernda rétt þegna sinna;
fengu Þjóðverjar því Breta í lið með
sér, að gera kröfur gegn Venezuéla,
en hóta hörðu, ef eigi kæmu góð svör
og gegn. Castro, forseti Venezuéla-þjóð-
veldis, átti í vök að verjast, því að
jafnframt var uppreist þar í landi
gegn honum. Hann vildi þó eigi
verða við kröfuin Breta og Þjóðverja.
Þeir tóku þá herskip Venezuela öll
(4 að töiu ?), og kváðust varðkvía land-
ið sjávar megin og banna allar skipa-
ferðir, en ékki fara með ófrið á hend-
ur ríkinu frekara að sinni. ILuida-
ríkjum N.-Ameríku skýrðu Bretar og
Þjóðv. frá, að þeir hygðu á engar
landvinningar og ætluðu sér að eins
að neyða Vénezuéla til að standa í
skilum. Bandaríkjastjórn tók því lið-
lega og kvaðst ekki mundu til hlut-
ast að sinni, en eigi kváðust þeir
þola að Bandaríkja-skipum yrði lengi
meinað að reka verzlun í friði við
Venezuela, nema fullum ófriði yrði
lýst; varðkvíun án ófriðar gæti ekki
átt sér stað nema örstutta stund.
Castro forseti bauð nú að leggja mál-
ið í gerð, en Bretar og Þjóðverjar
svöruðu ekki því boði fyrri en Banda-
ríkja-stjórn herti á þeim að segja af
eða á um þáð boð; hvatti Roosevelt
forseti þá til að leggja máiið fyrir
gerðardóminn í Haag. Bretar er mælt
að vildi þýðast það, en Þjóðverjar
.eigi; varð því úr að Bretar og Þjóð-
verjar buðu að láta Rooseveli forseta
gera einan um málið, og það vildu
Venezuálamenn og. Eigi var frétt,
hvort Roosevelt tæki að sér gerðina,
er síðustu blöð, er bárust oss, komu
út (23. f. m.), en talið víst að svo
muni verða.
Á Bretlandi mælist heldur iB.a fyrir
því, að Bretastjórn tók þátt í þessari
aðför gegn Venezuéla, og það jafnvel
meðal sumra blaða, er stjórninni fyigja
annars. Þau segja það ekkert ófriðar-
efni, þótt ríki geti eigi staðið í skulda-
skilum; það verði að fara sem um
einstaka menn. Lánardrottnar verði
að sjá um sig sjálfir ; en refsingin
fyrir óskilvís ríki verði söm sem fyrir
einstaklinga, missir alls lánstrausts.
En hvað snerti bætur fyrir skip, er
upptæk hafi ger verið eða skotið á,
þá hefði átt að rannsaka fyrst, betur
en gert hefir verið, hvort þau skip
hafi ekki verið að brjóta landslög
með tollsvikum. En kunnugir teija
Venezuéla hafa verið í sínum fulla
rétti með skip þessi. Breta-stjórn og
Þjóðverja vilja þó gera það að skil-
yrði fyrir gerðinni, að Venezuéla
viðurkenni fyrir fram róttmæti kraf-
anna i sjálfu sér, cn upphæðin ein
og greiðslu-háttur verði gerðarefni.
En um grundvöll gerðarinnar var
ekki fullsamið. — Þegar Bretar og
Þjóðverjar lýstu varðkvíun á höfnum
Venezuéla, komu ítalir fram með
kröfur, er þeir þóttust hafa, ogtalað
um, að Belgar muni líka þykjast hafa
fjárheimtur.
Venezuela er sambands-þjóðveldi í
Suður-Ameríku, og eru það 20 JÍki
með landstjórum og löggjafarþingum
í sérmálum, sem mynda þjóðveldið
Venezuela. Forseti (nú: Castro) er
kosinn til 2 ára; 19 manna stjórn,
er banda-þingið kýs, velur forseta.
Landsbúar eru yfir 2l/2 milíón. Her-
a
Maðurinn lifir ekki eingöngu
brauði - hann þarf smjör eða
smjörlíki við því.
Maðurinn lifir ekki eingöngu
á kjöti eða fiski - iuinn þarf einn=
ig kálmeti og kartöfiur.
Maðurinn lifir ekki á fairrum
mat eingðngu — hann þarf að fá
vökvun með.
Enginn
of vel mettur —
utiin fylgi tóbaksréttur.
Maðunnn lifir ekki alt af uná~
ir beru lofti - hann þarf að
byggja hús yfir sig.
Maðurinn lifir ekki nakinn —
hann þarf að klœða sig.
Maðurinn lifir ekki eingöngu
við sólarhita og sólarbirtu um
petta leyti árs - hann þarj
einnig kol, lamþa og steinolíu.
Úr öllurn þesswn og öðrum
þörfum bcetir
THOMSENS MAGASÍN.
Leikfélag Reykjavíkur.
Á Sunnud. kemur verður leikið:
ijneykslii).
Sjónleikur í fjórum þáttum,
eftir Otto Benzon.
Timbur
selur
]. p. Bjarnesen
í þ. II). við mjög lágu verði.
selur:
]. ?. Bjarnesen
Kaffi, Kandís,
Melís heilan
- höggvinn
Púðursykur
Rúsínur,
Sveskjur,
Sago,
Haframjöl ágaTt,
Taublákka,
Pussepomade,
Skósverta
Kartöflur ágætar á 0,04 u
Ost fl. sortir J
Pylsur fl-, sortir *
Brauð fl. tegundir 3
Epli ágæt
Vindlar fl. tegundir
Reyktóbak fl. tegundir
Skraa fl. tegundir
og margt fl.
Lóðaröngla ágæta.
eins ntikið úrval.