Reykjavík

Ataaseq assigiiaat ilaat

Reykjavík - 17.09.1903, Qupperneq 3

Reykjavík - 17.09.1903, Qupperneq 3
3 in, ámóta búin, gekk viö hliðina á litla vagninum, en í honum sátutvö börn og litu veiklega út. Þær vóru auðsjáanlega að koma heim úr einni af þessum löngu dagferðum sínum, ©g hefðu J>ær ekki vilst eða neitt ó- vænt seinkað ]>eirn, þá virtist óneit- aniega nokkuð áliðið til að vera úti með smá og lasburða börn. Um leið og systumar fóru fram bjá ljóskerinu á horninu á götunni, gat Miss Loveday séð framan í þær. Hún rnundi eftir lýsingu Gunnings, og átti því ekki örðugt með að sjá, að eldri og hærri konan var systir Monica; og það varð hún að játa, að hún hafði um langan aldur ekki séð svo stórskoiið og ógeðslegt and- lit. Yngri konan var aftur hinni að öllu merkilega gagnstæð. Miss Love- day gat auðvitað ekki séð hana nema í svip; en það var nóg til þess, að henni virtist þessi systir forkunnar- fögur og raunaleg þó á svipinn. Asn- inn staðnæmdist um stund á götuhorn- inu, og heyrði Miss Loveday þá, að annað barnið ávarpaði yngri konuna og nefndi hana „systur Önnu“; bamið spurði í bænarrómi, hvenær þau ættu að fá nokkuð að borða. „Nú undir eins,“ svaraði systir Anna og tók barnið með vanið upp úr vagninum og bar það í fanginu niður götuna að dyrunum á húsinu nr. 8, og var húsinu þegar lokið upp, er þau vóru komin nær að dyrunum. Hin systirin tók hitt barnið og bar það líka heim í lnisið. Svo komu systurnar aftur, tóku nokkra böggla og körfur úr vagninum og báru heim og teymdu svo asnann niður aðal- strætið, að líkindum til einhvers hest- húss, sem þær hafa fengið að hafa hann í. Meðan systurnnr vóru á horninu, kom rnaður riðandi á reiðhjóli, sagði eitthvað við systurnar um leið og hann fór fram hjá, sté af hjólinu á horninu og gekk með það niður göt- una að húsinu nr. 7, lauk þar upp dyrunum, ýtti reiðhjólinu inn með sér og læsti svo á eftir sér. Miss Loveday gekk að því vísu, að þessi maður hlyti að vera John MUrray, sem hún hefði heyrt minst á. Hún gætti vel að honum, um leið og hann fór þar hjá, og sá að hann var maður dökkur yfirlitum og eitthvað um fimtugt. [Framh.j. Kcgftjavíh otj (jrcnD. Jiinbrotsjþóímiður. Aðfaranótt Föstud. 11. þ. m. var brotin rúða í glugga á norðurhlið sölubúðar G. Zoéga kaupmanns, og hafði verið farið inn um gatið inn á skrifstofu hans. Búðin er mannlaus að nótt- unni. Þar var púlt inni, og hafði Þjófurinn skorið sundur lokið með fiskihníf, unz læsingarjárnið var skorið úr lokinu. Þar tók hann úr peninga- kassa það sem í honum var, talsvert á 7. hundrað króna. Daginn etfir fréttist innan úr Laug- um, að þar væri Færeyingur, Thom- sen að nafni, fullur, og dreifði um sig peningum eins og sandi, seðlum og' guili. Fór þá Þorvaldur lögreglu- þjónn að forvitnast urn manninn og tók hann fastan. Hafði hann þá enn á sér hátt á 5. hundrað krónur. Maður þessi hafði verið rekinn af skipi á ísafirði í vor (eða sumar) og var þá tekinn fyrir háseta á eitt fiskiskip Geirs,- er þar lá og þarfnað- ist manns, og var svo á því í sum- ar, og líkaði vel við hann. Hjá Geir var hann í skuld kominn (um 45 kr.?) og gaf honum ávísun fyrir, er síðar reyndist ónýt. Hann hafði ráðið sér far til Noregs með skipi, er lá inn við Klepp og var ferðbúið út. Var hann á leið inn til skipsins, er hann var tekinn. Talsvert hafði hann keypt sér til ferðarinnar á Föstudagst morguninn, en ekki mun lögreglan hafa um það frétt fyrri en eftir að maðurinn var handsamaður. Hann hafði keypt ýmisl. í búð Ben. S. Þórarinssonar (yfirfrakka, vindla, vín o. fl.) alls upp á nær 30 kr., og í Thomsens magasíni enn meira (al- fatnað, stígvél o. fl. o. fl.), alls upp á um 90 kr. Hann var hneptur í hald, en þrætti fyrst; en á Mánudag- inn meðgekk hann alt. Ný triilofun: Björn Ólafsson augnaiæknir og ungfr. Sigrnn Isleifs- dóttir (prests Gíslasonar). Bókmentir. Nýprentað er: „Litli Barnavin- urinn 1“ (sama hefti, sem kom út í fyrra), 2. útg. óhreytt. — í prentun er „Bergh: Ferðin á heimsenda. Saga handa börnum. Moð myndum eftir Aug. Berg. Jón Ólafsson ís- lenzkaði'“ í stóru broti eins og „Skíriiir,“ með inörgum myndum, er fylla heila síðu hver. Þessi bók kemur út í þ. m. I.A. Brockliausinn frægi Leipzigar- bóksali, gefur árlega út mikla bóka- skrá yfir bækur, eldri og yngri, sem eru enn til sölu, og tekur sú skrá yfir bókmentir allra helztu þjóða í heimi. íslenzkar bækur hafa þó aldrei verið taldar þar fyrri. En nú er í ráði að ísl. bækur verði teknar með í skrá þá, sein út kemur við nýárið. Smávægis. Lausavísur. jFela — Stela. Þetta kostar engin orð, eg mun 'reyna’ að fela, ef að þú á annað borð áræðir að stela. [Norðan úr Eyjafirði]. Himin óg jörð. Hugsað get ég um himin og jörð, en hvorugt smíðað —- vantar líka efnið í ðað. [G. Þorl. lærði af Konr. Gíslasyni, er liafði mætnr á vísunni]. Olafur stúdent [fór suður til vigslu og var á blám frakka, er Jón Espólín hafði gefið lionum. Samferða honum var séra Björn Halldórs- son í Laufási. Fyrir sunnan fékk Olafur svartan klæðnað, og kom svo búinn að Hnausum. Þar stóð á hlaði Ámi nokkur hagyrðingur, og sagði:] Hann íór suður himinblár, heim kom aftur svartur. [Séra Björn botnaði:] Þessi herrans húðarklár á himnurn verður bjartur. Porravísa. [1823 eða ’24 var Þorri umhleypinga- samur; 19 blotur hafði gert á lionum, en þótti lítil veðurbót i. Séra 01. Indriðason stóð á hlaði á Ketilsstöðum á Völlum, er tílrætt varð um veðráttu Þorra; mælti hann þetta af munni frarn.] Þorri, þú varst leiður, þóttist aldrei reiður, til góðverkanna gleiður gekst, en lézt þó vera nokkuð gott að gera. :,: Þú varst grey, grey, giæy þú varst grey, en ætlaðir ei að á því skyldi bera. Við kyrlcju. Til að heyra heimsku vott hingað margur kemur, situr hér við synda-þvott sápu-lítill fremur. [G.] Lyga-skráin. Kölski lá og las í skrá lyga-syndir manna; sagt er frá, hann fyndi þá flestar ritstjóranna. [G*] Útflulningur á sméri segir Fjallk. verði mnn meiri nú en í fyn-a. — Nú (13. sept.) er hér í íshúsið: komið til geymslu Frá Arnarbælisrjómabúi 48 kvartél. — Yxnalækjar — 40 — — Hjalla — 34 — — Torfastaða — 68 — Birtingarholts — 78 - — Áslækjar — 100 - — Framness — 60 - — Kálfár — 40 - — Rauðalækjar — 162 - — Bakkakots — 33 — — Deildarár — 44 — — Brautarholts — 21 - = 728 kvartéí. Úr Árness- og Bangárvallasýslum er suður komin 630 kvartél. Varla verður með sannindum sagt, að fé því sé á glæ kastað, sem varið er til samgöngubóta í þessum héruðum. [ HvalveiSistöð segir Fjallk. sé ísmíð- um á Suðurlandi. Á. G. Ásgeirsson kaupmaður, einn af stjórnendum hvalveíðafélags þess ins danska, sem hefir bækistöðu sína á Uppsalaeyri við ísafjarðardjúp, hefir lagt fölur á land í svonefndri Straumsvík suður í Hraunum, skamt fyrir utan Hafnar- fjarðarkaupstað. Er í ráði, að setja þar hvalveiðistöð á laggirnar. „Reykjavík" á að koma út á funtuðögmn. Þeir sem vilja ltoma auglýsingum í liana, eru ámintir um, að næsta bl. kemur út á Fimtudags-morgun. Auglýsingar verðaþví að koma inn á Þriðjudag — í allra síðasta lagi á Miðvikudags-morgnn. Munið eftír að b o r g a „REYKJAVÍK“; þetta er litilræði; en þeir sem ekki borga hana, geta ekki búist við að sér verði send hún áfram. Vanskil. Hver sem verður fyrir vanskilum á blaðinu, er beðinn að segja a f g r e i ð s I u man n i (Ben. S. Þórarinssyni kaupm.) frá því. Þá verður reynt að bæta úr því.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.