Reykjavík - 09.07.1903, Síða 3
3
Kaupio Schweizer-silki!
— Áreiðanlega lialdgott. —
Biðjið nm sýnis'horn af vorum nýju vörumí svörtum,hvitum eða öðruvísilitum pjerðum.
Sérleg fyrirtök: munstrað SiBki-FouSard, fivssiki, hrá-silki og
vaska-silki í alklæðnaði og treyjur, frá 90 au. og yfir pr. meter.
Vér seljum til Islands miiiiiiðsiansl, privaí-ííjönnum og sondum
silkin, sem þeir velja sér, SoSSfríta og burðargjaSdsfrítt heim til þeirra.
Schweizer & Co., Luzern (Schweiz).
Silkivarnings-útfly tj endur.
Lárus H. Bjarnason, Hermann Jón-
asson, Eggert Pálsson, Hannes Haf-
stein, Ólafur Thoriacius, Tryggvi
Gunnarsson, Jóhannes Ólafsson og
Hannes Þorsteinsson.
ÞingmannafrumTðrp. 1. Um
skyldu embættismanna til að safna
sér ellistyrk eða kaupa sér geymdan
lífeyri. Sama sem lá fyrir síðasta
þingi. Flutningsmaður: Guðjón Guð-
laugsson.
2. Um ráðherra-áhyrgð. Flut-
ningsmenn: Guðlaugur Guðmundsson
og Skúli Thoroddsen.
3. Um bæjarstjórn í Hafnárfirði.
Flutningsmenn: Valtýr Guðmundsson
og J. Havsteen.
4. Urn að skifta Kjósar- og Gull-
bringusýslu í tvö sýslufélög. Flutn-
ingsmenn: Björn Kristjánsson og
Þórhallur Bjarnarson.
5. Um viðauka við lög 9. Jan.
1880 um breyting á tilskipun um
sveitarstjórn á íslandi 4. Maí 1872.
Flutningsm.: Björn Kristjánsson og
Jóhannes Ólafsson.
6. Um aðflutningsgjald af smjör-
líki. Flutningsmaður: Eggert Páls-
son.
7. Urn heimild handa sýslunefnd-
um og hreppsnefndum til að hækka
vegagjald: Flutniugsmenn: Ólafur
Ólafsson og Hannes Þorsteinsson.
8. Um áfangastaði, beimildarlög
fyrir þeim. Sömu flutningsmenn.
9 — 11. Um iöggilding verzlunar-
staða að Óspakseyri i Bitru, Staðar-
felli í Hvammsfirði og við Gerðaleir
í Gullbrlngusýslu. Flutningsmenn
jþingmenn þeirra kjördæma.
12. Um að skifta Barðastrandar-
læknishéraði í tvö læknishénið. Flm.:
Sigurður Jensson.
„Færosk Politik“
heitir hók, sem Joanes Paturson,
ríkisþingsmaður Færeyinga, hefir ný-
lega gefið út. Hún er mjög fróðleg
og skemtileg einnig fyrir oss íslend-
inga, enda er þar á ýmislegt vikið
úr stjórnarfarssögunni, er voru landi
kemur við eða sögu. þess. Auk þess
er mjög hugðnæmt að sjá þá pólitísku
framfaraviðleitni og heimastjórnar-
liug, sem nú er að vakna hjá þess-
um nákomnu frændum vorum, og er
ástæða til að fylgja þessari viðleitni
þeirra með bróðurlegum meðhug.
Hr. Paturson stendur að einróma
dómi allra þeirra, sem honum liafa
kynst, fremstur allra landa sinna, og
virðist vera sjálfsagður merkisberi
þeirra á braut framfara og frelsis.
Bókin fæst hjá bóksölunum Jóni
Ólafssyni og Sigf. Eymundssyni og
kostar 1 kr. 75 au.
HeÍTnsendanna milli.
Bantlaríkiu. Þar hefir komið
fyrir stórt hneykslis-mál. Maður er
nefndur Seymour W. Tulloch og var
áður gjaldkeri í pósthúsinu í Wash-
ington, D. C. Hann ritaði í Maí-
lok póstmálaráðherra Bandaríkjanna
bréf og bar í því þungar sakir á
marga embættisménn, og það meðal
inna æðri, í aðalpóststjórninni; kvað
frændum og vinum þeirra veittar
launaðar stöður í póststjórninni án
þess að þeir kæmu nokkru sinni og
ynni nokkurt verk; stórfó væri stolið
úr alríkissjóði á þennan hátt. En svo
væri og ýmsir hátt standandi em-
bættismenn, er þægju mútur í stór-
um stýl af mönnum, er viðskifti
ættu við póststjómina; yfir höfuð
væri ekkert viðunanlegt eftirlit með
fjárgreiðslum og fjáreyðslu í póst-
stjórninni, embættismenn ávísuðu
sjálfum sér fé eftirlitslaust, og væri
því hverjum manni auðgert að stela
ettir vild.
Póstmálaráðherran sinti þessu ekki
fyrst; en þá birti Tulloch hréfið í
blöðunum. Eáðherrann kvað þettaþó
enn „vindeinn“, er ekkert mark væri
á takandi. En blöð allra flokka um
alt landið tóku nú í Strenginn, sögðu
að hör væri beint sakargiftum á liend-
ur nafngreindum mönnum, einkan-
lega Mr. Heath, æðsta embættismanni
í póststjórninni næst sjálfum ráðgjaf-
anum, og Mr. Machen, forstjóra land-
póstferða og bréfburðar deildarinnar.
Hétu blöðin á Roosevelt forseta, er
þá var á ferðalagi, að taka í taum-
ana. Það gerði hann og- rösklega
og hauð að hefja stranga rannsókn.
Sást þá hrátt, að hér var flest satt
hermt hjá Tulloch og að póstmála-
skrifstofurnar vóru svo að segja eitt
stórt þjófabæli.
Sjö eða átta af æðri embættis-
mönnum póststjórnarinnar, þar á
meðal Machen, hafa verið teknir
fastir. Ein einasta múta, sem Mach-
en fékk hjá tveim bræðrum, nam
$ 22,000.
Yínsölubanns-stefnan í Banda-
ríkjunum hefir beðið hvern stórhnekk-
inn á fætur öðrum upp á síðkastið í
Bandaríkjunum. Ekki færri en þrjú
ríki, er áður höfðu vínsölubanns-lög,
hafa nú numið þau úr gildi, og þar
á meðal Maine, er lengsta hefir haft
reynsluna. Há leyfisgjöld hafa víð-
ast verið lögleidd í staðinn. Orsök-
in talin sú, að reynslan hafi sýnt,
að bannlögunum fylgdi verri drykkju-
skapur og meiri siðspilling heldur en
hágjaldslögum.
1Re\>fcja\nft oo orcnb.
Eolaskip stórt kom til kaupm.
W. Ó. Breiðfjörðs í gær. — S. d. stórt
timburskip til Godthaabs-verzl.
Bókinentafélagið hélt ársfund
sinn 8. þ. m. Stjórnin var endur-
kosinn og varamenn sömuleiðis. í
Tímarits-stjórnarnefnd (ásamt forseta)
vóru kosnir: Guðm. Björnsson læknir,
Jón Ólafsson bólcsali, Helgi Pétursson
cd. mag. og Guðm. Finnbogason cd.
mag. — Eftir all-langar umræður um
Tímaritið, um Skírni og um fyrir-
komul. félagsins var loks samþykt
tillaga um, að kosin skyldi 3 manna
nefnd til þess í samvinnu við stjórn-
ina að íhuga útgáfu-fyrirkomulag
tímaritsins og hvað tiltækilegast sé
að gera til að efla og útbreiða félagið,
og koma fram með tillögur sínar í
því efni fyrir næsta ársfund. í þá
nefnd hlutu kosningu: Guðm. Björns-
son, Guðm. Finnbogason og Þorst.
Erlingsson (eftir hlutkésti milli hans
og Jóns Ólafssonar, er hafði jafn-
mörg atkvæði).
Útskála-prestakall. Af úmsæk-
jendum um það eru þessir þrír á
kjörskrá settir: sóra Einar Þórðarson,
séra Kristinn Daníelsson, séra Ólafur
Finnson.
Yefndin í n. d. í stjórnarskrámál-
inu lagði nefndarálit sitt fram í gær.
Ræður einhuga til að samþykkja frum-
varpið óbreytt.
m fáum vór í ár lög um heimul-
legar kosningar til alþingis. Hug-
kvæmist engum þingmanni að bera
upp áþekt frumvarp um heimullegar
kosningar í hreppum og bæjum?
___________ •
JSSjP-" Ábm. „Itcykjavíkur44 á
heima í Aðalstr. 11 — oftast heima
kl. 3 —4 og eftir kl. 7 síðd. En ann-
ars venjul. að hitta á skrásetningar-
stofu Landsbókasafnsins (i Alþ.hús.).
ifar* j. í9aturson: fœrosk Polilik
fœst á kr. 1,75 í bókverzl. Jóns Olapssonar.
Nýjar birgðir af pappír og ritföngum
fæ ég með „Laura“ í næstu viku.
Jón ÓSafsson.
LEJKFÉLflG REYKJAVÍKUR.
Á Laugarúagskviildið kemur vcrður
leikið í |,lðnósc
Skipið sekknr,
lcikurí4 þáttum oftir Indr. Einarsson.
f leiknum eru sungm tvö ný sönglög,
eftir séra Bjarna Þorstsinsson.
Yerzlun Ben. S. Þórarinssonar
selur Zinkhvítu á 25 au. pd. og
pottinn af fernis á 70 au., þegar
mikið er tekið í eínu.
Skemtiferö
Sunnudaginn 12. Júlí fara Good-
Templarar i Reykjavík skemtiferð inn
í Hvalfjörð á gufubátnum „Reykjavík“,
ef veður leyfir. Verði fært veður, verður
kontórflaggið uppi á stöng Bj. Guðm.
Lagt verður á stað kl. 8^/a árdegis,
og verða allir að vera viðbúnir að
stíga á skipsfjöl eigi síðar en kl. 8.
Aðgöngumiðar á 1 kr. fást í afgreiðslu
Ísafolílar, hjá verzlunarmanni Sig-
urði Gíuðmundssyni, Jóni Árna-
syni prentara, Pétri Jónssyni blikk-
smið og Gruðm. Guðmundssyni
bakara (Félagshakaríinu). Engir aðrir
en Good-Temlarar verða í förinni.
Agæt hörpuð SSD ysart11 ofnkol
og „kóks“ fæst nú þegar hjá Breiðfjörð.
Kánara þar um í sölubúð hans.
EG undirskr. lærð yfirsetukona býð
hér með konum að leita mín ef
á liggur. Guðbjörg Sigurðardóttir,
Hverfisgöfu 39.
Jiorskmmið |atae|ni
er til sölu fyrir gott verð eftir gæðum
í búð [—35.
Sigfúsar Eymundssonar.
Tóvinnuverksmiðjan jAalgaard*
er sú langbezta, sem enn er þekt.
Um boðsmaður
Jen. S. pórarlnsson.
Hvergi ódýrari nje vandaðri viðgerð
á úrnm og klukkum en á Lauga-
vegi 23.
A11 i r, sem drekka gott danskt
brennivín, kaupa það í verzlun
Sen. S. þórarinssDnar.
Brönduma kornbrenniwín er að eins
að fá í verzlun Ben. S. Þórarinssonar.
S^eir fleygja peningunum í sjóinn,
þeir sem verja þeim til að auglýsa
Reykvíkingum nokkuð annarstaðar
en í „Reykjavík," því að hún hefir
þar meiri útbreiðslu en öll önnur
blöð til samans — kemur á h v e r t
h e i in i 1 i.
Útbreiddasta blaðið hér í nær-
| sýslunum, og útbreiddust á ís-
landi yfir höfuð.