Reykjavík

Issue

Reykjavík - 26.02.1904, Page 2

Reykjavík - 26.02.1904, Page 2
30 Virðingarverð framtakssemi. Yér lásum nýlega í norðlenzku blöðunum, að menn á Akureyri væru að mynda hJutafélag til að koma þar upp reykingahúsi og hjúgnagerð (’pelse-fabrikution) og var það talið framfarafyrirtæki mikið fyrir bæinn þar. En það sama, sem Akureyringar fá (með réttu) lof fyrir að œtJa að gera með hlutafélagi, það er þegar búið að gera hér í Reykjavík, og er það ómaklegt að þess heflr ekki get- ið verið. Því fremur sem það hefir gert einn einstakur maður af eign- um rammleik — hlutafélagslaust al- veg —, og það maður, sem byrjaði fyrir ekki allmörgum árum, efnalítill mjög eða nær efnalaus, að reka hér atvinnu. Þessi maður er Jón Þórðarson kaupmaður. Hann byrjaði hérfyrst- ur allra manna á því, að kaupa sauð- fé og slátra því og selja bæjarmönn- um kjöt. • Síðar færði hann út kví- arnar og íór að reka almenna kaup- verzlun, og gerir það enn. Enhann hefir jafnan latið sér sérstaklega um- hugað um verzlunina með kjöt og önnur innlend matvæli. Svo lét hann fyrir nokkrum árum fósturson sinn fara utan og nema slátrara-iðn, en þar til heyrir vönduð meðferð og hagnýting á öllum æti- legum afurðum sláturgripa. Jafn- framt lét Jón hann nema reykingog bjúgnagerð hjá S. Johannesson, IToi- broplads 13, sem er stærsta verzl- unar- og iðnaðarfyrirtæki í þeirri grein í Danmörku1. Ina almennu verzlun sina hefir Jón í steinhúsi miklu tvílyftu, er hann reisti á horninu á Bankastræti og Þingholtsstræti. En svo hefir hann reist nýtt hús tvílyft við Bankastræti rétt fyrir ofan hitt (sem næst þar sem vindmylnan gamla var). Þar er út að strætinu kjöt- sölubúð hans, og er þar alt snyrti- legt og þríflegt umhorfs, eins og í þessleiðis búðum erlendis, marmara- plötur á borðinu o. s. frv. Þar má fá alla innJenda matvöru, sauðakjöt, nýtt og reykt, nautakjöt, svínakjöt, alls konar bjúgu, fugla, harðfisk, smjör o. s. frv., o. s. frv. Þar aftur af er bjúgnagerðin. Þar eru búin til alis konar bjúgu („pyls- ur“), sem tíðkast erlendis og annars oru flutt hingað frá útlöndum. Þar «ru húnar til fleiri tegundir bjúgna, en vér kunnum að nefna; en vér höf- um heyrt kvenfólkið tala um spegí- pylsur, Hamborgar-pylsur, Vinar-pyls- 1) Það vita, ef til vill, færri af lesend- nm vorum, að hr. S. Johannesson er ís- lendingur ( JVfúlsýslungur úr Hjaltastaða- þinghá), sem fór á ungum aldri bláfátæk- nr til Hafnar, en hofir með dugnaði, f-or- sjá og reglusemi orðið stórauðugur mað- ur. ur, Medister-pylsur og sitthvað fleira. Það sem vér höfum reynt af bjúgum hr. J. Þ. (og vér kaupum þar oft, bjúgu), stendur í engu að baki þeim allra beztu útJendum bjúgum sams konar, sem hingað flytjast, taka út- lendum bjúgum yfirleitt fram. Og svo veit maður, hvað maður lætur ofan í sig, er maður borðar bjúgu frá Jóni. í þeim er hvorki kjöt af útlifuðum sporvagnahrossum né ann- að lakara, heldur gott íslenzJd kjöt. Og það er ánægja að sjá verknaðinn alJan og umgengnina, þar sem bjúg- un eru búin til. í herbergi þar fyrir aftan er kassi, sem tekur 50 tunnur af vatni, og er það leitt í pípum inn í bjúgna- herbergið. Reykingarofna hefir hann og sett upp, svo að þar reykir hann alt, sem reykja þarf. Annar ofninn er til að hraðreykja <t. d. Vínar-bjúgu), hinn til almennrar reykingar. Jón hefir nú fengið sér enn tilað- stoðar danskan mann, vel kunnandi í sinni iðn. Jón selur kaupmönnum bjúgu með heildsölu- (en yros-) verði, og þykir oss líklegt og æskilegt, að þeir kaupi heldur varning þann frá honum, en frá útlöndum, þar sem vara hans er fult svo góð og útgengileg. Að endingu skulum vér gefa þeim, sem ekki eru því kunnugir, þessa fá- orðu bending um, hvernig helzt á að borða nokkrar bjúgna-tegundir: Hamborgar-bjúgu má sneiða niður eins og þau koma fyrir og hafa ofan á brauð. En líka má brúna þau og borða heit. Medister-bjúgu á að sjóða 5 mín- útur og brúna síðan á pönnu. Vínar-bjúgu á að sjoða 4 til 5 mínútur og borða þau svo heit, sem hægt er. Deilda-verzlun er nú mjög að aukast hér í höfuð- staðnum, og eru það skynsamlegar framfarir frá gamla hoi-finu. — Fyrst er sundurgreining ósamkynja starfa nytsöm af því, að hver maður verð- ur verldagnari og betur kunnandi að starfi sínu, ef hann vinnur að jafnaði að sama eða samkynja verki, en það verður aftur þeim hagur, sem unnið er fyrir. — í annan stað er það í verzlun allri þægindi fyrir kaup- anda, að samltynja vörur sé sér í deildum. Það er miklu yfirlitsbetra að sjá, hverju úr er að veJja, og öll afgreiðsla verður greiðari. Sex —sjö stærstu verzlanirnar hér í bænum hafa nú tekið þá aðferð upp, að skifta, verzJuninni í deildir, og mun það án efa fara í vöxt. Nú eftir Nýárið hefir enn ein af heldri verzl- ununum hér tekið upp inn nýja sið. Það er verzlun hr. Th. Thorsteiusons konsúls. Hann hefir hingað til rekið alla sína verzlun í eignarhúsi sínu „Liverpool" og jafnframt haft þar afgreiðslu skipa sinna og útgerðar, því að hann er einna stærstur þil- skipa-útgerðarmaður, ekki að eins hér við flóann, heldur á öllu íslandi. Nú hefir hann leigt hálft neðsta gólf og hálfan kjallarann í inu nýja stórhýsi hr. Guðjóns úrsmiðs Sigui ðs sonar. Vér komum nýverið niður í Hafnarstræti og varð starsýnt á gluggana í vefnaðarvöru-deild hr. Thorsteinsons, því að þeir vóru ó- venjulega vel skreyttir og útbúnir. Rétt meðan vér stóðum og dáðumst að gluggunum, bar eigandann þar að, og bauð hann oss að líta inn. Búðin er ekki ýkja-stór, en öllu einkar- smekklega fyrir komið þar inni, og verðlag virtist þar vera óvenju-lágt eftir gæðum. Það er auðvitað kven- þjóðin, sem aðallega sækir að þessari búð, eins og yfir höfuð að vefnaðar- vöru-búðum. En karlmennirnir munu og eiga þangað erindi líka; þeir verða þó að kaupa svo margt af því sem þar fæst: vasaklúta, axlabönd, nær- fatnað, milliskyrtur o. s. frv., o. s. frv. Og þeim skulum vér trúa fyrir því, að þeir sjá ekki í annari búð sam- valdar geðslegri afgreiðslumeyjar. — (Vér hvíslum því rétt svona að þeim, svo enginn heyri). Þegar vér gengum íít aftur, varð oss litið á stórt, nýreist skiðgarðs- þil norðan við strætið rétt fyrir vestan. Þar var máluð á með stóru letri auglýsing, há-amerísk að sniði: „Merkisviðburður ársins!“ o. s. frv. Það var um 12 daga sölu með nið- ursettu verði i Edinborg. „Þessa auglýsing hefir Ásgeir verið búinn að semja aður en hann frétti um stríðicsögðum vér við yngis- mey, sem með ossgekk; „eðaskyldi hann treysta sér að etja kappi við Kúsa og Japana um, að vekja meiri athygli? Ekki fyrir það: Ásgeir er aldrei deigur í samkepninni. - En hvor þeirra skyldi nú selja ódýr- ara varninginn þessa daga, Ásgeir eða Thorsteinsson ?“ — „Ja, ég hefi nú komið í báðar buðirnar“, svaiaði hún, „og skoðað vörurnar og verð- lagið, og ég get sagt þér það, að . . „Ja, Jivað hún sagði um það — það fer eins dult. eins og það sem Óðinn hvísJaði í eyra BaJdri. Það skal enginn hafa það upp úr oss. — Það er ekki vort að fara. að gera upp á milli stórverzlananna í bænum. Til þess skortir öss bæði vit og vilja. En vér ráðurn frúnum og meyjunum til að leggja sjálfar á stað og skoða, meta og dæma. En engum göngum vér of nærri, þó að vér segjum, að engin sú sem leggur upp í vöru- könnunarferð um Hafnarstræti, mun fara fram hjá vefnaðarvöru-deild Thor- steinssons án þess að koma þar inn. Nú varð mér litið niður í steinrið- ið, sem liggur niður í kjallarann, og um um leið og ég Jagði niður þrep- in, bölvaði ég bæjarstjórninni í þús- undasta og fyrsta skifti fyrir bygg- ingarsamþyktina. Ég átti ekki ann- að erindi í vínlrjallaiann, en að sjá, hvernig þar væri útlits. Þar var alt rúmgott og snoturt,; hitunarhólkar á veggjunum til upphitunar, því að miðstöðvarhitun er í húsinu. Hita- mælar sýndu hitann, og er þar sífelt haldið jöfnum hita á vínunum, eins og vera ber, ef þau eiga að njóta sín sem bezt, og mun það ekki vera gert annarstaðar hér. Fyrir innan borðið var útsölumað- urinn; þar þektum ver gamlan kunn- ingja, sterkan bindindismann og gall- liarðan góð-templara. Undarleg eru örlög lífsins, hugsuðum vér, og und- arlegt hugsunar-lögmál mannanna. Hver templar telur alla vínsölu sví- virðilegan atvinnuveg og vínveitinga- menn og vínsala djöfulsins erindreka; en sjálfir hafa íslenzJcir templarar ekkert á móti að þjóna djöflinum svona „upp á kaup“ með því að vera útsölumenn áfengra drykkja. Eftir að vér höfðum séð þessar tvær deiJdir, datt oss í hug, að gam- an væri að sjá, hvernig nú liti út í gömlu Liverpool. Þar lögðum vór fyrst niður í kjallarann; þarerverzl- un með alis konar nýlendu-varning- (kaffi, sykur, tóbak, kornvöru o. fl., o. fl.) og flest það er sjómenn þarf- nast. í búðinni þar uppi yfir er alls. konar karlmannafatnaður og lrari- mannafataefni; en innar af er þar skraddaraherbergi, þar sem tekið er mál af mönnum og sniðið, og þar inn af saumastofan. Þar sem gamla búðin var (inn- gangur á horninu) er nú afgreiðsla -kipaút.gerða.rinnar. Þar inn af eru svo skrifstofur. Tigulsteinsgerð og móhnoð. [Lesendur „Rvíliur11 munu minnast þess„ að hr. Peeben Langf, i Vébjörgum, sem sérstaklega fæst við að koma upp tigul- steins-verksmiðjum og móhnoðunar-verk- smiðjum í Danmörku, ritaði i fyrra einkar fi’óðlegagrein um tígulsteinsgerð á landi hér. Það er nú tízka hjá oss, að íesta trölla- trú á íslenzka „—fræðinga11 í ýmsum grein- um, sem koma til vor hrákaraðir í'rá próf- borðinu með bóklærdóminn hálfmeJtan eða ómeltan og semja endileysu-áætlanir um hitt og þetta, sem í framkvæmdinni reynast lokleysur einar, er hvergi koma rét.tu nærri. Oss hættir til að gleyma þvi, að í verklcgum efnum meltist bóklærdóm- urinn eldci nema við reynslu framkvæmd- anna, og að próf-maðurinn, sem aldrei hefir handtak unnið eða séð unnið í sinni grein undir handleiðslu annara, sem reynslu hafa, gerir stundum meira ógagn en gagn. Hr. ingeniör Preben Lange er að visu út- lendingur, sem aldrei hefir land þetta litið; en auk þess lofsverða áhuga fyrir að vinna oss gagn, sem lýsti sér í grein hans i fyrra (Rvík V, 14. tbl.) og aftur í grein þeirri, sem hann hefir á ný ritað fyrir blað vort og hér kemur á eftir, þá ber oss að minn-

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.