Reykjavík - 18.04.1905, Blaðsíða 2
84
Gleðilegt sumarí
„Reykjavík" árnar öllum sínum
þúsundum af kaupendum og lesend-
um góðs og gleðilegs sumars.
Þetta Sumarsdagsblað verður sent
um 1000 heimilum, sem annars fá
ekki „Reykjavík.“
Vildu ekki þeir sem þannig fá
blaðið, og annars allir vinir vorir,
geta þess við aðra út í frá, að af
„Reykjavík8 koma út 60—70 tölu-
bl, á ári, og að árgangurinn kostar
þó að eius 1 kr.
Frá 1. þ. m. til ársloka kostar bl.
að eins 7.3 au.
ísland er ungt enn.
Er ekki gaman að eiga öldung á
93. ári, jafn-heilbrigðan á sál og fjör-
ugan í anda eins og Pál Melsteð?
— Hjörtur Þórðarson, landi vor í
Chicago, er að vérða heimsfrœgur
maður. Sakir skorts á myndum
urðum vér að sleppa meginkaflanum
öllum af greininni, sem vór höfum
tekið upp í dag um hann eftir
„Vinlandi".
Ef vor iitla þjóð, einar 80,000 sálir,
getur framleitt tvo heimsfræga menn
á hálfum öðrum áratug, þá erum vér
ekki úrkynjaðir með öllu.
Heimsfrægur íslendingur!
Iljörtur Pórðarsou og upp
götvanir hans.
Ný áhöld til rafmagns-rannsókna.
[Eftir »Vínlandi«].
í »Vínlandi« (III. 8) var grein-
arstúfur þýddur úr dagblaði í St.
Louis um rafmagnsvél eina (Trans-
former), er hr. C. H. Thordarson
hafði þar nokkurn tíma á sýning-
unni. í grein þeirri var ekki rétt
sagt frá öllu, enda er svo vanalega,
er dagblöð vilja segja frá einhverju
vísindalegu. I3ar er sagt að vél
þessi framleiði 500,000 volta þrýst-
ingar-afl á rafmagnsstraumnum,
en hún getur framleitt hálfu meiri
straumþrýsting en það.eða 1,000,000
volt og með fullu straummagni
hefir hún nál. 150 liesta afi. En
á sýningunni var ómögulegt að
koma þrýstingarafli hennar hærraen
600,000 volt, því enginn útbúnaður
var þar nógu lialdgóður til þess að
einangra rafmagnsstrauminn, er
þrýstingaraflið fór fram úr því.
Sýningarstjórnin lét byggja timbur-
hús eitt lítið fyrir vél þessa, norð-
anvert við rafmagnshöllina,. og það-
an lágu vírar frá henni á háum
stólpum fram með rafmagnsliöllinni
eins vel einangraðir og föng voru
á. Þegar straumþi'ýsting vélarinn-
ar óx til muna yfir 500,000 volt,
laust niður raflogum frá vírum
þeim, er út frá henni lágu, í hús-
ið, sem hún stóð í, því tréð í því
var aldrei vel þurt sökum loftraka,
og varð því leiðari fyrir rafmagn
með svo miklu þr5rstingarafli. En
þrátt fyrir það þó þetta aftraði því,
að vélin gæti unnið með fullu afli,
tókst þó vel að sýna með henni
ýmsar rafmagnstilraunir, sem aldrei
hafa áður verið gerðar. Nú er
vél þessi eign Purdue háskólans
(ríkisháskólans í Indíana), og þar
var bygt steinhús (40 X 60 fet)
fyrir hana eingöngu og tilrauna-
áhöld þau, cr henni fylgja. Vélin
sjálf er 5,000 pund á þyngd, og er
lienni komið fyrir í trékassa á kaíi
í 46 tunnum af olíu, því ekkert
annað en hrein olía einangrar
nægilega rafmagn með þeirri þrýst-
ing, sem hún framleiðir.
Þessi vél var ekki á meðal þeirra
muna, er hr. C. H. Thordarson
hafði á sýningarsafni sínu í St.
Louis. Hann sýndi hana aukreitis
og hafði hana þar að eins fáar
vikur. En það sem hann hafði
þar aðallega til sýnis, vóru aðrar
smærri vélar og ýmis áhöld, til þess
gerð að rannsaka og vitskýra eðli
rafmagnsstrauma og rafsegul-
skauta. í flestum hérlendum vís-
indablöðum rafmagnsfræðinga var
meir ritað um sýningardeild hans
en nokkra aðra í rafmagnshöllinni,
enda vírlausa telegraf-stöðin, sjálf-
tengsla-telefóninn og ið syngjandi
bogaljós vóru um það leyti fátíð-
ara umræðuefni í blöðum þessum:
þær uppgötvanir vóru i-afmagnsfræð-
ingum áður kunnar, en þessi raf-
magns áhöld höfðu þeir aldrei fyr
séð eða heyrt neitt um þau getið.
Bezt er þeim lýst í »The Electrical
World and Engineer« og eru i því
blaði margar ritgerðir þess efnis.
Mjög fáir íslendingar sáu sýningu
þessa og ekkert hefir urn hana
verið ritað í íslenzkum blöðum. .. .
Stutt, en greinileg og alþýðleg
lýsing á nokkrum óvanalegum til-
raunum, er gerðar voru með 1,000,
000 volta transformer hans á sýn-
ingunni t St. Louis, er í Marzhefti
mánaðarritsins »The Electrical Age«
(1905, 3 West 29 Street, New York).
Auk þess sem hér er getið, hefir
hr. Thordarson uppgötvað margt
fleira viðvíkjandi rafmagni og raf-
magnsvélum, og tekið mörg einka-
leyíi á ýmsum öðrum vélum og
áhöldum, er liann nú lætur smíða
á verksmiðju sinni 153—159 S.
Jefferson Street, Chicago. III.
„€5inborgar“-verzlun
1895-1905.
Ef einhver sá er andaðist hér í
Rvík fyrir 30 árum, mætti nú lita
upp úr gröf sinni, mundi hann ekki
þekkja borgina sína aftur.
Komumanni, sem hefði ekki séð
Reykjavík síðustu 3 árin að eins,
mundi bregða 1 brún að sjá ham-
skiftin, sem búðirnar hér hafa'tekið
á þeim tima.
Af stórverzlunum bæjarins er Edin-
borg sú næst yngsta, en framfarir
hennar bera þó ekki vott um þrótt-
leysi bernskunnar, heldur um fjör og
táp æskunnar.
„Edinborg“ heldur enn búðinni,
sem'hún byrjaði i, en heflr bætt við
sig fleiri húsum síðan, og nú síðast
reist sér alveg nýtt hús, nýja búð
fyrir dúkvöru og glysvarning.
Ég fór hér á dögunum að skoða
hana og mætti eiganda hennar i
dyrunum.
Húsið nýja er al. á lengd,
18. al. á breidd, tvíloftað með turni,
svo vandað að efni og smíði sem
frekast er unt.
Asgeir Sigurðsson reisti sér fyrir
fám árum íbúðarhús hér, ið prýði-
legasta ásýndar í bænum, og má af
því sem mörgu fyrirkomulagi í inni
nýju búð sjá, að hann er smekk-
maður.
Miðstöðvar-hitun með vatnshitun
gengur um alt húsið, eigi að eins
inn í herbergin uppi og niðri, heldur
um allan ganginn.
Niðri er húsið alt ein búð — sú
stærsta á landinu. Þar er bákn mik-
ið á miðju gólfi og heitir Cash Be-
gister á ensku. Það tröll er með þeirri
náttúru, að þá er maður borgar eitt-
hvað, hvort sem hann borgar í réttri
upphæð eða fær „til baka“, þá sýn-
ir tröllið upphæðina og skýtur upp
miða með upphæðinni á prentaðri,
og geymi kaupandi miðan, fær hann
5 kr. fyrir ekkert, þá er hann hefir
á lengri eða skemri tíma safnað
saman miðum upp á 100 kr. En
fyrir hvern búðarmann er sérstök
skúffa, sem alt fer í, það er hann
hefir selt fyrir dag hvern. Alt er
tröllið úr stáli og eir á tréstandi, og
er kyn, hversu það vinnur hugsandi
manns verk. Ég hefi séð mörg af
þeim í Vesturheimi — því að þaðan
eru kynjatröll þessi ættuð — og spurði
ég Ásgeir, hvort hann hefði fengið
anda hjá uppvakninga-félaginu eða
púkameistaranum, til að setja í tröll-
ið. En hann afneitaði sterklega allri
púka trú, og bauðst til að kryfja tröllið
og sýna þess innra mann, að þar
byggi engin fjölkyngi í.
Annan slíkan peningakarl heflr
hann sett í gömlu búðina. Þessi
skurðgoð hans eða gullkálfar kosta
1800 kr. hvor um sig.
Ég tók eftir því, að gluggarnir í
búðinni vóru smekklegar skreyttir,
en maður á hér að venjast. Erlendis
eru sérstakir menn, sem leggja fyrir
sig þá list, að koma vörum fyrir í
gluggum, og kallast þeir windoiv-
dressers á ensku. Ásgeir heflr fengið
sér einn slíkan frá Skotlandi.
Uppi á lofti eru skrifstofur með
norðurhlið, on vörugeymslu-herbergi
að sunnan, og gangur í miðju að
endilöngu. — Efst uppi er Hliðskjálf;
þaðan skygnist Ásgeir um heim allan
eins og Óðinn. Þaðan er útsýni gott
í allar áttir yfir bæinn og höfnina.
Eftir að hafa skoðað almennu
skrifstofuna settist ég inn í ina
minni; það er helgidómur Ásgeirs.
Fór ég þar að spyrja hann spjörun-
um úr um .vöxt og viðgang „Edin-
borgar“-verzlunar:
„Hún er nú 10 ára gömul", sagði
hann. — „1895 seldi hún útl. varning
fyrir kr. 42,754.08, en keypti engar
innlendar.
„Árið sem leið (1904) seldi hún
hér í Reykjavík og á útibúum .sínum
á ísafiiði, Keflavík og Akranesi útl.
vörur fyrir kr. 591,227.22, og keypti
innl. vörur fyrir yflr 1 miljón króna
(1,180,702.98).
í tolla og útsvar borgaði hún 1904
kr. 33,583.68. En í vinnulaun og
kaup greiddi hún sama ár kr. 118,-
931.04“.
„Edinborgar“-verzlun selur alt fyrir
peninga út í hönd og kaupir ísl.
vörur allar fyrir peninga út í hönd.
Hér er ein verzlun önnur, sem ég
veit að muni selja enn meira af útl.
varningi, en só tekið tillit til kaupa
Edinborgar á ísl. vöru, þá verður hún
að umsetningunni til stærsta verzlun
landsins. (Umsetningin 1904 alls kr.
1,771,930.20, eða yfir l3/4 miljón
króna).
Edinborgar-verzlun mun hafa orðið
einna fyrst til að taka gömlu vöru-
skifta-verzlunina heljartaki og með
því stutt að því að koma verzlunar-
laginu í heillavænlegra horf.
Hún fiytur inn í landið meiri pen-
inga en nokkur önnur verzlun.
Hún hefir unnið og vinnur þarfa-
verh í verzlunarsögu landsins,
Peripateticus.
lúLlvi míi gleyma
Mililðíii
í
TH0MSENS MAGASÍNI,
þegar sumargjaflrnar eru keyptar,
Þar fást alls konar liiiKgöj^ii, sór-
lega vönduð.
Stolar frá kr. 1,7.3—
ISorð, mjög margs konar.
Járiirimi, liapiiarúm,
Vöggur, lioininódur,
skápar og alls konar hirzlur,
Speglar,
Málvíírk o. m. fl.
Húspláss til leigu frá 14. Mai við
Hverfisgötu nr. 42.