Reykjavík

Eksemplar

Reykjavík - 21.09.1905, Side 2

Reykjavík - 21.09.1905, Side 2
77* REYKJAVÍK Frá herbóðum óyinanna. Úr leyndarskjalasafninu. i. Þjóðræðisfél. i Reykjavík. 14. Ágúst 1905. Auk innar miklu ritsímafjárveitingar frá í fyrra eru á ferð gegnum þingið lög, aem meina öllum öðrum en einkaleyfishafa (hér: Ritsímafélaginu mikla norræna) hvers- konar hraðskeytasamband og starfrækslu þess, bæði milli landa og innanlands, hvort heldur er með ritsíma á sjó eða landi, eða þráðlausri firðritun.1) Þetta bann helzt, um aldur og ævi, ef ritsímafélagið vill3), ogþótt svo væri að landinu byðist annað hrað- skeytasamband alveg ókeypis, og að hver maður roætti nota það ókeypis, í stað þess að nú á minsta braðskeyti (10 orð) að kosta alt að 8 kr. 40 au. milli Reykjavík- ur og Kaupmannahafnar t. d. Ritsímafjárveitingin er liður í fjárlögun- ■um, sem verða jafnan að ganga sinn gang; staðfesting þeirra verður ekki frestað. En ónýt verður sú fjárveiting, ef ekki fylgja henni fyrnefnd sérstök lög um bann gegn öðru hraðskeytasambandi að viðlögð- um háum sektum og öllum hraðskeyta- tekjum upptækum, þar á meðal Marconi- stöðinni við Rauðará; ella getur hún staðið og það hraðskeytasamband haldið áfram aukið og fullkomnað.8) 1) Þetta eru frek og ósvífin ósannindi. 1. gr. ritsímalaganna tiltekur alt verksvið laganna, og hljóðar svo: „Lartdinu er á- skilinn einkaréttur til þess að 'stofna og slarfrœkja ritsíma sambönd og málþráða, svo og hvers kyns önnur rafmagnssambönd til skeytasendinga, á íslandi og í land- helgi við ísland.“ — Hér ræðir þannig að eins um firðrit.asamband eða sambönd innantands, og til slíks sambands hefir Ritsímafélagið mikla norræna ekki nokk- urn rétt, því síður einka-rétt. — Ailar 17 greinir laganna ræða að eins um „sam- hönd þau sem um ræðir í 1. gr.“ Ritstj. 2) Þetta er hégóminn einber. Ritsíma- félaginu kemur þetta ekkert við. Samkv. ritsímalögunum getur landsstjórnin ekki veitt neinum lengra einkaleyfi innanlands en um 20 ár. — Ritsímalögin hafa hins vegar sem sagt, engin áhrif á réttinn til að reka firðrita-samband milli íslands og útlanda. Það samband er sameiginlegt mál, að lögum. En sakir tillagsins frá íslandi tókst hr. H. Hafstein að fá samn- ingana um það mál lagða undir íslands- ráðherra jafnhliða samgöngumálaráðherra Dana. Afleiðing þess er sú, að það mál verður framvegis óefað jafnan háð sam- þykki íslands-ráðherra. — Samningurinn um pað við St. N. er og að eins til 20 ára, og það eru hrein ósannindi, að St. N. geti, þótt það vildi, fengið framlenging á leyfi sínu án samþykkis stjórnarinnar. Þeir sem reyna að telja alþíðu trú um það, reyna að villa sjónir fyrir mönnum með því, að í samningnum stendur, að St. N. „geti“ fengið samninginn framlengdan — en með hverjum kjörum, því ræður hinn samnings- aðilinn, samgöngumálaráðgjafi Dana og ráðherra íslands, og getur hvorugur þeirra . gert samning um það án hins samþykkis. Það stendur í samningnum, að vilji félag- ið ekki að 20 árum líðnum halda áfram að reka sæsímann tillagslaust frá Dan- mörk og íslandi, þá missir pað símann fgrir ekki neitt, og eignast þá Danmörk hann (að 2/g) og ísland (að V3). En viiji ekki Danmörk og ísland þiggja símann fyrir ekkert og reka hann, heldur fá gjald fyrir, þá geta þau neitað St. N. um leyfis- framlenging engu að síður, en þá getur fél. auðvitað tekið upp síma sinn og hirt hann. í engu tilfelti getur fél. negtt Isl. og Danrn. til að framlengja leyfið, ef þau vilja ekki. Ritstj. 3) Enn ein vitleysan. Fjárveiting Al- þingis til ritsíma yrði alls ekki ónýt, þótt Með því nú að mjög ákveðinn elmennur þjóðarvilji er í móti áminstu einokunar og ófrelsis bandi, hefir oss hugkvæmzt sú aðferð til að reyna að afstýra óhæfu þess- ari og voða, að beðið væri af kjósendum landsins um frestun á staðfesting einka- réttariaganna þar til er málið væri undir þjóðina horið á stjórnskipulegan hátt — með þingrofi og nýjum kosningum. Það er Hans Hátign konungurinn, sem þá bæn getur veitt. Og enginn þarf um það að efast, að hann mundi vilja veita hana, svo mjög sem hann ber veiferð lands vors fyrir brjósti, ef hann vissi það vera almennan þjóðarvilja. En ekki getur hann veitt þeirri hæn áheyrn öðruvísi en með ráði ráðgjafa síns fyrir ísland og á hans ábyrgð. Fyrir því verður að bera hana fram fyrir milligöngu þess mauns, er nú hefir það embættti á hendi, þótt eigi muni þykja árennilegt, eftir undangengnum afskiftum hans af þcssu máli. Auk þess er á það að líta, að ilt væri að sá rekspölur kæmist á, að gengið væri fram hjá landsins löglegri ráðgjafa- stjórn með stjórnarmálaleitanir, þótt erindi eigi beint til konungs sjálfs. Þess vegna virðist óhjákvæmilegt að orða þá málaleit- un svo, sem gert er í hjálögðu undirskriftar- skjali, sem hugmyndin er að reyna að fá á rituð eigin hendi nöfn sem allra flestra kjósenda landsins svo fljótt, að hingað yrðu komin um 20. Sept., með því að þá fer ráðgjafinn að fara utan (27.) með lögin frá alþingi til konungsstaðfestingar. Mundu þá verða gerðir menn á fund hans frá Þjóðræðísfélagínu með skjölin, svo að eng- inn geti rengt, að hann hefði fengið þau með skilum. Eg er sannfærður um, að þér séuð oss samdóma um, að hér sé svo mikið velferðar- mál um að tefla, að yður þyki vel ver- jandi tíma og fyrirhöfn til þess að útvega nöfn kjósenda í yðar lireppi undir þetta skjal með góðra manna fulltingi, — þá vínna margar hendur létt verk — og að endursenda það síðan sem fyr ségir með allra fyrstu áreiðanlegri ferð. — — Votta þyrfti neðan á skjalið, helzt af presti eða hreppstjóra, eða þá 2 öðrum valinkunnum mönnum, að undirskriftirnar séu réttar (eiginhandar eða handsalaðar), og láta þess getið um leið, hversu margir séu al- þingiskjósendur í hreppnum, annaðhvort nákvæmlega eða hér um bil. í von um svo góðar undirtektir. sem kringumstæður leyfa frekast, lýk ég máli þessu með virðingarf. alúðarkveðju. Fyrir hönd félagsstjórnarinnar Björn Jónsson formaður. Hr. (N. N.) II. Þjóðræðisfél. í Reykjavík 26. Ágúst 1905. Háttv. kæri herra! Vér vilfum leyfa oss að vekja athygli yðar og yðar samverkamanna (sbr. bréf vort 18. f. m.) á því, hve afarnauðsynlegt er, að öflugt þjóðræðisfélag komist sem altra fgrst upp í hverjum hreppi og hverju kauptúni á landinu. Það er beint skilyrði fyrir, að landsmenn geti orðið samtaka um að verjast vel og ritsímalögin væru ekki til. Og Marconi- stöngin við Rauðará er sett upp í laga- leysi og hefir að eins verið liðin, en aldrei ley/ð; og liðin hefir hún sjálfsagt verið að eins af því, að á hana hefir verið litið af landsstjórninni sem vísindalega eða verklega titrauna-stöð, og af þvi að hún hefir ekki til þessa verið ncinum til meins. Ritstj. dyggilega mjög ískyggilegum árásum þeim á þjóðræði vort, sem nú bryddir á, og eiga fyrir sér að magnast, ef ekki er við- nám veitt í tima.1) Það er ráðið til þess, að þjóðin finni til máttar síns og megins, og að hún ali með sér vel vakandi meðvitund þess, að það er hún, sem á að ráða högum sínum og mun- um, og að hún getur það vel, ef henni er alvara og hún liggur ekki á liði sínu — alvara að láta ekki þröngva kosti sinum méð gerræði og yfirgangi af hálfu inn- lendra eða útlendra valdhafa. Auk þess viljum vér nú benda á, hve víðtækur er ætlast til að sé verkahringur Pjóðrœðisfélaganna, ef svo þykir hlýða, sbr. 1. gr. laganna: efta —- — hagsæld pjóðarinnar í hvívetna. Þar í felst sér- hvað það, er til framfara horfir landi og lýð, andlegra og líkamlegra (efnalegra) framfara. Þar er ekkert undan skilið. Reglulegar samkomur, t. d. 1 — 2 sinnum á inánuði, væri mjög vel til fallið að hvert félag reyndi að hafa, til þess að ræða slík mál o. s. frv. Það eykur fjör og áhuga, vekur menn til umhugsunar og gerir þá samvinnufúsari en ella, ef rétt er með far- ið, hvar sem samvinnu verður komið að. Inn mikli og ávaxtasami samvinnufélags slcapur Dana í atvinnumálum styðst mjög við þess kyns reglubundnar samkomur. Enginn skyldi láta letjast af aðkasti og ámælum þeirra, er hafa imugust á þannig vöxnum félagsskap, af miður lofsverðum hvötum oftast nær. Slíkt láta allir sjálf- stæðir hugsandi menn sér í léttu rúmi liggja. Ég ítreka loforð félags vors hér um hvers konar leiðbeining og stuðning þessu máli til eflingar, og kveð yður með einl. alúð og virðingu. Fyrir hönd félagsstjórnarinnar Björn Jónsson formaður. Hr. (N. N.) III. Þjóðræðisfél. í Reykjavík. 27. Ágúst 1905. Háttvirti kæri herra! Nú eru lögin um ritsímaeinkarétt, þessi sem nefnd voru í bréfinu frá 14. þ. m., gengin gegnum þingið, og ríður nú injög á, að ekki bregðist áskorana-drífa hingað frá sem allra flestum kjósendum landsins um frestun á staðfesting þeirra m. m., eins og farið var fram á í téðu bréfi. Það er síðasta og öflugasta, í alla staði lögmæt og réttmæt tilraun til að af- stýra þcim voða, sem hér vofir yfir.2) Það 1) Við þetta cr það að athuga, að eng- i/ln hefir sýnt neinn tilverknað til að stofna þingræði (= þjóðræði) íslands í hættu, nema hr. Björn Jónsson og þeir félagar hans með þessu tiltæki sínu. (Sbr. síðasta blað „Reykjavíkur"). Ritstj. 2) Hver er þessi voði? Voðinn er sá, að landssjóður fái tekjur (umfram kostnað) af símalagningunni innanlands hér og þar. Það er staðreynd nú í öllum löndum, að ritsímar baka rikjunum nokkurn kost- nað umfram tekjur (víðast hvar), cða gefa af sér mjög litlar beinar tekjur. Óbeini hagurinn nemur auðvitað alstaðar stórfé. Svo mun og verða hér á landi; millilanda- síminn og landsíminn geta oft á einum degi unnið landinu margfall meira arð, en til hans er kostað á heilu ári. En talsímar gefa livervetna ágóða. Ef nú engin lög eru um simasamband innanlands, getur hver einstakur maður eða hlutafélag rakað þessum ágóða í sinn sjóð. En samkvæmt ritsimalögunum á tandið forrétt á að kom'a upp símasamböndum, og getur því landssjóður fengið drjúgar lekjur af því, og þó gert notkunina ódýrri en ein- stakir menn og félög venjulega gera. er tilraun, sem er litt hugsanlegt að ekkí komi að tilætluðum notum, ef hún er nógu rækilega gerð, þ. e. undirskríftum safnað nógu fljótt og nógu rækilega. Því nú er meðal annars dönskum blöðum farið að þykja nóg um gjörræði ráðgjafa vors, og ráða þau honum til að rifa seglin í tíma.S) En dönsku almenningsáliti virðÍ8t hann bera miklu meiri virðingu fyrir en íslenzku. Til Danmerkur er nú á leið nefnd manna úr Vesturheimseyjum Dana í þeim erind- um, að fara fram á að þeir sleppi þeim við Amerikumenn (Bandaríkin) með því að eyjarnar eigi þá miklu meiri þrifa von. Eigum vér nú, spyrja þau, að fara svo með íslendinga, að þeir fari að láta sér detta slíkt í hug? Þau koma með þessa spurningu í sambandi við fréttirnar af bændafundinum hér 1. Ágúst, er þeim finst allmikið til um, inum óháðu blöð- um i Höfn, og bæta þvi við: Hvað ger- um vér, ef íslendingar taka sama tilbragðs og Norðmenn, og ganga til atkvæða um skilnað?4) Vér megum ekki láta þetta ráð ónotað, þ. e. almennar undirskriftir undir áslcor- unina um frestun á staðfesting ritsímalag- anna o. s. frv„ pó að það kosti ítrekaða fyrirhöfn. Ekki töldu Norðmenn eftir sér að fjölmenna á skilnaðar-kjörfundina. Vara verður kjósendur við að láta let- jast af blekkjandi fortölum eða öðrum á- hrifum þingmanna þeirra. sem stjórninni fylgja, er þeir koma heim i héruð, né af hótunum eða svivirðmgum máltóla hennar. Þeir eiga að vera upp úr því vaxnir og hopa hvergi frá réttum málstað. Neyti ekki þjóðin sjálf allra löglegra ráða til að verjast rangindum þeim og á- nauð, er henni eru búin, þá á hún engrar viðreisnar von. Ég treysti yður og samverkamönnum yðar til að ganga vel og vasklega fram þessu máli til stuðnings og framkvæmdar, þann veg, sem segir í áminstu bréfi frá 14. þ. m. Með virðingarf. alúðarkvoðju. Fyrir liönd félagsstjórnarinnar. Björn Jónsson formaður. Hr. (N. N.) IV. Þjóðræðisfél. i Reykjavík. 31. Ágúst 1905. Háttv., kæri herra! Kvisast hefir, að stjórnræðismenn, ráð- gjafaliðið a þingi, hafi nú bundist öflug- um samtökum og almennum, bæði sin í í millum og við sína bandamenn utan þings, um að útrýma eftir mætti þjóðræðisblöð- unum í landinu, til þess að eiga þau ekki Petta er voðinn, sem hr. Björn Jónsson, þjóðræðis-generalinn, vill afstýra. Undir pelta er verið að tæla menn til að skrifa. Mikið ættjarðarástarverk(!) eru þessir menn að vinna!! 3) Hver eru þessi dönsku blöð? Vérstu hægri-rótarblöð, sem Dr. Valtýr á mök við, og önnur mótstöðublöð stjórnarinnar i Danmörku, sem ekkert pekkja hér til, nema það sem þau fá ritað héðan frá Valtýingum afjlygum, rangfærslu og ósann- indum. 4) Það er heldur drengilegt verk, að Ijúga í útlend blöð, sem ekkert þekkja liér til, og reyna þannig t.il að láta pau vinna á móti, og, ef auðið væri, bera ofurliða ályktanir Alþingis, sem gerðar eru með nær 8/4 en 2/s atkvæða löggjafarþings vors. Mundu þess finnast dæmi í nokkru þing- frjálsu landi í heimi, að litill minnihluti þjóðarinnar, sem ekki hefir nema */4 at- kvæða á þingi, rcyni til að fá brotið á bak aftur vilja þjóðþingsins, og svifíst ekki að leila liðs hja útlendri pjóð, til þess að traðka rétti sinnar eigin pjóðar? í hvcrju öðru landi væru slíkir mcnn kallaðir föðurlands-svikarar.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.