Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 16.09.1904, Blaðsíða 3

Reykjavík - 16.09.1904, Blaðsíða 3
167 N° 10 ===== i^o 10 — No 10 REYNIÐ og þér munuð eigi vilja aðra tegund. Selt hjá öllum helztu kaupmönnum á Islandi og um allan heim. N" 10 ===== N° 10 ===== N° 10 Til neytenda ins ekta Kína-Lífs-Elixírs. Mcð því að inar gömlu birgðir hafa um hríð verið útseldar, þá er nú nýjum birgðum við aukið. Sakir ins mikla tollaulca hefi ég neyðst til að hækka verðið upp í 2 kr. flöskuna. — A)t um það er elixírið ekki dýrara neytendum, heldur en áður, með því að með nýjum vélum hefir það tekist að draga miklu sterkari lög úr jurtunum, svo að nú endist eins vel úr einni flösku eins og áður úr tveimur. Um það getur reynslan sannfært hvern mann. Elixírið fæst í Reykjavík hjá H. Th. A. Tliomsen, J. P. T. Bryde, Jes Zimsen, Jóni Þórðarsyni, Bened. Stefánssyni, Guðm. Olsen. Kaupmannahöfn V. í Ágúst 1904 Waldeinar Petersen, Nyrej 16. en þar skyldi hann fá bréf frá henni með vitneskju um, hvar hún væri niður komin. — Undir eins og Miss Monroe var komin um borð, virðist hún hafa róið að því öllum árum að ryðja úr vegi öllum tálmunum fyrir fyrirætlun sinni, og þá lá næst að reyna að losna við sínversku þernuna, sem líklega iiefir verið trú föður henn- ar og hefði getað orðið fyrirætiun hennar til tálma. Ég efa ekki, að þeman hafi þjáðst af sjóveiki — þetta vai fyrsta sinn sem hún kom á sjó —; en ég efa heldur ekld, að Miss Mon- roe hafi gert alt til að auka lífhræðslu hennar og róið öilum árum að því, að hún færi af skipi við Malta og og sneri aftur til Sínlands með fyrsta póstskipi. Þá lá næst fyrir að reyna að finna hentuga stúlku, sem fáan- leg væri til fyrir góða borgun að lát- ast vera Miss Monroe og leika þann- ig á vini hennar í Englandi, meðan Miss Monroe færi sjálf sinna ferða og kæmi svo ár sinni fyrir borð sem henni þætti bezt henta. Þessa stúlku fann hún, þar sem Miss Mary 0’ Grady var; hún var á þriðja farrými á „Co- lombo“, skipinu, sem Miss Monroe var á, og hafði hún komið um borð í Ceylon ásamt móður sinni. Eftir því sem ég hefi séð, hljóta þær mægður að hafa verið að heiman frá ættjörðu sinni í mörg ár. Þér vitið nú sjálfur, hve vel sú stúlka hefir leikið sitt hlut- verk á heimili yðar — hversu hún hefir forðast alla kunningja Sir Ge- orge Monroe, er þekt höfðu hann í Sínlandi og hefðu kunnað að geta ílækt hana inn í samtal, er hefði komið ókunnugleik hennar upp um hana. Þér vitið, hversu hún hefir forðast að skrifa nokkuð, svo að ekki U „Já, já, kæra Miss Brooke,'1 tók séra Hawke nú fram í, „en væri ekki bezt að við færum bæði undir eins til Charing Cross hótelsins og reyndum að fá alla vitneskju, sem við getum, um Miss 0’ Grady, og hvað hún hefst nú að — annars kann hún að fara þaðan, svo að við miss- um af henni.“ „Ég held ekki sé nein hætta á því. Hún bíður þar rólega eftir svari upp á símskeyti, sem hiin sendi fyrir góð- um tveim klukkustundum til móður sinnar, Mrs. 0’ Grady, Woburn Place nr. 14, Cork.“ wEn i hamingjunnar bænum! Hvenr inn í dauðanum farið þér að því, að geta vitað alt þetta?“ „O, þetta síðasta er nú ekki ann- að en árangurinn af ofurlítilli breliu, sem sá maður hefir leikið, sem ég hefi sett til að hafa gætur á Mary 0. Grady í dag og öilu, sem hún ger- ir. En það segi ég yður satt, að það hefir verið talsvert örðugra að kom- ast að hinum atvikunum í þessu flókna máli. Að ég rataði á rétt spor í fyrstu í þessu máii, það held ég að ég megi þaltka tygilhnífunum, sem þér vóruð hræddastur við.“ „Ó!“ sagði prestur og stundi þung- an; „nú komum við að tygilhnífun- um! Nú vona ég að þér getið sef- að ótta minn við þá.“ „Það held ég. Þykir yður ekki kynlegt að heyra, að það var ég, sem sendi yður þrjá tygilhnífana í morgun ? “ „Þór! Getur það verið?“ „Já, ég sendi þá, og nú skal ég segja yður ástæðuna. En það er bezt að byrja á upphafinu. Tygilhnífar þessir, sem vöktu hjá yður umhugs- un um banaráð og blóðug morð, eru mjög lauslega. dregnir með blý- janti, og mér datt þegar í hug að leggja í þá aðra miklu friðsamlegri þýðingu, en þér gerðuð. Mér virtust tygilhnífs-myndirnar miklu líkai i mynd á skjaldmerki, heldur en rýtingum þeim sem meðlimir leynifélaga ógna óvinum sínum með, Ef þér viljið líta á myndirnar aftur núna, þá vona ég yður skiljist, við hvað ég á.“ Að svo mæltu tók hún upp úr borðskúffu sinni umslögin með tygil- hnífa-myndunum í, þeim sem sóra Ha^’ke hafði orðið hræddastur við. Svo hélt hún áfram: „í fyrsta lagi er nú blaðið á al- mennum rýtingi eða tygilhníf að minsta kosti tveir þriðjungai af allri lengdinni. En hór á myndunum ei blaðið engu lengra en meðalkaflinn eða skaftið. í annan stað sjáið þér, að hér vantar haudbjörgina, sem nú er á hverjum rýting; í þriðja lagi vil ég benda yður á, að meðalkaflinn er strendur, og minnti það mig á ímynd- líkan krossfaranna. Engin manns- hönd mundi halda um meðalkafla þann, sem hér er dreginn. Eftir að þér fóruð í gær, fór ég á Brezka safnið (British Museum) og leitaði þar í skjaldmerkjabók ágætri, sem oft hefir mór að haldi komið. Þar fann ég grun minn staðfostan, og það á þann hátt, er furðu vakti. Meðal mynda af ýmsum krossum á fornum skjald- merkjum, fann ég einn kross, er Henri d’Anvers hafði valið til að marka á hjálm sinn, þá er hann réðst í lið með krossförum undir Játvarði fyrsta. Þetta merki hefir síðan orðið ætt- gengt hjálmmerki afkomenda hans. Þetta þóttu mér mikil tíðindi, því að þetta krossmark var sama tygilhnífs eða rýtings myndin, sem nú hafði send verið yður tvívegis af einhverj- um manni í Cork; og það virtist örðugt að skilja þetta á annan hátt en þann, að þetta merki ætti að vera eins konar orðsending eða skeyti til einhvers á yðar heimili. Með þetta í huganum fór ég nú til útgerðar- manna „Colombo’s“ og bað hann um að fá að sjá skrá yfir farþegana, sem með því skipi höfðu komið. Mér þóttu þeir furðu-fáir, og lítur helzt út fyrir að fáa fýsi að sigla Fetla- fjörð (Biscaya-flóa) um jafndægraleyt- ið. Einu farþegarnir, sem í land höfðu farið í Plymouth, auk Miss Monroe, vóru Miss og Mrs O'Grady, farþeg- ar af öðru farrými, og höfðu þær komið um borð í Ceylon, á heimferð frá Ástralíu. Nafn þeirra var auðsjá- anlega írskt, og bæði það og svo hitt, að þær stigu af skipi í Plymouth, benti á, að vel gæti verið, þær hefðu ætlað til Cork. Ég bað því um að fá að sjá skrána yfir farþegana með skipi því er frá Sínlandi kom næst á eftir „Colombo", og sagðist ég hafa átt von á að vinur minn hefði verið með skipinu. Á þessari skrá fann óg fljótt nanfnið William Wentworth Danvers. En það lá nærri að ætla, að Danvers væri sama nafnið nú, sem d’Anvers á krossfaratímunum“. „Nei, en sú ósvífni! Að hann skyldi vera svo djarfur — og breytti ekki einu sinni nafninu!" „Nei, hann gat auðvitað alt af bor- ið eitthvað fyrir um heimferð sína, sagt að annaðhvort foreldra sinna væri veikt eða annað því um líkt. Og hvernig sem var, þá gat Sir George Monroe aldrei heft för hans, hve illa sem honum féll að hann færi svona rétt á eftir á hælana á dóttur sinni. — Hann fór líka af skipi í Ply- mouth. „Lengra en þetta var ég nú ekki komin með eftirgrenslanir mínar, þeg- ar ég kom til yðar síðdegis í gær, En meðan ég beið fáein augnablik í í herbergi yðar, fékk ég nýja og mik- ilsverða vitneskju. Ég heyrði fáein orð, sem fóru milli Miss Monroe, sem þóttist vera, og frænda yðar, og af einu orði, sem óg heyrði til hennar, gekk ég úr skugga um þjóðerni henn- ar. Þetta var einsatkvæðis-orðið „hush“ [á íslenzku: þey!].“ „Nei, nú gengur alveg yfir mig!“ „Hafið þér aldrei tekið eftir mun- inum á, hvernig Englendingar og ír- ar bera þötta orð fram? Sérhver Englendingur segir ávalt hush með skýru /i-hljóði í upphafi; en sérhver íri hefir ávall w-hljóð í upphafi — segir whush. Og Miss Monroe, sem þóttist vera, eða róttara sagt Miss 0’ Grady, sem ég veit nú hún er, sagði svo alveg greinilega whush. Það gat ekki skýrara verið.“ Til fiskimanna á íslandi. Á hafrannsóknarskipinu „Thor“ hefir í sumar verið merkt og slept aftur allmiklu af þorski á ýmissi stærð (mest þyrsklingi og stútungi). Merkið er hvítur beinhnappur og látúnsplata með stöfunum Da og númeri (eins og á kolunum í fyrra). Merkið er fest (með silfurvír) á tálknlok (kjálkabarð) fisksins. Ef nú fiskimenn á íslandi skyldu veiða þannig merkta fiska, eða skar- kola þá, er merktir voru í fyrra, þá er það vinsamleg bón mín til þeirra, að þeir vilji senda merkið, ásamt skriflegri skýrslu urn, hvar, hvaða dag mánaðar og á hvaða dýpi fisk- urinn veiðist, og nákvœmt mál á lengd fisksins (í þumlungum eða sentimetrum) frá snjáldri til enda sporðuggans, til Bjarna Sœmunds- sonar, fiskifræðings í Reykjavík. Borgar hann fyrir mína hönd 1 krónu fyrir hvert merki (ásamt ineðfylg- jandi skýrslu) og burðargjald, er á kann að falla. Ég vil einnig biðja alla málsmet- andi menn, er áhuga hafa á þessu málefni, að hvetja almenning til að hafa góðar gætur á hinum merktu fiskum og vanrækja eigi að gefa skýrslu um þá, og halda merkjunum til skila, ef þeir veiðast. Þess skal geta, að merking þessi er gerð til þess að komast eftir þvií

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.