Reykjavík

Issue

Reykjavík - 21.09.1905, Page 4

Reykjavík - 21.09.1905, Page 4
176 R EY KJAVÍK Heimsendanna milli. Friður er nú á kominn loks milli Japana og Rúsa. Erindrekarnir rit uðu nöfn sín undir samninginn stundu efir nón 5. þ. m. í Portsmouth i New Hampshire. Helztu atriði hans eru pessi: 1 gr. lýsir friði og sátt milli Jap ana og Rúsa. 2. gr. Rúsakeisari viðurkennir, að Japanar eigi öllum öðrum þjóðum fremur rétt til að hlutast til um stjórnmál, hermál og fjármál Kóreu, og skuldbindur sig til að amast í •engu við ráðstöfunum þeim, er Jap- an kann að þykja nauðsyn á að gera í Kóreu í samvinnu við Kóreustjórn; en rúsneskir menn þar í landi haldi eignum og réttindum þeim sem nú hafa þeír. 3. gr. Báðum aðilum kemur sam- an um, að herlið beggja skuli sain- tímis haida burt ú-r Mandsjúríi. Rétt- ur allra einstakra manna og félaga þar í landi skal óskerður vera. 4. gr. Leigurétt þann sem Rúsar höfðu fengið hjá Sinverjum að Port Arthur og Dalney [sjá herkort „Rvík- ur“] ásamt landinu þar umhverfls (Ljá-tung-skaga) og höfum, er þar liggja að, láta Rúsar algerlega af hendi við Japana; en óskerður skal eignarréttur rúsneskra þegna, þeirra er þar eiga hús eða aðra fasteign. 5. gr. Báðir aðilar skuldbinda sig til, að amast ekki við neinum ráð- stöfunum, er Síniandsstjóm kann að gera til eflingar verzlun og iðnaði í Mandsjúrí, en jafnt skal þar öllum þjóðum undir höfði gert. 6. gr. Mandsjúrí-járnbrautina (frá Harbin suður til Port Arthur) skulu Japanar og Rúsar reka 1 sameining, þannig, að Rúsar stýra brautinni norður frá Kwang-tsjeng-tsí (á 45. st. n. br.) norður til Harbin, en Japanar brautinni fyrir sunnan. Alla braut- ina skulu báðir hagnýta sér til vöru flutninga og farþegja. En í notum þess, að Rúsar fá að halda eignar- xétti að nyrzta hlutanum, með þeim rétti, sem þeir höfðu fengið hjá Sín- verjum, þá skulu Japanar eignast all ar kolanámur, þær er liggja fram með þeirra hlut af brautinni og Rús- ar hafa átt til þessa. 7. gr. Japanar og Rúsar skulu í sameining reisa sameiginlega járn- brautarstöð í Kwang-tsjeng-tsí, þar sem brautir þeirra koma saman; 8. gr. Járnbrautirnar skulu svo reknar, að báðum aðilum sé trygðar óhindraðar samgöngur og verzlunar- viðskipti hvorum við aðra, og má hvorug stjórnin þar nokkurn tálma fyrir leggja. 9. gr. Rúsar láta af hendi við Japana allan suðurhlut Sakhalín eyjar norður að 50. mælistigi. [Það er sá hlutur, er Japanar áttu fyrr meir, en höfðu látið af hendi við Rúsa]. Heimil skal öllum þjóðum sigling um La Perouse-sund og Tartaraflóa. 10. gr. er um rétt rúsneskra þegna, sem nú eiga heima í þeim hluta Sakhalín, sem Japanar nú eignast. 11. gr. Rúsland skuldbindur sigtil að gera samning við Japan, er veiti öllum japönskum þegnum rétt til fiskiveiða í rúsneskri landhelgi í Jap- anshafi, Okhotsk-hafi og Bærings-hafi. 12. gr. Báðir aðilar skuldbinda sig til að endurnýja verzlunarsamninga þá, er þeirra vóru á milli á undan stríðinu, og veita hvorum öðrum þann rétt, er þær þjóðir njóta, er beztan hafa. 13. gr. Hvorir um sig skila hinum föngum, og borga hvorir hinum kost- nað, er þeir hafa af fóngunum haft. 14. gr. og 15. gr. um skilning á samningnum og um undirskrift beggja keisaranna undir hann til staðfestingar. Svo eru tvær viðaukagreinar: 1. um að báðir aðilar skuli hafa lokið við að flytja allan her sinn burt úr Mandsjúri innan 18 mánaða, og megi þá engan her þar hafa, utan 15 menn fyrir mílu hverja fram með járnbraut- inni til gæzlu hennar; 2. um að tak- mörkin milli norðurhlutans og suður- hlutans á Sakhalín skuli mæld og mörkuð. Allir dást að sáttfýsi Jaþana og sanngirni, að falla frá öllum kröfum um herkostnað. Sumir ætluðu, að friðnum væri ekki borgið til frambúðar, er engin höft væru lögð á að Rúsar mættu flota hafa austur þar. En þetta varð alt skiljanlegt, er það varð uppskátt, undir eins og frið urinn var saminn, að 12. Agúst höfðu Bretar og Japanar gert með sér ngtt bandalag, enn öftugra en áður hafði verið, þar sem hvor þjóðin um sig skuldbindur sig til að veita hinni lið skilgrðislaust, ef á hana er ráðið. Noregur. Sviar urðu við þeirri málaleitun Norðmanna, að skipa nefnd manna til að semja við aðra nefnd norska um aðskilnað ríkjanna. I norsku nefndinni eru: Michelsen stjórnarformaður, Lavland utanrfiiis- ráðgjafi, Berner stórþingisforseti og Ben. Vogt fyrv. ráðgjafl. — í sænsku nefndinni: Lundberg ríkisráðherra, Wachtmeister utanrikisráðgjafi, Ham- marskjöld kyrkjumálaráðgjafi, og Staaf ráðgjafi. Nefndirnar komu saman i Karistad í Svíþjóð 31. f. m. og sátu enn á ráðstefnu, er síðast fréttist. Sam- ningar gengu nokkuð tregt, en þó full von um að saman drægi. Eng- in hæfa í vígbúnaðarfregnum önnur en sú (að oss er skrifað frá Krist- íaníu 8. þ. m.), að herstjórnir beggja ríkjanna hafa boðið öllum leiðangurs- skyldum mönnum, að vera við búnir öllu, og láta vita, hvar þeir sé, ef þeir fari nokkuð að heiman. Landskjálftar voðalegir hafa orð- ið á Italíu. Einn dag fórust 20 þorp, 1000 manns létu líf, en 30,000 urðu húsviltir. oq öi'CiiD. ,Kong Trygve‘ (Emil Nielsen) kom hingað 18. þ. m. frá útlöndum. Með skipinu voru um 20 farþegar, þar á meðal: Steingr. læknir Matthíasson og systir hans, kaþ. prestur, Servaes, og þjónn frá Belgíu. 1 nunna (St. Jós. systir), Sigurður Halldórsson klæðskeri og kona hans, Sig. Guðmundsson verzl.- m., frú Ingibjörg Johnsen, fröken H. Larsen, frú Th. Glismann, Nielsen bakari (til Bj. Sím.), Ari Þórðarson, 1 íslendingur frá Ameríku, fröken Hallbera Guðm.dóttir og húsfrú Jó- hanna Jónsdóttir. Aukaskip er væntanlegt hingað til Thorefél. um næstu mánaðamót (líklega s s „Perwie"). Hvort félagið er ódýrara? — Ég er í engum vafa um pað, að ,DA1V‘ er JííiO, þrátt fyrir það, sem einhver kann að segja, enda er auglýsing „Standards11 i ,,Rvík“ tid nokkru leyti játning um, að svo sé. Viljið þið kauþa góða, ódýra líftrygging, og það ættu allir að vilja, þá snúið yður til mín. Það marg-borgar sip Rvík 20. Sept. 1905. 1 >. ÖSTLHND. Þingholtsstræti 23, Rvík. Holdsveikra-spítalanum íLaug- arnesi hefir nýdáinn kaupmaður í Vébjörgum, Jens Oregersen, gefið dánargjöf, 3000 kr. Gjöfin er í skuldabréfi, trygðu gildu fasteignar- veði í Vébjörgum. Lausn frá embætti hefir konung- ur veitt 2. þ. m. Þorsteini lækni Jónssyni, R. Dbr., i Vestmanneyjum. JL g ÍV‘ í i Yfirsniirfiiir fæst keypt í Hörmulegt slys varð hjer í fló- anum síðasta Laugardag. Skip frá Akranesi með 11 manns fórst þar uppi undir Skaganum, og drukknuðu allir. Meðal þeirra, er fórust, vóru 5 systkin (4 bræður og I systir þeirra), börn Helga bónda á Kringlu. Enn fremur 3 bræður frá Innsta-Vogi, Guðm. Pétursson frá Grund, Bjarni ívarsson, (verzlunarmanns Helgasonar) og Arndís Kristjánsdóttir frá Kyrkju- völlum. með öllu tilheyrandi til fískiveiða, sem liggur uppi í svo kallaðri Keflavíkur-gróf, er til sölu með aðgengilegum kjörum. Sá eða þeir sem kynnu að vilja sinna þessu tilhoði, eru vinsamlega heðn- ir að snúa sér í því tilliti til und- irskrifaðs. Kcflavík 28. Júli 1905. Á. 13. Ólnfsson. Tómar kaupir verzl. Godthaab. 6ott, jiótt það sé litið. Mikið er flónsins magasin, margt þar skortir eigi; þó er bezta brennivín hjá BENSA á LAUGAVEGI. Prentsmiðjan Gutenberg. Pappírinn frá J6ni Ólafasyni. verzl. Godthaab. lltlSftÖGI, Enginn selur jafn ódýra STÓLA, B0RÐ o. fl. og Ben. S. Rórarinsson. Ben. S. Pórarinsson kaupir hæsta verði lieilar og hálfar FLÖSKUR. Oft hefi ég á ferðum mínum fengið ákafa kæling og mikið brjóstslím; en ég þekki ekkertlyf, sem hefír hjálpað mér eins vel eins og Kína-Lífs-Elixír hr. Walde- mar Petersens. Neapel, 10. Des. 1904. M. Gigli, kommandör. Biðjið skýrlega um Waldemar Petersens Ekta Kína-Lífs-Elixír. Fæst hvervetna á 2 kr. glasið. Varist oftirstælingar. Stúlka óskast í vetrarvist sem fyrst; þarf að mjólka kýr, en ekki vera við eld- hússtörf. Ritstj. ávísar. Fundið selskinn. Réttur eigandi má vit.jaþess til Eyjólfs Bjarnasonar (assistents) Thomsens Magasín. a lierbergl til leigu, með eld- húsi í Bankastræti 6. Org’elspil kennir, eins og síðastl. vetur, nokkrum nemendum Ingimundur Sveinsson, Skólavörðustíg 31. Sömuleiðis hefi ég góð orgel til sölu. [—46 Stórt uppboð verður haldið í líárulnisinu, Mánudaginn 35. þ. m. og verður þar seit: Alls konar álnavara, tilbúinn fatnaður, ýmsar járnvörur o. m. fl. Uppboðið byrjar kl. II. f. h. og stenriur yfir ad eins þenna eina dag, Reykjavík 20. Sept. 1905. ]. p. T. Jryies verzlnn.

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.