Reykjavík - 11.03.1904, Side 4
42
Leikfélag Reykjavíkur.
Sunnudaginn 13. Marz verður
leíkin
Bjónleikur ■ 4 þáttum eftir
LCMWia FULDA.
Skotlands og með því var póstsend-
ingum komið til Leith í veg fyrir
„Ceres“, er væntanl. er hingað 11.
þ. m.
Landshornanna milli.
--0 —
Að norðan.
Magnús Kristjánsson kaupm. á
Akureyri ætlar að keppa um þing-
mensKuna á Akureyri við Pál amt-
mann Briem.
Mannalát. Að Hallgilsstöðum í
Pnjóskadal nýdánar Herdís Ingjálds-
dóttir, ekkja Jóns Árnasonar frá Arn
dísarstöðum, og Aðalbjörg dóttir henn-
ar, kona Davíðs Sigurðssonar bónda
á Hallgilsstöðum. Arndís lætur eftir
sig 4 börn. Báðar dóu þær mæð
gur úr tæringu. [„Gjallarh."]. — Yngi-
bj'örg ungfr. Torfadóttir (frá Óiafs-
dal) forstöðukona kvennaskólans á
Akureyri, andaðist úr tæringu 6. f.
m. Hún hafði verið prýðisvel ment-
uð, og mesta atgervis og mannkosta
mær.
Á Akureyri vóru eftir nýsaminni
kjörskrá 269 kjósendur; á næstu kjör-
skrá áður 110. Þett.a hefir kjósend-
um fjólgað þar við stjórnarskrárbreyt-
inguna. (Nðl.).
Sögunanuylna er sett upp á Húsa-
vík og mölunarmylna í sambandi við
hana. Önnur vatnsmylna var þar
fyrir áður, og mala þær alt korn
(eða mestalt), sem til kaupstaðarins
kemur. (Nðl.)
Snjór kominn allmikill, segir Nðl.
20. f. m., og hefir þessa viku verið
snjókoma á hverjum degi. Oftast
frostvægt, alt af logn, þar til er snjó-
hríð kom í gær.
Að austan
komu engar fregnir með póstum og
austurlandsblöðin ekki. Múlasýslu-
póstur ókominn á Akureyri, er norð-
anpóstur fór þaðan. En blaðamenn-
irnir austfirsku ekki komnir upp á
það enn, að senda blöð sín með
sunnanpósti, og berast þau þó ávalt
hingað nokkrum dögum fyr með
honum.
Seyðisfjörður varð nýtt kjördæmi
í fyrra líka. Hvað ætli kjósendur sé
J>ar margir? Einhver fyndinn mað-
ur sagði í sumar, er leið, um Seyð-
isfjörð: „Það var iika staður til að
gera að sérstöku kjördæmi! í ár er
Með s|s „Ceres“ nýkomið í verzl.
V. Sttesen’s
Epli,
Appelsinur,
Syltetau,
margar teg.
Crem-chocol.
og marg fleira.
þriðjungur fólksins fluttur þaðan norð-
ur á Eyjafjörð; annar þriðjungurinn
fluttur til Ameríku, og meginið af
síðasta þriðjungnum kominn á sveit-
ina.“ Hvað skyldu þá margir kjós-
endur vera þar eftir? Seyðisfjarðar-
blöðin leysa væntanlega úr þeirri
spurningu.
Tíðarfar á Austfjörðum hefir vei'-
ið gott, hlákur og auð jörð. Afli
lítili sem enginn síðan um jól.
Ilvalveiðamaður (hr. Stixrud)
var að setjast að í Reyðarfirðl (á
Svínaskálastekk); var að byrja að
reisa húsið.
Að vestan.
Fískafll góður, er á sjó gefur,
segir „Vestri" 8. f. m.
Mannalát. f 31. Jan. á ísafirði
Slefán Jónsson, f. 1826 á Grýtu-
bakka í Eyjaf — Nýdáinn létur
Björnsson skipstj. í Hringsdal í nrn-
arfirði. („ Vestri “).
Eftirskrift.
„Ceres" kom í morgun (11. Marz)
og með henni engar fregnir af stríð-
inu, aðrar en þær sem „Reykjavík"
hafði þegar flutt í siðasta bl. 10. þ.
mán.
Af öðrum fregnum er þetta helzt:
Séra Ólafur Hel gason dó af slagi
á „Laura" á leiðinni út, og kom lík
hans nú með „Ceres".
íslamls-banki. Við hann verða
auk bankastjóra Schou tveir íslenzkir
bankastjórar, og er hr. bankabókari
Sighv. Bjarnason skipaður inn fyrri
af þeim; en in síðari staðan kvað
vera boðin Páli amtmanni Briem
með því skilyrði, segir náunginn,
að hann afsverji næstu 9 ár alla
þingmensku, pólitík og aðra synd og
óguðlegt athæfi (til að tala með orð-
um gamla Balle).
Thorc-félagið. — Sakir „Scot-
lands“-strandsins var ferð „Mjölnis"
til Rvíkur trestað um 4 daga, svo
að hann lagði á stað frá Khöfn 4.
(í stað 1.) þ. m. og er því væntan-
legur hingað 18. (í stað 14.) þ. m.
Gamla bíiðin
í
Thomsens Magasíni
býður alls konar smáar járnvörur
(„Isenkram") og smíðatól, alls konar
búsgögn úr blikki og emaileruð, lukt-
ír, lampa og alt þeim tilheyrandi
óheyit ódýrara en nokkur önnur
verzlun í Reykjavik.
í stað „Scotlands" sendir félagið
annað fyrsta flokks skip hingað frá
Höfn 20. þ. m., og svo áfram þær
ferðir, er „Scotland" átti að fara.
Reykjavík og- grend.
„Ceres" kom í morgun og með
henni yfir 70 farþegar. Af þeim
höfum vér séð hr. D. Gstlund (al-
fluttur hingað aftur með fjölskyidu
sína og prentsmiðju); hr. Þorst. Gísla-
son ritstj. með konu, alkominn hing-
að líka. Hr. Kr. Hallgrímsson hótel
haldari á Seyðisfirði (snögga ferð);
hr. Sig. Gíslason (til augnlækninga),
fjöldi fólks af Seyðisfirði kom hingað
til að leita sér atvinnu.
Óverðsknlduð árás.
í vikunni sem leið, var hér í bæ-
jarblöðunum minst á ina nýju dúk-
vöru verzlun Th. Thorsteinssons kon-
súls með maklegu lofsorði. En eitt
blaðið notaði það tækifæri tii að ráð-
ast með iilyrðum og bölbænum á
Thomsens-verzlun, stærstu og mikil-
fenglegustu verzlun landsins, og iang-
hæsta gjaldanda til bæjarsjóðs og
landssjóðs. Henni var líkt við Rúsa,
og óskað að hún „fengi skell", o. s.
frv.
Það er því hneykslanlegra að sjá
slíkt í heiðvirðu blaði, sem það er
með öllu óverðskuldað. Thomsens-
verzlun hefir, frá því hún fyrst varð
til, verið orðlögð fyrir ráðvendni, og
eigendur hennar hver fram af öðrum
verið valmenni.
Síðan núverandi eigandi tók við
henni, hefir hún aukist svo stórkost-
lega, að það er beztur vottur þess,
svo mikil sem verzlunarkepnin er hér
í bæ, að Thomsens-verzlun þyki við-
skiftagóð.
En af því að hún hefir fyrst hér
á landi tekið að verzla í deildum, og
sett upp vinnustofur eg verksmiðjur,
þá hefir íslenzka öfundin lagt nag-
tennurnar að henni, og er téð blað-
grein einn vottur þessa lúalega hugs-
unarháttar.
Hersvæðis-kort
„ReykjaYíkur“
er nú full-skorið, og verður væntan-
lega tilbúið handa kaupendum biaðs-
ins á Mánudaginn.
Smáleturs auglýsingar borgist fyrir-
fram, 3 au. orðið, eigi yfir ló bókstafi
Minst augl. 25 au.
LÍTILL, laglegur bókaskápur óskast
keyptur. Ritstj. ávísar.
GÖTUSTÍGYÉL til sölu, fyrir afarlágt
verð Ritstj. ávísar.
PÚFF og nokkur gluggafög til söluhjá
Guðna Simonarsyni, Bergstaðastræti_
TIL LEIGU 14. Maí herbergi fyrir
familíu. Upplýsingar gefur Þórður Magn-
ússon. Húsi Hróbjartar skósmiðs.__
ORGEL nýtt og vandað, er til sölu fyrir
rnjög lágt verð. Ritstj. ávísar.
DUGLEG og þrifin stúlka og telpa fyrir
innan fermingu geta fengið gott pláss eftir
14. Maí á Laugavegi 43. Ágúst Bene-
diktsson.
BARNAVAGN til sölu, með góðu verði.
Ritstj ávísar. [—12.
SÁÐKARTÖFLUR góðar til eölu. Klapp-
arstíg 10.
Wi
t’eir sem enn
hafa ekld borgað síð-
asta árgang „Reykja-
víkur“, eru beðnir að
gera það sem fyrst.
Allar auglýsingar,
sem birtast eiga í
„Reykjavík"
Verða að afhendast
í síðasta lagi áhád.
hvers jtfiðkaðags.
Prentsmiðja Reykjavíkur.
Prontari: Þorv. Porvarðsson.
Pappirinn frk J6ni ólafssyni.