Reykjavík - 07.03.1904, Síða 1
Út.gefandi: hlutapélagi® „Retkjavík"
Ábyrgðarmaður: Jón Ólafsson.
Grjaldkerí og afgreiðslumaður:
Ben. S. Þókakinsson.
Arg. (60 tbl. minst) kostar með burðar-
ejii 1 kr. (erlendis 1 kr. 50 au. — 2
sh. — 50 cts). Afgreiðsla:
Laugaveoi 7.
FRBTTABLA Ð — VERZLUN ASBLAÐ — SKBMTIBLAÐ — ADOLÝSINöABLAÐ.
V. árgangur.
Keisarynja Sínlands, sú arga
norn, dáin!
Hongkong, 17. Felr.: Keisaryn-
jan er dáin. Embættis-tilkynning
um það er engin gefln enn hvorki
til þjóðarinnar né útlendra rlkja, og
er þess heldur ekki að vænta, því
að það er eldgamall sínverskur sið
ur að dylja sem lengst lát þjóðhöfð-
ingjans eða draga að gera það opin-
berlega heyrinkunnugt [fyrr meir var
það stundum dregið 1—2 ár]. Hins
vegar fer það ekki dult, meðal hirð-
manna og höfðingja þarlendra. —
Allir embœttismenn í Canton full-
yrða lát keisarynjunnar.
Stríði ð.
Eftir ensku vikublaði frá 21. f. m.,
er segir samfleytt tíðindi frá 15. til
20. Febr. og oss barst 4. þ. m. að
kvöldi, setjum vér þessi atriði:
Frá Tokio er símað 17. f. m., að
Japanar hefðu sett talsvert riddara-
lið á land í Wí-dsjú, sem er hafnar-
borg á austurbakka mynnisins á
Yalú-fijótinu. Næsta dag komu þang-
að 2000 af her Rúsa; en eigi hafði
enn slegið í orrustu.
Nálægt Njú-tsjang má ráða af rús-
Reskum fréttum að Japanar hafl og
sett allmikinn her á land, og sé svo,
þá eru Japanar byrjaðir að setja her
á land beggja vegna nyrzt á Liao-
tong-skaganum; en yzt á suðurtá
hans stendur Port Arthur; og er þá
svo að sjá sem þeir ætli að reyna
að komast að að sækja þá borg frá
landi og sjó í einu.
Alexíeff varakonungur Rúsa hafði
tilyknt, að. allir Japanar, sem í Mand-
sjúrí ættu heima, skyldu mega fara
ferða sinna frjálsir og óhindraðir úr
landi. En þeir fyrstu 50, sem lögðu
á stað í þessu trausti, vóru teknir
höndum, er á járnbrautarstöð kom,
og sendir í varðhald til Port Arthur.
Konsúll Bandaríkja N. A. í New-
tsjwang fór til og fékk lausar lát-
Rar konur og börn þessara manna, en
Ræsta dag vóru þær og þau tekin
föst á ný og send á eftir mönnum
sínum í varðhald. Konsúllinn mót-
mælt þessari aðferð, er var þvert
ofan í heitorð Alexíeffs og auglýs-
ingu. — Kósakki í Njútsjwang tók fast-
an ungverskan ferðamann nafnkunn-
an og barði hann og meiddi; ferða-
inaðurinn gat komið orðum ti< brezka
konsúlsins og hann og Bandaríkja-
konsúllinn, Mr. Miller, skárust í og
fengu hann lausan, og ætlaði Kósakk-
inn þá að berja Mr. Miller. Lög-
reglustjórinn rúsneski bað auðvitað
Mánudaginn 7.
fyrirgefningar og hét að refsa Kó-
sakkanurn harðlega.
400 Japanar vóru komnir til Muk-
den, borgar við járnbrautina til Njú-
tsjwang; Rúsar tóku þá fasta, rændu
þá nesti, peningum og öilu fémæti
(úrum, handhringum o. s. frv.), og
og vóru þeir svo sendir í varðhald til
Port Arthur. 13 konur vóru í þeim
hóp, og tókst Mr. Miller að fá þær
lausar látnar og gat sent þær úr landi
heimleiðis.
Bæði lögreglustjórnin í Njútsjwang
og rúsneskir hermenn þar hafa alls
konar illvirki i frammi við útlend-
inga í borginni (sem er ein af þeim
hafnarborgum í Mandsjúríi, er nýlega
heflr verið opnuð öllum þjóðum).
Þannig er þar hótel, er þýzkur mað-
ur hefir reist, og höfðu þrír heldri
menn japanskir, er vóru á heimleið
að flytja sig úr landi, tekið sér þar
bústað. Yfirmaður í lögregluliðinu
brauzt þar inn með 10 lögregluþjóna,
mölbraut og skemdi alt, sem þar var
innanstokks á hóteiinu og tóku Jap-
ana og börðu þá og misþyrmdu þeim
og rændu þá peningum og gripum.
Mr. Miller bjargaði þeim að lokum
og þrem konum, er á hótelinu höfðu
búið, og hafði lögreglustjórnin rétt
áður, en á þetta fólk var ráðist, heit-
ið því sérsaklega friði og vermd.
Þetta eru að eins örfá dæmi af
mörgum, því að blöðin eru dálkafull
af svona sögnm um ódrengskap og
siðleysi Rúsa.
100,000 hermenn á mánuði sögð
ust Rúsar hér á dögunum geta sent
austur til vígvallar; nú segja þeir
3000 á dag, en það verða 90,000 á
mánuði. En enskir verkfræðingar,
er séð hafa brautina og áhöld öll, segja
það muni sönnu nær, að þeir geti
sent 30,000 að eins á mánuði. En
það segja báðir, að 36 daga só verið
á leiðinni.
En hvað sem um það er, þá ganga
liðsendingarnar mjögilla. Hermerm-
irnir eru sendir í opnum vögnum, og
illa kiæddir, en margir þeirra koma
sunnan af Suður-Rúslandi úr hlýju
iandi. Frostið er um þessar mund-
ir 45^/a stig á Celsius (Sö1/^ st. á
Réaumur) og frjósa hermennirnir í
hel á vögnunum hundruðum saman,
en hinir, er lifa, verða ófærir af frost-
bólgu, kali og sárum. Svo er vi'sta-
laust í flestum forðabúrunum með
brautinni fram, og svelta þessir vesa-
lingar svo ofan á alt saman. Það er
því ekki kyn, að nú eru megnir sjúk-
dómar að koma upp í hernum.
Þessi fregn má ætla, að elcki segi
ófegurra af, en er, þvi að hún kem-
ur frá Pétursborg til Berlinar.
Marz 1904,
Þrjú beitiskip Rúsa af Yladivostok-
flotanum hafa Japanar sprengt upp.
Aftur sýndu Rúsar rögg af sér ný-
verið við Port-Arthur; fram undan
virkjunum þar úti fyrir sást til þrigg-
ja tundurbáta rétt undir fallbyssu-
kjöftum virkjanna og skutu virkja-
menn þegar á þá og hæfðu, aldrei
þessu vanir, svo að þeir söktu bát-
unum með allri áhöfn og þóttust nú
vel hafa lumbrað á Japönum. En
þá kom það upp úr kafinu, að þetta
höfðu verið rúsneskir bátar, en ekki
japanskir. Svo hér er alt á eina bók
lært.
Þegar árásin var gerð á Port-Arthur
14. f. m., var blind-snjóbylur, svo að
varla sá handa skil.
Kóreu-keisari hefir sent Japans-liði
vín og tóbak að gjöf.
Enskur sjóforingi var staddur í
Port Arthur, er fyrsta árásin var gerð,
og tók hann á eftir bát og reri alt
umhverfis Rátvisan og Cæzarewitsj.
Segir hann, að þau hafi fengið þá
útreið, að við þau verði ekki gert
framar; þau sé alveg úr sögunni.
Að öðru feyti segir hann, að við
ekkert af inum stærr'i vígskipum, er
óvíg sé orðin í Port Arthur, sé auð-
ið að gera, af því að eina skipakvíin
þurra í Port Arthur, sem auðið sé
að gera við skip í, sé svo lítil, að
ekkert af inum stærri vígskipum sé
auðið að taka inn í hana.
Ymisleg tíðindi.
Höfða-lj'ðlenda í Afríku. Þarvarð
sá endir á kosningum til þings, að
„framsóknarflokkurinn" (þ. e. enski
kúgunarflokkurinn) varð ofan á og
stýrir 5 atkv. meiri hluta á þingi.
Sir Gordon Sprigg hefir því lagt nið-
ur völd, en Dr. Jameson (óbótamað-
urinn, sem réðst á Búa saklausa áð-
ur en Búastríðið hófst) tekst nú ráða-
neytisforstöðu á hendur.
Baltiinore, Md. Þrem dögum eft-
ir að eldurinn varð slöktur, tóku þrír
af bönkunum í borginni til starfa aft-
ur á nýjum stöðum í bænum. — Fjög-
ui vátryggingarfélög fyrir eldsvoða í
Baltimore hafa orðið að stöðva út-
borganir. [Af því leiðir alls ekki, að
þau verði endilega gjaldþrota öll].
Berlin, 19. Febr. Alkunnurbank-
ari hór fyrirfór sér í dag. Hann hafði
á fám dögum tapað aleigu sinni (400-
000 ríkismörkum) við verðfall það
er varð á rúsneskum skuldabréfum.
10. tölublað.
Roykjavík 7. Marz.
Hvað flytur „Ceres“ nýtt af
stríðinu, þegar hún kemur í
vikulokin ?
Ekki neittí — Því að
„Reykjavík“ flytur það alt í dag.
Fregnir frá 21.—29. f. m.
í gærmorgun bárust oss blöð, er
taka yfir 21.—29. f. m. samfleytt,
svo að vér höfum nú tíðindi alt til
þessa mánaðar byrjunar, [en „Ceres“
átti að fara frá Leith 1. þ. m.].
Setjum vér hér fyrst dálitla
Dagbók yflr stríðið:
21. f. m. Japanar ráðast á Port Arthur á ný á sjó.
22. „ Japana-keisari fiytnr þakkir þeim brezku sjóforingjum, sem stýrðu beitiskipunum aðkeyptu frá Ítalíu til Japan.
s. d. Verður vart við rúsneskt ridd- aralið við Andsjú í Norður-Kóreu.
23. „ Japanar reyna að reka tappa í stútinn á Port Arthúr-höfninni.
24. „ Rússar skora ritsímann milli Andsjú og Ping (Phong) Yang i Norður-Kóreu.
25. „ Japanar setja her á land í Possiet Bay OPossiet-vik) um 50 enskar milur suður ef Vladivostok.
26. „ Mr. Burleigh skýrir frá að 200,- 000 Japana sé að ráðast inn í Mandsjúri.
s. d. Rúsar flýja úr Dalny.
29. „ Simskeyti frá Tokío segir tveir flutnings-flotar sé á ieiðinni, annar með landgöngulið til Port Arthur, hin með landgönguher til Vladivostok, 40,000 manns.
Japariar hafa til þessa leynt svo
meistaralega öllum flutningi og hreyf-
ingum landhers síns, að enginn hefir
til þessa neitt með vissu um það
vitað. En nú er það að byrja að
koma í ljós, hvað þeir hafa aðhafst.
Mr. Bennett Burleigh, inn nafn-
kunni fregnriti Lundúnabl. Daily
Telegraph í Tokio, hefir sent blaði
sínu fróðlegt símskeyti, og getur
þess, að flutningsskip Japana hafi
þegar flutt og sé enn í óða önn að
flytja örmul af landher til vígvalla.
Sumt af þessu liði — segir hann -,
ef til vill 100,000, hefir verið flutt
„eitthvað í námunda við Dalny.“
Hvert hitt hefir átt að fara, kveðst
hann ekki vita með vissu enn (26.
f. m.). Fjöldi stórra flutningsskipa
er nú nýkomið aftur til Udsjína og
er verið að flytja um borð í þau enn
meiri landher til Dalny.
Rúsar flýja og gefa upp Dalny.
Sjanghai. 26, Fébr. Rúsar hafa