Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 03.09.1903, Blaðsíða 3

Reykjavík - 03.09.1903, Blaðsíða 3
3 ŒíTrabítfttr. Bónorftið. Mel.: Marschners brúðarmarch f „Hans Heíli»g.tt Siggi Fífill: Litla Sigga, lambið mitt L Lát mig heyra svarið þitt. Viltu nú verða frú? í vor ég ætla’ að reisa hú. Konu verð þó fyrst að fá fallega, sem lízt mér á, fáar hér finnast mér fullkomnar, og ]>ví er ver. Hún á að vera hæg og stilt, hugsa’ ekki’ um neinn annan pilt, • læs á prent; lærdóms ment lýðháskóla-frú er hent. Helzt vil ég að hún sé frið, hjartanleg og viðmóte-blíð, nokkuð há handasmá, hárið jarpt, en augtsn blá, að hún kunni að klastra’ í sokk, kemha uU og stíga rokk, rösk að slá, raka ]já, rista ttorf og garða sá, þekki, hvernig bætt sé bót, bylt úr hlassi’ og klofið grjót; syngi hátt, hlæi dátt., heímilið svo verði kátt. Hún á að ganga’ á hvítum kjól, hvíla sig í ruggustól, vera frá fætí á flm sem önnur lipurtá, ókeypis frá Ymbu Brands útskrifuð í söng og dans, hoppa á hæli’ og tá, hringsnúast og taktinn slá. — Mór hefir sýnst að mundir þú makleg þess að verða frú; viltu ei, yngismey, að við tökum saman. — Sigya Fjóla: Nei! Ég vil vera frí og frjáls, fyr legg ég mér snöru’ um háls en ég þann eigi mann, aldrei sem ég virða kann. Búforkur ég ekki er, óska helzt að leika mér; hugsa’ um bú, hreyta kú hirðir engin kona nú; hún á að ganga út og inn, ekkert hugsa’ um manninn sinn. Nei, nei, nei! Svei, svei, svei! Siggi fífl! Ég vil þig ei! Flausor. HeÍTnsendanna milU. Cliioago, 111., 3. Ágúst. Um 20. f. m. fengum við Chicago-búar þann versta haglstorm, sem hór hefir kom- ið aila þá tíð, sem ég hefi verið hér (9 ár) og likl. miklu lengur. Höglin vóru á stærð við hænu-egg og féllu yfir alla borgina; verst þó á „norðurhlið- inni“ og „norðvesturhliðinni", því að i þeim hluta borgarinnar var tæplega nokkurt hús, sem ekki brotnuðu gluggar i. í sumum verksmiðjum og stórhýsum vóru þetta 80 — 100 gluggar brotnir1). Yfir 200,000 kr. virði af rúðugleri brotnaði. Eitthvað 0 klukkustundum eftir storminn, sem ekki stóð nema 10 mínútur, var rúðugler hér í bænum stigið í verði um 200°/(> (komið í þrefalt verð). Gler þraut fljótt í bænum og urðu sumir að bíða 4—5 daga áður en þeir fengi rúður settar í aftur. í húsinu, sem ég bý í, brotnuðu ekki nema þrír gluggar, en í næsta húsi 6. Þegar stóru, þykku rúðurnar vóru brotnaðar, undu sumir niður kefla- tjöldin fyrir gluggunum, til að varna haglinu inn og regninu; en liöglin komu inn um gluggatjöldin, og eins inn í gegn um vírnet (flugnanet), rétt eins og steinar gegn um gler- rúður. Hestar úti urðu óviðráðanlegir og fældust og urðu mörg slys af. Fá- einir menn stórmeiddust af haglinu. í lystigörðunum urðu trén ‘nakin, sum mistu greinarnar og nokkur reif stormurinn upp með rótum. Eftir storminn sáust fuglar hér og hvar urn jörðina steindauðir — rotaðir af haglinu. í>að vóru mikil verksum- merki eftir svo stutta stund. — Und- ir eins og élinu létti, fór fólk víða út á stræti með skóflur og mokaði upp haglinu, fylti með því ískassa sína og sparaði sér þannig ískaup nærri lnúla viku. Joannos Patursson er kosinn aftur þjóðþingismaður Færeyinga. — Hann er einnig þingmaður á lögþingi Færeyinga, svo að hann situráþingi bæði sumar og vetur. Ekkjufrú Sigríður Zimsen, ekkja Edv. Zimsen fyrrum kaupm. hér í bæ, andaðist fyrir skömmu í Slesvík á Þýzkalandi. Eftiriifandi börn hennar hér eru amtmannsfrú Karólína Jónassen, ekkju- frú Kristin Guðmundssen, og fyrv. sýslu- maður Eranz Zimsen. Frú Sigríður var kominn yfir áttrætt. 1) Af þvi að hús standa þétt, hefir haglið víða að eins náð til efstu glugg- anna, hinir í skjóli af næsta húsi, og að eins á veðurhliðinni. ‘Lartdshoraanna milli. Seyftlsfjarftar-fréttir. — 14. Ág. Túlin votviðrasöm þessa viku sem að undanförnu, oftast þokur og rign- ingar. Taða liggur enn á túnum bæði í Héraði og Fjörðum og farin að skemmast. Grasvöxtur í meðal lagi. — 21. s. m.: Yeðráttan enn stirð. Þó var fyrri part vikunnar þurkur, er kom víða að gagni. Ann- ars stöðug norðanátt og norðaustan með kuldum og úrfelli. — 14. Agúst. Aflabrögö. Fiskveiðar á báta þessa viku fremur tregar. Rekneitaveiðarn- ar ganga vel; í gær komu inn þrjú af síldveiðarskipunum: Yikingur með um 70 tn., Sprut með um 170, og Elín með á 3. hundrað (alt, sem 1 hana komst) eftir eina nótt að. eins. — 21. Ag.: Fiskafli góður, er á sjó gefur. Sild veiðist mikil í reknet hér úti fyrir, en gefur sig síður í lagnet hér í firðinum, líkl. meðfram sakir rosans í veðrinu. („Bjarki“). Ycstur-Skaftafellssj'slu (úr brófl úr Álítaveri 20. f. m.): Tíðin þurka- söm, graxvöxtur í meðallagi, nýting ágæt. IRepkjavífc oö örenð. t Jónas Hclgason prganisti varð bráðkvaddur í fyrri nótt, einni fjórð eftir miðnætti. Hann var 65 ára gamall. Jónas gerði á sinni tíð mikið til að efla söngmentun í land- inu, bæði með bókum, sem hann gaf út, með kensiu og með því að beitast fyrir söngfélagsskap. Hann var gæddur mikilli náttúrugáfu og var óþreytandi eljumaður, en skorti mentun, smekk og andríki. Skipaferftir. „Kong Inge“ og „Laura“ fóru bæði til útlanda 29. f. m., en „Ceres“ 27. „Laura“ fór norður um land og með henni marg- ir alþingismenn og aðrir; bankastj. Tr. Gunnarsson fór með henni til Hafnar. Með „Ceres“ fór m. a. séra Friðrik Hallgrímsson með konu sinni, 2 börnum og tengdamóður alfara til Manitoba í Canada. Til Hafnar fór Dr. Valtýr Guðmundsson, Bogi Mel- steð, Ásgeir kaupm. Ásgeirsson, séra Magnús Magnússon o. fl. Með „Kong Inge“ margir stúdentar o. fl. „Hólar“ komu 31. f. m. og með þeim talsvert af farþegum. Húnaftar])ii]gift hefir setið á rök- stólum hér síðan alþingi lauk. Því var slitið í gær. Nýtrúlofuft eru Gísli Sveinsson, stúdent (frá Ásum), og ungfrú Guð- laug O. Y. Guðlaugsdóttir, sýslum. frá Kirkjubæjarklaustri; — Guðmund- ur Ólafsson, stúdent (frá Arnarbæli), og ungfrú Anna S. Guðjohnsen (Ein- arsdóttir frá Yopnafirði). Smávægis. Yel svaraft. Piltur ofan úr Hér- aði var í kaupstað á Seyðisfirði; hann hitti þar fyrir kaupstaðardreng, sem ætlaði að slá sig til riddara á sveitastráknum og spyr hann því heldur hreykinn: „Hvar átt þú heima?“ „Ég er frá Breiðavaði." „Breiðavaði? — Er það ekki næsti bær við Helvíti?" „Nei — Seyðisfjörður er á milli. “ (Eftir „Bjarka1'). S T A N D A R D-líftryggingarfél. Aðalumboðsm. á íslandi JÓN ÓLAFSSON, bóksali. Auðugasta, áreiðanlegasta, viðskiftaþægasta líftryggingar-félag, sem starfarhér á landi. Ekkert áreiðanlegt félag gefur betri kjör. 1 þessu félagi hafa menn eins og Jón Magnússon landritari, Halldór Jóns- son bankagjaldkeri, Magn. Einarsson dýralæknir, Júl. Jörgensen gestgjafir Guðni Eyjóifsson póstassistent, o. fl.’o. fl. trygt lif sitt Áreiðanleglegir menn út um land, sem vilja taka að sér UMBOÐ fyrir fél., geta sótt um það til aðalskrifstofunnar f Reykjavík. Á LAUFiÁSVEGl 4 fást eingöngu danskir rammalistar af beztu sort, Spegilgler, Rúðugler, Yeggjamyndir. Likkistumyndir. Enn fremur smíðaðar M0bler, Speglar og Líkkistur úr vönduðu efni, o. fl., o. fl. €yv. /rnason Nú! Nú! Nú! Núbyrjarín. bl. siutt, en ákaflega- spennandi saga. Nú er timinn til að gerast nýr áskrifandi að „Reykjavík". Hver sem nú sendir Ben. S. Þórarinssynr kaupmanni 1 kr. fyrirfram borgun fyrir næsta ár, fær ókeypis blaðið til Nýárs-. — Hver sem sendir borgun fyrir 4 eintök, fær það fimta ókeypis. Nú er tími til kominn fyrir þá, sem enn hafa ekki borgað árgang- inn, að senda borgunina til afgreiðslu- manns (Ben. S. Þórarinssonar, Laugav. 7). Nú er gott að minnast þess, að „Reykjavík" er réttorðasta og bezta fréttablað landsins, kemur út að minsta kosti 1 sinni á viku, ogkost- ai 1 kr. árg., frítt send með hverri póstferð. NÚ er gott fyrir auglýsendur að minnast þess, að „Reykjavík" er ían^f-útbreiddasta blað landsins bæði í bænum og út um land. Það er arðsamara að auglýsa í henni einni en öllnm liinum blöðunum til sam- ans. Auglýsingar fyrir bæjarmenn er þýðingarlaust að birta neinstaðar nema í „Reykjavík".

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.