Reykjavík

Útgáva

Reykjavík - 24.09.1904, Síða 2

Reykjavík - 24.09.1904, Síða 2
168 Heimsendanna milli. — 0 — Rvik, 22. Scpt. Hroðalegt er að heyra inar nánari fréttir frá orrustunni við Ljá-yang. Tai-tsí-fljótið rennur norðan við bee- inn og er Rúsar flýðu sern óðast fyrir Japönum, drukknuðu svo margir hestar í fljótinu, að um tíma stíflað- ist það af hestabúkum og stikiuðu Rúsar yfir á búkunum; en svo lótu skrokkarnir undan og féll þá fjöldi Rúsa í vatnið og drukknuðu unn- vörpum. Svo telur Lundúnafregnriti „Neue freie Presse, “ að 50 þúsundir manna hafi Rúsar mist alls í orrustu þessari, fallna menn eða óvíga af sárum. Svo segja útlend blöð alment nú, að þótt orrustan við Ljá-yang hafi ekki orðið Rúsum eins og Sedan varð Prökkum undir Napóleóni III., þá hafi það orðið þeim ámóta og orrustan við Leipzig(16.—19. Okt. 1813) varð Napóleóni I. Rúsar gátu á síðasta augnabliki sent 500 járnbrautarvagna írá Ljá- yang norður eftir, áður en Japanar náðu bænum, Þeir vagnar vóru fullir af særðum mönnum og vopná- forða. Sendiherra Japana í París fullyrð-! ir, að Japanar hafi ekki haft nema liðlega 160,000 mannsí Ljá-yang-orr- ustunni, en Rúsar höfðu á 3. hundr- að þúsunda- Þess er áður getið, að Kuropatkin flýði með herleifar sínar norður eftir til Yentai, en að Kuroki héit nokkru af her sínum á eftir honum og ætl- aði að reyna að einangra hann. Kur- oki bjóst við að Kuropatkin væri liðfærri en hann reyndist, en ieifar nokkrar af her Stackelbergs höfðu náð að sameinast Kuropatkins herleifum. Kuroki varð því miklu liðfærri en Rúsar og tókst honum ekki að ein- angra þá. Kuropatkin tókst því 5. þ. m. að að halda áleiðis norður, en torsótt hefir honum veitt undanhaldið til þessa (13. þ. m. eru yngstu fregnir frá Gautaborg), enda eru Japanar á hælum honum og á hlið við hann. 13. þ. m. vóru sumar sveitir þeirra ekki lengra frá Mukden en 4 mílur ensk- ar (góða 4 fimtunga danskrar mílu), en þá var ið fyrsta af her Kuropatk- ins að komast inn i borgina (Mukden). Er það sumra manna sögn, að eigi hefði hann þá meira lið en 75 þús- undir. Þó er mælt, að Japanar sé í þann veg að afkvía 12000 manns af syðsta flóttahemum rúsneska und- ir Mistsjenkó hershöfðingja, en hann sjálfur kvað fallinn. Jafnframt þessu eru Rúsar að flýja Múkden og halda norður lengra, og er það nú sýnt, að þeir ætla þar ekki að staðnæmast, heídur fyrst um sinn að halda norður til Tieling, sem er 38 mílur norður frá Múkden. En ekki telja Japanar líklegt að þar verði mikið viðnám og vænta þeir að Rús- ar flýi alla leið norður til Harbin. En um hana búast Japanar eigi við að setjast fyrri er næsta vor. 13. Sept. — Kuropatkin hefir nú farið norður til Tieling, sem nú er verið að vígirða í óða önn, og er kominn aftur til Múkden. En Kur- oki hefir sett herbúðir sínar á hæð austur af bænum og horfast nú her- irnir þar í augu. Oyama marskálkur, yfirhershöfð- ingi alls Japanahers, hefir nú sezt að í Ljá-yang og búa Japanar þar um sig. Þeir flytja nú norður lið og vistir, einkum frá Njú-tsjang bæði á járnbrautum og skipum á fljótinu, og frá Dalny eftir járnbrautinni. Svo senda þeir og í sífellu lið norður frá Ljá-yang til Kurokis við Múkden, og er þjóðbrautin full af vögnum og kerrum. Járnbrautina, sem Rúsar skemdu hér og þar, hafa þeir enn ekki komist yfir að gera við. Port Artliur. Það segja Japan- ar, að ósjófær muni nú orðin þau rúsnesku herskip, er enn liggi í Port Arthur. Hafa það tii marks, að þau sé nú alveg hætt að koma út eins og áður, ]»á er herskip Japana renna inn að landi og skjóta á virkin. Uchtomski fursti, aðmíráll yfir Port Arthur-flotanum er nú settur frá af Rúsastjórn og á að kæra hann fyrir herdómi, fyrir það að hann komst ekki með skip sín burt frá Port Ar- thur. En í hans stað er Wirén, for- inginn á „Bojan“, gerður amíráll og settur yfir Port Arthur-flotann. Arásum á Port Arthur af Japana hendi hefir annars heldur linað að nýlundu, en sént haía Japanar 25,000 manns til frá Japan til styrktar um- sáturshernum. — Nú hafa Rúsar í P. A. sannfrétt ósigur Kuropatkins við Ljá jang, og virðast nú verða orðnir vonlausir um vörn. Má það einkurn marka af því, að þá er saman lenti áður smáflokkum af umsáturshernum og setuliðinu rúsneska, þá börðust Rúsar jafnan sem ljón. En þá er slíkuln flokkum lendir nú saman, gera rúsnesku fiokkarnir lítið.af að verjast, en getast upp og láta Japana taka sig til fanga. llúsland. Stjórnin þar liefir nú boðið út 192,000 iiðs, og skal það koma til Harbin í Október — ef braut- in getur flutt það og vistir og vopn handa því, en um það efast margir. Eystrasalts-flotinn átti nú loks að leggja á stað 16. þ. m. En hann hefir nú oft átt að gera það áður! í þetta sinn virðist þó helzt vera alvara í því óðsmannsæði. Flcti þessi verð- ur að leggja leið sína suður um Góð- vonarhöfða á Afríku, því að um Suéz-skurð fær hann ekki að fara; þrjá mánuði er sagt skipin verði á leiðinni í allra minsta lagi, og verð- ur þá Port Arthur fyrir löngu tekin, og Yladivostok ef til vill lfka; að minsta kosti verður floti Japana þá laus við Port Arthur, til að mæta skipum Rúsa, er þau koma kolalaus, mosa vaxin og þangi og ferðlaus, og haíandi enga höfn til í að flýja. Geysi- stór skipaferlíki full kolum á að senda með herskipunum. Rúsar eru fullir með það nú, að þeir hafi í sumar nokkrum sinn- um orðið varir við tundurskip í Eystrasalti, er jafnan hafi flúið und- an herskipum sínum, er þau vóru þar á vakki, og aldrei viljað draga upp fána, til að sýna þjóðerni sítt. Eru þeir fullvissir þess, að þetta só japðnsk tundurskip (!). 8vo fastir eru þeir í þessari trú, að þeir hafa leigt á laun nokkur eimskip í Sví- þjóð, til að leita um hafið. Er orð- in rekistefna í Svíþjóð um eitt þess- ara skipa, björgunarskipið „Isbjörnen," er eigendur höfðu leigt útlendum mönnum, en ekki haft hugboð um, að það ættti að vera í njósnar-þjón- ustu fyrir Rúsa. Annars er ekki trúnaður lagður á það af öðrum en Rúsum, að Japan- ar hafi tundurskip í Eystrasalti, sem líklega ætti þá að vera til að vinna Eystrasaltsflotanum tjón, ef hann leggur nokkurn tíma á stað. Canada fær nú nýjan landstjóra. Stjórnin brezka hafði í huga að gera hertogann af Marlborough, sem er undir-ráðgjafi lýðlendumála, að land- stjóra í Canada, en blöðin og þjóðin í Canada tóku því svo illa, að Breta- stjórn hætti við það og hefir nú gert Orey jarl að landstjóra, og tekur hann við af Minto lávarði. Láta Canadingar vel yfir því. Per Sivle hefir skotið sig í Kristí- aníu. Hann var einn af gáfuðustu og þjóðlegustu miðaldra ljóðskáldum; reit og nokkrar sögur o. íl., alt á norsku þjóðmáli. Hann var þjóðræk- inn maður mjög og trúrækinn og inn bezti maður og vandaðasti. Þing- ið norska hafði um nokkur ár veitt honum skáldastyrk (1000 kr.), en á fjárlögunum í fyrra var hann dreg- inn út — vér vitum eigi afhverjum ástæðum, liklegast smásálarskap, því að skáldgáfa hans og mannkostir vóru viðurkendir af öllum. Það er ætlun manna, að örvæntingin um að geta lifað fyrir fátæktar sakir fiafi komið honum til þess að ráða sér bana. Heilsulítill var hann og frá barnæsku. 23. Sept. „Yesta“ kom í morgun með blöð til 15. síðdegis. Stríðið. Svo segir fregnriti „Daily Telegraph“, að líklegia þyki sér að tala fallinna og særðra af Japönum í orrustunum við Ljá-yang nemi nær 30 en 17 þúsundum. — Af Rúsum sagt fallið og sært 50,000 manns. Sjálfir játa Rú«ar, að þeir hafi flutt 35,000 sæðra manna til Harbin á sjúkrahúsin þar, en urmull hafði dáið af sárum á leiðinni. Hve mikið hef- ir af þeim fallið fyrir utan, einkum sunnan, Ljá-yang, veit enginn enn ,, en 3100 rúsnesk lík fundu Jap- anar inni í borginni og grófu. Alexieff hefir sagt af sér æðstu yfirirráðum yfir her og flota Rúsa í Austur-Asíu, en heldur áfram að vera varakonungur þar Eystra. Port Arthur segir Alexieff í skeyti til keisarans að sé mjög að þrotum komin. Allur viðbúnaður þar til þess haíður að sprengja í loft upp virki og hús, áður en Japanar ná bænum. Japanar eru að kaupa fjölda hesta í Montana og Canada. Sagt að stríð- inu verði haldið áfram í allan vetur. Japanar eru að semja um lán í Lundúnum, 80 millíónir yena. (1 yen = 1 dollar = 3,75 kr.) Gullnámar hafa nýlega fundist í Japan, skamt frá Tokio. Hafa ensk- ir jarðfræðingar námafróðir skoðað þá, og segja að í þeim sé að minsta kosti 200 millíónir sterlings-punda af gulli. Hneyksli er ekki nýtt að þær veki prinsessurnar af ætt Leopolds Belgakonungs og Jósefs Austurríkis- keisara. Lovísa dóttir Leopolds kon- ungs var ung gefin hertoganum af Coburg-Gotha, nauðug þó. Hann var saurlifnaðar-seggur eins og faðir henn- ar og hún hafði andstygð á honum. Svo kyntist hún ungverskum foringja, feldi ástarhug tii hans, hélt við hann svo að hneysli vakti; var eyðslusöm og varð fjárþrota. Svo var hún sögð vitskert og sett á vitfirringahæli, en var þó reyndar alheilbrigð á geði. Jafnframt var foringinn, friðill henn- ar dæmdur til 5 ára betrunarhúss fyrir víxlafölsun; en hann var reynd- ar, saklaus, og hafði stjórnin keypt ljúgvitni gegn honum. Eftir 3 ár var honum slept og látinn fá aftur foringja-tign sína. En svo notaði hann frelsi sitt til þess, að frelsa Lo- vísu hertogynju úr vitfirringa hald- inu, og struku þau svo burt og hefir eigi sannfrézt til þeirra síðan. En umboðsmenn hefir hún sett til að semja við mann sinn um skilnað. Hún er nú 45 ára. Ritsími til íslands. Hafstein ráðherra var í Höfn og og var samningum við stóra norræna ritsímafélagið svo langt komið, að heita mátti alt fullgert. Svo hafði ráðherrann og gert aðrar nauðsynleg- ar ráðstafanir inálinu viðvíkjandi. Er því máli nú svo komið, að full- yrða má, að ritsími verður kominn hinqað til lands og yfir land alt fyr- ir haustið 1906, svo fremi að alþingi veitir það fé, sem með þarf, til land- símans. Þetta er rétt hermt, eins og hvert orð, sem „Reykjavík" hefir flutt um þetta mál.

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.