Reykjavík - 20.01.1906, Síða 3
REYKJAVÍK
11
manni ósamboðin, þá þarf sízt að lá
stjórninni, þó að hún óskaði ekki að
hafa hann fyrir handgenginn ráða-
naut.
Þetta þætti svo sjálfsagt í hverju
landí, að furða er, að ritstj. „Fjk.“,
sem þekkir þó til, hversu slíku mundi
tekið í jafn-frjálsu iandi sem Ame-
ríku, skuli ekki sjá, hve óviðurkvæmi-
legt það er, sem hann heldur fram
í þessu máli.
Raddir frá almenningi.
I. V.-Skaftafells-sýslu, 7. Jan.
Hvað segja peir sem léð hafa nöfn sín?
Hr. ritstj. — Mér barst í hendur 50.
tölubl. af yðar heiðraða blaði „Reykjavík11,
og stendur þar á einum stað þessi spurning.
Að vísu standa þar einnig svör upp á
hana; en mér finst hún þurfa fleiri svör,
og langar mig að biðja yður fyrir þessar
línur.
Það er af mér að segja, að ég er einn
■of þeim er skrifað hafa undir frestunar og
þingrofs skjal „Þjóðræðisflokksins“, en
hvorki af þeirri ástæðu, að „ég gerði það
fyrir karlrýjuna11 eða „ég kærði mig ekk-
ert“. Það sem ég sagði, er ég átti að
svara þvf, hvort ég ætlaði að skrifa undir,
var á þessa leið: „Ég hefi, satt að segja,
lítið vit á þessu máli, því ég hefi ekkert
um það lgsið nema frá annari hliðinni, en
varla get ég trúað því að mennirnir láti
svona óhemjulega, nema þeir hafi einhverja
verulega átyllu fyrir glapræði stjórnarinn-
ar og yfirburðum loftskeytanna yfir ritsím-
ann, og því vii ég gjarnan fá lagastaðfest-
ingunni frestað þangað til ég fengi ein-
hverja hugmynd um það, sem hér er um
að ræða. Og ef mér sýnist þetta eins
mikil „óliæfa“ eins og verið er að telja
mér trú um, þá mun ég hvorki horfa í
kostnað við aukaþing né neitt annað, er
að maklegleikum gæti x koll komið stjórn-
inni og fulltrúum stjórnarinnar, er þessa
„óhæfu“ frömdu.
En nú, eftir að hafa lesið umræðurnar
á þingi, um þetta mál, get ég ekki betur
séð, en að það sem „Þjóðræðisflokkurinn“
barðist þar fyrir, hafi eiumitt verið „óhæfa“.
Þetta er nú mín fasta sannfæring, en ég
hefi engan tíma til þess að fara út í ein-
stök atriði, akal að eins benda á svar Dr.
Valtýs: „Ja, víst eitt ár“. Að berjast
fyrir þvi með hnúum og hnjám, að landið
verji stórfé til loftskeyta-sambands, en geta
þó ekki tilfært lengri starfrækslu tíma
þessara tækja en eitt einasta ár, það verð
óg að álíta „óhæfu“ og „voða“.
Hefði ég verið búinn að lesa alt það.
sem ég nú er búinn að lesa, þegar þessi
virðulegi áskorunar-snep'ill lá fyrir mér, þá
hefði mér ekki dottið í hug að setja nafn
mitt á hann; en þá hefði ég vei-ið fús til
að segja: Lengi lifi ráðherrann og meiri
hluti þings, en niður með „Þjóðræðisflokk-
inn!“ Skafti.
II. Árnessýslu, 13. Des. 1905.
Sjóndepran hverfur.
Hr. ritstj. — Nýmeðtekið bréf og blöð
frá skipulagsnefnd félagsins „Fram“ gladdi
mig stórlega.
Ég hefi reynt að fylgjast með i deilumál-
unum: lesið blöð beggja flokkanna með
nákvæmni, þó ekki „Reykjavik“ fyrri eD
nýlega. Sandrokið i valtýsku blöðunum
hefir stundum gert mig sjóndapran — ég
játa það —, en aldrei blindan. En eftir
að hafa lesið ræðu yðar í ritsímamálinu
og „Handbók fyrir hvern mann“, þá er ég
heilbrigðari og heilskygnari en nokkru
sinni áður, og stendur nú hjartanlega á
sama, hverju rignir „frá herbúðum óvin-
anna“.
Ég get sagt. yður það með vissu, að þeir
sem hér hafa verið stækastir móti stjórn-
inni (sumir hverjir, en ekki allir), eru nú
farnir að segja, að það sé „skömm að því“,
hvemig stjórnin og hennar gerðir hafi
vei'ið svivirtar frá byrjun af mótstöðu-
mönnum hennar.
Þeir sem aldrei sjá og lesa annað en
„ísu“ og „Fjk.“, eru verstir; við þá er
marga erfitt að tala. Þeir eru nefnilega
b 1 i n d i r.
Eg mun hér eftir sem hingað til styðja
heimastjórnar-flokkinn eftir mætti, en á nú
miklu hægara aðstöðu eftir en áður.
G.
Heimsendanna milli.
„Kong Inge“ flutti oss útl. blöð
til 15. þ. m„ en vér höfum ekki enn
getað lesið þau t-il hlítar.
Rtisland. Uppreisninni heldur á-
fram og hryðjuverkum þar í landi.
þótt sumstaðar ha.fi stjórnin getað
bælt óróann niður með hlífðarlausri
hörku. — 24. Apríl er mælt að þingið
(Duma) muni koma saman.
Bretland. Þar vóru kosningarnar
sem óðast að fara fram. Flestir
bjuggust að vísu víð, að nýja stjórnin
fjálslynda (Campbell Bannermann’s)
mundi merja af að fá meiri hluta.
Við því sem nú virðist vera fram að
koma, hjóst víst enginn. Svo sýnist
sem einingar-menn og íhalds menn
ætli að verða eins og undir snjó-
flóði í kosningunum: Ba.lfour, fráfar-
andi stjórnarforseti. náði ekki einu
sinni endurkosning í Austur-Man-
chester, og skorti stórmikið til, og
hefir hann þó verið þingmaður þess
kjördæmis yfir 20 ár. Þrir aðrir af
ráðgjöfunum í ráðaneyt.i hans urðu
og undir hver i sinu kjördæmi.
Churchhiil lávarður, einn af undirráð-
gjöfunum í nýja ráðaneytinu, náði
með miklum atkvæðamun kosning i
Norður-Manchester, er jaínan hefir
verið talið eitt öruggasta kjördæmi
einiugar manua. — 17. þ. m. höfðu
svo staðið kosnmgarnar (segir loft-
skeyt.i í gær), að stjómarliðar höfðu
kosið 193 þingmenn, en mótstöðu-
flokkutinn (Balfour’s) eina 52.
í llelgíu hefir það vakið mikið
umtal, að það heflr komist upp, að
konungurinn þar hefir fyrir ári síðan
hálf kvænst (vígst til vinstri handar,
sem kallað er] einhverri ótiginni
konu.
Landshornanna milli.
Flensborgarskólinn. Nýtt skólahús ætlar
skólanefudin að reisa á næsta sumri (Fjk.).
Taugaveiki megu hefir gengið í Hafnar-
firði um hi-íð og ýmsir úr henni dáið, þar
á meðal: J6n Bergur Sveinsson (Bjarna-
sonar prests á Stafafelli); Guðm. Jónsson
skipstjóri og kona hans Guðrún Ólafsdótiir
frá Bygggarði, og barn þeirra hjóna.
f Hallgrímur Jónsson dbrm., fyrv. alþm.,
í Guðrúnarkoti andaðist í svefni aðfara-
nótt 18. þ. m. Hann var mei'kur maður
og vel að sér ger.
Torfastaða prestakall (Árn.s.) veitt cand.
theol. Eiríki Stefánssyni samkv. kosningu
safnaðar (41 af 67 atkv.).
Landeyja-þing veitt séra Þorst. Benedikts-
syni í Bjai'nanesi.
f Frú Guðrún Jónsdóttir, kona séra Arnórs
á Hesti, andaðist 6. þ. m.
t Sigurður Finnsson bóndi á Hamri i
Borgarhreppi er látinn.
Vörugeymsluhús Jakobs Björnssojxar kaup-
manns á Svalbarðseyri bi'ann 27. f m., hús
og vörur vátrygt.
Fokin hús. Holtskyrkja i Fljótum fauk
12. f. m., fárra ára gömul, kostaði 6000 kr.
Mikið af viðum óbrotið, önnur hliðin heil
að mestu. Orgelið lítt skemt. — Þinghús
Ax-narneshi'epps á Hjalteyri fauk í sama
veðri, og á Hömrum í Hrafnagilssveit hús,
sem í smíðum var.
Raflýsing segir „Lögr.“ að Eyrbekkingar
og ölfusingar ætli að koma upp hjá sér —
nota aflíð úr Reykjafossi.
Afli mikill og góður í Höfnum og á
Miðnesi.
1?eph|avih oq grenö.
Trúlotanir: Ungfr. Kristín Guð
mundsdóttir frá Þorfmnsstöðum og
Einar Helgason garðyrkjum. í Rvík.
Ungfr. Steinunn Hjartardóttir frá
Austurhlíð og kaupm. B. H. Bjarna
son í Rvik.
Ungfr. Kristjana Jónsdóttir og
Kristinn Magnússon skipstj. í Rvík.
Ungfr. María Sigurðardóttir (fanga-
vaiðar) og Vigfús Guðbrarxdsson klæð
skeri.
Maunalát: 3. þ. m. andaðist hús-
freyja Margrét Árnadóttir ekkja Jón-
asar Helgasonar organista.
Dáinn er hér í bænum 16. þ. m.
Friðmh Oíslason ljósmyndari, f. 1870,
sonur Gisla heit. Stefánssonar, kaupm.
i Vestmanneyjum. Hann lætur eftir
sig konu, Önnu, dóttur Thomsens fyr
kaupm. í Vestm.eyjum.
Að Friðriki er in mesta eftirsjá.
Hann var vandaður maður, prýðilega
greindur, ötull og duglegur, vinsæll
og vel metinn af þeim sem kyntust
honum, fastlyndur og trygglyndur.
Hann var upphaflega hreystimaður,
bezti glímumaður, fimur í björgum
og við íþróttir. En síðari árin bilaði
heilsa hans (lungnatæring), og loks
varð iungnabólga banamein hans.
Hann var áhugamaður um stjórnmál,
þótt stillilega færi, og verður seinfylt
skarð það er hann lætur þar eftir sig.
Botnvörpuugur enskur kom hér
í fyrra dag. Var 9 daga, á leið frá
Hull. Hann segir Mitchell botnv.skip-
stjóra, er lagt hafði út snema á Jóla-
föstu á nýju skipi, talinn af. Hann
var mörgum hér að góðu kunnur.
„Kong Inge“ kom í morgun.
Lesið augl. til „Austfirðinga*.
Smjorsala erlendis. G. Gíslason
& Hay í Leíth fengu 6 hálftunnur
smjörs frá Hvítárvöllum með síðasta
skipi. Það seldist á 100 sh. cwt, eða
83 au. u netto; gerir með verðlaun-
um 93 au.
Höfn fyrir Reykjavík. Sam-
kvæmt áskorun frá kaupmannaráði
Reykjavíkur hefir bæjarstjórnin veitt
4000 kr. til að fá skozkan eða norsk-
an hafnar-verkfræðing til að rannsaka,
hvar tiltækilegast sé að gera höfn
fyrir Reykjavík og áætla kostnað.
Jarðarför Páls Ólafssonar fór fram
3. þ. m.
Veðurathuganir
i Reykjayík, eftir Sigrídi Björnsdóttub.
Jan. 1906 Loftvog millim. d í *o Sh *c o > &> a S*-» GG a . S s -►5 S
Pi 4. 8 741,9 1.7 N 1 4
2 745,3 1,3 NW 1 3
9 748,7 0.6 0 5
Fö 5. 8 749,4 0.6 NNE 1 4
2 749,8 0.8 NE 1 5
9 749.4 0.7 NE 1 10
Ld 6. 8 749,4 0.0 0 9 4,43
2 749,9 —0.4 NE 1 5
9 747,9 —0,3 NE 1 10
Sd 7. 8 741,4 1.5 NE 1 10 0,3
2 739,9 2,7 NE 1 10
9 7 2.7
Má 8. 8 730,4 2.3 E 1 10 4,5
2 730,8 2.9 SE 1 7
9 728,5 SE 1 9
Þr 9. 8 729,1 2.5 0 10 4,8
2 728.6 2.9 NE 1 10
9 727.8 1,5 0 10
Mi 10. 8 730.2 2.3 0 9 6,35
2 734,4 —0.4 NW 1 6
9 736,5 - 1,0 SW 1 4
SAMKOMUHÚSIÐ
BETEL
við Ingólfstræti og Spítalastig.
Samkomur verða haldnar framvegis
eins og hér segir:
Sunnuaaga: Kl. 2 e. h. Sunnudagaskóli.
Kl. ö1 /s e. h. Fyrirlestur. Miðvikudaga:
Kl. 8. e. h. Biblíusamtal. Laugardaga:
Kl. 11 f. h. Bænasamkoma og biblíulestur.
Kirkjusálmasöngsbókin verður viðhöfð.
Allir velkomnir á samkomurnar. [tf.
Vinsamlegast 1 >. Östíund.
Kaupendur Hauks hér í bænura, sem
hafa haft bústaðaskifti og ekki fengið síð-
ustu tölublöðin, geri svo vel að vitja þeirra.
á afgreigslustofu Hauks.
$laðbera
2—3 vantar „Reykjavík", unglinga
eða fullorðna. Góð borgun.
Gefi sig fram í Afgreiðslunni.
„FRA1“
heldur fund Fimtud. 25. þ. m. í G. T,-
húsínu. Jón Ólafsson talar um fast-
eignaskattskenning H. George.
eru áskrijenður „Keykja-
víkur“ í bxnum nú, 175
i /rnessýslu, 111 i Kang-
árvaliasýslu o. s. jrv.